Dagur - 24.11.1950, Síða 2

Dagur - 24.11.1950, Síða 2
2 D A G U R Föstudaginn 24. nóvember 1950 Koanmúnister og ufanrikismál Utanríkisstefna smáþjóðar. Virðing smáþjóða er jafnan mjög undir því komin, hvernig sambúð þeirra og framkoma við aðrar þjóðir er. Utanríkismál eru viðkvæm og örlagarík, sérstak- lega á róstutímum. Litlar þjóðir verða að sýna stillingu og skap- festu og leggja áherzlu á vinsam- leg viðskipti við allar þjóðir. Á sama hátt, sem þýðingarlausar móðganir í garð þjóða eru háska- legar, er og undirlægjuhátturinn og þrælslundin. Því er það hættulegt sjálfstæði smáþjóða, ef flokkar sem þjóna og tilbiðja er- lend stjórnarvöld, ná um of áhrifaaðstöðu. Slíkir flokkar og einstaklingar hljóta að verða varhugaverðir fyrir sjálfstæði smáþjóða, sér- staklega ef við bætist virðingar- leysi og andúð í garð ríkjandi stjórnarforms. Utanríkisstefna smáþjóðar á að vera í því fólgin að efla vinsam- lega sambúð við aðrar þjóðir. Sambúð, sem byggð sé á virðingu fyrir grundvallaratriðum jafn- réttis og sjálfsákvörðunarréttar þjóðanna. Afstaða kommúnista á ýmsum tímurn. Um áramótin 1940 var samið við Breta um viðskiptamál. Um þessa samninga ræddi Þjóðviljinn 25. jan. 1940 undir svohljóðandi fyrirsögn: „Utanríkisverzlun ís- lands sett undir leynilegt eftirlit brezku ríkisstjórnarinnar. 4 ís- lendingar, sem Bretar treysta, eiga að hafa yfirumsjón með út- flutningnum, til að hindra, að vörur komist til Þýzkalands“. Nokkrum dögum síðar, 28. jan. 1940, hefur Þjóðviljinn enn fært sig upp á skaftið. Þá segir hann um brezku samningana: „Ut úr vandræðum þeim, sem þjóðstjórnin hefur sett ísland í með framferði sínu, er aðeins ein ieið: að samningar séu tafarlaust teknir upp við Þjóðverja." 22. maí segir Þjóðviljinn: „Hér á íslandi verða sósíalistar að gera sér fullljóst, að þeir geta hvorug- um hinna stríðandi aðila óskað sigurs.“ 31. jan. 1941 segir Þjóðviljinn: „Sigur annars hvors stríðsaðilans er ósigur verkalýðsins og menn- ingarinnar." 22. jan. 1941 segir Þjóðviljinn: „Væri landið í slíku ásigkomu- lagi að geta varið sig, væri ísland nú í stríði við England eins og Noregur við Þýzkaland.“ Þessar tilvitnanir sýna glögg- lega, hvernig afstaða höfuðmál- gagns kommúnista hér á landi markast af aðstöðu og afstöðu Rússa. Á tímum griðasáttmálans milli Rússa og Þjóðverja segir Þjóð- viljinn 31. jan. 1941: „Ekkert handtak, sem unnið er fyrir hinn brezka innrásarher, er þjóðinni í hag. Ef slík hagnýting vinnu- aflsins er ekki glæpsamleg, þá er alveg óþarfi að vera að burðast með það orð í ísl. orðabókum." Einar Olgeirsson sagði í eld- liússdagsumræðunum þann sama vetur, að ríkisstjórnin hefði rek- ið verkamenn „til að vinna hjá innrásai-hernum störf, sem hverj um íslendingi er raun að sjá unn- in hér og flest öll eru landi og lýð til tjóns eða a. m. k. einskis nýt.“ Það gefur glögga mynd af línu- dansi kommúnista, að litlu síðar, þegar Rússar voru komnir í stríð- ið, þótti þeim allt um van, sem áður var um of. Þann 19. maí 1942 sagði Þjóðviljinn: „Þeir, sem hamast nú gegn landvarnavinnunni á Islandi eru að vinna í þágu Quislings og Hitlers." Meðan griðasamningar voru milli Rússa og Þjóðverja skriðu íslenzkir kommúnistar flatir fyrir nazistunum og sýndu þeim, sem á örlagastundu böjrðust fyrir frelsi þjóðanna enga samúð. En griðrofin höfðu ekki fyrr oi'ðið, en öllu var snúið við. Þá var deilt með hófleysi og frekju á íslendinga fyrir samúðarleysi í garð Bandamanna Á aðfangadag jóla 1942 segir Þjóðviljinn: „Á vinum fasismans að takast að setja smánarblett á íslenzku þjóðina? Þessir böðlar mannkynsiixs fara fram úr öllu því, sem veröldin áður hefiur séð af grimmd. Öll vei'öldin mótmælir. Allt hið sið- aða mannkyn lýsir hatri sínu og fyrirlitningu á þessum níðingum. En á íslandi er þagað. Þegar Sósíalistafl., — eini flokkurinn, sem alltaf hefúr haft ákveðna stefnu í utanríkisihálum íslend- inga, — sýnir fi-am á, hver nauð- íslendingum sé á því, að skei'a upp úr um með hvorum samúð þeiri-a sé í frelsisstríðinu gegn fasismanum. . . . “ Þessi „ákveðna" stefna komm- únista í utanríkismálum var svo undirstrikuð með því, að þeir vildu segja möndulveldunum stríð á hendur. í samræmi við þetta segir Þjóð- viljinn* . „Þeir (þ. e. sósíalistar) vildu viðui'kenna, að þjóðin sé raun- verulega í stríði, og hafi háð það og viljað heyja það með hverjum þeim tæk.jum, sem hún ræður yf- ir.“ Og enn segir Þjóðviljinn: „Ríkið verður að vera „í ófriði" við eitt eða fleiri af möndulveld- unum.“ Það er ógei'ningur að skýra þessar sífelldu stefnubreytingai' á annan hátt en þann, að stefna kommúnista á þessum tíma mót- aðist af afstöðu Rússa til nazista. Meðan griðasáttmálinn var milli Þjóðvei-ja og Rússa voi'u Banda- menn hundeltir í Þjóðviljanum og krafizt stuðnings við Þjóð- vei'ja. En eftir að Þjóðverjar réð- ust á Rússa vildi Þjóðviljinn láta ísland segja Þjóðverjum stríð á hendur. Eftir stríðið hefur enn verið stýi't eftir línunni. Þegar Marshall-aðstoðin, sem Rússar voru mjög andvígir, var fi-amkvæmd, linntu ísl. kommún- Yerðlagsmáíin: Neyfendur þurfa að fylgjast með verðlaginu Upplýsingar frá verðgæzlustjóra Með lögum nr. 35, frá 25. apríl þessa árs, er gerð sú höfuðbreyt- ing á verðlagseftirlitinu, að neyt- endasamtökunum er að verulegu leyti fengið í hendur það verk- efni, að sjá svo um, að þau verð- lagsákvæði, sem Fjárhagsráð set- ur á hverjum tíma. séu haldin, að svo miklu leyti sem slíkt er mögulegt. Ennfremur eru með- dómendur í Verðlagsdóm til- nefndir af fulltrúum sömu sam- taka í öllum kaupstöðum lands- ins. Verðgæzlunefnd skipa eftir- taldir fulltx'úar hinna ýmsu sam- taka: Fyrir Alþýðusamband fslands: Jón Sigurðsson, og er hann for- maður nefndai'innar. Fyx-ir Bandalag i'íkis og bæja: Þoi-vald- ur Ái'nason. Fyrir Fai-manna- og fiskimannasamb. íslands: Guðm. Jensson. Fyrir Kvenréttindafé- lagasamband íslands: Frú Guð- rún Pétursdóttir. Fyrir Lands- samband iðnaðarmanna: Einar Gíslason. Fyrir Landssamband ísLenzkra útvegsmanna: Sverrir Júlíusson. Fyx-ir Stéttarsamband bænda: Sveinn Ti'yggvason'. istar aldrei látum við að afflytja hana. Rússar voru mjög andvígir stofnun Atlantshafsbandalagsins. Sömuleiðis allir kommúnistar um allan heim. í Kóreustyrjöldinni draga kommúnistar taum Rússa gegn Sameinuðu þjóðunum o .s. frv. Hinn rússneski veðurviti. Eins og bent hefur verið á hér að framan stýra kommúnistar eftir rússneskum áttavita í utan- ríkismálum. Kommúnistar um allan heim reka nú áróður fyrir friði, samkv. skipun eða pöntun. Á sama tíma herja herir þeirra á hvei’ja þjóð- ina eftir aði'a. íslendingar hafa séð og skilið tilgang kommúnista. Þeir eru því fráhverfir því að leggja framtíð íslands í hendur stjórnmálamanna, sem ekki er sjálfrátt, sem eru fjötraðir af framandi stórveldi. Gæfa þjóðarinnar. íslenzka þjóðin ber gæfu til að hafna hentistefnu kommúnista og taka sess meðal lýðræðisþjóð- anna, sem vilja í'aunverulega leysa milliríkjadeilur sínar á friðsamlegan hátt, þannig, að heimsfriði, öryggi og réttvísi sé ekki stofnað í hættu, sem vilja varast hótanir um valdbeitingu eða beitingu valds gegn landa- mærahelgi eða stjórnmálasjálf- stæði nokkurs ríkis. En lýðræðis- þjóðirnar virða gi-undvallarregl- una um fullvalda jafnræði ríkj- anna. Á því byggist framtíð lýð- frelsis og sjálfstæðis íslands. T. A. Mér er óhætt að segja, að það er áhugamál þessara fulltrúa og viðskiptamálaráðherra, að eftir- litið sé sem allra bezt. Það, sem enn vantar á, er að almenningur, bæði meðlimir áð- urnefndra samtaka og aðrir neyt- endur, myndi samfylkingu gegn þeim, sem vilja auðga sjálfa sig á því, að brjóta þær reglur, sem settar hafa verið og það einmitt nú, þegar kaupgeta almennings er minnkandi, en vöruþurrð hins vegar vaxandi. Þau verkefni, sem skrifstofu verðgæzlustjóra er falið að leysa eru: I. Almennt eftirlit með verð- laginu. H. Skýrslugerð til Fjárhagsráðs um samanburð á verðlagi og gæðum íslenzkra iðnaðarvara og sams konar vara, sem hægt er að fá erlendis frá. III. Staðfesting á verðútreikning- um yfir erlendar vörur. Möguleikar til eftirlits. Eg vil hér endurtaka það, sem eg minntist á áður, að Fjárhags- ráð, eða sá, sem það til þess nefnir, tekur ákvarðanir um verðlagningu á vörum, bæði há- marksálagningar, „prósentu", á innfluttum vörum, svo og ákveð- ið verð á innlendum framleiðslu- vörum í hverju tilfelli. Eftirlitið er margháttuðum erf- iðleikum háð. Ymsir hafa látið þau orð falla, að þýðingarlaust sé að tilkynna auðsæ verðlagsbrot, því að slíkar athugasemdir séu sjaldan teknar til greina. Þetta er hreinn misskilningur og eg vil leggja áherzlu á þetta atriði. í þessu sambandi vil eg benda á 9. gr. í hinum nýju lögum um verð- lagseftirlit, seni eg vísaði til í upphafi: Verðgæzlustjóri og þeir, sem með verðlagseftirlit fara sam- kvæmt lögum þessum, geta krafið hvern sem er allra þeirra upplýsinga, skýrslna og ann- arra gagna, er þeir telja nauð- syn í starfi sínu, enda hvílir á þeim þagnarskylda um þau atriði, er þeir komast að í greindu starfi, og er þeim bann að að skýra óviðkomandi frá því, að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum alm. hegningarlaga um opinbera starfsmenn. Og ennfremur 19. grein sömu laga, sem er þannig: Hver sá, er vanrækir að láta Fjárhagsráði, verðgæzlustjóra eða embættis- og staifsmönn- um þeim, sem þessir aðilar til þess setja, í té skýrslur þær, er honum er skylt að gefa sam- kvæmt ákvæðum laga þessara, skal sæta 20—200 króna dag- sektum. Sá, sem gefur sömu aðilum rangar skýrslur vísvit- andi eða vegna vítaverðs gá- leysis, sæti refsingu samkv. XV. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19, frá 1940. Brot gegn öðr- um ákvæðum laga þessara, reglum eða samþykktum, sett- um samkvæmt þeim, varða sektum allt að 200 þús. kr. Ef miklar sakir eru eða afbrot ítrekað, skal sökunautur sæta varðhaldi eða fangelsi allt að 4 árum og sviptur atvinnurétti um stundarsakir eða fyrir fullt og allt. Upptaka eigna sam- kvæmt 69. gr. almennra hegn- ingarlaga skal heimil vera. Samvinna við innflytjendur og neytendur. Nú vil eg taka að skýrt fram, að eg óska mjög eindregið eftir samvinnu við samtök innflytj- enda, einstaka innflytjendur og alla þá, sem annast dreifingu á vörum og vildi eg í þessu sam- bandi minna á, að mjög er nauð- synlegt að innflytjendur skili sölunótum reglulega í byrjun hverrar viku. Það sama á við um þá, sem framleiða vörur til sölu í smásöluverzlanir. Ennfremur þurfa þeir, sem selja framleiðslu sína í umboðssölu til heildsala, að tilkynna magn og verð til skrif- stofunnar. Þessi nótuafrit eru í raun og veru undirstaða undir hið daglega eftirlit frá hendi skrifstofunnar og treysti eg á góða samvinnu við hlutaðeigandi í þessu efni og að þessi gögn verði send inn reglulega. Um þetta atriði vísa eg til tilkynningar frá verðlagsstjóra nr. 8/1947. Brot á þessari reglu verður litið á sem venjulegt verðlagsbrot. Það, sem eg vil biðja alla neyt- endur um, er að láta skrifstofuna eða trúnaðarmenn tafarlaust vita þegar þeir verða varir við verð- lagsbrot og reyna að staðfesta umkvörtun sína, annað hvort með reikningi eða á annan hátt. Slíkar upplýsingar verða tafar- laust teknar til athugunar og brotið kært til verðlagsdóms, ef um sök reynist vera að ræða. Ef fólki finngt einhver vöru- tegund vera óeðlilega dýr, er al- veg sjálfsagt að hringja til skrif- stofunnar og fá upplýsingar um hvað verðið eigi að vera. Við er- um einmitt hérna til þess að gefa slíkar upplýsingar, enda erum við fulltrúar neytendanna í þess- um málum og tilnefndir af þeirra samtökum, og leyfum okkur því að vænta fyllsta stuðnings til að framkvæma þau verk, sem okk- ur hefur verið falið að vinna. Viðskipti utan verzlana. Nú er það staðreynd, sem ekki þýðir að loka augum fyrir, að ýmiss konar sala fer fram utan við hinar reglulegu verzlanir, þ. e. a. s. svartur markaður. Þessi viðskipti eru satt að segja und- arlega opin fyrir hvern sem hef- ur peninga til að kaupa og auð- vitað þroskast þessi verzlun bezt þegar vöruvöntun er, eins og nú. Mest er þannig selt af ýmsum nauðsynjum, sem lítið er til af í verzlunum og svo ýmiss konar glingri og skrautvörum, sem er fallegt fyrir augað en oftast ónýtt eða lélegt. Verðlagseftirlit- ið veit um nokkra menn, sem (Framh. á 7. síðu).

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.