Dagur - 17.01.1951, Blaðsíða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 17. janúar 1951
Stjórn Laxárvirkjunarinnar býður
út 5 milljón kr. skuldabréfalán
Sala bréfanna hófst í gær um land allt
Lýðræðissinnar fylkja liði gegn
kommúnisfum í Verkamanna-
félagi Ákureyrarkaupsfaðar
Kosning stjórnar og trúnaðarmannaráðs
fer fram um lielííina
f gær auglýsti stjórn Laxár-
virkjunarinnar útbo'ð 5 milijón
króna handhafa skuldabréfaláns
til þess að standa straum af inn-
lendum kostnaði við Laxárvirkj-
unina. Samtímis auglýsti stjórn
Sogsvirkjunarinnar útboð 18
milljón króna láns, til virkjunar
Sogsins. Ríkið og kaupstaðirnir,
sem að virkjununum standa, þ. e.
Reykjavík og Akureyri, eru í
ábyrgð fyrir lánum þessum .
6% lán til 15 ára
Lánin eru 6% lán, til 15 úra,
og eru þriggja ára vextir greiddir
strax við kaup bréfanna. Bréfin
eru 300 ki'óna, 1000 króna og 5000
króna bréf. Verða þau til sölu í
öllum bönkum og sparisjóðum,
hjá rafveituskrifstofum og öðrum
aðilum, sem auglýstir kunna að
verða. Framkvæmdastjórn út-
boðsins er sameiginleg fyrir bæði
lánin og hefur Magnús Jónsson
Blaðið hetfur áður greint frá
helztu niðurstöðum fjárhagsáætl-
unar bæjarins, eins og hún var
til umræðu. Áætlunin var á dag-
skrá bæjarstjómar í gær, til síð-
ari umræðu.
Bæjarráð lagði 'fyrir þennan
fund nokkrar tillögur til breyt-
ingar á áætluninni, og er heildar-
niðurstaða þeirra, að áætluð út-
svör lækka um 82 þús. kr., verða
kr. 6.557.000,- en voru um kr.
6.635.000.00 áður.
Aðalbreytingin er sú, að í stað
þess að taka lán til Laxárvirkj-
unar — 500 þús. kr. — að öllu
leyti upp á gjaldahlið áætlunar-
innar, var ákveðið að láta þar í
móti koma lántöku 250 þús. Með
þessu móti varð unnt að hækka
framlög til nokkurra mála og
bæta nýjum við, án þess að
hækka útsvörin.
Nýir liðir.
Helztu nýir liðir eru framlag
til vinnuskóla fyrir ungmenni 75
þús., og til viðhalds og endurbóta
á íþróttahúsinu 40 þús. Breyting-
ar eru helztar þessar: Til fegrun-
ar í bænum, hækkar úr 86 þús. í
100 þús., styrkur til berklavarna-
stöðvar hækkar úr 5 þús. í 6 þús.,
styrkur til vinnumiðlunarskrif-
stofu 20 þús., fellur niður, sömu-
leiðis kostnaður við úthlutun
matvælaseðla, til verkfærakaupa
verði varið 150 þús. í stað 50 þús.
lögfræðingur í Reykjavfx verið
ráðinn til að annast hana. Á
Norðurlandi annast Tómas Árna-
son lögfræðinguf dreifingu bréf-
anna og er umboðsmaður lántak-
anda.
Þess er vænst að sölu bréfanna
verði lokið fyrir 15. febrúar n. k.
Ekki þarf að fjölyrða um, hvert
nauðsynjamál er hér á ferðinni.
Aukning orkuveranna er eitt hið
mesta framfaramál, sem nú er á
döfinni. Þótt ' erlend aðstoð sé
fengin til þess, er eftir okkar
hlutverk, að sjá um greiðslu inn-
lends kostnaðar og má ekki minna
vera en að það gangi greiðlega.
Lán þetta er með svo hagkvæm-
um skilmálum, að tvímælalaust er
hagkvæmt fyrir fólk, sem á spari-
fé á vöxtum, að kaupa bréfin.
Er þess vænst, að undirtektir
manna hér á Akureyri og í ná-
grenni bæjarins, sem væntir raf-
magns frá orkuveitunni, verði
góðar.
Albert Schweitzer er
„maður aldarinnar“
að dómi listamanna
National Art Foundation í
Bandaríkjunum, en að stofnun
þessari standa listamenn í 17
löndum, beitti sér nýle'ga fyrir
því, að lisíamenn í þessum lönd-
um veldu 10 merkustu menn ald-
arinnar, og skyldi sá, er flest at-
kvæði hlyti, hijóta nafnbótina
„maður aldarinnar". Flest at-
kvæði hlaut rithöfundurinn, or-
gelleikarinn, trúboðinn og mann-
vinurinn Albert Schvveitzer. —
Hann er frá Elsass — en hefur
dvalið mesta hluta ævinnar í Af-
ríku, við mannúðarstörf. Hann er
heimsfrægur rithöfundur og
hljómlistarmaður. Schweitzer er
nú 74 ára, og starfar enn sem
læknir og trúboði í Afríku.
Afbragðs sala hjá
,.Jörundi“ í gær
Togarinn Jörundur seldi afla
sinn í Grimsby í gær, ca. 2400 kit,
fyrir 10.263 sterlingspund, .og er
þetta afbragðssala. Yfirleitt hafa
íslenzku togararnir selt ágætlega
að undanförnu, en sölur Akur-
eyrartogaranna hafa verið hæst-
ar, sem kunnugt er.
Segir friðarhorfur
vænlegar
Harold E. Stasscn, hinn kunni
stjórnmálamaður í Bandaríkjun-
um, og líklegt forsetaefni, kom
hcim til Bandaríkjanna í síðustu
viku, eftir ferðalag til Evrópu og
Asíu. Hann kom fréttamönnuin á
óvart er hann sagði þeim, við
komuna til Washington, að hann
teldi friðarhorfur betri nú en
nokkru sinni fyrr sl. þrjú ár, og
mundi brátt sjást, að Rúesar
mundu ekki halda heimsvalda-
stefnu sinni til streitu, heldur
slá af.
Erlend flutningaskip
lesta karfamjöl - losa
timbur
í gær komu hér tvö erlend
flutningaskip. E.s. Armira,
finnskt skip, lestar karfa- ög
upsamjöl til Hollands, á vegum
Síldarverksmiðja ríkisins. Skip-
ið lestaði um 400 lestir á Dag-
verðareyri, tekur um 690 lestir
frá Krossanesi, og lestar síðan á
Hjalteyri og í Siglufirði. Þá er
enska skipið Reykjanes hér að
lisa timbur, til KEA og SÍS.
Meiri snjó hefur kyngt niður
hér slóðir að undanfömu en
komið hefur í mörg ár, og er nú
geysilegt fannfergi alls staðar hér
um slóðir og mun svo vera um
allan Norðlendingafjórðung og
eiimig á Austurlandi.
Samgöngur yfir fjallvegi hafa
alveg stöffvast, og víða innan liéraða
cimiig. Hér í Eyjafirði hefur verið
reynt að halda helztu vegum opnum
með snjóýtum, og hefur það tekizt
að nokkru leyti, en aðrir vegir eru
ófærir með öllu. Ef enn snjóar má
húast við aff bifreiðir stöðvist al-
veg um héraðið því að snjógöngin,
sein ýturnar hafa gert, eru nú mann-
hæðar há og þar yfir, og mun
reynast erfitt að ryðja snjó úr þeim
ef verulega snjóar í þau.
Kosning stjórnar og trúnaðar-
mananráðs Verkamannafélags
Akurcyrarkaupstaðar fer frarn á
föstudag, laugardag og sunnudag
næstkomandi, en aðalfundur fé-
lagsins verður haldinn að kosn-
ingunni lokinni á sunnudaginn.
Frestur til að skila listum er
útrunninn um hádegi f dag, og er
vitað, að tveir listar koma fram,
listi lýðræðissinna og listi
kommúnista, sem stjórnað hafa
félaginu undanfarin ár.
Er þess að vænta að lýðræðis-
sinnarœtandi fast saman um lista
sinn. Miðað við atkvæðatölur frá
sl. hausti, er nú svo komið að
kommúnistar eru að missa tök á
Verkamannafélaginu og ætti að
vera unnt að steypa flokksyfir-
ráðum þeirra þar, ef lýðræðis-
sinnaðir verkamenn sækja kosn-
inguna fast og reyna að vinna
lista sínum allt það fylgi, er þeir
mega.
Listi lýðræðissinna.
Á lista lýðræðissinna eru þessir
menn, til stjórnarkjörsins: Stef-
án Árnason, Norðurgötu 15,
formaður, Torfi Vilhjálmsson,
Eyrarvegi 25, ritari, Eirikur Ein-
arsson, Hólabraut 22, gjaldkeri,
meðstjórnendur Haraldur Þor-
valdsson, Munkaþverárstræti 30,
og Hjörleifur Hafliðason, Þór-
unnarstræti 122. Til trúnaðar-
mannaráðsins stilla lýðræðissinn-
ar þessum mönnum upp: Árni
Þorgrímsson, Stefán Aðalsteins-
son, Konráð Sigurðsson, Stefán
Hólm Kristjánsson, Björn Ein-
Tekizt hefur að fl.vtja næga
mjólk til bæjarins.
Enn sem komið er liefur tekizt
aff flytja næga mjólk til bæjarins
frá nærliggjandi sveitum, en ekki
án mikilla erfiðleika fyrir bændur
og nijólkurflutninga bílstjóra. Bíl-
arnir úr Saúrbæjar- og Hrafnagils-
hreppum voru t. d. 18 tíma á leið-
inni, lógðu al stað nteð ýtu framan
að kl. 6 á ntánudagsmorguninn,
en komu í bæinn um liádegi í gær.
Betur hefur gengið að flytja úr
Öngulstaðahreppi, og úr Arnarnes-
hreppi mun ltafa komið bíll í gær.
Af Svalbarðsströnd er ntjólkin flutt
sjóveg, en bílar voru í gær að reyna
að brjótast frá Dalvík, en óvíst að
það takist.
Haglaust er nú með öllu ltér um
slóðir og sést hvergi á dökkvan díl.
Er útlitið harðindalégra en verið
hefur um mörg undanfarin ár.
arsson, Kristinn Árnason, Gunn-
ar Aðalsteinsson, Baldvin Sig-
urðsson, Anton Magnússon, Jak-
ob Böðvarsson, Benedikt Valdi-
marsson, Daníel Guðjónsson.
Listi kommúnista.
Kommúnistar stilla upp
hreinum flokkslista, og skipa
hann þessir menn:
í stjórn: Björn Jónsson, formað-
ur, Guðmundur Baldvinsson,
ritari, Svavar Jóhannesson,
gjaldkeri, meðstjórnendur Hösk-
uldur Egilsson og Gestur Jó-
hannesson. 1 trúnaðarmannaráð
stilla kommúnistar upp þessum
mönnum: Jóhannes Jósefsson,
Loftur Meldal, Steingrímur Egg-
ertsson, Sigurjón Jóhannesson,
Stefán Eiríksson, Olafur Þórðar-
son, Ólafur Aðalsteinsson, Ágúst
Ásgrímsson, Þorsteinn Jónatans-
son, Rósberg G. Snædal, Björg-
vin Einarsson og Kristinn Árna-
son.
Þrír vélbátar hafa
fengið leyfi til að
kaupa fisksjá
Fiskisjá heitir nýjasta tækið
sem notað er til þess að leita að
j fiski í sjónum, og þykir það taka
öðrum slíkum tækjum fram. Hef-
ur áður verið greint frá tæki
þessu hér í blaðinu. Er það þýzki
að uppruna. Nú hafa gjaldeyris-
yfirvöldin veitt þremur fiskibát-
um hér á landi leyfi til að kaupa
slík tæki. Eru það vélbátarnir
Hólmsteinn frá Stokkseyri og
Gotta og Jötunn í Vestmannaeyj-
um. Umboðsmenn fiskisjáarinnar
hér á landi eru Sturlaugur Jóns-
son & Co. í Reykjavík og Bryn-
jólfur Sveinsson h.f., Akureyri.
Kaffið lengi á leiðinni
frá Reykjavík
Kaffiskipið Selfoss, sem kom til
Reykjavíkur 6. þ. m., er nú á
leiðinni hingað, með kaffi það,
sem hingað kemur, og er lengi á
leiðinni. Mun skipið koma hér á
morgun í fyrsta lagi. Ef áhugi
hefði verið fyrir því hjá forráða-
mönnum Eimskipafélagsins,
hefðu þeir auðveldlega getað
flýtt kaffisendingunni, t. d. með
því að senda eitthvað af kaffinu
með strandferðaskipunum, eða
hraða meira för Selfoss. Ef Sam-
bandið hefði haft sama snið á
siglingum Arnarfells fyrir jólin
og Eimskip hefur nú á för Selfoss,
mundu appelsínumar hafa kom-
ið hingað um nýársleylið.
Útsvörin endanlega áætluS sex og
hálf inilljón - 84 þús. lækkun
frá fyrri áætlun
Geysilegf fannfergi norðanlands
Samgöngur stöðvast- haglaust með öllu
víðast hvar