Dagur


Dagur - 04.04.1951, Qupperneq 2

Dagur - 04.04.1951, Qupperneq 2
2 D A G U R Miðvikudaginn 4. apríl 1951 Aukið fjármagn ti! landbúnaðar (Framhald af 1. síðu). 6. Að boðin séu út handa Bygg- ingarsjóði og Ræktunarsjóði lán innanlands með þeim kjörum, að kaupendum skuldabréfanna verði tryggð greiðsla þeirra með sama verðgildi gagnvart landbúnaðar- framleiðslu og er á þeim tíma, sem skuldabréfin eru keypt. 7. Að framlag ríkissjóðs til Ræktunarsjóðs sé aukið svo sem nauðsynlegt er til greiðslu á vaxtamun þeirra lána, er hann kemur til að veita, og þess láns- fjár, er honum verður aflað. 8. Að stjórn Búnaðarfélags ís- lands, stjórn Stéttarsambands bænda, Nýbýlastjórn ríkisins og Búnaðarbanki íslands skipi sinn manninn hver í fjárfestingar- nefnd landbúnaðarins, sem vinni að því að landbúnaðinum sé ætl- að nægilegt fé til þeirra fjárfest- ingar, sem hér er farið fram á, og tillögur um hvernig það skiptist á milli hinna einstöku lánadeilda. Greinargerð: Búnaðarþing barst erindi frá Stéttarsambandi bænda undirrit- að af Sverri Gíslasyni formanni sambandsins, þar sem lögð var fram rækileg áætlun með grein- argerð um fjárfestingarþörf land- búnaðarins næstu 10 ár og bent á leiðir til að framkvæma þá f jár- festingu. Samkvæmt áætlun þess- ari er fjárfestingarþörf landbún- arins næstu 10 ár 1220 millj. kr. en bent er þó á, að ef til vill mætti lækka þessa áætlun í 1000 millj. kr. og myndi þá fjárfest- ingin skiptist þannig: 1. Bústofnsaukn. (sauðfé fjölg- í að í 700 þús. nautgr. í 60 þús. : þar af. rúmlega 40 þús.' kýr) 120 millj. kr. 2. Ræktun (miðað við fóður handa þessari bústofnsaukn- ingu) 130 millj. kr. 3. Búvélar 230 millj. kr. 4. Ibúðarhús 220 millj. kr. 5. Heygeymslur (vegna aukins heyfengs) 110 millj. kr. 6. Fjós (vegna fjölgunar. naut- gripa) 26 millj. kr. 8. Hesthús og verkfærageymsl- ur 4 millj. kr. 9. Mjólkurbú 4 millj. kr. 10. Sláfur og frystihús 11 millj. kr. 11. Ýmis verkf. og áhöld 10 m. kr. Samtals 1000 millj. kr. Búnaðarþing hefir svo stuttan tíma til umráða og svo mörg mál að afgreiða, að því er ekki fært að grandskoða þessa áætlun í ein- stökum atriðum eða það, hvort hún muni vera að fullu fram- kvæmanleg. En þingið lítur svo á, að hér sé um svo mikilvægt og áríðandi mál ‘að ræða, að eigi verði fram hjá því gengið. Það leggur þvi til, að næstu tvö ár verði fjár-festingu landbúnaðar- ins hagað svo, að höfð sé jöfnum höndum hliðsjón af áætiun þess- ari og þeirri fjárfestingu, sem verið hefir í landbúnaði hin síð- ustu ár. Eftir þeim upplýsingum er Búnaðarþing hefir aflað sér, hefir fjárfesting í landbúnaði árið 1950 verið um 50 millj. króna, og er þá eigi með talin sú fjár- festing, sem orðið hefur við kaup á landbúnaðarvélum. Þetta svarar til a. m. k. 70—80 millj. kr. fjár- festingar miðað við núgildandi verðlag, og er 1. liður ályktunar- innör við þetta miðaður. Lítur Búnaðarþing svo á, að ekki muni vera rétt að spenna bogann hærra eins og afkomu landbúnaðarins er riú komið, enda muni verða unnt að, auka fjárfestinguna eft- ir því sem framleiðslan vex og verði á þann hátt unnt að ná því marki, sem áætlunin setur, á 10 árum, þó að eigi sé gert ráð fyrir meiri fjárfestingu næstu tvö ár en hér er gert. Tillögur Búnaðarþings um út- vegun lánsfjár fjárfestingarinnar eru við það miðaðar, að bændur leggi fram eigið fé til hennar svo sem framast má verða eftir þeim upplýsingum, sem nú eru til um tekjur og eignir bænda- stéttarinnar. Er gert ráð fyrir, að framlag eigin fjár til fjárfesting- arinnar verði sem næst 85—90% til bústöfnsaukningar- innar, 8.5.millj. 75% til ræktunarinnar, 8 millj. 50% til vélakaupa, 9 mihj. 25% til bygginga 11 millj. Lánsfé til ræktunar og bygg- inga er ætlazt til að bændur fái að mestu í Byggingarsjóði og Ræktunarsjóði og þarf að stór- auka starfsfé beggja þeirra sjóða til þess að svo geti orðið. Til þess að bænþur geti fengið sæmilega hagstætt lánsfé til vélakaupa og bústöfnsauknmgar- sér Búnaðar- þing elcki aðra leið en þá, að þeir taki lánin gegn veði í fasteign, og myndi helzta leiðin til þess vera sú að auka; starfsfé Veðdeildar Búnaðarbankans. Sparisjóðir héraðanna myndu og geta lánað nokkuð fé til fjárfestingarinnar, en því aðeins myndu þeir geta staðið við að veita sæmilega hag- stæð lán og hliðstæð þeim, er Byggingarsjóðúr, Ræktunarsjóð- ur og Veðdeild Búnaðarbankans veita, að þeir njóti styrks til greiðslu á vaxtámun. Um öflun starfsfjár til lánstbfn- ana landbúnaðarins er það helzt að segja, að tíllagan um erlent lán er í smræmi við þann undir- búning,"sem þegar er hafinn í því efni,.en tillagan um framlag Mótvirðissjóðs er aðeins um eðli-; lega híutdeild landbúnaðarins í þeim sjóði og í samræmi viS þær upplýsingar er Búnaðarþing hef- ir aflað sér um getu hans. Til- lagan um lögfestingu á því, að hluti sjóða opinberra Trygginga- stofnana og tryggingarfélaga sé ávöxtuð í landbúnaði teluf Bún- aðarþing éðlilega réttlætiskröfu, sem því finnst sjálfsagt að -tekin verði til greina. Urn lánsútboð til handa Byggingarsjóði og Rækt- unarsjóði leggur Búnaðarþing til að farið sé inn á nýja leið, sem tryggi lánveitendur miklu betur en áður hefir verið gert gegn verðfalli lánsfjárins. Þetta er a. m. 1. gert í von um það, að með því verði unnt að afla lánsfjár, er ekki fengist á annan hátt, en jafnframt er hér að hugsuðu máli snúið af þeim vegi, að leggja verðfellingu spai-ifjárins einyörð- ungu á sparifjáreigendur. Fyrir lántakendur er það ekkert á- hættusamara að fá lánsfé á þenn- an hátt en með því að taka er- lent lán í gjaldeyri með stöðugu gangi gagnvart gulli, og á það skal enn bent, að ekki er til þess ætl- azt að hlutur essa lánsfjár sé nema um 1/6—1/5 alls lánsfjár- ins til fjárfestingarinnar. Með þeirri aukningu á starfs- fé því, er Ræktunarsjóði er ætlað með tillögum þessum, er þess ekki til þess að greiða mun á vöxtum ess lánsfjár, er sjóðurinn verður að fá, og þess lánsfjár, er hann kemur til að veita til fjárfesting- arinnar, ef þau lánskjör verða ó- breytt frá því, sem nú er. Bún- aðarþing sér hins vegar enga leið til þess, eir»s og nú horfir um verðlagsmál landbúnaðarfram- leiðslunnar, að bændur hafi efni á þeirri fjáifestingu, sem hér er gert ráð fyrir, nema lánskjör Ræktunarsjóðs haldist eins og þau eru nú. Verður þá ekki und- an því komizt, að auka árlega framlag ríkisins til reksturs sjóðs- ins. Nefnd þeirri, er Búnaðarþing ætlast til að stjórn Búnaðarfé- (Framhald á 5. síðu). I STUTTU MALI ÍSLENDINGURINN Frið- björn Björnsson — ballett- dansari í Kgl. ballettinuni í Kaupmannahöfn, — er í miklu áliti hjá Dönum. Nýlega hlaut Friðbjörn 1000 kr. styrk úr sjóði Nexöe-Larsens, en styrkur þessi er veittur efni- legum listamönnum. ÍTALSKI hljómsveitarstjór- inn Mario Rossi hefur gist Kaupmannahöfn að undan- förnu og stjórnað hljómsveit- um. í sl. viku stjórnaði hann m. a. Kgl. hljómsveitinni, er lék m ,a. ballettmúsík úr „La Giara“ eftir Casellas. Var Ein- ar Kristjánsson óperusöngvari fenginn til þess að syngja sólóhlutverk með hljómsveit- NORSKIR skíðamenn sendu nýlega 10 stóra kassa af snjó sem gjöf til skíðasambandsins í London, og átti að nota snjó- inn við stpkkkeppni á Hamp- stead Heath í London. En þeg- ar ensku skíðamennirnir ætl- uðu að fara að taka á móti snjó sínum, kom tollurinn og hcimtaði 10% tollgjald. Fór málið þá að vandast. Var að lokum leitað sérstakrar heim- ildar frá fjármálaráðuneytinu að undanþiggja scndinguna tolli. DANSKA STJÓRNIN ráð- gerir að láta hefja hlývinnslu í stórum stíl á Grænlandi, í blýnámum þeim er dr. Lauge Koch fann þar sumarið 1948. Stjórnin hyggst verja 10 millj. króna í undirbúning í ár. Ársvinnsla á að geta orðið 25.000 tonn. -K SÍÐASTL. MANUDAG hóf- ust samningaumleitanir milli Dana og Englendiuga um verð á landbúnaðarvörum, er Dan- ir selja Bretum. Danir gera sér nú vonir um að fá. verulega verðhækkun, enda telja þeir henpar mikla þörf. Rekstrar- vörur landbúnaðarins hafa hafa mjög hækkað, en Bretar hafa haldið verðinu niðri og hefur það fært Dönum mikil efnahagsvandræði, að fást við. Vart er þó búizt við því, að Danir fái eins hátt verð og þcir telja sig þurfa. * MATVÆLARÁÐHERRA Austur-þýzku stjórnarinnar kallaði blaðamenn á fund sinn nú laust fyrir mánaðamótin og tilkynnti þeim, að fyrir fram- þróun vísindánna austur þar hefði austurþýzkum vísinda- mönnum tekizt að framleiða þurrmjólk! Sagði hann fram- lpjðsluna mundi hefjast um miðjan apríl. Ráðherrann — dr. Albrecht — tók sérstaklega fram, að heiðurinn af þessari stórmerku uppfinningu ættu austurþýzkir vísindamenn. — Blaðamenn Vcsturlanda spá því að Albreeht muni ekki sitja lengi á ráðherrastóli eftir slíka yfirlýsingu, því að vita- skuld hafi Rússar fundið upp þurrmjólkina fyrir langa löngu, sbr. flugvélina og púðr- ið, f viðtali sínu taldi dr. AI- brecht það ejnn mesta kostinn vjð liina ,nýju(!) uppfinningu, að fólk gæti notað þui'rmjólk á sumrin, þegar annarri mjólk hættir til að súrna. Kommún- istablöðjn eystra töldu þessa síðustu athugasemd ráðherr- ans sérstaklega eftirtektar- verða! Dagskrármál landbúnaðarins: Dráttarvélakaup bænda f hinum ýmsu blöðum landsins i verulegt vinnuafl, sem varla hafa að undanförnu verið stórar kemur til. greina á litla. búinu, auglýsingar um dráttarvélar og! sem hér hefur verið tekið sem landbúnaðarbíla. Hin mörgu heildsölufyrirtæki auglýsa nú hvert í kapp við annað, kosti og ágæti sinna véla. Tilefnið er að þessu sinni, leyfi gjaldeyi'isyfir- valdanna á innflutningi dráttar- véla og landbúnaðarbíla. Þeir, sem hafa áhuga fyrir því að út- vega sér þessi tæki eiga nú kost að velja milli margra gerða af vélum. En hvað er það, sem bændur eiga að athuga, þegar þeir hafa í huga að kaupa t. d. dráttarvél? Margir segja e. t. v., bæði kaupendur og seljendur: Sjálfsagt er að kaupa, þar sem hestaflið er ódýrast og ekki skal því neitað, að það er mjög þýð- ingarmikið atriði, en eg held þó að fleira þurfi að hugleiða, þegar um slík vélakaup er að ræða. Eg vil nefna mér m. a. þrjú atriði, sem hver væntanlegur vélakaup- andi ætti að athuga: Til hvers á að nota dráttarvélina, hver er bú- stærð bóndans, og hvernig er landið, er það flatt eða bratt? Ef um lítið býli er að ræða með lítilli áhöfn, t. d. 10 kýr, 50 kind- ur eða 100 til 150 kinda fjárbú og 2—4 nautgripir, þá ber slík bú- stærð ekki mikinn aflvélakost né aðkeypta vinnu, er að mínum dómi mjög vafasamt fyrir bónda með þessa framleiðslumöguleika að kaupa dráttarvél eða landbún- aðarbíl, til þess að láta búið standa undir rekstri hans. Sé-það hins vegar svo, að bóndi með þessa bústærð hafi peninga til að kaupa dráttarvél, þá er það veru- legt atriði fyrir hann að fá sér dráttarvél, sem hægt er að nota með hægu móti við öll heimil- isstörf nema grófari jai'ðvinnslu. Vélin verður að vera sparneytin, létt og lipur í snúningum, svo að slíkt bú geti sparað sér 1—2 hesta og haft þá t. d. 1 kú fleira eða 15 til 20 kindum. Hvaða vit væri t. d. í því fyrir bónda með þessa bústærð að kaupa IHC W 4 eða Fordsondráttarvél? Báðar þessar tegundir af di'áttarvélum eru að vísu ágætar vélar, sérstaklega við jarðvinnslu, en eru allt of eyðslufrekar við léttari vinnu, s. s. mjólkui-keyrslu, heyvinnu o. fl. Vinnustundafjöldi á þetta litl- um búum yrði að tiltölu alltaf fremur lítill. Yrði því kostnaður á hverja vinnustund all mikill, því að auk benzíns, smurolíu, viðhalds, viðgerða o. fl, verður að sjálfsögðu að afskrifa vélina og getur afskrift varla verið minni en 6—10% af kostnaðar- verði. , Eg áh't að 8—12 hestafla vélar munu hæfa þessari bústærð, ef á annað borð á að hafa dráttarvél. Ef til vill kynni einhver að skjóta því hér inn: Því ekki að kaupa dráttarvél og stækka síðan búið eftir þörfum. í þessu sambandi má því til svara, að. þrátt fyrir ágæti dráttarvéla, er geta þeirra takmörkuð og eigi að stækka bú, þarf fleira til en fjölgun búpen- ings. Það þarf bæði byggingar og ræktun, en hvort tveggja þetta kostar peninga og tekur tíma og 'spurningin verður því sú, hvort ekki sé í ,raun og veru réttast að skapa sldlyrðin fyrir dráttarvél- iua með aðstoð hesta, áður e« hún er keypt, Jaj-ðvinnslu má þá framkvæma af vélakosti félags- samtaka bænda. Þegar um stærri bú er að ræða, t. d. 20—40 nautgripi eða .350 til 500 fjár, er langtum meiri vinna fyrir dráttarvél, heldur en á litlu búi, og hún myndi geta sparað .dæmi, Það.hefur líka möguleika til að bera stærri vélar og mundu 16—18 hestafla vélar vafalaust vera af hentugri gerð. Þi-iðja atriðið, sem eg nefndi hér áður, er það, hvernig rækt- Unarlönd liggja. Séu túnin brött, vei-ður að jafnaði að velja stærri vélar, til þess að þær geti af- kastað þeim störfum, sem fyrir liggja á eðhlegan hátt. Þar sem tún eru jafnlend geta minni vél- ar leyst sömu vinnu af hendi jafn léttilega og stæn-i vélar. Þá má ekki gleyma því, að samtímis og di-áttai-vél er keypt, verður einnig að kaupa tilheyr- andi vinnuvélar eins og sláttuvél, vagn, aðrar heyvinnuvélar o. fl. Eru vélar þessar og tæki venju- lega nokkru dýrari en hliðstæð hestaverkfæi-i. Ekki er það meining mín að i-áða bændum almennt fiá því að kaupa dráttarvélar eða landbún- aðai-bíl, og í stað þess að nota hesta við bústöi-fin. Það, sem eg vildi benda á, er að hagfræðilega séð þarf bóndinn að athuga sinn gang og sína aðstöðu til fram- leiðslu, áður en hann ræðst í að kaupa dráttarvél. Það verður að gera þá kröfu, að bændur hafi hliðstæð laun fyi-ir sína vinnu og t. d. verka- maður eða iðnaðarmaður, og í raun og veru eiga bændur að hafa hærri laun, vegna mikilvægi starfsins, birgða og stjórn bús? ins. Á rpóti þessari kröfu verður líka að gera á kröfu til þeirra, að sýnd sé hagsýni í hvívetna með allan í'ekstur búsins og fi-am- leiðslu þess, svo að framleiðslu- kostnaður búvöi-unnar sé réttur og ótvíræður. Allir bændur búa að verulegu leyti við hliðstaett verðlag á framleiðslu sinni, þegar fram- leiðslan er komin á markaðsstað, er því ljóst að aðstaða bændanna ' er æi-ið misjöfn, m. a. vegna fjar- lægðar frá verzlunarstað og markaði, stærð býlisins og gæði þess, lega þess í héraði og sam- göngur og síðast en ekki sfzt mismunandi hæfileiki bændanna til að reka bú sín með hagsýni og dugnaði. Bóndi, sem hugleiðir kaup á dráttarvél eða bíl, gerir það því aðeins, að hann sjái sér hag í því. Vélarnar verða að auka tekju- möguleika hans. Geri þær það ekki, geta þær að vísu létt ýmis störf, en kostnaðrrlaust verður það ekki. Það verður á kostnað eigandans. Laun bóndans lækka. Að endingu þetta: Kaupið ekki stærri dráttarvélar en nauðsyn krefur. Gerið ykkur grein fyrir því, hvað kostar að eiga drátt- arvél eða bíl. Hættið ekki að nota hestana við bústörfin, því að þeir verða alltaf öruggir séu þeir vel tamdir og fóðurkostnaður þeirra verðúr tiltölulega lítill, Vélakaup eru réttmæt, ef þau tryggja efna- lega afkomu bóndans um leið og bau skapa aðstöðu til að lækka framleiðslukostnað búvörunnar. A. J. Sá, sem getur leigt 2—3 her- bergi pg' eldhús frá 14. maí, getpr fengið sniðinn og saumaðan allan kven og barnafatnað með mjög vægu verði. (Vön saumakona). Upplýsingar í síma 1088.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.