Dagur - 04.04.1951, Blaðsíða 5

Dagur - 04.04.1951, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 4. apríl 1951 DAGUR 5 Fór ausfur fyrir "fjald" í sæluna þar - kom affur effir tíu mánaða útivisf, fullsaddur lífdaga Rætt iim reynslu brezks liðhlaupa og meykerlingu ,Verkamannsins4‘ Það þykja jafnan nokkur tíð- I Segir þar svo frá vist hans fyrir indi vestan járntjaldsins, er það fréttist, að einhver hefur af frjálsum vilja farið eða flúið aust- ur fyrir tjaldið. Enda eru þetta mjög sjaldgæfir viðburðir. Hins vegar flýja þús- undir manna á viku hverri úr sælunni fýrir austan, vestur fyr- ir jámtjaldið, til hernámssvæða Vesturveldanna í Þýzkalandi og Austurríki. Hefur flóttamanna- straumurinn verið svo mikill, að mikil vandræði hafa hlotizt af í héruðum þeim, sem næst liggja markalínunni. Jakob Árnason og meykerlingin. Frjáls blöð á Vesturlöndum geta að sjálfsögðú ekki um hvern einstakan flóttamann, sem leitar vestur fyrir járntjaldið, enda er tala þeirra legíó. Hins vegar birta kommúnistablöð það með stórum fyrirsögnum, er einhver lýðræð- issinni setz að fyrir láustan tjald. Þannig var það 'gert að miklu númeri í fyrra, er enski frétta- maðurinn John Peet, gekk kommúnistum á. hönd í Austur- Þýzkalandi, og sendi þjóð sinni og stjórnarvöldum tóninn þaðan. Þótta þetta „dásamleg sönnun“ um dýrðina þar. Verkamaðurinn hér (Jakob Árnason) fræddi okkur á því sl. föstudag, að amer- ísk meykerling hefði nú nýlega gengið á mála hjá kommúnistum í Póllandi. Þótti blaðinu þetta mikil tíðindi, sem vonlegt var. — Meykerling þessi hefur á langri ævi unnið sér það helzt til frægð- ar að hafa ritað bók, sem heitir „Romance in Iceland“, og var hún ekki nálægt því eins fræg af því verki og hún virðist nú vera orðin af því að játast kúgunar- stefnu Stalíns á gamalsaldri. Sagan um John Waller. Vonandi verður Verkamaður- inn ekki fyrir sömu vonbrigðum með meykerlinguna sína og kollegar hans urðu með brezka liðþjálfann John Waller. Waller þessi gerðist liðhlaupi úr brezka hernum í fyrra, og flýði austur fyrir járntjald. Flutti þar útvarps ræður um dýrðina í löndum Stalíns og talaði um stríðsæsing- ar landa sinna. Fór mikið orð af afrekum hans í kommúnista- pressunni, munu kommúnista- blöð á íslandi auk heldur hafa getið um för hans austur, — eins og piparkerlingarinnar nú, — og hafa vitnað í ræður hans. En skamma stund verður hönd höggi fegin. Waller er nú kominn vest- ur fyrir tjaldið aftur, saddur líf- daga í sælunni fyrir austan. Var 10 mánuði að Iæra. Brezlia blaðið Daily Mail birti sögu liðþjálfans sl. miðvikudag. austan: „Það var heldur framlágur lið- þjálfi, sem kom á fund brezku hernaðaryfirvaldanna í Vestur- Berlín um sl. helgi, saddur líf- daga eftir 10 mánaða vist á rúss- neska hernámssvæðinu. Maður- inn var John Waller. f dag situr hann í fangelsi hersins og veltir því fyrir sér, hvernig ákæran á hendur honum mimi hljóða. .. . Saga hans er á þessa leið: Það var í júní 1949 að hann hitti stúlku, sem hann síðar giftist á götu í Spandau. Ári síðar, í maí í fyrra, ákváðu þau að flýja til austursvæðisins, t en stúlkan átti þar heima. John hafði ekki feng- ið leyfi foreldra sinna til að gift- ast henni. Um þetta leyti var hið mikla „æskulýðsþing“ háð í Ber- lín^ og þau byrjuðu vist sína fyrir austan með því að ganga í „æskulýðsfylking- una“. Ekki hafði Waller fyrr lát- ið skrá sig, en háttsettur embætt- ismaður frá upplýsingaráðuneyt- inu austurþýzka, er lýtur stjórn Gerhards Eislers, kom á fund hans. Hann kynnti hann fyrir John Peet, fyrrum fréttamanni Reuters í Berlín, er gekk komm- únistum á hönd fyrir alllöngu. Waller var látinn mæta á fundi með blaðamönnum. Þar á Waller að hafa skorað á félaga sína í brezka hernum í Þýzkalandi að „koma á eftir sér“, að því er austurþýzku blöðin sögðu. Hann á ennfremur að hafa sagt, skv. frásögn kommúnistapressunnar: „Þegar eg gekk í brezka herinn 1948, varð mér það Ijóst, að eg var fórnarlamb andkommúnis- tísks áróðurs. En eg fann sjálfan mig aftur þegar eg sannfærðist um að í Austur-Þýzkalandi og öðrum Austur-Evrópurikjum, er unnið einlæglega fyrir friðinn.“ Kona Wallers segir nú, að hann hafi verið neyddur til þess að tala í útvarp kommúnista. Þang- að til því var lokið var farið vel með okkur, sagði konan, en þegar John var búin nað gera það, sem honum var sagt, fleygðu þeir okkur á dyr og sögðu, að við gætum séð um okkur sjálf. Eng- inn vildi rétta okkur hjálparhönd. Peet hafði í hótunum. „í neyð okkar leituðum við til John Peet, en hann hló að okkur, og sagði að ef við hættum okkur vestur fyrir járntjaldið, mundi John verða leiddur fyrir herrétt og skotinn sem liðhlaupi. John fékk loksins starf í verksmiðju og fékk 140 austurmörk á mán- uði (um 100 krónur), en við gát- um hvergi fengið inni nema í gistihúsi, sem ríkið rekur, og urðum að borga 3 mörk á dag fyrir herbergið." Þau gátu ekki lifað við þessi kjör og fluttu því oft og flæktust í milli staða. Leið- togar kommúnista, sem höfðu hampað því að brezkur hermaður hefði flúið kúgunina í hernum og komizt í frelsið og dýrðina fyrir þau leituðu, hlógu að þeim, er þau leithuðu á náðir þeirra. Þá ákváðu þau að leita vestur fyrir aftur. John vildi heldur þola fangelsisdóm landa sinna en lifa lengur við eymdarkjör og kúg- unina eystra. Eftir 10 mánaða útivist, kom hann af frjálsum vilja inn á hernámssvæði Vest- urveldanna í Berlín, og gaf sig fram.“ Barndómurinn. John Waller er aðeins 22 ára og kona hans á sama reki, en þau hafa fengið erfiða og alldýrmæta reynslu. Þau hafa læknast af sín- um barnasjúkdómum. Ameríska meykerlingin virðist hins vegar vera að taka barna- sjúkdómana fyrst nú og því vera að lifa barndóminn í annað sinn. Slíkt hendir endrum og eins og er sjaldan sett í blöð. En hjá kommúnistum er allt hey í harð- indum á þessum síðustu og verstu tímum. Þess vegna þykir það efni í frásögn í blaði úti á íslandi, er amerísk kerling heldur að hún hafi fundið eilífðarsæluna austur í Varsjá. Það er lítið, sem hunds- tungan finnur ekki. rr~-— --- Stj órnmálanámskeið F. U. F. hófst sl. sunnudag hér á Ak- ureyri. Þátttakendur í nám- skeiðinu eru skráðir 21, þrír frá Siglufirði, einn frá Ólafs- firði en aðrir frá Akureyri. Stjómandi og leiðbeinandi er Tómas Árnason, lögfr. — Á námskeiðinu eru veittar leið- beiningar og æfingar í ræðu- mennsku, fundarstörfum og fundarsköpum. Þá eru fluttir fyrirlestrar um stjómmál. Bernharð Stefánsson talaði um stefnu og sögu Framsókn- arflokksins í gærkvöldi. Birgir Þórhallsson, deildar- stjóri Akureyrardeildar KEA, flytur í kvöld erindi um sam- vinnustefnuna. Þá mun dr. Kristinn Guð- mundsson, skattstjóri, að lík- indum flytja erindi lun fjár- mál á fimmtudagskvöldið. Á föstud. eða laugard. ræðir Tómas Árnason um undir- stöðuatriði stjómskipunar lýð- veldisins íslands. Námskeiðið fer fram í „Rotary“-sal Hótel KEA og hefst daglega kl. 8.30 e. h. Ungir Framsóknarmenn geta gengið inn á meðan húsrúm leyfir. - Búnaðarþing (Framhald af 2. síðu). lagsins, stjórn Stéttarsamb., Ný- býlastjórn og Búnaðarb. skipi ætlar þingið það hlutverk að 'vinna að því, að áætlun sú um fjárfestingu í landbúnaði, sem fyrir þingið hefir verið lögð, verði framkvæmd á næstu árum, eins og til er ætlazt í þessum tillög- um, og jafnframt sé hún endur- skoðuð og það undirbúið, að unnt verði að halda áfram framkvæmd hennar. Að öðru leyti telur Bún- aðarþing sér ekki fært að segja nefndinni fyrir vei-kum, en vænt- ir þess, að hún gefi næsta Bún- aðarþingi grein fyrir störfum sín- um á þessu ári og leggi fyrir það tillögur sínar um það, hvernig á fjárfestingarmálum landbúnaðar- ins skuli haldið á næstu komandi árum. Rafmagnsmálin. Hólmgeir Þorsteinsson sagði, að auk framangreinds málefnis — sem hann. taidf langmerkasta þeirra mála, er Búnaðarþing af- greiddi, — hefði eihnig verið rætt um rafmagnsmálin og nauðsyn þess öð hraðað yrði raflögnum til sveitanna. Athyglisvert má það telja, að Búnaðarþing vildi að athugað yrði, hvort ekki væri heppilegt að nota 3-fasa leiðslur í stað 1-fasa. Mupu vélar bæði ódýrari og hentugri fyrir 3-fasa en 1-fasa straum, hins vegar mun stofnkóstriáðuf 'riieiri við 3-fasa leiðslur. Búfjárræktarmál. Búnaðarþing samþykkti álykt- un um að það teldi að leyfa ætti ræktun nautgripa af erlendu holdakyni, enda verði ítrustu varúðar gætt' varðandi búfjár- sjúkdóma. Samband ísl. sam- vinnufélaga hefur áhuga fyrir að gera slíka tilraun um ræktun nauthgripa af holdakyni. Ýmis mál. Ýmis fleiri mál voru tekin til meðferðar, svo sem um hey- mjölsverksmiðju, um eyðingu refa og minnka, um landnám, ný- byggðir og endurbyggingar í sveitum, um votheysverkun, um fyrirgreiðslu við sjúkraflutning til sveita o. m. fl., sem of langt yrði upp að telja hér að sinni. Að öllu samanlögðu taldi Hólmgeir síðasta Búnaðarþing hafa markað glöggt stefnu bænda samtakanna í mikilsverðustu málefnum landbúnaðarins á næstu árum. Þess má að lokum geta, að Bjarni Ásgeirsson, formaður Búnaðarfélags íslands, baðst nú undan endurkosningu í stjórnina með því að hann hyggst taka að sér sendiherrastarf erlendis fyrir íslenzka ríkið. Var Þorsteinn Sig- urðsson, bóndi á Vatnsleysu í Biskupstungum, kosinn í hans stað. Einbýlishús til sölu. — Tilboðum sé skilað fyrir 10. þ. m. A. v. á. Opinbert mál Eftirfarandi hefur blaðinu bor- izt til birtingar: „í tilefni af störfum Gísla Kristjánssonar, Helgamagrastræti 28, Akureyri, við byggingu drátt- arbrautarinnar á Oddeyri, birt- ist í 49. tbl. Verkamannsins, sem út kom 9. desember 1949, grein með fyrirsögninni „Var þetta má- ske allur sannleikui-inn?“ Grein- in var meðal annars, dylgjur og aðdróttanir, sem ,og fóru í þá átt að svívirða störf Gísla við áður- greint. Krafðist Gísli af réttvísinnar hálfu, að höfðað yrði mál gegn Þóri Daníelssyni, ritstjóra viku- blaðsins Verkamannsins hér í bæ, fyrir brot gegn 108. gr., 25. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19, 12. febr. 1940, til hegningar og greiðslu málskostnaðar, og til að jola ummæli varðandi störf Gísla, dæmd dauð og ómerk. Dómur í málinu féll 2. sept. síð- astliðinn. D ó m s o r ð. Ákærður, Þórir Daníelsson, greiði kr. 300.00 sekt, til ríkis- sjóðs og kómi 5 daga varðhald í stað sektarinnar, verði hún ekki greidd innan 4 daga frá birtingu dóms þessa. ' Ákærði greiði kæranda, Gísla Kristjánssyni, kr. 90.00 til þess að standast kostnað af birtingu dóms þessa, innan sama tíma. Ummæli undir 1., 4. og 5. skulu vera ómerk. Ákærður greiði all- an kostnað sakarinnar. Dóminum ber að fullnægja með aðför að lögum. Dómurinn var lesinn upp í heyranda hljóði í réttinum. Rétti slitið. Kristján Jónsson, settur. Vottar: Marteinn Sigurðsson. H. Vilhjálmsson.“ Undirföt úr liinu heimsfræga COURTAULDS- Iprjónasilki, höfum við; j í miklu úrvali. Stærðir frá 42—50. “ iAMARO-búðin i; Hringprjónar, margar stærðir og ;j ;; gerðir. ; j AMARO-búðin i| i; Kuldajakkar, gærufóðraðir, m/liettu;; i; Kr. 795.00. Í| AMARO-búðin i| ^V^^^#^#^#s#>#n#*»#^*s#s#»^#»#v#»#>#'#'#s#>#s#^ Silfurmunir, hentugir til fermingargjafa. Smíða og tek til viðgerðar ílest, sem handverkinu til- heyrir. Konrdð Jóhannsson, gullsmiður.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.