Dagur - 11.04.1951, Page 1
Akureyi'ingar! Áskrift að
DEGI er nauðsyn fyrir hvert
heimili. Hringið í síma 11C6.
DAGUR er eina blaðið á land-
inu, sem ílytur fastan búnað-
arþátt. — Bændur! Gerizt
áskrifendur!
XXXIV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 11. apríl 1951
15. tbl.
Lokið vi§ að ryðja Eyjafjarðar-
brant - sæmiiegf akfæri fyrir biia
Loklð vl ðað ryöja Eyjafjbr.
I gær v;.r loksins lokið við að
ryðja Eyjafjarðarbraut, og hafði
verkið gengið ágætlega eftir að
það var Ioksins hafið. En eins
og áður er frá skýrt hér í blað-
inu, stóö Iengi í þrefi um það,
Iivort leggja skyidi í þennan
kostnað eða ekki. Úr því að það
varð nú ofan á, að gcra það,
sýnist að rétt hefði verið að gera
það >fyrr og spara þannig erfið-
leika og óþægindi fyrir héraðið.
Það var hin stóra Caterpiller-
ýta flugmálastjórnarinnar, sem
vann mest allt verkið ásamt ýtum
frá bændum í Hrafnagils- og
Saurbæjarhreppum við að ryðja
veginn, en auk þess fóru ýtur
vegamálastjórnarinnar héðan og
lireinsuðu nokkurri spotta, frá
Hvammi að Syðra-Gili.
Alls var stóra ýtan um 90 klst.
á veginum.
Þriggja metra háir skaflar
Fannfergi á Eyjafjarðarbraut
var gífurlega mikið og munu
skaflarnir á vegbrúnunum sums
staðar vera meira en þriggja
metra háir. Mun aldrei hafa ver-
ið rutt jafnmiklum snjó af vegi
hér á landi með ýtum eins og af
Eyjafjarðarbraut í þetta sinn.
Meðan frost eru og ekki hríðar
má telja, að vegurinn verði sæmi-
lega greiðfær, en búast má við
því að mikið eftirlit þurfi strax
og leysa tekur. í gær munu
"'nnu flokkar þegar hafa byrjaö
að hreinsa ræsi og hreinsa til
eftir ýturnar. Akfært er nú fram
að Leyningi að vestan verðu, og
fram að Öngulstöðum að austan
verðu en haldið mun áfram að
hreinsa veginn að austan verðu
lengra frameftir.
UmræSufundur í FUF
í kvöld
í kvöld kl. 8.30 fer fram um-
ræðufundur Félags ungra Fram-
sóknarmanan í „Rotary“-sal Hó-
tel KEA.
Umræðuefni verður: Gildi
íþrótta. — Framsögumaður: Jón
Arnþórsson.
Fundarstjóri: Valdimar Jóns-
son, form. F. U. F.
Ungir Framsóknarmenn,
hvort sem þeir eru félagsbundnir
eða ekki, eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
ílrifning á tónleikum
Þórunnar litlu
Þórunn S. Jóhannsdóttir hélt
tónleika í Nýja-Bíó á sunnudag-
inn var á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar. Voru þeir vel sóttir
og var litla listamanninum fork-
unnar vel fagnað. Þórunn lék
þarna klassísk píanóverk meist-
aranna af mikilli kunnáttu og
næmri smekkvísi. Telja þeir, sem
bezt fylgjast með leik hennar, að
hún sé í stöðugri framför. Eru
vissulega bundnar glæstar vonir
við framtíð hennar á tónlistar-
sviðinu.
„Snæfell44 á útleið
með eigin afla
M.s. Snæfell, sem stundað lief-
ur togveiðar hér fyrir Norður-
landi að undanförnu, er nú á út-
leið með eigin afla og mun selja í
Fleetwood á morgun.
Á Eyjafjarðarbraut i fyrradag
Myndin er tekin á Fyjafjarðarbraut síðdegis á mánudaginn er lokið
var að opna veginn með ýtum. Skaflamir voru sums staðar röskir
3 meírar á hæð. Á ir.ynd'nr-i : jást Kristinn Jónsson, umboðsmaður
flugmálastjórnarinnar hér, og Karl Friðriksson (t. v.) yfirverkstjóri.
(Edvard Sigurgeirsson tók myndina).
Frá útbreiðslufundi Framsóknarmanna að Hótel KEA á sumiudaginn
Myndin er frá hinum fjöisóita útbreiðslufundi, sem Framsóknarfélögin hér á Akureyri héldu að Hótel
KEA sl. sunnudag. Frk. Rannveig Þorsíeinsdóttir flytur framsöguræðu sína. Nokkur hluti fundargesta
sést á myndunum. (Ljósmynd Edvard Sigurgeirsson).
anna ssoasffiðinn sunnudag
Ræðiiraelm fylgjandi ráðstöfunum
ríkisstjórnarinnar til að skapa
jafnvægi í þjóðarbáskapnum
Árshátíð Framsóknar-
félagsins fjölsótt
Árshátíð Framsóknarfélags Ak-
ureyrar var haldin að Hótel KEA
s. 1. laugardagskvöld. Var þar
þar fjölmenni saman komið. Þor-
steinn M. Jónsson skólastjóri
stýrði hófinu en undir borðum
fluttu ræður formaður féltfgsins,
Jóhann Frímann skólastjóri, og
gestur félagsins á hátíðinni, frk.
Rannveig Þorsteinsdóttir alþm.
Þá sungu þeir Hermann Stef-
ánsson og Kristinn Þorsteinsson
við ágætar viðtökur, fluttur var ■
gamanþáttur og loks stiginn dans
við undirleik danshljómsveitar
M. Riba.
Fjölbreytt skemmtun
skólabarnanna
Skólabömin hér á Akureyri
hafa haldið hina árlegu skemmt-
un sína nú um og eftir helgina,
við mikla aðsókn og ágætar við-
tökur. Börnin fluttu öll skemmti-
atriðin, sem voru fjölbreytt, og
vel og smekklega fyrir komið.
Skiptust á söngur, leikþættir,
upplestrar og skrautsýning. Allt
I var þarna gert af góðum hug og
mikilli gleði og nutu áhorfendur
skemmtunarinnar vel og þakka
ber börnunum fyrir ánægjulega
stund.
Ágóðinn af skemmtununum
rennur í ferðasjóð skólans.
,Jörundur“ gat ekki
selt allan aflann
Brezki markaðurinn brást í
gær, er „Jörundur“ seldi í
Grimsby. Komst skipið ekki að á
mánudaginn, og í gær var svo
mikill fiskur á markaðinum, að
um 500 kit af afla „Jörundar“
seldust ekki. Afganginn, um 2000
kit, seldi „Jörundui“ fyrir um G
þús. sterlingspund, en nákvæmar
tölur hafði blaðið ekki fengið í
gær.
ÚtbreiSslufundur Framsókuar-
félaganna hér á Akureyri, sem
lialdinn var í stóra salnum að
Hótel KEA sl. sunnudag var
ágætlega sóttur .Þar voru fluttar
þrjár framsöguræður um stjórn-
málaviðhorfið og síðan fóru fram
almennar umræður.
í ræðunum kom skýrt fram, að
menn eru fylgjandi ráðstöfunum
ííkisstjórnarinnar til að skapa
jafnvægi í þjóðarbúskapnum og
það er skoðun flokksmanna, að
kjarabætur sé ekki unnt að veita
eins og sakir standa nema fram-
leiðslan verði jafnframt aukin, en
verkföll til að knýja fram vísi-
töluuppbót vegna verðhækkana
á heimsmai’kaðinum, séu háska-
leg fyrir þjóðarbúið og geti leitt
til örbirgðar og eymdar fyrir alla.
Frk Rannveigu Þorsteinsdóttur
vel fagnað.
Aðalræðumaðurinn á fundinum
var frk. Rannveig Þorsteinsdóttir
alþingismaður, sem kom hingað
norður sérstaklega til þess að
sitja þennan fund, svo og árshá-
tíð Framsóknarfélags Akureyrar,
sem haldin var á laugardags-
kvöldið. Var frk. Rannveigu ágæt
lega fagnað á fundinum og hlýddu
menn með athygli á mál hennar.
Þetta er í fyrsta sinn, sem frk.
Rannveig talar hér á opinberum
fundi.
í ræðu sinni rakti frk. Rann-
veig stjórnmálaþi-óunina á sl. ár-
um, og benti á með skýrum rök-
um, að gengisfaljið í fyrra varð
fyrir þróunina í stjórnmálum og
efnahagsmálum landsins, allt frá
tímum nýsköpunarstjómarinnar.
Krónan var stórfallin í verði
íður en lögin um gengisskráning-
una voru sett og að því verðfalli
stóðu ekki sízt þeir flokkar, sem
mest hafa hamast gegn því að
augljósar staðreyndir væru við-
urkenndar og krónan skráð í
samræmi við raunveruleikann. —
Gengisfellingin var því nánast
viðurkenninng á afjeiðingum
stjórnarstefnu liðinna ára, erfið-
leikarnir nú eru líka afleiðing
stjórnarstefnu þessara ára, en
ekki tilbúnir af núverandi ríkis-
stjórn eins og stundum er sagt í
herbúðum stjórnarandstæðinga.
Frk. Rannveig rakti því næst
þær aðgerðir, sem ríkisstjórnin
er nú að gera til þess að freista
þess að skapa jafnvægi í þjóðar-
búskapnum og grundvöll fyrir
atvinnuvegina til þess að bera sig
og benti á, að ekki hefði verið
bent á aðra færa leið en þá, sem
valin hefði verið. Með henni væri
verið að reyna að gera atvinnu-
vegunum fært að bera uppi líf-
vænlegt kaupgjald og forða at-
vinnuleysi í landinu. Enn væri af
snemmt að segja, hvernig þessar
ráðstafánir, mundu reynast, en
horfur væru á, að ef þeir fengju
frið til þess að komast í fram-
kvæmd á eðlilegan hátt, mundu
þær verða til þess að leiða þjóð-
(Framhald á 8, síðu.)
Útför
Davíðs frá Kroppi
á morgun
Ákveðið er að útför Davíðs
Jónssonar, fýrrum hreppstjóra
á Kroppi, fari fram á morgun
og hefst athöfnin að Grund kl.
12 á hádegi. Jarðað verður að
Mimkaþverá.
/