Dagur - 11.04.1951, Blaðsíða 7

Dagur - 11.04.1951, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 11. apríl 1951 D A G (J R MÓÐIR, KONA, MEYJA. (Framhald af 4. síðu). nefnist Heilsufar og næring, en þar er mataræði brezku þjóðar- innar aðallega gert að umtals- efni. Myndir og skýringartöflur eru í bókinni. Þessi litja bók, sem kostar 12 kr., á áreiðanlega erindi til okk- ar allra. Ef við getum bætt heilsu far okkar með því að brayta fæðu okkar og matartilbúningi eitt- hvað, ættum við ekki að vera svo íhaldssamar, að vilja ekki víkja frá settum reglum og kreddum. Aukið heilbrigði ætti að vera kjörorð allra. A. S. S. — Óráðshjal kommúnista (Framhald af 2. síðu). Hin innpakkaða skoðun að austan túlkar öll heimsvandamál- in út frá þeim sjónarhóli fyrst og fremst, að lýðræðisþjóðirnar séu áð undirbúa árásarstyrjöld með kjamorkuvopnum enda þótt sann leikurinn sé þessu efni alveg gagnstæður. En um sannleikann er ekki spurt, og má ekki spyrja. Þess vegna verða viðbrögð rétt- trúnaðarmannsins þau, þegar rætt er skynsamlega um hættu þá, sem ógnar heimsfriðinum í íslenzku blaði, að þetta blað „biðji um að styrjöld verði háð á íslandi“ cg aðstandendur þess elski ameríska _ hergagnasala meira en konu sína og börn! Menn þurfa að íhuga svolítið einkenni veildaðs sálarlífs og minnast þess, að hjá sumum mönnum hefur andlegur þroski stöðvast mjög snemma, til þess að skilja orsakirnar, þegar heimsku- tal af þessu tagi sést í kommún- istablöðunum. En lýðræðissinnar þurfa jafnframt að gera sér Ijóst, að í þessari veiklun sálarlífsins, í trúnni á óskeikulleikann og hinu staurblinda ofstæki, blundar sá möguleiki, að slíkt fólk svíki land sitt og þjóð, meðboigara sína og frelsi þeirra og öryggi, og geri það án nokkurs samvizkubits, þegar þeir telja fylling tímans komna. Slíkt væri aðeins „dá- samleg þjónusta" við hinn óvé- fengda tilgang hins rétttrúaða manns. Dagskrármál landbúnaðarins. (Framhald af 2. síðu). sér grein fyrir því, að það verð, er hann greiðir fyrir vöruna, fer ekki beiní í vasa framleiðandans. Það eru margir aðrir, sem verða að koma íil greina við skiptingu andvirðis, (. d. 1 kg. af kartöflum. Eins og þegar er drepið á, þá gefur þessi nýja bók, — Árbók framleiðsluráðs landbúnaðarins, — margvísleg umhugsunarefni og upplýsingar, og eiga þeir menn þakkir skilið, fyrir þá vinnu sem þar liggur á bak við og fram kem- ur í orði bóltarinnar. A. J. Námskeið þau í „Fljálp í við- lögum“, sem Jóri Oddgeir heldur á veguni slysavarnadeildanna hér og Rauðakrossins, hefjast í næstu viku í íþróttahúsinu uppi. Nánar auglýst síðar. — Ættu bæjarbúar ---sérstaklega uhgt fólk — að notfæra sér þetta ágæta tækifæri til að nema íþrótt, sem allir þurfa að kunna, því að enginn veit hvenær kallið kemur. í HRÍÐINNI Framhald af 5. síðu. bakkanum. Þar fyrir neðan var talsvert breiður skafl af nýjum, lausum snjó, sem lá fram á fjöru- borðið. Væri nú hægt að koma fénu yfir þennan skafl og upp á hjarnið var sama sem komið að húsinu. NÚ FÓR ég að troða slóð í ;ennan skafl, frs^n og aftur marg- ar ferðir, en lítið vannst, því jafnóðum fennti í, þó sást fyrir slóðinni. Svo fór ég til kindanna og sá ég að farið var að dýpka kringum þær. Tók ég eina dug- legustu ána og hreinsaði framan úr henni snjóinn og druslaði henni þangað, sem troðna slóð- in byrjaði. Og nú var víst hvort tveggja að ltindunum var orðið kalt og eitthvað hafði snjórinn losnaö frá auguiri þeirra af því þær sneru sér undan hríðinni, nema nú voru þær ekki alveg sinnulausar, enda veðrið ekki eins ofsalegt. Og eftir nokkurt þóf var féð komið í sporaslóð þarna í skaflinum. Þegar upp á hjarnið kom var auðvelt það, sem eftir var. Þrjár kindur vantaði, og eftir að vita hvað væri með Botna. ÞEGAR EG HAFÐI hýst voru farnar að koma glufur í kófið í fjörunni og fram á sjóinn, svo að eg sá af bakkanum fjóra menn koma sunnan fjöruna sunnan við ána, og voru þarna Iiúsvíkingar með Botna og eina á. Hann hafði haldið suður eftir fjörunni, þegar hann fann enga leið iipp að húsi sínu. Þá vantaði eina á, og nú var fallið svo mikið að, að ekki var hægt að leita út með höfðanum, en þar hefir húri að líkindum fest sig í krapnu í einhverri skonsu, og auðvi'tað tekið út með flóðinu. Þá er þessi saga ekki lengri og hefði fáum orðið kunn, ef eg hefði ekki séð mig neyddan til að leita hjálpar, því að svipaðar sögur gerast víst stundum svo lítið ber á. Ilermann á Bakka. Góð síofa. mót suðri, til leigu nú þeg- ar eða 14. maí. Upplýsingar í síma 1270. Nýupptekinn FORD-júnior bílmótor til sölu. Ennfremur Buick-bilatæki. Afgr. ví-sar á, r Ágætar Rúsínur Kr. 11.60 kílóið. Kaupfélag Eyfirðinga Nýlcnduvörudcild Og úlibú. Sjálfblekungur fundinn. Afgr. vísar á. o Lesgleraugu týndust á leið urn Holta- götu. Skilist á afgreiðslu Dags, gegn fundarlaunum. senr ný, til sölu. Afgr. vísar á. til sölu. Tækifærisverð. Afgr. vísar á. Eldri kona óskast í vist í næsta ná- grenni Akureyrar, nú þeg- ar eða um næstkomandi mánaðamót. Afgr. vísar á. □ RÚN.: 59514117 — 1 — Atg.: I. O. O. F. — Rbst. 2 — 994118V2 Messað í Glerárorpi kl. 2 e. h. næstk. sunnudag. — P. S. Fíladelfía. Samkomur verða haldnar í VerzlunarŒinnahús- inu, Gránufélagsgöra 9 (neðri hæð), sunnudpga kl. 8.30 e. h.: Almenn samkoma — Fimmtu- daga kl. 8.30 e. h.: Almenn sam- koma. Allir velkomnir. — Og sunnudagakóli hvern sunnudag kl. 1.30 e. h. Öll börn velkomiri. Æskulýösfélag Akureyrar- kirkju. Fundur í elztu- og yngstu deild n. k. sunnudags- kvöld kl. 8.30. — Sóldaggir, I. O. O. F. 1324I38H. Siónarhæö. Sunnudsgaskóli kl. 1. Almenn sumkoma kl. 5. Allii' velkomnir. Ungt fólk — og eldra líka — er boðið á samkomuna kl. 8.30 e. h. næstk. laugardag að Sjónarhæð. Kristnifcoðsfélag kvcnna hefur bazar og kaffisölu í Zíon föstu- daginn 13. apríl frá kl. 3—:7 e. h. Styðiið starfið. Drokkio síðdegis- kaffið í Zíon. I. O. G. T. Stúkan Ísafold-Fjall- konan nr. 1 heldur fund næstk. mánudag, 16. þ. m., kl. 8.30 síðd. í Skjaldborg. Venjuleg fundar- störf. Inntaka nýrra félaga. Ýmis félagsmál. Fræðslu- og skemmti- atriði auglýst síðar. Nýir félagar alltaf velkomnir. Stálka óskast til heimilisstarfa 1—2 mán- uði. Ásgcir Halldórsson, Kea. Reiðhjóladekk og Kaupfélag Eyfirðinga. ]árn- og glervörudeild. Bollapör Nýjar tegundir. Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeild. Tilboð óskast í húsið Eiðsvallagötu 14 (Gamla Luncl), ásamt ágætri eignarlóð. — Tilboð- um sé skilað fyrir lok þessa mánaðar til Kristins Guðmundssonar, skattstjóra. 1-2 slúlkur, vanar kápu- eða karlmanna- fatasaum, geta fengið at- vinnu á saumastofu minni. Bernharð Laxdal. Kjólbelti, svart að lit, tapaðist 9. þ. m. Vinsaml. skilist á afgr. Iriaðsins, gegn fundarlaun- um. Stúlka óskast í vist. Helzt frá 1. maí. Maria Ragnars. Freyjubrár. Ákureyringar: — „Mædd á manna bezta, miskunn loks hún flaug,“ segir Jónas í kvæðinu um rjúpuna, sem flaug undan valnum inn um gluggann. Allir ckkja örlög þeirrar rjúpu. — Nú hefur rjúpan enn flogið á náðir mannanna, og heyrzt hef- ur, að einhverjir hafi viljað gera sér mat úr því eins og konan í kvæðinu. — En það skulum við ekki gera. „Óhræs- ið“ minnir á, að það cr eigi happ að eta horaða rjúpu, sem flýr á náðir mannanna, heldur skörnrn, óheill. Áheit á Strandarkirkju. Kr. 25.00 frá Sillu. Móttekið á afgr. Dags. Á síðasta aðalfundi Heimilis- iðnaðarfélags Norðurlands, sem haldinn var í marzmánuði sl., var samþykkt að efna til lítillar heimilisiðnaðarsýningar árlega í húsakynnum félagsins, Brekku- götu 3B á Akuréyri, og hafa hana opna aðeins 2—3 daga. — Sýning ákveðin síðustu daga maímánaðar 1951. — Þátttaka tilkynnist í síma 1488. Sjötugur varð sl föstudag Jón Björnsson skipstjóri hér í bæ. Hann er Árnesingur að ætt og uppruna, en hefur dvalið hér í bæ yfir 40 ár. .Leng.st af hefur hann verið skipstjóri, eða þangað til nú fyrir nokkrum árum að heilsan bilaði. Fyrst stýrði hann kútter Óla, sem var eign Otto Tulinius- ar, síðar Sjöstjörnunni, sem nokkrir Akureyringar áttu. Og um 15 ára skeið var Jón skip- stjóri á flóabátum hér fyrir Norðurlandi, fyrst Unni, síðar Drangey og síðast Ester. Hann þótti frábær sjómaður og örugg- ur skipstjóri og mannkostamaður. Kvæntur er hann Kristínu Guð- jónsdóttur, mikilli dugnaðar- konu, sem varð sjötug á sl. ári. Varð þeim 8 barna auðið og lifa 6 þeirra. Hinn mikli dugnaðar- maður og ágæti sjómaður, Stein- dór, skipstjóri á flóabátnum Drang, er sonur Jóns og Kristín- ar. — Margir hugsuðu hlýtt til afmælisbarnsins á föstudaginn, og sendu kveðju í heimili þessara mætu hjóna. Zíon. Samkomur næstu viku. Sunnudaginn kl. 10.30 f. h.: Sunnudagaskóli. Kl. 2 e. h.: drengjafundur (eldri deild). Kl. 5.45 e. h.: Drengjafundur (yngri deild). Kl. 8.30 e. h.: Almenn samkoma. — Þriðjudaginn kl. 5.30 e. h.: Fundur fyrir telpur 7— 13 ára. — Miðvikudag kl. 8.30 e. h.: Biblíulestur. — Fimmtudag kl. 8.3 Oe. h.: Fundur fyrir ungar stúlkur. Frá Kvenfélaginu Hlíf. Eins og auglýst var í blöðum bæjarins, hafði frk. Jóhanna Jóhannesdótt- ir, saumakona, kjólasýningu hinn 22. marz (skírdag) til ágóða fyrir Dagheimilið Pálmholt. Inn komu fyrir sýninguna kr. 875.00. Frk. Jóhanna hefur óskað þess, að fé þessu verði varið til þess að koma síma í dagheimilið. Við Hlífar- konur færum frk. Jóhönnu þökk- ir fyrir hugulsemi hennar og rausn og biðjum henni blessunar í framtíðinni. — F. h. Kvenfélags- ins Hlífar. Elinborg Jónsdóttir, formaður. Kvöldvaka Austfirðingafélags- ins, sem var áður auglýst, fellur niður, vegna breytinga á bæjar- stjórnarsalnum. HjálpræÖishcrinn. Strandg. 19B. Föstudaginn 13. apríl. Barnasam- koma. (Kvakmynd). — Sunnud. kl. 11 f. h.: Helgunarsamkoma. Kl. 2 e. h.: Sunnudagaskólinri. Kl. 8.30 e. h.: Hjálpræðissamkoma. — Mánudag kl. 4 e. h.: Heimilasam- bandið. (Samkoma fyrir konur). Kl. 8.30 e. h.: Æskulýðsfélagið. — Verið velkomin! Heilsufarið í bænum er betra en verið hefur hér áður á þess- um tíma í minni læknistíð hér, sagði héraðslæknirinn, Jóhann Þorkelsson blaðinu í gær. Inn- flúensan er að hverfa og var aldr- ei útbreidd, mislingar breiðast ekki út og kíghósti heldur ekki. Nauðsynlegt mun verða að loka anddyri pósthússins snemma á kvöíd'm framvegis, vegna skemmdarvcrka skríl- menna í forstofunni. Nú síðast heft’r þessi ófcjóðalýður unnið sér það til frægðar að skemma læsinguna á hurðinni og troða eldspýtum inn í skráargötin, svo að ekki sé unnt að læsa eða opna fyrirhaínarlítið. Lokun anddyrisins er til óþæginda fyrir þá fcæjarmenn, sem póst- hólf hafa, en vi.J þessu cr ekk- ert að gera eins og á stendur. En ineðal annarra orða: Gæti lögreglan ekki séð um að ungl- ingar geri anddyri pósthússins ekki að samkomustað? Maður gcngur varla svo um þar á kvöldin, að unglingar séu ekki í hópum þar inni án nokkurs erindis. Hraðskákmót Akureyrar verð- ur haldið næstk. mánudag að Túnugötu 2, Akureyrar, kl. 8 e. h. íbáð 2—3 herbergi og eldhús ósk- ast til leigu í vor. Fyrirframgreiðsla kemur til greina. Afgr. vísar á.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.