Dagur - 20.06.1951, Blaðsíða 5
MiSvikudaginn 20. jaúní 1951
DAGUR
5
Tilstandið með „lúðurþeytara upprisunnar" er
smækkuð mynd af dýrkun
„hins mikla landsföður"
Lærisveinar á fjórum fótum vitna um
meistara“ smn
w1
Rithöfundúrinn Louis Fischer
hefur í mjög athyglisverðri grein
lýst því, hvernig hann varð
konunúnisti og hvernig hann
fékk heiíbrigða sjón á ný. Lækn-
ingin varð austur í Rússlandi. —
Fischer dvaldist þar Iangvistum.
Hann vildi afsaka og útskýra
„fræðilega“ mistökin og grimmd-
ina og hið Vaxandi einræði er
hann sá austur þar, en svo fór, að
hann gat ekki sætt sjálfan sig við
orðaleiki kredduvísindanna og þá
sá hann sannleikann nakinn.
Byltingin hafði drukknað í
blóði og grimmd. Einræði, misk-
unnarlausara en keisaranna, var
reist á rústum þeirra hugsjóna,
sem hrundu byltingunni af stað.
lögregluríki, sem virðir einstakl-
inginn ekki meira en hið minnsta
fis, var orðin staðreynd en „ríki
verkamanna og bænda“ hvergi til
nema í fræðibókum og áróðurs-
dálkum kommúnistapressunnar.
Fischer fylgdist með því, hvern-
ig hin nýja forréttindastétt —
samfylking jábræðranna í
flokknum — hrifsaði til sín sífellt
meira af valdi og þægindum.
Hann lýsir lúxuslífi hinnar nýju
forréttindaklíku en sárri örbirgð
hinna óbreyttu verkamanna. —
Þetta var ekki það, sem hann
hafði komið til Rússlands til að
kynnast. Hann sagði skilið við
stalinismann.
Þróunin til skurðgoðsdýrkunar.
í lýsingu Fischers kemur
greinilega fram, hvernig ein-
valdinn gerizt sífellt miskunnar-
lausari gagnvart allri andspyrnu,
en jafnframt kröfuharðari um
játningu óskeikulleika síns og að
lokum persónudýrkun. Fischer
segir frá því, er starfsmenn á
pósthúsi úti á landi, neituðu af
ótta að taka á móti símskeyti frá
honum til Stalíns af því að hann
var þar ávarpaður einföldu per-
sónufornafni, en ekki sem „mikli
faðir“ eða „leiðtogi og verndari
alls verkalýðs“.
Þessi þróun til öfgafullrar per-
sónudýrkunar stendur enn yfir
og í skrifum Sovétblaða virðist
sú stund nálæg, að Stalín verði
talinn af guðlegum uppruna. Að
þessu leyti er þróunin í Rúss-
landi hin sama og í einræðisríkj-
um allra tíma, sú sama og var í
Þýzkalandi og ítalíu til dæmis,
fyrir stríðið. Eirivaldsstjórnin
berst gegn frjálsri hugsun, þeir,
sem vilja andlegt frelsi eru
hnepptir í þrælabúðir, en hinir
andlegu þrælar, hinir sívitnandi
jábræður flokksklíkunnar, verða
leiðtogar lýðsins og vilja móta
alla í sama mótinu.
Glefsur úr bókmennta-biblíu.
Persónudýrkun — öfgafull og
ógeðsleg — er fylgifiskur ein-
ræðisstefnanna og þessi and-
styggð skýtur upp kollinum
meðal einræðisflokka, þótt þeir
starfi í lýðræðisþjóðfélagi og
komizt aldrei nálægt því að
hrifsa til sín völdin. Einnig að
þessu leyti er reynt að eftirapa
fyrirmyndirnar í austri. Hér í
blaðinu voru í fyrra birtir
nokkrir kaflar úr Sovéttímarit-
inu „Soviet Litarature“, sem er
útgefið og prentað í Moskva, og
er sent kommúnistum um allir
jarðir, sem bókmenntaleg biblía
og kennslubók. Hér er ekki um
að ræða neitt „auðvaldsrit“ á
kommúnistavísu, heldur hin einu
og sönnu fræði. Atburður, sem
gerðist hér á landi nú fyrir miðj-
an mán., gefur tilefni til þess að
rifja upp nokkur atriði úr þessu
Sovét-tímariti.
í hefti þessu voru greinar um
bókmenntir, tónlist og listir al-
mennt. Allar þessar greinar voru
einn væminn lofgerðaróður um
Stalín. Allir listamennirnir, sem
þær rituðu, vitnuðu, að þeir
hefðu alla listagáfu sína frá hon-
um. Orðbragðið er ótrúlegt í
augum vestrænna manna. Eða
hvernig finnst ykkur þetta, tekið
orðrétt úr einni „lista“-greininni:
„Faðir! Hváð gæti verið nær
okkur eða kærara en það
nafn? Sovétþjóðirnar, einn og
allir, frá ungherjunum til hvít-
hærðra öldunga, kalla Stalín
föður okkar. Því að eins og
ástríkur mildur faðir, eins og
vitur uppalandi og kennari, el-
ur Stalín /upp nýja kynslóð
nýrrar þjóðar.... Margfalt og
allt innibindandi er afl snilldar
Stalíns. . .. Allt það, sem er
nýtt, fagurt, framsækið og
óeigingjarnt í lífi okkar, stefn-
ir upp á við, til Stalíns eins og
til sólarinnar. Stalín gefur
þjóðinni kraft og gefur henni
vængi, orð lians, góðleiki og
umhyggja, er sá kraftur, sem
gefur milljónum styrk og líf.
Stalín þekkir allt og skilur allt,
sem hrærist í hjörtum Sovét-
þjóðanna, hann þelskir hug-
sjónir og vonir allrar þjóðar-
innar....“ o. s. frv. o .s. frv.
Þetta er ekki vondur kapítal-
isti að gera grín að hinum
„mikla föður“, þetta eru læri-
sveinar *' C á fjórum fótum að
vitna um meistara sinn. Svona
lágt getur mannskepnan lagzt,
þegar búið er að rýja hana frels-
inu og aðstöðunni til þess að leita
sannleikans.
Sólin og litlu hnettirnir.
Stalín er stóri bróðirinn, hann
er sólin, en í kringum sólina
ganga hinir smærri hnettir, sum-
ir litlir og harla dimmir. Slíkir
smáhnettir eru í öllum kommún-
istaflokkum, auk heldur hér úti
a íslandi. Einn slíkur varð
fimmtugur á dögunum. Fimmt-
ugsafmæli er merkisdagur í lífi
manna og venja er að vinir og
samstarfsmenn geta þess eitthvað
opinberlega, eftir því sem verð-
leikar standa til. Það er vitaskuld
algert einkamál kommúnista-
safnaðarins á íslandi, hve mikilli
prentsvertu og pappír hann kýs
að eyða á einn af spámönnum
sínum á slíkum tyllidegi, enda
ekkert amast við því þótt blaða-
kostur flokksins eyddi nær öllu
púðri sínu þennan dag á þennan
skrítna fugl. En fólkið tekur eftir
því, að þessir tilburðir eru
smækkuð mynd af því, sem er
tízka fyri raustan. Hér kemur
fram sama tilhneigingin hjá
sæmilega greindu fólki til þess
að falla á fjórar fætur fyrir fram-
an persónu og kalla hana yfir-
mannlega. Hér er sama náttúran
til þess að smækka sjálfan sig,
smækka alla þjóðina til þess geta
látið persónu „foringjans“ rísa
þeim mun hærra, eins og fjalls
tind upp úr sléttlendinu. Þetta
verður ákaflega afkáralegt til-
stand í frjálsu landi eins og ís
landi, þar sem fólkið veit vel, að
maður sá, sem verið er að upp-
hefja, er aðeins miðlungs mann-
eskja. En þetta er meira en af
káralegt tilstand. Það er um leið
sjálfslýsing kommúnista, það er
birta, sem snýr inn á við, sýnir
áhorfendum hvernig er um að
litast í sálarfylgsnum réttlínu
kommúnista, sem er horfinn frá
þeirri grundvallarkenningu
marxista, að mennirnir séu jafn-
ingjar og dýrkar þá kenningu
stalinista, að náunginn sé hærra
settur og meiri maður og borinn
til meira ríkis en maður sjálfur
— ef náunginn er á „línunni“.
Það var þetta með öðru, sem
Louis Fischer fannst viðbjóðsleg-
ast í fari nýkommúnismans rúss-
neska og það er þessi skrið-
dýrslega dýrkun á persónum,
sem er öllu frjálshuga fólki and-
styggð.
„Lúðurþeytari upprisunnar“.
Það var fróðlegt að sjá það
svart á hvítu, að hér á landi er
yfirdrottnunarklíka kommúnista
flokksins því marki brennd, að
vilja upphefja sjálfa sig á kostn-
að annarra, kenna þau fræði, að
flokksforingi sé nær yfirmannleg
vera. Þjóðviljinn hafði þetta að
segja um Kristinn Andrésson á
dögunum: „Lof sé þér, sonur
morgunsins.... þú ert hetja bar-
áttunnar, spámaður morguns-
ins.... kyndilberi í myrkva
hinnar miklu nætur. ... lúður
þeytari upprisunnar.... “ o. s.
frv. á mörgum blaðsíðum.
SJÖTUG:
Frú Björg Arngrímsdóttir,
SELÁ.
Hinn 17. júní 1881 er hún fædd
að Völlum í Svarfaðardal. For-
eldrar hennar voru hjónin Þór-
unn Hjörleifsdóttir prests Gutt-
ormssonar á Skinnastað, Tjörn
og Völlum, og konu hans Guð-
laugar Björnsdóttur, og Arn-
grímur málari Gíslason skálds í
Skörðum.
Björg ólst upp í Svarfaðardal
og eftir lát föður síns var hún all-
lengi með móður sinni á Tjörn,
en þar var Þórunn lengi ráðs-
kona hjá systur sinni, frú Petrínu
og sr. Kristjáni E. Þórarinssyni
og jafnframt um fjölda ára ljós-
móðir í Svarfaðardal, með þeirri
heppni og þeim dugnaði, sem fá-
títt var.
Björg er því gömul stalísystir
frá æskuárunum á Tjörn, éin í
stórum unglingahóp, kátum og
ógleymanlegum, og þess vegna
langar mig til að serida henni
kveðju og hamingjuósk á þessu
merkisafmæli, og þakka henni,
ekki aðeins fyrir æskuminnirig-
ar, heldui- og ekki síður fyrir
marga ánægjulega st.und á héífn-
ili hennar, Selá. En þangað giff-
ist Björg árið 1901 og' gekTc að
eiga bóndasoninn .þár,' ' Jóliá'riri
Sigurðsson,. sem þ.ó.tti éiriri' hlrin
glæsilegasti ungra manna þáV í
sveit. .Og.á-Selá bjuggu þau hjon
um tugi ára.
Heimili Bjargar og Jóhanns
á Selá mun mörgum minnisstætt.
Var fór saman myndarskapur og
mikil og almenn gestnsni. Og svo
var þar oft mannmargt og kátt á
hjalla. En slíkt mátti raunar
segja um ýms fleiri heimili á Ár-
skógsstrorid árin 1907—’12, er. eg
kynntist þeim bezt ,og þess vegna
Um Stalín sagði tímaritið Sovi
et Litarature: „Með snilld og
framsýni sinni stýrir félagi Stalín
dug, viljakrafti og hugsunum
Sovétmanna, hann er að skapa
ný sovétvísindi, og nýja sovét
menningu í brjóstum okkar, það
er hann sem hefur kennt okkur
að meta fjársjóði þá, sem fólkið
skapaði á liðnum öldum. .. . “
Menn sjá, að hér er stigsmun
ur en ekki eðlismunur. Kristinn
Andrésson er einn í einvalds
klíku þeirri, sem stýrir litlum og
hrörnandi flokk samsærismanna
úti á íslandi, en lönd Stalíns eru
í tveimur heimsálfum og hann á
þúsundir manna í öðrum löndum
með húð og hári. En litli flokk-
urinn hefur sína litlu einræðis
herra og flokksmennirnir í litla
flokknum verða að dýrka sinn
„stóra bróður“ í takt við allsherj
ar skurðgoðsdýrkun kommún-
istaflokkanna allra. Með því að
lesa dýrðaróðinn um Stalín, má
sjá í einu vetfangi, hvernig út
gangurinn á Þjóðviljanum
mundi vera á stórafmælum
kommúnistamógúlanna hér
landi, væru þeir komnir í sess
einræðisherra hér. Þá mundu
þeir vilja láta líta svo út, sem
hjörðin væri ein og hirðirinn
einn. Þannig er afmæli miðl-
ungsmanneskju úti á íslandi
áminning um það, út í hvert hyl-
dýpi vesalmennsku og andlegrar
eymdar kommúnistátrúin getur
leitt auðtrúa fólk,
er mér jafnan hlýtt í huga, er eg
lít yfir gömlu Ströndina, núver-
andi Árskógshrepp ,og blessa í
huga mér marga minningu það-
an.
Þau Selárhjónin eignuðust
fjögur mannvænle^ börn. En á
sjötugsafmælinu er Björg ein
eftir með yngsta soninn, Angan-
tý. Hún hefur því fengið margt
að reyna. Elzti sonurinn, Anton,
dó frá ungri konu og börnum.
Næst elzti sonurinn, augasteinn-
inn, hinn kunni og glæsilegi
skipstjóri, Arnþór, fórst með m.b.
Helga við Vestmannaeyjar fyrir
2 árum, frá konu og börnum, og
eina dóttirin, Nanna, féll einnig
valinn frá manni og börnum.
En mann sinn missti Björg árið
1944.
Vitanlega hefur allt þetta kom-
ið við tilfinningaríka konu, sem
ekki var heldur ávallt heilsu-
sterk.
Sumir láta ásjá við minna.
En samt stendur hún ennþá
furðu sterk, mikil að vallarsýn,
með svip og fas hinnar kynbornu
konu. Og svo mun verða unz yfir
lýkur. — En við, gamlir vinir
hennar, sendum henni nú bless-
unóskir, og þökkum löngu liðna
tíð.
Sn. S.
Hesta-sláttuvél,
lítið notuð, til
nýleg
sölu.
og
Afgr. vísar á.
Skápur
Vandaður
sölu.
eikarskápur til
Uppl. í Rauðumýri 20.
Fjármark
mitt er: Sýlt hægra, sýlt og
lögg aftan vinstra.
Brennimark: H. A. G.
Hermann Aðalsteinsson,
Ytri-Másstöðum,
Svarfaðardal.