Dagur - 29.08.1951, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 29. ágúst 1951
iÞRÓTTIR
OG ÚTILIF
Ræða séra Sigurðar Stefánssonar
á Möðruvöllum við setningu
sundmótsins að Laugalandi.
Heiði'uðu leikmenn og laugar-
gestir!
Mér er það mikill heiður og
margföld ánægja að vera til þess
kvaddur að setja þetta mót, sem
er fyrsta sundmót háð á þessum
stað hér að Laugalandi.
Til þess liggja ýmsar ástæður,
að ekki hefur fyrr en nú verið
efnt til opinberrar sundkeppni
eða sýningar á þeirri gömlu og
góðu íþrótt, sem hér hefur þó
verið iðkuð meira og minna 5
síðastliðin ár.
Enda þótt laugin hafi verið
starfrækt allan þennan tíma á
vorin til fullnægingar sund-
skyldu skólabarna og nokkur
sumur, einkum tvö þau seinustu,
til almennrar sundiðkunar og af-
nota, hefur ekki virzt hentugt
tækifæri hér til sérstakra hátíða-
halda eða mannsafnaðar enn sem
komið er.
Ráðgert var og í upphafi að
laga og prýða urnhverfi laugar-
innar, sem mjög er ábótavant í
ýmsu tilliti og þótti raunar eigi
sem þetta mannvirki væri full-
gert fyrr en svo réðist. En þar
sem þessi framkvæmd drógst enn
úr hömlu og hér situr enn við
sama, hvað þetta snertir, sýndist
ekki fært að láta þennan agnúa
standa lengur fyrir því, að hér
yxði efnt til nokkurs samkomu-
halds. Og fer að visu ekki illa á,
að fyrst að eigi varð áður hafizt
handa í þessu efni, t. d. með
vígsluhátíð, að þá skuli fyrsta
sundmótið, sem hér er háð, fara
fram að nokkru leyti í beinu
sambandi við þá íþróttakepþni,
sem hér í landi hefur orðið vin-
sælust og almennasta hrifni vak-
ið, ungra og gamalla, og er þar
um að ræða Samnorrænu sund-
keppnina. En til ágóða fyrir hana
eða upp í þann kostnað er henni
fylgdi, er til þessa fundar stofn-
að. Og má þó ekki gleymast, að
það, sem hér fer fram, er þó öllu
framar árangur eða ávöxtur þess
starfs, sem hér hefur að undan-
förnu verið unnið til f-remdar
hinni fögru íþrótt.
Vil’ eg í því sambandi tjá ein-
huga þakklæti mitt og allra, sem
hér eiga hlut að, þeim manni,
sem frá öndverðu hefur verið
kennari hér á staðnum og öllum
fremur á lof skilið fyrir það, sem
hér hefur á unnizt. Honum ber
og heiður fyrir að hafa komið á
þessu móti hér í dag, sem eg
vænti, að verði öllum til gleði og
áriægju, bæði leikmönnunum
sjálfum og okkur áhorföndum.
Þáð væri annars freístandi að
nota þetta tækifæri til þess að
víkja nokkr-u nánar að lauginni
sjálfri, þessu mannvirki, sem hér
hefur verið komið upp, og, þó að
erin*-sé að ýmsu áfátt, á sér þó
Samt þegar ítök í hugum margra.
En þetta skal þó ekki gert að
þessu sinni. Aðeins minnt á, að
hér þarf enn mikils við, svo að
þessi fagri og ágæti staður geti
orðið það, sem efni og skilyrði
standa vissulega til.
Þar þurfa áhugamenn í þessum
sveitum að fylkja sér þétt saman
til framtaks og aðgerða. Og vísa
eg því máli einkum til ykkar,
ungu menn, piltar og stúlkur,,
sem í rauninni eigið þessa stofn-
un og hún fyrst og fremst á að
þroska til heilbrigði og hreysti,
sæmdar og menningarauka.
Látið ykkur ekki einungis
nægja að koma hingað endrum
og eins til leiks eða keppni, til
gagns og gamans, heldur hugsið
um á hvern hátt þið getið hlynnt
sem bezt að sundlauginni á
Laugalandi og'stuðlað að því, að
hún geti orðið í nútíð og framtíð
að enn méiri notum og til enn
meiri fremdar hinni fegurstu og
nytsömustu allra íþróttagreina.
Munið, að hér er verkefni, ein-
mitt á þessum stað, se,m æska
sveitanna hér í kring gétur mætzt
um og starfað að til ómetanlegra
heilla og margfaldrar blessunar
fyrir sjálfa sig og nálægan tíma.
Að endingu aðeins þetta:
Til forna, þegar íþróttahug-
sjónin var í mestum heiðri, voru
laugarnar á íslandi einhverjir
mánnkvæmustu samkomustað-
irnir, þar sem1 ungir og gamlir
hittust að Ieik og kepprii. Og hvers
konar skemmtan.
Það er sagt að sagan endurtaki
sig:
Eg held, að óvíða í þessu héraði
hafi fleiri komið á þessu sumri
en einmitt hingað að sundlaug-
inni á Laugalandi.
Eg óska þess, að hér verði
framhald á. Að þessi laug verði
mannkvæmur samkomustaður
sveitanna hér umhverfis á næstu
sumrum, og það takist að gera
hana svo úr garði, að byggðarlag-
inu sé sómi að og hún verði öll-
um, sem hingað sækja, ungum og
gömlum, sannkölluð uppspretta
mikillar gleði og menningar,
líkamlegs og andlegs þroska.
Býð eg svo ykkur öll, leik-
menn og laugargesti, hjartanlega
velkomin til þessa móts og vona,
að það standi ekki fyrir ánægju
okkar þó að sól dvelji bak skýja
þessa stund, sem raunar var þó
miklu miður.
Fýrsta sundmót á Laugalandi í
Hörgárdal er sett!
Heill og hamingja fylgi því og
blessun öllu framtíðarstarfi í
þágu hinnar fögru íþróttar,
sundsins mennt, hér á þessum
stað!
Heilir hildar til, heilir hildi
f rá! ■
Sundmót að Laugalandi
á Þcláinörk.
Sunnudaginn 19. ágúst 1951
var stofnað til sundmóts að
Laugalandi á Þelamörk.
Séra Sigurður Stefánsson á
Möðruvöllum setti mótið með
ræðu. Síðan hófst keppnin. Var
þetta hið fyrsta sundmót, sem
haldið hefur verið-á þessum stað.
Aðalmarkmið mótsins var að fá
sem mesta þátttöku og reyna að
glæða áhuga manna fyrir sund
íþróttirini álmenrit, en ekki hitt,
að setja met, erida ekki við slíku
að búast, því að hér var um lítið
æft sundfólk að ræða. Þátttaka
þessu fyrsta sundmóti var góð og
kepptu þar urigir, sem gamlir. —
Með því má telja að tilganginum
væri náð. Tala keppenda var sem
hér segir:
Frá Arnasnesshreppi 23
Frá Glerárþorpi 18
Frá Skriðu- og Öxnadalshr. 12
Frá Glæsibæjarhreppi 12
Frá Síldarverksm. Dagv.ey. 10
Frá Sildarverksm. Hjalteyri 10
ingur hlaut 17 stig og Ungmenria-
félagið Ljótur í Laxárdal 16. stig.
Úrslit í einstökum greinum
urðu sem hér segir:
100 m. hlaup.
1. Þorgrímur Sigurjónsson, Völs-
ungar, 11.8 sek.
2. Pétur Þórisson, U. M. F. Mý-
vetningur, 11.9 sek.
3. Gunnsteinn Karlsson, V., 12.0
sek.
80 m. hlaup kvenna.
1. Ásgerður Jónasdóttir, U. M. F.
Geislinn, 11.8 sek.
2. Sigríður Böðvarsdóttir, V., 11.8
3. Stefanía Halldórsdóttir, V., 12.0
sek.
Alls 85 kepp.
Mótið fór mjög vel fram, og
skemmtu áhorfendur, sem voru
um 200, sér prýðilega.
200 m. bringusund karla.
1. Eggert Jónss. A. 3 m. 33.8 sek.
2. Reginn Jóhanness. G. 3 m. 37.6
sek.
3. Jóhann Þórðars. G. 3 m. 56.2
sek.
100 m. bririgusund drengja.
1. Kristján Þórhallss. A. 1 m.
56.9 sek.
2. Sigursveinn Magnúss. G. 2 m.
04.2 sek.
3. Kristján H. Sveinss. G. 2 m.
06.5 sek.
100 m. bringusund telpna.
1. Sesselja Guðmundsdóttir A. 2
m. 08.2 sek.
2. Hafdís Árnadóttir A. 2 m. 14.3
sek.
3. Ásta Þórðardóttir A. 2 m. 27.7
sek.
50 m. frjáls aðferð karla.
1. Eggert Jónsson A. 42.8 sek.
2. Reginn Jóhanness. G. 43.0 sek.
3. Margeir Eiriarss. A. 43.3 sek.
25 m. bringusund drengja.
1. Kristján Þórhallss. A. 23.3 sek.
2. Sigursv. Magnúss. G. 24.8 sek.
3. Brynjar Ragnarss. A. 26.5 sek.
50 m. sund telpur.
1. Sesselja Guðmundsdótitr A. 1
m. 00.5 sek.
2. Hafdís Árnadóttir A. 1 m.
03.2 sek.
3. Ásta Þórðardóttir A. 1 m. 05.9
sek.
10x25 b. boðsund karla.
1. Sveit Glerárþorps 3 m. 39.8 sek
2. Sveit Arnarn.hr. 3 m. 39.8 sek.
3. Sveit Glæsib.hr. 3 m. 52.9 sek.
4. Sveit Skr.- og Öxnuad.hr. 4
m. 16.1 sek.
400 m. hlaup.
1. Pétur Björnsson, V., 59.1 sek.
2. Finnbogi Stefánsson, M., 60:4
sek. *
3. Aðalsteinn Karlsson, V., 64.0
sek.
1500 m. hlaup.
1. Finnbogi Stefánsson, M., 4.35.5
mm.
M.
Borðedik
og
Edikssýra
frá FLÓRU.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Nýlenduvórudeildin
og útibú.
Nýtt frá Sjöfn:
gerðír af
Ymsar
SKRAUTKERTUM
Kaupfélag Eyfirðinga
Ný’enduvörudeildin
og- útibú.
8x25 m. boðsund drengja.
1. Sveit Glerárþorps 3 m. 37.9 sek
2. Sveit Arnarn.hr. 3 m. 43.7 sek.
10x25 m. eggjaboðsund. milli
Síldarverksni. Hjalteyri og Dag-
verðareyri.
Sveit Dagverðareyrar bar sig-
ur úr býtum.
Stigahæsti hreppurinn var
Arnarnesshi'eppur með 30 stig.
Númer 2 var Glerárþorp með 12
stig og nr. 3 Glæsibæjarhreppur
með 5 stig.
Héraðs-íþróttamót Suður-Þing-
eyinga var háð að Laugum. -
Völsungar á Húsavílt unnu
mótið.
Sunnudaginn 5. ágúst var hið
árlega sýslumót Héfaðssambands
Súðúr-Þingeyinga haldlð að
Laugum. Kepþendur vorú um
30. íþróttafélagið Völsungar á
Húsavík vann mótið og hláut 55
stig. Ungmennafélagið Mývetn-
2. Hermann Baldvinsson, U.
F. Eining, 5.02.1 mín.
3. Þormóður Ásvaldsson, Efling
5.17.4 mín.
Langstökk.
. Vilhjálmur Pálsson, V., 6.38 m.
2. Jón Óskarsson, G., 5.89 m.
3. Gunnsteinn Karlsson, V., 5.88
Þrístökk.
1. Hjálmar Jón Torfason, L., 13.17
2. Vilhjálmur Pálsson, V., 12.88
3. Jón Óskarsson, G., 11.93 m.
Hástökk.
1. Vilhjálmur Pálsson, V., 1.65 m.
2. Gunnsteinn Karlsson, V., 1.60
3. Indriði Indriðason, U. M. F.
Bjarmi, 1.56 m.
Stangarstökk.
1. Vilhjálmur Pálsson, V., 3.22 m.
2. Hjálmar Torfason, L., 2.80 m.
3. Pétur Björnsson, V., 2.60 m.
Spjótkast.
1. Vilhjálmur Pálsson, VÞ., 53.70
2. Indriði Indriðason, B., 46.54 m.
3. Haukur Aðalgeirsson, M., 43.19
Kringlulcast.
1. Hallgrímur Jónsson, U. M. F.
Reykhverfingur, 43.0 m
2. Vilhjálmur Pálsson, V., 33.52
3. Ásgeir Torfason, L., 31.58 m
Kúluvarp.
1. Hallgrímur Jónsson, R., 13.49
2. Hjálmar Jón Torfason, L., 13.33
3. Ásgeir Torfason, L., 12.38 m.
100 m. bringusund karla.
1. Halldór Halldórsson, Efling,
1.24.6 mín.
2. Hallgrímur Jónasson, M., 1.30.5
mín.
3. Eyvindur Áskelsson, Efling
1.34.1 mín.
Að íþróttunum loknum fluttu
þeir ræður Karl Kristjánsson, al
þingismaður, og Júlíus Havsteen
sýslumaður, og kaflakór Reyk-
dæla söng undir stjórn Páls H.
Jónssonar. Ennfremur var sýnd
kvikmynd. Loks var dansað í
húsakynnum Laugaskóla. — Sár-
fáir sáust ölvaðir.
Margar tegundir af
Suðusúkkulaði
fyrirliggjandi.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvórudeild
og útibú.
Eitursódi
fyrirliggjandi.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin
og útibú.
Cítrónur
Sveskjur
Rúsínur
Aprikósur
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
og úlibú.
Sagógrjón
nýkomin.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin
og útibú.
Til sölu:
G hestafla Ariel-mótorhjól,
lagi.
góðu
Afgr. vísar á.
Haustbær kýr
til SÖlll.
Afgr. vísar á.
Enskur barnavagn
til sölu.
Afgr.
visar a.