Dagur - 29.08.1951, Page 7
Miðvikudaginn 29. ágúst 1951
D A G U R
<r
ÚR BÆ OG BYGGÐ
- Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
matarleytið síðastliðið sunnu-
dagskvöld, sagði, að ó einhverj-
um stað væri skyggnið 1—V2
kílómeter. Þetta er skakkt. Vega-
lengd þessi heitir á íslenzku
k'ílómetri. Eg hef hlustað á þessa
vitleysu árum saman í útvarp-
inu, og nú get eg ekki orða
bundizt. — Sama máli gegnir um
auglýsingar opinberra nefnda um
verð á mjólk, benzíni, olíu o. s.
frv. Þar hefur sífellt kveðið við,
að verðið skuli vera svo og svo
mikið pr. líter. Væri ekki hægt
að segja, að hver lítri skuli kosta
— o. s. frv. — Útvarpið mætti
gjarnan endurskoða málið á aug-
lýsingunum, sem það flytur.
Og enn skrifar Andri.
Rússland kemur til Akureyrar.
UM SfÐASTLIÐNA helgi lá
hér við Torfunefsbryggjuna rúss-
neskt móðurskip. Varð mörgum
Akureyringum tíðförult á bryggj
una á sunnudaginn, því að ýmsa
fýsti að sjá slcip, sem komið var
alla leið austan úr sæluríkinu
mikla. En það var ekki sjón, að
sjá. Skipið var ryðgað og sóða-
legt, augsýnilega eldgamall dall-
Ur, sem hefði getað verið lang-
amma Súðarinnar, og ef íslenzk-
ur útgerðarburgeis hefði gert út
slíkan farkost til fjarlægra landa,
er hætt við því, að „Verkamað-
urinn“ hefði talað um mann-
drápsbolla.
EN HVAÐ UM ÞAÐ. Þeim,
sem gengu niður á bryggjuna,
varð þó miklu tíðræddara um
annað. Landgöngubrúarinnar
virtist vandlega gætt. Aðeins fá-
einar hræður stigu á land þessa
daga, en alþýða manna húkti um
borð og etarði á land upp. Vita þó
allir — og sjómenn einna bezt, —
að þeim, sem búnir eru að velkj-
ást á hafi úti mánuðum saman, er
ekkert kærara en að hafa sem
snöggvast fast land undir fótum.
Ef Rússarnir hefðu verið frjálsir
ferða sinna, hefðu þeir áreiðan-
lega, eins og aði-ir erlendir sjó-
menn, sem hingað koma, gengið
á land og litazt um í bænum. En
þeir máttu fæstir fara í land. —
Hingað var komin dálítil spegil-
mynd af frelsinu nafntogaða í
Rússlandi.
EN VAR hér ekki ágætt tæki-
færi til þess að leyfa þessum
rússnesku sjómönnum að svipast
um hér í þessu, svívirðilega auð-
valdsríki og sjá spillingu þá og
eymd, sem alls staðar ríkir, þar
sem ekki er ráðstjórn eða al-
þýðulýðveldi? Til þess eru vítin
að varast þau. Nei, yfirvöldin í
Moskvu treysta ekki glögg-
skyggni alþýðunnar, og rússnesk
skip í vestrænum höfnum eru
éins konar fangelsi. Áróðursvélin
austur frá afhendir almenningi
alla þá þekkingu um vestrænar
þjóðir, sem holl er talin, en rúss-
neskir sjómenn mega engum
þjóðum kynnast af eigin raun.
Þetta er líklega góð og happa-
drjúg aðferð til þess að efla
skilning og vinsemd þjóða á
milli? Á þennan hátt er unnið
gegn skilningsleysi og hatri, á
þennan veg er unnið fyrir frið-
inn!
Trillubátur
Vil selja 3l/£ tonns trillu-
bát með 5 til 9 hestafla Sab-
hráolíuvél. Veiðarfæri geta
fylgt. Allt í góðu standi.
Ingimundur Árnason,
Akureyri.
DÍVANAR,
ýmsar breiddir.
Ennfremur divanteppi,
2 litir.
Dívanavinnustofan,
Brekkugötu 15.
Sörni 1502.
Sundlaugin
að Laugalandi í Hörgárdal
er lokuð fyrst um sinn.
Sundlaugarnefnd.
Gúmmíslöngur
%’■’> 3A” °g i”.
Járn- og glervörudeild.
Hifageymar
lekatlar,
3 stærðir.
Járn- og glervörudeild.
V eiðistangar-kasth jól
tapaðist fimmtudaginn 23.
þ. m. úr Eiðsvallagötu inn
í Aðalstræti. Skilist á Lög-
regluvarðstofuna.
Til sölu:
Borðstofuhúsgögn (ensk),
sófasett (svefnsófi), 2 dív-
anar og barnarúm.
PÁLL ÁRDAL,
Nýju heimavistinni.
Sími 1895.
Hús - Ibúð
Einbýlishús eða íbúð ósk-
ast keypt hér í bænum.
Upplýsingar lijá afgreiðslu
llags.
Vil selja
kú og kvígu
Halldór Halldórsson,
Vöglum, Þelamörk.
Hænuungar
Get útvegað hænuunga
(Brúna ítali).
Bjar>ii Finnbogason,
Shni 1533.
IBUÐ
óskast til leigu. Mikil fyrir-
framgreiðsla.
Afgr. vísar á.
Stúlka,
helzt vön verzlunarstörfum,
óskast til afgreiðslustarfa nú
þegar.
Upplýsingar í
Verzl. ÁSBYRGl.
Bifreið
Lítil fólksbifreið til sölu.
Upplýsingar í síma 1482.
Grár liestur,
ómarkaðúr, 12 vetra* klár-
gengur, tapaðist frá ferða-
mönnum á Leirdalshéraði,
sunnudaginn 19. ágúst. Hest-
urinn var nreð beizli. — Þeir,
sem kynnu að hafa orðið hans
varir, vinsaml. láti Árna Ara-
son, Grýtubakka vita. Sími
um Grenivík.
Stórt herbergi,
í nýju lnisi á Oddeyri, til
leigu.
Afgr. vísar á.
Góð stofa
til leigu.
Afgr. vísar á.
Jeppabifreiðin
A-410 er til sölu nú þegar.
Bifreiðin er í mjög góðu
lagi og með nýju, vönduðu
húsi.
Tilboðum sé skilað fyrir 15.
sept. n. k. til Hallgrims
Indriðasonar eða Kristins
Ingólfssonar, Kristneshæli,
sem gefa allar nánari upp-
lýsingar. — Réttur áskilinn.
Jarpur hestur
tapaðist frá Akureyri síðastl.
miðvikudag. Mark: Tvíst. a.,
Ihti fr. h.; tvíbitað fr: v. —
Brennimerktur á framfæti,
aljárnaður, gæfur.
Finnandi vinsaml. geri að-
vart í síma 1697.
Herbergi
vantar reglusaman mann
frá 1. október.
Afgr. vísar á.
Fiður og hálfdúnn
til sölu.
SÖLUSKÁLINN
Sími 1427.
Kirkjan. Messað á Akureyri
sunnudaginn 2. sept. kl. 2 e. h.
Athygli safnaðarins skal vakin á
því, að með septembermánuði
breytist messutími í hið fyrra
horf, kl. 2 e. h. — F. J. R.
Hjónabönd. 23. ágúst: Guðný
Pálsdóttir, Einarssonar og Þór-
oddur Jónasson ,la?knir, Akur-
eyri. — 24. ágúst: Margrét
Kristín Helgadóttir, Pálssonar,
og Aðalsteinn Björnsson, bifr.stj.,
Borgarnesi. — 25. ágúst: Ásta G.
Þengilsdóttir, Þórðarsonar, og
Valdemar Jóhannsson, húsg.sm.,
Akureyri. Gift af F. J. R.
Áheit á Strandarkirkju. Kr.
110.00 frá N. N. og kr. 50.00 frá
N. N. Móttekið á afgr. Dags síð-
astl. laugardag.
Álieit á Akureyrarkirkju. Kr.
25.00 frá O. Þ. Móttekið á afgr.
Dags.
Möðruvallakl.prestakall. Mess-
að á Bakka í Öxnadal sunnudag-
inn 2. sept. kl. 1 og í Skjaldarvík
sunnudaginn 9. sept. kl. 2 e. h..
Aðgefnu tilcfni skal fram tekið
að umdeildur reikningur til bæj-
arins fyrir raflögn í sýningar-
klefa í Samkomuhúsin.u er frá
Afl h.f. hér ,í bæ, sbr. frétt í síð-
asta blaði og bókun í fundargerð
bæjarráðs.
Tvö Reykjavíkurblaðanna,
Mánudagsblaðið og Morgun-
blaðjð,. hafa nýlega slcýrt svo
frá, að helmingur skipshafnar-
innar á togaranum Maí frá
Hafnarfirði. hafi. gert upþreisn
gegn skipstjóra sínum, þannig,
að hásetarnir hafi neitað að
kasta á upsatorfu — talið ekki
borga sig að leggja á sig svo
mikið erfiði, þótt eigandi
skipsins, Bæjarúígerð Hafnar-
fjarðar, kynni að hagnast eitt-
hvað á slíkum veiðum. — Mæl-
ist þetta að vonum illa fyrir, en
almenningur mun hins vegar
óráðinn í því, hvort hann á áð
trúa sögunni, því að heimild-
irnar þykja ekki góðar, þar eð
önnur og áreiðanlegri blöð í
höfuðstaðnum munu ekki hafa
birt þessa óvenjplegu fregn.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 50
frá N. N. Móttekið á afgr. Dags.
75 ára varð á mánudaginn Jón
Austfjörð, kunnur, vinsæll og
vel virtur borgari hér í bæ.
Ný forstöðukona. Valgerður
Árnadóttir frá Hjalteyri, sem
verið hefur að undanförnu hann-
yrðakennari við Húsmæðraskóla
Akureyrar, hefur nú verið sett
skólastjóri þar næsta skólaár.
Hjónaefni. Ungfrú Auðúr
Antonsdóttir, Rauoumýri 14, og
Sigþór Valdimarsson, Fróðasundi
11, Akureyri .— Ennfremur ung-
fi-ú Helga Hrönn Unnsteinsdóttir,
Rauðumýri 18, .og Hermann
Hólm Ingimarsson, Rauðumýri
20, Akureyri.
Knattspyrnumót UMSE hófst
sl. sunnudag að Hrafnagili. Þar
kepptu Árskógsströndungar og
Svalbarðsströndungar, og sigr-
uðu þeir síðarnefndu með 3 : 2.
— Á mánudag kepptu lið frá
Öngusstaðahreppi og Hrafnagils-
hreppi. Jafntefli varð 1 : 1.
1 tilkynningu frá „Húsgagna-
verkstæðinu Hefill“ frá 15. þ. m.
misritaðist hér í blaðinu heiti
fyrirtækisins. Húsgagnaverkstæð
ið Hefillinn á að vera Húsgagna-
verkstæðið Hefill. Leiðréttist
þetta hér með.
Iðnskólanemendur, Akureyri!
Sækið skólaspjöld yðar sem fyrst
og greiðið það sem vangoldið er.
Nefndin.
Akureyrartogararnir
„Bákarnir" eru nú hættir
karfaveiðum. Harðbakur er þeg-
arf kominn á ísfiskveiðar, en hin-
ir tveir eru á förum. Jörundur
stundar enn síidveiðar.
Appelsínusafi
(frá Palestínu)
nýkominn.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvöriideildin
og útibú.
(útlend),
Vefnaðarvörudeild.
Baiid og ðopi
(fjölbreyttir litir).
I' Vefnaðarvörudeild
1________________________________________________