Dagur - 31.10.1951, Blaðsíða 5

Dagur - 31.10.1951, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 31. október 1951 D A G U R 5 JÓN ST. MELSTAÐ óðalsbóndi á Hallgilsstöðum Sjötugur 29. október 1951 Þó vetur ijaldi veðra-ranninn, veslur linjúka sólin gyllir. Og vestan Hörgdr vökumanninn vinafjöldinn glada hyllir. — Glœst er honum gleði-bdra. Geislum sveipa, Ijóssins völdin, silfurhœrðan sjötíu dra scemdargarpinn, óðalshöldinn. Helju-bóndans margir rninnast, manndóms-sögu hans til visa. Þó kynlegt öðrum kunni finnast, kýs eg honum þannig lýsa: Harðskeyttur i héraðsdeilum, hreinn og snerpuhvass i máli, aldrei lidður hyggju-veilum, horskur beilir viljans stdli. Harin er bónda-brynju klceddur, á búrnamis-verði aldrei sef ur, manndóms-þreki góðu gceddur Grettis-taki orkað hefur. Stjórna búi kann og kurini, kappinn rndtti aldrei slóra, rammgjör húsin reisti af grunni og rœktaði töðu-velli stóra. Snjall i sókn og vaskur d verði, vökull enn d hólmi stendur, vikings-reifur veifar sverði og varið getur bdðar hendur. En kjarkur bilar, kraftaf slitria, kynsfóð gleyrnast áraraðir. Þó rnun lengi um verlt hans vitna vildisjörðin: Hallgilsstaðir. Þessurn höld og heiðursrnanni hylli veitlist fljóða og sveina. — Hallgilsstaða hans að ranni heilladísum vil eg beina. Þeirra unaðsþokki skartar, þcer að vonutn gæfu-bliðar lýsi Melstað leifturbjartar að lokastundu œvitíðar. GUNNAR S.. HAFDAL. — Bindindissamtökm (Framhald af 1. síðu). tveggja verður algerlega útrýmt úr landinu. Vér krefjumst þess og, að fram fari þjóðaratkvæði um sterka, áfenga ölið, ef til máls skyldi koma að leyfa framleiðslu þess. Þjóðinni í heild, ríkisstjórn og Alþingi, ber heilög skyida tii þess, að vernda heill og hag þjóðarinnar, og hvers einstaks þjóðfélagsþegns, fýrlr skemmd- arverkum áfengisneyzlunnar. — Æskulýðurinn og heimilin eru í voða, atvinnulíf þjóðarinnar bíð- ur stórtjón, almennu siðferði hrakar og fjöldi manna sekkur niður í það eymdarástand, sem ekki er hægt að láta afskiptalaust. Þjóðin leyfir enn áfengissöluna, og henni ber siðferðileg skylda til þess að binda um sárin, að draga úr eymd þeirra, 'sem verst fara, og að hefja í alla staði öfl- ugt viðreisnar- og áfengisvarna- starf.“ Að ávarpi þessu standa: Stór- stúka íslands, Þingstúka Reykja- víkur, Umdæmisstúka Vestur- lands, Áfengisvarnanefnd kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði, Um- dæmisstúka Suðurlands, Um- dæmisstúka Norðurlands, Sam- vinnunefnd bindindismanna og Áfengisvarnanefnd Reykjavíkur. I STUTTU MALI HRÍSGRJÓN eru enn skömmtuð í Danmörk. Þykja það tíðindi þar í landi, að ný- lega hefur verið ákveðin 25 grannna aukning skammtsins til jólaglaðnings, og verður mánaðarskammturinn þar með 350 grörnrn á mann. ★ NÝLEGA báðust 8 lögrcglu- menn úr herlögreglu komm- únista í Austur-Þýzkalandi landvistar í V.-Þýzkalandi. — „Við erum búnir að fá nóg,“ sögðu þeir. Samtals hafa 1070 austur-þýzkir lögreglumenn ílúið frá kommúnistum síðan hernámið hófst. ★ DANSKI verzlunarmálaráð- herrann tilkynnii þinginu 23. þ. m., að búast mæíti við áframhaldandi verðhækkun- um á innfluttum varningi. — Verðhækkanir síðustu mán- aða kvað hann m. a. þessar: Húðir, leður og skófatnaður hefur á einu ári hækkað í verði um 84%, tré og pappír um 77%, eldsneyti um ca. 51%, járn og aðrir málmar um ca. 40%, fóðurvörur um 24%, matvæli úr dýraríkinu um 6% og úr jurtaríkinu um 15%, vefnaðarvörur um ca. 40%, ★ f UMRÆÐUM um verzlun- armál í danska þinginu 22. okt. sl,, var kvartað yfir of hárri álagningu verzlana og mis- munandi verði á sömu vöru- tegundum. Verzlunarmála- ráðherrann svaraði því til, að neytendur ættu ekki að skipta við þá, sem scldu óhóflega dýrt. ★ DANSKA tannlæknasam- bandið og danski Rauðikross- inn hafa byrjað samstarf til þess að vinna gegn tann- skemmdum ungbarna. Athug- anir liafa lcitt í ljós, að 2/3 af þriggja ára börnum í Dan- niörk hafa meiri og minni tannskemmdir. ★ DANSKA SIíALDIÐ og Moskvakonnnúnistinn Martin Andersen Nexö er fluttur til Ausíur-Þýzkalands cg segist hafa yfirgeíið „dcn hjemlige Svmesti“ að fullu og öllu. — Kommúnistar í A.-Þýzkalandi hciðruðu Nexö með hók- menntaverðlaunum á döguu- um og þakkaði hann heiðurinn í hjartnæmu bréfi til Pieck forseta og segir þar, að þetta sé raunverulega fyrsta viður- kcnningin, sem sér hafi ldotn- azt. Dönsk blöð minna á, að Nexö hafi í áratugi verið á rit- hcfundalaunum hjá danska ríkinu og telja flest, að sú styrkveiting hafi þegar staðið of lengi yfir úr því að þotta séu þakkirnar! Mest og bezt úrval. Elclvi gerðir selclar fyrir hálivirði. Anna & Lreyja Sundkeppni í Barna- skóla Akureyrar Barnaskóli Akureyrar efndi lil boðsundskeppni í sundlaug bæj- arins .sunnudaginn 14. okt. sl. — Vegalengdin var 10x35 m. og höfðu allar deildir skólans rétt til þátttöku. Keppt var um farand- bikar, er Snorri Sigfússon náms- stjóri gaf skólanum í þessu augnamiði, og mun þessi keppni væntanlega verða fastur liður í íþróttastarfi skólans hér eftir. Sú deild, er sigrar í keppninni hverju sinni fær gripinn til varð- veizlu þar til keppni fer næst fram. Auk þess fá einstakling- arnir í þeirri sveit, er sigrar, minjagrip. Að þessu sinni kepptu fimm sveitir úr 6 .og 5. bekkjum skólans, og urðu úrslit þessi: — 1. 6. bekkur, 12. stofu, A-sveit, 6 mín. 00.3 sek. — 2. 6. bekkur, 14. stofu, 6 mín. 59.5 sek. — 3. 5. bekkur, 2. stofu, 7 mín. 6.6 sek. — 4. 6. bekkur, 8. stofu, 7 mín. 12.0 sek. — 5. 6. bekkúr, 12. stofu, B- sveit, 8 mín. 2.0 sek. — Keppnin gekk rösklega og var oft mjög tvísýn. Áhorfendur, sem voru flestir ungir, fylgdu keppninni með brennandi áhuga og virtust skemmta sér prýðilega. — Gef- andi gripsins, keppendur og kennarar, sem stuðluðu að keppni þessgri, eiga þakkir skyid ar fyrir þelta framtak sitt, sem vonandi verður til að auka áhuga Akureyringa fyrir kappsundi og sundíþróttinni yfirleitt. Góð sala. Harðbakur seldi 3481 kit í Grimsby í gær fyrir 11.389 stpd. Er það ágæt sala. — Kaldbakur selur í Grimsby í dag og munu markaðshorfur góðar. í allan viðkvæman þvott Sápuverksmiðjan Sjöfn Akureyri. Niðmsoðin Jarðarber og Hindber nýkomin Kjötbúð KEA. Sími 1714 og útibúið Rdnargötu 10 Sími 1622. Syggingaleyfi Fjárhags ráðs og atvinnumál bæjarins NÝLEGA sainþykkti bæjar- stjórn Akureyrar ályktun, þar sem sú skoðun var látin í ljós, að synjanir Fjárhagsráðs um leyfi til framhaldsframkvæmda við ýmsar byggingar hér í bæ, stuðl- aði beinlínis að atviimuleysi í bænum, sem væri þegar alvarlegt vandamál. Tilcfni þessarar sam- >ykktar var sú tregða, sem Fjár- hagsráð hafði sýnt í því að leyfa Kr. Kristjánssyni forstj. á BSA að byggja 3 .hæð verzlunarhúss þess er lrann á í smíðum við Geislagötu, en kunnugt var að Kristján átti hér allt efni til þessara framkvæmda og skorti ckkert til að halda þeim áfram ncma Ieyfi Fjárhagsráðs. Litlu eftir að bæjarstjórn gerði þessa samþykkt, fékk Kristján leyfið og hófst þegar handa. En þarna varð samt, óútskýrð og óskiljan- leg töf á framkvæmdum fyrir beinar aðgerðir Fjárhagsráðs. —o— ANNAÐ stórhýsi er í smíðum hér í bæ, nýbygging Landsbank- ans. Mun bankinn ekki hafa fengið leyfi til þess að halda byggingunni áfram fyrr en um líkt leyti og Kr. Kr., eða þegar komið var fram undir vetur og' íyrstu : njóar gengnir í garð. Ár- angur þessa seinlætis mun nú verða sá, að framhald þessarar byggmgai', sem hefði getað orð- ið veruleg atvinnubót fyrir bygg- ingamcnn, bíður sennilega næsta árs. Þcssi afgreiðsla mála er einnig óútskýrð og óskiljanleg út frá nokkru skynsamlegu sjónar- miði. —o— ÞEGAR ein nefnd á að ákveða byggingar um gjörvallt landið, verður útkoman ærið oft handa- hófslcg og óskynsamleg, cins og’ hér hefur nú orðið. Ástæðan er fyrst og frcmst sú, að kerfið, scm byggt er á, er rangt. Ein reykvísk nefnd hefur enga aðstöðu til þess að meta réttilega áðstöðuna á hverjum stað á landinu og kveða á um hvað sé gott og hvað ekki fyrir íbúana. Það er furðuleg of- trú á ríkis-ccntralisationina að halda, að svona vinnubrögð geti nokkurn tíman orðið annað en handahófsleg og oft ranglát og' heimskuleg. Byggðalögin þurfa að cndurheimta þann rétt ,scn> tcldnn hefur verið af þcim í þessu efni og á fjöldamörgum öðrum sviðum, til tjóns fyrir þau sjálf og þjóðfélagið í heild . Sænskir olíubrennarar, 1 algerlega sjálfvirkir — ágæt tegund — fyrirliggjandi. Olínkynding er ódýrasta upphitunin. Olíusöludeild KEA. AUGLÝSIÐ í DEGI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.