Dagur - 31.10.1951, Blaðsíða 11
Miðvikudaginn 31. október 1951
D A G U R
11
- Fokdreifar
(Framhald af 6. síðu).
undanförnum árum. Boðar sjón-
pípan breytta hernaðartækni?
Eða hefur hinn slyngi foringi
skipað liði sínu þannig, að öruggt
sé til nokkurs ávinnings, enda
þótt stjórnarhæfileika hans njóti
nú ekki við um sinn ? Líklega má
telja, að vel sé staðið á verðinum
meðan kafbátsforinginn hleður
batteríin í austurvegi.
- Dagskrármál
landbúnaðarins
(Framhald af 2. síðu).
ið að sauðfjárbændur hafi fengið
mjög hagstæðan markað fyrir
vöru sína vestan hafs. Segja gár-
ungarnir að dilkakjöt muni ekki
fást til átu innanlands framvegis.
Aðal kjötfæða í bæjum og þorp-
um verður því væntanlega kjöt
af skagfirzkum stóðmerum, af-
lóga kýrbeyglum, gamalám og
öðru því um líku. En í skamm-
degi vetrarins ættu menn að
hafa nægan tíma til að jóðla á
þessu og geta menn þá fengið sér
mjólk með, ef kjötið þykir seigt
og þurrt undir’ tönn.
Hrossakjöt og kýrkjöt verður
sennilega aldrei útflutningsvara,
en það má heita neyðarlaust að
borða þessa framleiðslu, ef verð
er hóflegt.
Því miður getum við ekki, eins
og er, hætt við fóðurbætisgjöf,
vegna þess að heyfengur lands—
manna er ekki nægur handa
búfénu. En því fyrr sem hægt er
að draga úr fóðurbætisgjöf því
betra. Takmarkið hlýtur að vera
hið sama hjá okkur og Norð-
mönnum, sem sagt það, að fram-
leiðsía búfjávafurða verði a'ð
mestu eða ö'lu leyti byggð á
innlendri fóðuröflun og þá fj’rst
og fremst heyöflun.
A. J.
Nýtt! Nýtt!
Gabardinekápor
með flónelsfóðri og skinni,
ltoma út um næstu helgi.
Verzl. B. Laxdal.
Vandaðir
Nylonsokkar
Verð: Kr. 36.00.
Verzl. B. Laxdal.
Nýkomið:
Kvenhanzkar, fóðraðir
Kvensokkar, Gler-Nylon
Kventöskur, nýjar gerðir
Leðurbelti, Parísartízka
Storeseíni, dýrt en vandað.
Verzl. B. Laxdal.
óskast í miðbænum. — Til-
boð sendist afgr. Dags fyrir
föstudagskvöld, merkt:
,,Reglusamur“.
Halló!
Karlmannsur tapaðist síð-
astliðinn föstudag. Fund-
arlaun.
Afgr. vísar á.
Tek reiðhjól
til geymslu í vetur. — Við-
gerðir fyrir þá, sem óska.
Reiðlijólaverkstœði
H. Halldórssonar,
Hólabraut 19.
Skápur,
fyrir föt og tau, og spila-
borð, til sölu.
Afgr. vísar á.
Góð síúlka,
eða miðaldra kona, óskast
til þess að annast heimili í
veikinda-forföllum.
Afgr. vísar á.
Bíl! til sölu
með tækifærisverði, ef sam-
ið er strax.
Gisli Eiriksson.
Sími 1641.
Lítill bátur
Til sölu er litli báturinn
minn. Vélin að miklu leyti
ný og nýtt afturstefni og
kjölur í bátnum. Báturinn
er til sölu heima hjá mér.
Lúther Jöhannesson,
Lundargötu 17.
Næla og trefill
tapaðist í Nýja Bíó síðastl.
sunnudag kl. 5. — Finnandi
vinsamlega skili því á algr.
Dags.
Kona
óskar eftir ráðskonustöðu
í bænum.
Afgr. vísar á.
BÆ OG BYGGÐ
Opinbert uppboð fer fram við
Lögregluvarðstofuna þriðju-
daginn 6. nóvember n. k., kl.
2 síðdegis. Selt verður leirtau,
brjóstsykur, kex, útvarpstæki
o. fl. Að því loknu verður
uppboðinu handið 'áfram í
vörugeymsluhúsi Eimskipafé-
lags Islands, og verður þar
seld DÓSAÞVOTTA VÉL lyr-
ir niðursuðudósir og merki-
miðar. Greiðsla við hamars-
högg.
Bæjarfógetinn á Akureyri,
27. október 1951.
Friðjón Skarpháðinsson.
Bifreiðar og bifhjól, sem
ekki hafa verið greidd af lög-
boðin gjöld, er féllu í gjald-
daga í ársbyrjun 1951, verða
seld á nauðungaruppboði án
undangengins lögtaks að 30
dögum liðnum frá deginum í
dag að telja.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu
og Akureyrarkaupstaðar,
22. október 1951.
Friðjón Skarphéðinsson.
50-60 hestar áf stör
til sölu.
Afgr. vísar á.
Herbergi
til leigu í
Skipagötn 2.
Akureyringar!
Tuttugasti og fimmti vetur
minn á Akureyri er að hefjast.
Ég kom hingað til að læra að
halda kristilegar samkomur. Ég
hélt, að ég þyrfti ekki langan
tíma til þess og ætlaði aldrei að
dvelja hér svo lengi.
Dvöl mín getur farið' að stytt-
ast, — ef til vill fyrr en mig eða
aðra varir. Lífs eða liðinn vil ég
þó ekki fara án þess að hafa gefið
fólki sérstakt tækifæri til að
heyra þann boðskap, sem mér
hefur orðið hamingjulind og
gleðigjafi í lífinu. Hamingju og
gleði, hvaða hjarta þráir ekki
þetta tvennt?
Ég býð því öllum almenningi,
hverjum þeim, sem koma vill og
getur það, að sækja nokkrar sér-
stakar samkomur, sem ég ætla að
halda hér á Sjónarhæð, ef Guð
lofar. Þær hefjast næsta sunnu-
Kirkjan. Messað á Aku.reyri
sunnudaginn '4. nóv. kl. 2 e. h.
Allra-heilagra-messa. (Minning
framliðinna). — F. J. R.
□ Rún.: 595110317 — 1
Sextugur verður næsik. sunnu-
dag Kristinn Jónsson verkstjóri
(frá Kaupangi),, Gierárgötu 12
hér í bæ.
KEA efnir til fræðslu- og
skemmtifundar að Hótel KEA
annað kvöld. Þar flytja erindi
Jakob Frímannsson forstj. og
Baldvin Þ. Kristjángson erind-
reki, sýndar verða kvikmynd-
ir og leikin létt lög. Nánar
auglýst annars staðar í blað-
inu.
Gömul áheit á Strandarkirkju
kr. 550.00 frá N. N. Móttekið á
afgreiðslu Dags.
Trl Sólheimadrengsins. Áheit
kr. 100.00 frá gamalli konu. —
Móttekið á afgr. Dags.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 70
frá G. S. Mótt. á afgr. Dags.
Kvenfélagið Framtíðin heldur
fund annað kvöld í Alþýðu-
flokkshúsinu við Túngötu kl.
8.30 e. h.
Sjónarhæð. Sunnudagaskóli kl.
1 og almenn samkoma kl. 5 á
sunnudögum.
Fíladelfía. Samkomur í Lund-
argötu 12: Sunnudaga og fimmtu
dag kl. 8.30 e. h. — Allir vel-
komnir. — Sunnudagaskóli hvern
sunnudag kl. 1.30 e. h. — Öll börn
velkomin.
Guðsjijónustur í Gnmdarþinga-
prestakalli. Munkaþverá, sunnu-
daginn 4. nóv. kl. 1 e. h. — Hól-
um, sunnudaginn 11. nóv. kl. 1
e. h. — Saurbæ, sama dag kl. 3
e .h.
Fræðslufund á vegum KEA
heldur Baldvin Þ. Kristjánsson
erindreki í Grenivík í kvöld.
Guðspekist. „Systkinabandið“
heldur fund þriðjudaginn 6. nóv.
næstk. kl. 8.30 síðdegis. — Erindi.
— Upplestur.
Kvcnnadeild Slysavarnafél. fsl.,
Akureyri, heldur fyrsta vetrar-
fund sinn að Lóni föstudaginn 2.
nóv. kl. 8.30 e. h. Mörg verkefni
á fundinum, og er því æskilegt að
konur mæti vel og stundvíslega.
Gjörið svo vel og takið með verk-
efni og kaffi. Stjórnin.
Dánardægur. Nýlega andaðist
í Sjúkrahúsi Akureyrar Jens
Kristjánsson bóndi frá Stærra-
Árskógi á Árskógsströnd. Hann
var jarðsettur að heimili sínu
síðastl. föstudag.
Leiðrétting. f síðasta tölublaði
Dags misritaðist í tilkynningu
um jarðarför Helgu frá Myrká,
þar sem stóð Helga Guðrún, átti
að vera Helga Guðríður. Leið-
réttist þetta hér með.
Árshátíð Golfklúbbsins verður
að Hótel KEA 3. nóvember, og
hefst með borðhaldi kl. 7 e. h. —
Áskriftarlisti liggur frammi á
Rakarastofu Sigtryggs og Jóns.
I. O. O. r. 133112Sy2
Sunnudaga-
skóli Akv.r-
eyrarkirkju
er á sunnu-
daginn kem-
ur kl. 10.30 f. h. — 5—6 ára börn
í kapellunni. — 7—13 ára börn í
kirkjunni. — Bekkjarstjórar
mæti kl. 10 f. h.
Æskulýðshá-
tíðin er n.k.
sunnudag og
hefst með sam-
eiginlegri kaffi
dfykkju kl. 4
e. h. að Hótel KEA. Aðgangur-
inn kostar 15.00 kr. Yngstudeild-
arfélagar fá miðana hjá Nirði
Tryggvasyni. Miðdeildarfélagar
hjá Hallgr. Baldvinssyni og elztu
deildarfélagar hjá Guðm.
Tryggvasyni.
75 ára varð í gær Jóhann Jóns-
son verkamaður, Ægisgötu 12
hér í bæ.
í Hrossaslátrun á Sláturhúsi
KEA stendur yfir og augl. kjötb.
hrossakjöt af öllum aldursflokk-
um, sem selzt mjög ódýrt, þegar
keypt er í heilum stykkjum. —
Þetta munu ódýrustu matarkaup,
sem nú er völ á.
Stúkan Ísafold-Fjallkonan nr. 1
heldur fund næstk. mánudag, 5.
nóv., kl. 8.30 síðd. á venjulegum
stað. Venjuleg fundarstörf. Inn-
taka nýrra félaga. Hagnefnd
skemmtir og fræðir. AUt nánar
auglýst síðar í götuauglýsingum.
Fjölmennið á fundinn. — Nýir
félagar alltaf velkomnir.
Hjálpræðisherinn, Strandg. 19B.
Föstudag 2. nóv. kl. 8.30 e. h.:
Trúboðssamkoma. — Sunnud. kl.
11 f .h.: Helgunarsamkoma. Kl.
8.30 e. h.: Hjálpræðissamkoma.
Lautinant Karl Nilsen stjórnar.
— fyrir börn: Föstudaga kl. 5 e.
h.: Kærleiksbandið, drengir. Kl.
6: Kærleiksbandið, telpur. —
Sunnudaga kl. 2 e. h.: Sunnu-
dagaskóli.
Samkvæmt upplýsingum frá
séra Friðrik J. Rafnar hefur
hann tekið á móti áheitum á
Strandarkirkju er safnast hafa
hjá blöðum bæjarins á þessu ári
og fleiri aðilum, kr. 7900.00. Þar
af hefur afgreiðsla Dags afhent
honum kr. 4495.00. Sézt af þessu
að enn verður strandarkirkja vel
við.
Zion. Samkomur næstu viku.
Sunnudag kl. 10.30 f. h. sunnu-
dagaskóli. Kl. 1 e. h. drengja-
fundur (yngri deild). Kl. 2 e. h.
drengjafundur (eldri deild). Kl.
8.30 e. h.: Almenn samkoma.
Allir velkomnir. Fórnarsamk.
Þriðjudag kl. 5.30 fundur fyrir
telpur 7—13 ára. Miðvikudag kl.
8.30 e. h.: Biblíulestui-. Fimmtu-
dag kl. 8.30 e. h. fundur fyrir
ungar stúlkur.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Freygerður
Magnúsdóttir og Jóhann Bjarmi
Símonarson.
Svartar
peysufatakápur
Gabardinekápur
Mislitar vetrarkápur
Mikið úrval.
Verzl. B. Laxdal.
Lækningastoíu
opna ég i Hafnarstræti 87
fimnltudaginn 1. nóv. Við-
talstími: 10—12. Sími 1405.
Heimasími: 1995.
Ólafur Sigtirðsson,
læknir.
dag kl. 5 og verða síðan í viku á
hverju kvöldi kl. 8.30. Tilhögun
verður þannig, að sungnir verða
sálmar og síðan flutt ræða. Hver
samkoma verður stutt, aðeins
klukkutími. — Fólki skal einnig
bent á, að mörg ný og þægileg
sæti eru komin hér i salinn.
Svo hlakka ég til að sjá ykk-
ur. Verið hjartanlega velkomin.
Sæmundur G. Jóhanncsson.
Bókarfregn heitir ritlingur, sem
Norðri hefur gefið út og er þar
greint frá útgáfubókum forlags-
ins og auk þess listi yfir útlendar
bækur, sem bókabúð Norðra i
Reykjavík hefur til sölu og er
það fróðlegur listi og margt góðra
bóka, ennfremur listi um erlend
tíniarit og blöð, sem forlagið út-
vegar þeim, sem óskar. Eru þar
flest hin kunnari blöð og tímarit
í hinum engilsaxneska heimi, er
menn geta gerzt áskrifendur að
og greitt með ísl. krónum.
Brúðkaup. 27. okt. voru gefin
saman í hjónaband Helga Jó-
hanna Daníelsdóttir og Olafur
Þorst. Jónsson. Heimili þeirra er
að Snæbjarnarstöðum í Fnjóska-
dal. — 27. okt. ungfrú Sigurlaug
Friðgeirsdóttir og Koni'áð Sæ-
mundsson sjómaður. — 28. okt.
ungfrú Matthea Arnbórsdóttir og
Olafur Stefánsson iðnverkamað-
ur, Byrgi, Glerárþorpi. — Þessi
brúðhjón gaf séra Pétur Sigur-
geirsson saman.