Dagur - 31.10.1951, Page 7

Dagur - 31.10.1951, Page 7
Miðvikudaginn 31. október 1951 D A G U R 7 fíréf; Branabótafélagið og brunatryggingar á Akurevri Herra ritstjóri. í Fokdreifum „Dags“, þ. 17. þ. m., og sömuleiðis í annarri grein í sama blaði, um Slökkvilið Ak- ureýrar, eru birt nokkur miður vinsamleg ummæli um Bruna- bótafélag íslands. Þar sem í greinum þessum er rangt skýrt frá ýmsum atriðum, auðsýnilega af ókunnugleika höfundanna um mál þau, sem ritað er um, vil eg biðja yður að birta í blaði yðar neðangreindar leiðréttingar og skýringar. Þar sem greinin um slökkviðliðið virðist aðeins vera útdráttur úr Fokdreifagreininni, læt eg nægja að svara þeirri síð- arnefndu. Fokdreifaritstjórinn segir að „Reykjavík hafi fengið sig lausa úr greipum Brunabótafélagsins". Þetta er ekki rétt. Það hafa aldr- ei verið til lög um trygginga- skyldu á húseignum í Reykjavík í félaginu. Því er haldið fram, að iðgjöld þau er Brunabótafélag íslands lætur greiða á Akureyri séu yfir 100 þúsund kr. of há. Þessi full- yrðing er algerlega gripin úr lausu lofti, þar sem ekkert tilboð liggur fyrir um hagkvæmari tryggingar. — Um fjárhagsaf komu trygginganna á Akureyri skal þetta upplýst: Á 10 ára tíma- bili, frá 15. okt. 1939 til 15. okt. 1949, námu greiðslur á bruna tjónum og kostnaði 81,6% af inn borguðum iðgjöldum. Aðeins 18,4%, eða kr. 338.609.33, varð afgangs til að leggja í varasjóð á þessu 10 ára tímabili. Til jafnað- ar hefur því ágóði félagsins orðið kr. 33.860.00 hvert ár. Ef árleg iðgjaldaupphæð hefði verið ákveðin 100 þús. kr. lægri á þessu árabil, er ekki annað sjáanlegt en stefnt hefði verið. beinustu leið að gjaldþroti. Þetta er nú allt okrið. Fokdreifaritstjórinn virðist vera eitthvað hneykslaður út af síð- asta tilboði félagsins um lækkun iðgjalda. Á það nú einnig að reiknast félaginu til syndar, ef iðgjöldin verða lækkuð? — Ann- ars skal það upplýst, að þetta er ekki í fyrsta skipti, sem Akur- eyrarbæ er boðiniðgjaldalækkun. Skömmu eftir 1930 gerði félétg- ið bænum tilboð um lækkun ið gjalda, ef útveguð væru ny slökkvitæki (þ. e. slökkvibíll og dæla) og bauðst til að lána fé til kaupanna. Bæjarstjórn gekk að þessu tilboði og iðgjöldin voru lækkuð um 10—15%. Fáum árum síðar var bænum boðin ný ið gjaldalækkun, ef komið væri upp bi'unasímum. Aftur samþykkti bæjarstjórn tilboðið og iðgjöldin voru lækkuð. Nú býður félagið enn iðgjaldalækkun, gegn því að áhöld og aðbúnaður slökkviliðs- ins verði bættur, og föst bruna- varzla höfð á hinni nýju slökkvi- stöð. Innan skamms verður end- anlega gengið frá öllum atriðum í tilboði þessu, og verður það þá á valdi bæjarstjórnar, hvort ið- gjöldin verða lækkuð til mikilla muna frá því sem nú er. Brunabótafélag íslands hefur nú starfað í 35 ár. Allan þennan tíma hefur það kappkostað að hafa iðgjöld sín eins lág og fjár- hagsástæður þess hafa leyft. Fyr- ir forgöngu þess og fjárhagsað- stoð hafa brunavarnir verið bættar í öllum kaupstöðum og kauptúnum landsins, en það hef- ur skapað aukið öryggi og leitt til iðgjaldalækkunar. Enda hefur meðaliðgjald af fasteignum í landinu lækkað um 35,6% á starfstíma þess. Umboðsm. Brunabótafél. íslands. ATHS.: Dagur hefur gagnrýnt það fyr- irkomulag harðlega, að húseig- endur skuli skyldir til að tryggja húseignir sínar hjá ákveðnu félagi með lögum, í stað þess að bjóða tryggingarnar út á frjáls- um markaði. Umboðsm. félagsins hefur engar upplýsingar að gefa um það, um hve háa upphæð ÝMISLEGT FRA BÆJARSTJORN BÆJARÍÍÁÐ hefui’ samþykkt að greiða Baldvin Benediktssyni eftirlitsmanni með bsejarlandinu 1000 kr. upp í tjón, er Baldvin varð um á annað hundrað þús. kr. á fyrir er hestin- hans hlaut meiðsli í bæjarlandinu, svo að lóga varð ári. Afkoma Brunabotafelagsins iðgjöldin mundu lækka við frjálst útboð, en af iðgjöldum húsa í Reykjavík — þar sem frjálst út- boð gildir — má ætla að það fyr- irkomulag sparaði bæjarmönn- kr er engin afsönnun þess, að þessi yrði reynslan. Um tilboð félags- ins nú er það að segja, að það kemur seint fram og er ekki að- gengilegra en það, að þrátt fyrir stóraukin útgjöld bæjarins til brunavarna, sem krafizt er, eru líkur til að sama lækkun fengist þegar í dag á frjálsum markaði, áðui' en kröfum félagsins er full- nægt. Ritstj. RÁ BÓKAMÁRKÁDIHUM AUSTURLAND. — Safn aust- firzkra fræða, III. bindi. Bókaút- gáfan Norðri, að tilhlutan Sögu- sjóðs Austfirðinga. — Prentverk Odds Björnssonar hf., Akureyri 1951. Sögusjóður Austfirðinga mun áður hafa gefið út tvö bindi til safns austfirzkra fræða, er þeir Halldór Stefánsson og Þorst. M. Jónsson sáu um. Mér eru þau bindi ókunn, en við lestur þessa 3. bindis hefur vaknað hjá mér forvitni að lesa þau líka og hygg eg að svo muni fleirum fara. í þeim bindum mun m. a. vera saga byggðarinnar á Jökuldalshéiði, einhverrar afskekktustu og ein- kennilegustu byggðar á íslandi, sem flestum, er leið hafa átt um heiðina — er sameinar. á ein- kennilegan hátt fegurð og ömur- leika — hlýtur að leika forvitni á að kynnast. Þriggja manna rit- nefnd hefur séð um útgáfu þessa 3. bindis, Halldór Stefánsson, Sigurður Baldvinsson og Bjarni Vilhjálmsson, og hefur þeim tek- izt að gera þetta bindi fjölbreytt að efni og læsilegt, og má kalla suma þætti þess ágætan skemmti lestur, auk þess sem þai' er að finna mikinn fróðleik um líf og starf horfinna kynslóða og eftir- minnilegar myndir einstaklinga, sem sumar birta manni sérkenni- lega persónuleika ljóslifandi (Steindór í Dalhúsum) eða vekja forvitni og löngun til nánari þekkingar (Mensaldur Raben). Bókin hefst á „Papeyjarsögu og Papeyinga“ eftir þá Halldór Stef- ánsson forstjóra og Eirík Sig urðsson yfirkennara, og er þetta einn merkasti og mesti þáttur bókarinnar og lýsir landsháttum °g byggð í Papey frá fyrstu tíð fram á síðustu tíma og birtir ýmis atvik úi' lífi löngu liðinna Papey- inga. Þarna kemur fram sá per- sónuleiki þessara þátta, er mér ei' mest forvitni að heyra meira um og þykir ævintýralegastur, en það er Mensaldur hinn ríki Raben. Ævi hans og örlög geta verið efni til íhugunar. Halldór Stefánsson skrifar auk þess „Þætti um menn og viðburði“ og margir þættirnir mjög fróðlegir t. d. um Þingmúla- og Þórsnes- fundi Austfirðinga og um til- raunirnar til þess að sigla upp Lagarfljótsós og skapa Héraði þannig höfn. Annað efni er „Sagnaþættir“ eftir Sigmund Matthíasson Long, „Tveir þættir af Fljótsdalshéraði“ eftir Björn honum. — Mikið er um það um þessar mundir að menn sækja um landspildur til túnræktar á erfðafestu, í bæjarlandinu, frá Galtalæk að Mýrarlóni. Þorkelsson „,Þáttúr af Hermanni Firði“ eftir Sigurð Vilhjálms- son, „Þáttur af Þórði Eiríkssyni Vattarnesi" eftir Björn Sig- urðsson og loks „Þáttur af Stein- dóri Hinrikssyni á Dalhúsum" eftir Sigurð Baldvinsson. Hafa jessir þættir allir mikið til Síns ágætis, e. t. v. ekki sízt þeir tveir síðast nefndu, þótt ólíkir séu. Að lokum er eftirmáli, nafnaskrá og efnisyfirlit. Hér er ekki um neina sam- fellda sögu að ræða, heldur svip- myndir af liðinni tíð, sérkenni- legu fólki og minnisverðum at- burðum, allt innan ramma hinn- ar fögru og sérkennilegu aust- firzku náttúru. Þessar sögur hafa e. t. v. sérstakt gildi fyrir Aust- firðinga, sem vel þekkja stað- hætti og ættir. En eftir lestur Deirra er sérhver íslendingur nokkru fróðari en hann áður var um líf forfeðranna á öldunum síð ustu og um sérkennilegt skap- lyndi og sterkt og ósveigjanlegt einstaklingseðli ýmissa þeirra stofna þjóðfélagsins, er forðuðu því, að þetta litla þjóðfélag hyrfi inn i kennimarkalaust mannhaf margfalt stærri yfirráðaþjóðai'. Að öllu samanlögðu er þetta 3. bindi Austurlands enginn eftir- bátur þeirra héraðssagna, er beztar hafa þótt nú á síðari árum, t. d. Húnvetningasagnanna. — Þættirnir eru á góðu og mynd- auðugu máli, ytri frágangur bók- arinnar er góður, prentvillur nokkrar en flestar meinlausar. H. Sn. EFTIRTALDIR MENN hafa fengið 15 þús. kr. húsbyggingalán úr byggingalánasjóði bæjarins: Gunnar Aðalsteinsson, Gunnar Kon- ráðsson, Kristján Halldórsson, Jóhannes Wæhle, Hans Pedersen, Ásgrímur Albertsson, Stefán Vilmundarson, Guðm. Stefánsson, Ei- ríkur Stefánsson, Kristján Valdimarsson, Þorsteinn Símonarson, Ottó Þorsteinsson og Stefán ísaksson. — Bókasafnsnefnd hefur samþykkt að'béiná þeim tilmælum til bæjarstjórnar, að hún ákveði Davíð Stefanssyni eftirlaun úr bæjarsjóði er hann lætur nú af bókavarðarstöi'fum við Amtsbókasafnið eftir 25 ára þjónustu við safnið. — Steindór Stemdórsson vill athuga möguleika á því að safnið gefi út safn vísindaritgerða og skipti við erlend vísindafélög og stofnanir á slíku sáfni og útgáfuritum þeirra. ÍÞRÓTTAMÁLANEFND lætur þess getið í fundargerð nýlega, að vegna hækkunaf á rafmagni og hækkun vísitölu og kostn. við hús- vörzlu, hljóti leigá á húsinu að hækka í verði. — Atvinnumálanefnd bæjarins hefpr btent. á þe&si verkefni í fundargerð í þ. mánuði: Tunnusmíði (25 --30 þús. tunnur), framlenging Glerárgötu að fyrir- huguðu brúarstæSi, grjótnám í vetur, lögn frárennslis austur úr Strahdgötu; 'háfnarmannv.irkin á Oddeyri. JÓN SVEINSSON hdl. .hefur ritað bæjarstjórn langt bréf út af vatnsréttindum í Kífsárlandi, en Jón hefur málið með höndum fyrir bóndarin.'Býður Jón fram vatnsréttindin fyrir rafmagn frá bænum, er raftaugár vei'ða lagðar, i Kræklingahlíð, og nokkra árlega greiðslu. BÆJARRÁÐ hefur skorað á þingmann kaupstaðarins að vinna að því að háfin verði tunnusmíði hér í vetur og hefur alþm. flutt þingsályktunartill. í samræmi við þessa ósk. — Sjúkrabíll Rauða- krossins verður fyrst um .sinn í geymslu í nýju brunastöðinni skv. leyfi bæjarstjórnar. — Sósíalistafélag Akureyrar sendi bæjarstjórn erindi um byggingu hraðfrysfihúss fyrir forgöngu bæjarins. Engar áætlanir um kostnað við slíka byggingu né rekstursmöguleika, fylgja erindi þessu, enda mun það fremur miðað við kjósendaveiðar en fiskveiðar. , LOKSINS virðizt kominn skriður á að setja götunúmeraskilti á hús í bænum. Byggingafulltrúi bæjarins hefur númerin undir hönd- um og ber húseigendum að snúa sér til hans. Kristniboðsfél. kvenna á Akureyri 25 ára Á morgun, fimmtudaginn 1. nóv., verður Kristniboðsfélag kvenna 25 ára. Þrátt fyrir margs konar baráttu hefur það haldið út og starfað sleitulaust öll þessi ár. Vonandi fjölgar þeim, seni af innri köllun vilja styðja kirkju Krists, og augu fjöldans opnist fyrir þeirri bjargföstu staðreynd síðir. Allur hroki að brotna. eh þar víða komið við og eru jnti5mur getu rbjargað heimin- um. Allar efasemdir og ádeilur vantrúarinnar verða að víkja um að ekkert annað en sannur krist- Heimurinn stendur á öndinni af eftirvæntingu, hann veit um leiðina en þeir ekki. Þess vegna eru kristniboðsfélögin svona fá menn. Heill fylgi Kristniboðs félagi kvenna í framtíðinni. Áhorfandi. REYKJAVÍKURBLAÐ segir vitamálastjórnina hafa skrifað bæj- stjórn hér um danska blýgrýtismálið (sjá frétt annars staðar í blað- inu), en skrifstofa bæjarstjóra kannast ekki við neitt slíkt bréf. Sameinuðu þjóðirnar lijálpa börnum í Kóreu 43 hinna Sameinuðu þjóða liafa myndáð samtök um að lijálpa eftir megni flóttafólki í Kórcu, einkum börnum, scm orðið hafa munað- aríaus vegna hins glæpsamlega árásarstríðs kommúnist. Myntlin sýnir framkv.stj. hjálparsjóðsins, J. Donald Kingsley, í flóttamanna- búðum í Suður-Kóreu.'"'

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.