Dagur - 14.11.1951, Side 1
Auglýsendur! Munið, að aug-
lýsingar verða að vera komn-
ar til afgreiðslunnar eða í
prentsmiðjuna fyrir kl. 2 á
þriöjudögum.
Afgreiðslan biður kaupendpr
að innleysa greiðlega póst-
kröfur þær fyrir andvirði
blaðsins, sem hafa verið send-
ar út þessa dagana.
XXXIV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 14. nóvember 1951
45. íbl,
Heilbiigðisstarf Sameinuðu |)ióðaniia
Alþjóðlegi barnahjálparsjóðurinn og alþjóða heilbrigðisstofnunin
(deildir S. Þ. er njóta stuðnings og fjárframlaga flestra þjóða nema
Rússa) vinna stórmerkt starf við að líkna og lækna í Asíu. Myndin
cr frá barnahjúkrunarhæíi í Thailandi, sem rekið er og kostað' af
þessum stofnunum.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga hyggst taka þar
við ferðamönnum allt árið
Á Ilöfn í Hornafirði hefur nú verið opnað nýtt gistihús, cn undan-
farin ár hefur engin gististaður verið þar opinn almenningi. Húsið
er cign Kaupfélags Austur-Skaftfellinga, en gistihúsinu veita for-
stöðu hjónin Martha og Kristján Imsland, skrifstofum. hjá kaupfél.
Vegna sívaxandi ferðamanna-
straums til Hornafjarðar keypti
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
fyrir nokkru eignir útgerðar-
mannanna Jóns J. Brunnan og
Siguiðar Ólafssonar, í því augna-
miði að starfrækja þar sumar-
gistihús. Hefur eignin nú verið
endurbyggð og standsett, en
vegna mikillar aðsóknar varð að
opna gistihúsið strax 1. septem-
ber, og mun það taka við dvalai--
gestum og næturgestum allt árið.
Gistihúsið hefur fjögur tveggia
manna herbergi og tvö þriggja
manna herbergi, og getur þannig
tekið við 14 næturgestum.
Gistiherbergin eru fóðruð með
Ijósu veggfóðri, björt og rúmgóð
og öll hin vistlegustu.
Borðsalur er bjartur, rúmgóð-
ur og hinn snyrtilegasti, eru
veggir hans fóðraðir með Ijós-
grænum silfurírðum veggdúk, en
ekki málaðir, og gefur það saln-
um mun hlýlegri svip.
Húsgögn eru úr krómuðu stáli,
borð með póleruðum plötum, en
stólar bólstraðir og yfirdregnir
með rauðu skinni. Til borðs geta
setið í einu um 24.
Húsið er vel raflýst, það er
með olíukyntri miðstöð og mið-
stöðvarofnar í öllum herbergjum
og göngum.
Þótt landiými sé ekki mikið
kringum gistihúsið, stendur það
samt á mjög heppilegum stað í
kauptúninu, er það fyrsta húsið
við akbrautina, þegar ekið er frá
flugvellinum til kauptúnsins. Bif-
reiðarstæði er ágætt fyrir framan
húsið. Sími gistihússins er nr. 14.
Tvö ný hcfti ritsafns
um Heklugosið
Tvö hefti ritsafnsins um
Heklugosið 1947—-1948, er Vís-
indafélag íslendinga gefur út,
eru nýlega komin út á vegum
Leifturs í Reykjavík. Ritið er á
ensku og fjallar annað heftið (II.,
4) um hlaup (water Flood and
Mud Flows) eftir Guðmund
Kjartansson jarðfræðing, en hitt
(V., 2.) um sprengingar samfara
gosinu (Studies of the Mechan-
ism of Explosive Activity in the
Hekla Eruption) eftir dr. Trausta
Einarsson. Margar skýringar-
myndir og ágætar Ijósmyndir
fylgja ritgerðunum. Utsölu þessa
merka rits hefur Leiftur h.f.,
Reykjavík.
RITSTJÓRI BLAÐSINS
verður fjarverandi úr bænum
nú á næstunni.
V öruskipíaj öf o uðurinn:
r
Ohagstæður um
185.7 raillióuir
jasio-okt.
Influtningur til landsins á tíma-
bilinu janúar til október þessa
árs nam alls 736.2 millj. króna,
en út voru fluttar vörur fyrir
550.5 mjjlj.
Er viðskiptajöfnuðurinn því
óhagstæður um 185.7 millj. kr.
það sem af er þessu ári. Þess ber
að gæta, að hér eru meðalin skip,
sem keypt voru til landsins, en
verðmæti þeirra nam rúml. 53
milljónum.
í október sl. nam innflutning-
urinn 107.6 millj., en útflutning-
urinn 87.2 millj., svo að vöru-
skiptajöfnuðurinn var óhagstæð-
ur í þeim mánuði um rúrnar 20
millj. króna.
Vöruskiptajöfnuðurinn janúar
—október í fyrra reyndist hins
vegar óhagstæður um 171 millj.
króna.
Söogmót kirkjukóra
hér n. k. summdaíí
Kirkjukórasamband Eyjafjarð-
arprófastsdæmis heldur fyrsta
söngmót sitt hér á Akureyri n.k.
sunnudag. Söngmótið hefst með
guðsþjónustu í Akureyrarkirkju
kl. 2 e. h. En kl. 5 e. h. sama dag
verður samsöngur haldinn í
kirkjunni. Þar syngja einstakir
og sameinaðir kórar, fimm tals-
ins, skipaðir 100 söngmönnum, en
kórarnir eru þessir: Kirkjukór
Siglufjarðar (söngstjói-i Páll Er-
lendsson), Kirkjukór Lögmanns-
hlíðar (söngstjóri Áskell Jóns-
son), Kirkjukór Akureyrar
(söngstjóri Jakob Tryggvason),
Kirkjukór Grundarkirkju (söng-
stjóri Sigríður Schiöth) og
Kirkjukór Munkaþverárkirkju
(söngstjóri Áskell Jónsson). —
Kórarnir syngja bæði andleg og
veraldleg ljóð eftir íslenzk tón-
skáld og erlend. Einsöng syngja
Helga Sigvaldadóttir og Jón
Gunnlaugsson. Kirkjukórasam-
band Eyjafjarðarprófastsdæmis
var stofnað í fyrra.
;I
Starfslið Géfjimar
heiðrar minningii
jónasar Þór
Svo sem frá er skýrt í minning-
argrein um Jónas Þór forstjóra
Gefjunar innan í blaðinu, hefur
starfslið verksmiðjunnar „ákveð-
ið að heiðra minningu hans á
þann hátt að gefa hinu nýja
sjúkrahúsi bæjarins, sem hér er
verið að reisa, 1 herbergi.“
Tillaga á Alþingi m effirlifs-
vélbáf fyrir NorSurlandi
r
A að annast landhelgisgæzlu og eftirlit með
háttmi á |>eim slóðum
Fjórir þingmenn Norðlendingafjórðungs, þeir Áki Jakobsson,
Beruharð Stefánsson, Magnús Jónsson og Stefán Jóh. Stefánsson,
, I , ., .
bera fram þingsalyktunartillögu um að heimila ríkisstjórninni að
gera út eftirliísbát fyrir Norðurlandi yfir haust- og vetrarmánuðina,
er jafnhliða Iandhelgisgæzlu annist eftirlit mcð fiskibátum og sé
þeim til aðstoðar, þegar þörf krefur. Kostnaðar af framkvæmd
þcssarar þingsályktunar skal greiða úr ríkissjóði.
Svo segir í greinargerð fyrii
tillögunni:
„Tillaga þessi er framhald á
viðleitni Slysavarnafélags ís-
lands, slysavarnadeilda norðan-
lands og ýmissa annarra, að haft
verði fast björgunar- og gæzlu-
skip fyrir Norðurlandi yfir vetr-
armánuðina. Höfuðástæðan fyrir
þessari tillögu er sú, að þörfin
fyrir gæzlu- og björgunarskip
fyrir Norðurlandi á veturna er
mjög brýn, vegna þess að sjór er
mikið stundaður allan veturinn,
þegar gefur, og helzt á litlum bát-
um, svo sem trillum, sem litla
vörn veita í byljum og stórsjó.
Veðrátta er breytileg að vetrin-
um, og skella stórviðri oft á með
litlum fyrirvara, og ey þá bráð
nauðsyn á því að hafa tiltækt
björgunarskip til aðstoðar við þá
báta, sem þess þurfa við. Flm.
hafa leitað upplýsinga hjá for-
stjóra Skipaútgerðar ríkisins um,
Maður drukknar
við fjárgæzlu
Það slys vildi til nýlega, að
Þórður Benjamínsson á Vikinga-
vatni féll í vök og drukknaði. —
Var hann að huga að kindum,
þegar slysið vildi til.
Flugvélimii „Jökli“
breytt í farþegavél
Á fimmtudaginn var flaug
Smári Karlsson „Jökli“, björg-
imarvél Loftleiða, til Englands,
þar sem henni verður breytt í
farþegaflutningavél.
„Jökull“ er, eins og flestir
sennilega muna, björgunarflug-
vélin sem send var fró Banda-
ríkjunum í sept. í fyrra til að
bjarga óhöfn Geysis af Vatna-
jökli, en sat þar föst frá 19. sept.
í fyrra til 6. maí í vor að leiðang-
ur Loftleiða bjargaði henni af
jöklinum.
Brezkt fyrirtæki hefur tekið að
sér að beryta vélinni og mun hún
að breytingu lokinni geta flutt
28 farþega.
rhve mikinn kostnað það muni
hafa í för með sér að gera út
björgunar- og gæzluskip fyrir
Norðurlandi yfir vetrarmánuð-
ina, og telzt forstjóranum svo til,
að hann muni nema 95.000 krón-
um á mánuði, ef til starfsins yrði
notað um það bil 100 tonna
skip.“
Skákkepimi Akureyrar
við vinabæina á hinum
Norðurlöndunum
Vetrarstarf Skákfélags Akur-
eyrar er hafið.
Föstudaginn 2. nóv. var aðal-
fundur haldinn. f stjórn voru
kosnir: Form. Guðbrandur Hlíð-
ar, ' ritari Haraldur Bogason,
gjaldkeri Albert Sigurðsson,
áhaldavörður Kristinn Jónsson
og spjaldskrárritari Guðmundur
Eiðsson.
Ákveðið var að Skákþing Ak-
ureyrar, sem frestað var síðastl.
vor, skyldi hefjast föstudaginn 9.
nóvembcr næstk., kl. 20,15 í
fundarsal alþýðuflokksfélaganna,
Túngötu 2.
Allir taflmenn á Akureyri hafa
rétt til þótttöku.
Fyrir milligöngu bæjarstjórnar
hefm- félaginu verið boðið að
tefla fyrir bæjarins hönd, í vin-
samlegri keppni við vinabæi Ak-
ureyrar í vetur, en þeir eru:
Álasund í Noregi, Vesterás í
Svíþjóð, Randers í Danmörk og
Lahti í Finnlandi.
Ráðgert er að hver bær tefli 2
skákir við livern himia, eða alls
8 skákir. Sameiginleg verðlaun
verða veitt að lokum.
Þetta er algjör nýlunda í skák-
lífi bæjarins og mun keppni þessi
væntanlega vekja athygli og
áhuga bæjarbúa og stuðla að
auknum kynnum milli vinabæj-
anna.
Nú íúður á, að hver vopnfær
maður í skák búist til sóknar,
svo að við mættum sigra í þess-
ari samnorrænu keppni, engu
síður en í sundkeppninni. Sér-
staklega skorar stjórn skákfé-
lagsins á æsku bæjarins að
fylkja sér í raðir félagsins og
gefa því þannig nýjan styrk og
sækja sjálfir þangað holla gleði í
tómstundunum.
Teflt verður í vetur á mánu-
dagskvöldum og föstudagskvöld-
um í Túngötu 2. Fundir hefjast
kl. 20,15.