Dagur - 06.02.1952, Síða 1

Dagur - 06.02.1952, Síða 1
Kaupsýslu- og iðnaSarmenn! Fleiri Akureyringar og Ey- firðingar lesa auglýsingar i Degi en í nokkru öðju blaði. FergUson dráttarvél — 25 þús. kr. virði, er meðal vinninga í blaðahappdrætti Framsóknar- manna. Dregið 1. marz. XXXV. árg. Akureyri, miðxikudagian 6. febrúar 1952 6. tbl. Virðuleg útför forseta íslands síðastliðinn laugardag 1 Eo bærinn verður að koma upp fastri bruna' vörzlu, nýjum brunasíma og fleiri endurbótum Útför forseta íslands, herra Sveins Bjömssonar, var gerð sl. laugardag í Reykjavík. Myndirnar að ofan eru frá þeirri athöfn. Efri myndin: Líkfylgdin frá Bessastöðum ekur um Lækjargötu á leið til þing- lnissins. Neðri myndin: Kista forsetans borin úr þinghúsinu af form. stærstu félagasamtaka landsins. Brunabótafélag fslands hefur nú Ioksins sent bæjarstjórninni hér tilboð um lækkun iðgjalda af skyldutryggingum húseigna í bænum og staðfestir tilboðið það, sem áður er skrifað um þessi mál hér í blaðinu: Iðgjöldin geta lækkað um á annað hundrað þús. krónur á ári, jafnvel þótt ekki sé Unnt að bjóða tryggingarnar út á frjálsum markaði, sem væri eðli- legasta skipan málanna. Bréf félagsms. í bréfi félagsins til bæjarstjórn- ar, dags. 26. jan. sl., er greint frá athugunum, er félagið hefir látið gera á brunamálum bæjarins í samráði við norska trygginga- félagið Stroebrand og sérfræðinga þess. í bréfinu býðst Brunabóta- félagið til að skipta bænum í 2 áhættusvæði og lækka iðgjöldin verulega frá því, sem nú er, en setur allmörg skilyrði um auknar brunavarnir. Áhættusvæði I tak- markast þannig: Frá Hafnar- stræti 82 (timburhús KEA) út Hafnarstræti að Kaupvangstorgi, þaðan vestur brekkuna, sunnan verzlunarhúss KEA að Oddeyr- argötu og síðan frá Oddeyrargötu eftir Gránufélagsgötu til sjávar á Oddeyrartanga. Iðgjöld á þessu svæði verða skv., tilboðinu: I. fl. 0.8&,, II. fl. 2,0%o, HI. fl. 3,5%c og IV. fl. 5,0%c. II. áhættusvæði er utan þessara takmarka og eru ið- gjöld þar þessi: I. fl. 0,7%c, II. fl. 1,75%C, III. fl. 3,0%o og IV. fl. 4,4%0. 120 þús. kr. lækkun. Fullkomnum brunasíma verði komið upp, sem fyrr segir. Nýr slökkvibíll keyptur, með 500 ltr. vatnsgeymi og dælu, er dælt geti 1000 ltr. á mín. Utveguð verði ýmis brunavarnatæki til viðbót- ar þeim, sem fyrir eru og gömul endurbætt skv. nánari skilgrein- ingu. Brunavamaeftirlitið áætlar stofnkostnað við þetta a. m. k. 500 þús. kr. Auk þess verði tals- verður árlegur reksturskostnað- ur, t. d. við brunasíma. Á móti kemur svo lækkun iðgjaldanna, sem fyrr er greint, og tvímæla- laust aukið öryggi borgaranna, sem verður eigi metið til fjár. Líklegt að tilboðinu verði tekið. Líklegt má telja, að bæjarstjórn taki þessu tilboði, því að það má telja hagkvæmt þegar á allt er litið og tvímælalaust er það til hagsbóta fyrir vátryggjendur og bæjarmenn, þótt það þýði aukin útgjöld bæjarsjóðs. Hefði félagið gjarnan mátt vera fyrr á ferð með þetta tilboð sitt, að létta þungum skatti af bæjarmönnum. Hins vegar er samþykkt og fram- kvæmd tilboðs þessa ekki nein framtíðarlausn á skipan trygg- ingamálanna. Fullt frelsi í trygg- ingamálum er krafa tímanna. — Einokunaraðstaða eins félags, vernduð með úreltum lagabók- staf, þarf að hverfa. — Vonandi verður tilboð þetta ekki til þess að loka augum bæjax-stjórnar eða annarra fyrir nauðsyn þess, að halda áfram að vinna að þeirri sjálfsögðu leiðréttingu. Brunabótafélagið gerir loksins tilboð um 120 þúsund króna iðgjaldalækkun hér í bæ Félagsráðsfundur KEA síðastliðinn föstudag: Yeruleg aukning verzlunar á síðastliðnu ári KEA-hyggst að byggja kartöflugeymslu á Akur- eyri, útibú í Glerárþorpi og fullgera verzlunarliús i Daivik Hinn árlegi félagsráðsfundur Kaupfélags Eyfirðinga var hald- inn sl. föstudag og sóttu hann fulltrúar félagsdeiklanna, stjórn félagsins og ýmsir síarfsmenn. — Á fundi þessum, sem jafnan er haldinn í ársbyrjun, fá fulltrúar bráðabirgðayfirlit um rekstur og hag KEA á liðnu ári, Aukin verzlun og framleiðsla. í skýrslu sinni rakti Jakob Frí- mannsson framkvæmdastj. nokk- uð áhrif hins aukna verzlunar- frelsis. Innflutningur jókst mjög svo og verzlunin talsvert, en það kom á daginn, sem margir spáðu, að hin mikla eftirspurn hjaðnaði fljótt, þegar fólk gat fengið vörur að vild og án takmarkana. Yfir- leitt mun hafa verið búizt við meiri sölu en raun varð á og vörubirgðir í landinu jukust stór- lega ao verðmæti. Á þetta og við um verzlun félag'm-. Birgðir voru miklar, þrátt fyrir .t-H-'^rt aukna verzlun á árinu, og bví nokkur rekstrarfjárskortur í bili, sem rætast mun þó úr á bessu ári, jafnótt og vörubirgððir seljast. Framleiðsla verksmiðja félags- ins hélzt vel í'horfi og jókst tals- vert sums staðar, t. d. í smjörlík- isgerð, sem nýtur nú hinna nýju, fullkomnu véla og þess, að hrá- efniskaup eru frjáls. Hafa vörur verksmiðjúnnar þótt skara fram úr. Landbúnaðarvörur. Á slóturhúsi félagsins var að-. eins slátrað 5313 kindum, kjöt- þunginn alls 86.652 kg. Mjólkur- samlagið veitti móttöku 7.483.260 Itr. mjólkur og greiddi fyrir kr.j 11.168.663.16. — Mjólkurmagnið minnkaði um 2.35%. Neyzlumjólk varð 31% af heildarmagninu, en til vinnslu fór 69%. Sjávarafurðir. Vinnsla hrað&ystihúwnna var með meira móti, eða 687 lestir út- flutningsfiskur. Saltfiskur 1.992 skpd. Lýsi 751 fat. Flskimjöls- vinnslan á Dalvík varð 223 tohn (Framhald á 8. síðu). I bréfi félagsins er lækkun þessi til vátryggjenda áætluð 120 þús. kr. á ári. Félagið býðst til þess að beita sér fyrir tilsvarandi lausafjáriðgjaldalækkun. Þá býð- ur félagið fram lán til endurbóta á brunavarnakerfi bæjarins, til 20 ára með 5% vöxtum, þannig: til brunasíma 200 þús. kr., til kaupa á nýjum slökkvibíl 150 þús. og til slökkvistöðvarbygg- ingar 150 þús. Gjaldahiiðin. Á gjaldahlið þessa tilboðs, er krafa félagsins um brunavörzlu og aukningu brunavarnakerfis- ins, er kostar allmikið í stofn- kostnaði og árlegum rekstri, og samkv. álitsgerð brunavarnaeft- ii'lits ríkisins er þetta lágmarlt: Slökkvilið skipi 6 manna fast varðlið, slökkviliðsstjóri, vara- slökkviliðsstjóri og 4 fastir stöðv- arverðir. Þessir menn séu allir fastráðnir. Auk þeirra sé 40 manna aðstoðarlið, sem kvatt er út til æfinga og til eldvarna. Slökkviliðsstjóri skal vera verk- fræðingur, en varaslökkviliðs- stjóri úr iðnaðarstétt. Stöðvar- verðir eiga að gegna varðstöðu á slökkvistöðinni, ásamt vara- slökkviliðsstj óra. Glerárþorpsbúar vilja sameiningu við Akureyri Laust fyrir sl. mánaðamót var að tilmælum Glerárþorps- búa haldinn fundur fulltrúa þeirra og bæjarráðs Akureyr- ar, til þesis að ræða samein- ingu Glerárþorps og bæjarins, en eins og kunnugt er skilur Glerár lönd Akureyrar og Glæsibæjarhrepps. Atkvæða- greiðsla hafði farið fram í þorpinu um málið. Höfðu 191 tjáð sig fylgjandi sameiningu en 29 voru á móti. Má af þessu sjá, að sameiningin á meiri- hlutafylgi að fagna í Glerár- þorpi. Bæjarráð Akurcyrar tók enga ákvörðun í málinu, heldur skaut því á frest til þess að afla frekari upplýsinga en fyrir lágu.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.