Dagur - 12.03.1952, Síða 8
8
Dagur
Miðvikudaginn 12. marz 1952
Vertícf er nýlega haíin hjá tog-
bátunum íyrir Norðurlandi
Flest Akureyrarskipin farin á veiðar
Hin nýja Snorralaug í Reykjavík
Myndin cr frá hinu nýja þvottahúsi, sem SÍS hefur stofnsett í Rvík
og búið sjálfvirkum Laundromat þvottavélum. Hefiu; aðsókn verið
mjög mikil síðan húsið var opnað og á nýjung þessi vaxandi vin-
sældum að fagna höfuðborgiimi.
íí iigmennasanibaiid Eyjaf jarðar liefur
ráciið fastan íþróítakennara allt árið
Frá ársþingi félagsins í síðastliðinni viku
Nýlega er hafin vorvertíð hjá
togbátum liér fyrir Norðurlandi.
Siglfirðingar urðu fyrstir á mið-
in, á Sigurði og Skildi, í sl. viku,
og fengu þegar dágóðan afla.
Fékk Sigurður þá 27 lestir, þ. á.
m. talsvert af ýsu og kola. Leggur
hann upp í Olafsfirði. Onnur
skip, sem farin eru: Stígandi, Ol-
afsfirði, Haukur, Ólf., Súlan, Ak-
ureyri, Njörður, Akureyri,
Stiaman, Akureyri, Garðar, Ak.
og Kristján, Akureyri, sem nú er
gerður út frá Ólafsfirði. Á veiðar
búast: Snæfell og Sæfinnur. —
Unnið er að því að skipta um vél
í Auði og mun hún fara á lúðu-
veiðar fyrir Vesturlandi. Dalvík-
urbátarnir Bjarrni, Hannes Haf-
stein og Björgvin róa með línu.
Hefur afli verið tregur, mest 3000
pund í róðri.
Fremur rýr veiði.
Síðustu fréttir af togbátunum,
sem eru á veiðum á miðsvæðinu
hér úti fyrir, eru að afli sé held-
ur tregur það sem af er. En sjó-
menn eru vongóðir að afli muni
glæðast. Skipin leggja fiskinn upp
til hraðfrystingar í Siglufirði, Ól-
afsfirði og Dalvík.
Skipin bruíust út.
Lagís á Pollinum og Oddeyrar-
ál í sí. viku torveldaði siglingar
togbátanna héðan á miðin, en þeir
brutust út fyrir helgina. Hafði
Póstbáturinn Drangur þegar rifið
vök í ísinn á föstudagskvöld og
komst leiðar sinnar á laugardag.
Hekla komst að Torfunefs-
bryggju á laugardagskvöld. ísa-
lög þessi eru að verulegu leyti úr
sögunni nú.
Hljómleikar
Karlakórs Akureyrar
Karlakór' Akureyrar hafði
hljómleika í Nýja-Bíó sl. sunnu-
dag undir stjóm Áskels Jónsson-
ar. Píanóundirleik önnuðust Þyri
Eydal og Áskell Jónsson.
Á söngskránni voru 12 lög, þ.
á. m. eftir Björgvin Guðmunds-
son, Áskel Snorrason og Áskel
Jónsson .Einsöngvari var Eiríkur
Stefánsson og vakti bann sérstaka
athygli með blæfagurri bassarödd
sinni, sem lofar miklu með auk-
inni þjálfun. Kórinn bar söng-
stjóranum vitni um vandvirkni og
smekkvísi. Hann hefur mörgum
ágætum söngmönnwm á að skipa
og er vel þjálfaður. Var söng-
skemmtunin því hin ánægjuleg-
asta. Áheyrendur klöppuðu söng-
mönnunum óspart lof í lófa.
Ljóðabók
eftir Davíð Áskelsson
Komin er út Ijóðabók eftir Da-
víð Áskelsson, tónskálds Snorra-
sonar hér í bæ, og er þetta fyrsta
bók hans. Áður hefur hann birt
eitthvað af kvæðum sínum í blöð-
um og tímaritum. Bókin heitir
Völt er veraldar blíða. í henni
eru 22 kvæði. Bókarinnar verður
nánar getið hér í blaðinu síðar.
í STUTTU MÁLI
RÚSSAR hafa landhelgis-
gæzlu, sem bragð er að. Þeir
eru harðhenntir við danska og
sænska fiskimenn á Eystrasali
og halda þeim oft mánuðum
saman í austurþýzkum eða
pólskum höfnum, enda þótt
fiskimennirnir fullyrði, að þeir
komi ekki nálægt 12-mílna
Iandhelginni sem Rússar verja
með vopnavaidi. Austur á
Kyrrahafi eru þeir ekki síður
harðskeyttir. Nýlega sendi
Ridgcvvay yfirhershöfðingi í
Japan liarðorð rnótmæli til
Moskva í tilefni af töku jap-
anskra fiskibáta. f orðsending-
unni segir, að rússnesk her-
skip hafi síðan í stríðslok tek-
ið 178 japönsk fiskskip og flutt
til rússneskra hafna. Af þeim
hefur aðeins 114 verið skilað
aftur, 9 voru gerð upptæk með
rá og reiða, en 33 eru liorfin og
hafa Rússar enga skýrslu gef-
ið um örlög þeirra. Ridgeway
heldur því fram, að bátar
þessir hafi allir verið að veið-
um á löglegum miðum Japana.
-k
DANSKA hafrannsóknar-
skipið „Galathea“ heldur
áfram för sinni um Kyrrahaf
og er vísindalegur árangur
þessa danska leiðangurs þegar
hinn merkasti. Nýjustu fréttir
af „Galath^a“ herma, að fund-
izt hafi 4 fisktegundir, sem
áður voru ókunnar með öllu.
Fiska þessa fékk skipið í svo-
nefndri Kermadec-gröf, all-
skammt frá Nýja-Sjálandi, en
þar er dýpi allt að 9000 metra.
Skipið hefur sérstakan útbún-
að til að draga hotnvörpu á
þessu dýpi.
ST J ÓRN ARSKIPTIN í
Egyptalandi að imdanförnu
eru þáítur í köldu stríði milli
foringja Wafdistaflokksins,
Nahas Pasha, og Farúks kon-
ungs. Þeir hafa lengi vcrið
hatursmenn. Þegar konungi
þótti sýnt að Ali Maher Pasha
ætlaði ekki að koma fram
ábyrgð á hendur Nahas og
ílokki hans fyrir brenuuna og
manndrápin í Cairó í jan., setti
konungur Ali Maher af og fól
Hilaly Pasha stjórnarforust-
una. Sá hefur nú ákært stjóm
Nahas fyrir þrennurnar. Er-
lend blöð segja að í þessu tafli
sé konungdómur Farúks að
veði og hinn aldni Nahas
kunni enn að klóra honum,
þótt hann hafi orðið að setja
niður í bráð.
-K
DANIR hafa í hyggju að
stofna til mikillar hreindýra-
ræktar á Grænlandi og hafa
gert tilraun með lappnesk
hreindýr á Vestur-Grsenlandi.
Grænlandsstjóm hefur nú
fengið skýrslur um málið frá
norskum Lappa, sem fenginn
var til þess að hafa umsjón
með tilraun þessari og segir
þar að Grænland sé mun betur
fallið til hreindýraræktar en
sjálft Lappland. Er nú ætlun-
in að fjölga mjög hreindýrum
og verða norsk og lappnesk
dýr send til Grænlands.
M
NJÓSNAMÁL kommúnista í
Svíþjóð (sænskur liðsforingi
og ritstjóri kommúnistablaðs
uppvísir að stórfelldum
njósuum um hervamir Svía)
hafa nú dregið dilk á eftir sér
fyrir sænska kommúnista-
flokkinn. í trúnaðarmanna-
kosningum í verltlýðsfélögmn
hafa kommúnistar falíið unn-
vörpum, m. a. í félögum, er
lengi hafa lotið stjóm þeirra,
m. a. í verklýðsfélaginuíGauta
borg. Þar hafa kommúnistar
stjómað í 15 ár, en féllu nú.
Þrítugasta og fyrsta ársþmg
Ungmennasambands Eyjafjarðar
var lialdið á Akureyri 8. og 9.
marz sl. Sóttu það yfir 40 íulltrú-
ar frá öllum félögum sambands-
ins.
Þingforseti var Helgi Símonar-
son bóndi frá Þverá. Starfsemi
UMSE hafði aukizt að miklum
mun í síðastliðnu ári, en mun þó
enn aukast í ár, sem sjá má m. a.
af því ,að nú hefur UMSE ráðið
íþróttakennara allt árið. Á hann
jafníramt að vera eins konar
framkvæmdastjóri sambandsins
cg ráðunautur. Hinn nýji starfs-
maður er Hermann Sigti'yggsson
íþróttakennari á Akureyri..
Á þessum aðalfundi sóttu 4
íþrótta- og ungmenanfélög um
upptö.ku í sapibandið. Var tveim
þeirra þegar veitt upptaka: UMF
Framtíðin í Hrafnagilshreppi og
UMF Dagsbrún í Glæsibæjar-
hreppi. Eru hin tvö væntaleg í
sambandið þegar er þau hafa
breytt lögum sínum til samræmis
við lög UMSE og UMFÍ. Eru það
íþróttafélagið „Skjöldur“ í Hris-
ey og UMF Saurbæjarhrepps.
80 ræður.
Á þessu þingi voru félagsmálin
rædd af kappi. Voru fluttar rúm-
lega 80 ræður og tók fast að
hehningur fulltrúanna til máls. —
Á sambandsþingum UMSE hafa
jafnan verið fjörugar umræður
og var svo enn, og þrátt íyrir
ýmsan skoðanamun var þó
grunntónninn alltaf sá að láta
ekki viðgang og vöxt UMSE
gjalda skoðanamunar minni mála.
Kosningar.
Fráfarandi stjóm baðst undan
endurkosningu. Stjórnina skipa
nú: Valdimar Óskarsson, Dalvík,
héraðsstjóri, Björn Daníelsson,
Dalvík, ritari, Halldór Jóhannes-
son frá Sandá, gjaldkeri, og með-
stjómendur: Jón Stefánsson.
Dalvík, og Halldór Jónsson frá
Jarðbrú.
Þingið ákvað að gefa 5000 kr.
til sjúkrahússins, og var það
helmingur sjóðseignar sambands-
ins.
Þinginu lauk með kaffidrykkju
að Hótel KEA. Þar voru ræður
fluttar, þinggjörð lesin upp og
samþykkt og þingi slitið.
Togaraverkfallinii
aflýst
í sl. viku náðist samkomulag
milli deiluaðila í togaradeilunni
og var verkfallinu aflýst eftir að
samningar höfðu verið sam-
þykktir af báðum aðilum. Tog-
arasjómenn féllust á samningana
130 atkv. meirihluta, 600 greiddu
atkvæði. Samkomulag varð um
12 stunda hvíld á öllum veiðum
og um sömu vísitöluuppbót á
kaup og gildir í landi, svo og
hækkun aflaverðlauna á saltfisk-
veiðum. Aðeins fáir togarar höfðu
stöðvast, en vinnutjón varð í landi
af déilunni, því að togaramir
hurfu frá landinu um tíma óg
komu ekki í höfn.
Nýjar hjúkrunárkonur
Nýlega eru útskrifaðar 8 nýjar
hjúkrunarkonur frá Hjúkrunar-
kvennaskóla íslands. I þeim hópi
eru Guðlaug Knstín Þór, Akur-
eyri, Guðný Margrét Magnús-
dóttilr, Raufarhöfn, Mary A. Sig-
urjónsdóttir, Húsavík, og Snjó-
laug Guðrún Jónsdóttir frá Kald-
bak við Húsavík.
Skipakomur á næstmini
Strandferðaskipið Hekla verð-
ur næsta skip, er hingað kemur,
en von er einnig á Goðafossi, að
sunnan, og Hvassaíelli, frá út-
löndum, austan fyrir land. Flytur
skipið kol.
VERNHARÐUR EGGERTSSON,
er fórst af „Eyfirðingi“ við
Orkneyjar í sl. mánuði, var bor-
inn til grafar hér á Akureyri í
gær.
ÝMISLEGT FRÁ BÆJARSTJÓRN
BÆJARRÁÐ hefur heimilað bæjarstjóra að geía út yfirlýsingu
til þeirra, er þess óska og ætla að sækja um væntanleg ríkislán til
smáíbúðabygginga, að þeir fái lóð hjá bænum til byggingar. — Bæj-
arráð hefur falið bæjarstjóra að sækja um lán til íbúða samkv. lögum
um byggingarlán til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði og leita
jafnframt allra upplýsinga um lánskjör. — Jóhannes Guðjónsson
bakarameistari hefur fengið leyfi bæjarstjórnar til þess að reka
veitingasölu. Mim hann opna veitingastofu við Hafnarstræti, þar sem
áður var skrifstofa Loftleiða h.f. — Þá hefur Fulitrúaráð verkalýðs-
fél. fengið leyfi til veitingasölu í samkomuhúsi sínu, Lundargötu 7.
-----o-----
MEIRIHLUTI bæjarráðs samþykkti á fundi 6. þ. m., að húsa-
leigulögin framlengist fyrir Akureyri frá 14. apríl næstk. til 14. maí
1953. — Meirihluti bæjarráðs hefur „að svó stöddu“ hafnað erindi
Glerárþorpsbúa um sameiningu þorpsins og bæjarins.
-----o-----
BYGGINGANEFND sjúkrahússins hefur ákveðið að reisa bráða-
birgðahús fyrir líkhús, spennistöð og sótthreinsunarofn vestan nýja
sjúkrahússins. Gert sé ráð fyrir vararafstöð í sama húsi. Þá hefur
bygginganefndin farið þess á leit við Landsbankann að framlengdur
verði lánstími 2 millj. króna láns spítalans um eitt ár, þannig, að
sjúkrahúsið geti fengið framlag ríkissjóðs, 500 þús. kr., á þessu ári,
en þetta fé átti annars að ganga til afborgunar á láninu. Þá hefur
verið sótt um 1 millj. kr. lán til Tryggingarstofnunar ríkisins vegna
sjúkrahússins og verði heildarlán hennar þá 2,2 millj. króna. Þá
ákvað nefndin að fela Bjama Rósantssyni byggingameistara að hafa
yfirumsjón með öllu því, sem enn er eftir til að ljúka endanlega við
sjukrahússbygginguna. Geri hann hið allra fyrsta áætlun um allt,
sem ógei-t er við bygginguna og sjái um útvegun á því, sem enn
er óíengið.
-----o-----
SAMKVÆMT fundargerð íþróttavallanefndar, er húið að verja
306 þús. kr .til íþróttasvæðis bæjarins frá upphafi. Bæjarsjóður hefur
lagt fram 227 þús., íþróttasjóður 57 þús. Sjálfboðavinna er metin á
kr. 6.651.98. Bærinn hefur sótt um 100 þús. kr. styrk úr íþróttasjóði
ríkisins á þessu ári.