Dagur - 10.09.1952, Síða 8

Dagur - 10.09.1952, Síða 8
8 Baguk Miðvikudaginn 10. sept. 1952 . Skuggi járntjaldsins yfir alþjóð lega kirkjuþinginu i Hanover Séra Pétur Sigurgeirsson segir lesendum blaðsins frá Þýzkalandsför sinni nú í sumar Unnið að söfnun muna fyrir vænf- Margir góðir gripir hafa komið í leifirnar, en þó mun margt vera eilíflega glafað Alþjóðlegt þing lúthersku kirknanna. um víða veröld, hið annað í röðinni, var haldið í Hanover í Þýzkalandi dagana 25. júlí til 3. ágúst sl. og sóttu þing þétta 4 fulltrúar ísienzku kirkj- unnar, prestarnir Péitur Sigur- geirsson, Benjamín Kristjánsson, Laugalandi, Þorgrímur Sigurðs- son, Staðarstað, og SigUrður Pálsson, Hraungerði. Eru þeir nýlega komnir til landsins af aflokinni kynnisför um Vestur-Þýzkaland. Blaðið hefur átt viðtal við séra Pétur Sigurgeirsson um kirkjuþingið og ferð hans um Þýzkaland. — Það er Alþjóðasamband lúthersku kirknanna, sem stóð fyrir þessu móti, sagði séra Pét- ur, og hefur sambandið aðsetur í Genf. Fyrsta alþjóðlega kirkju- mótið af þessu tagi var haldið í Lundi í Svíþjóð árið 1947, og sóttu fulltrúar íslenzku kirkj- unnar það eínnig. Þetta mót var í senn fjölmennt og virðulegt. Það setti svip sinn á Hanoverborg þá daga, sem það stóð yfir. Það gladdi okkur íslenzku fulltrúana sérstaklega, að sjá íslenzka fán- ann blakta við hún á áðaltorgi borgarinnar þegar við komum þangað, við hlið fána 25 þjóða, sem áttu fulltrúa á mótinu. Óhætt er að fullyrða, að þinghald þetta hafi vakið athygli um hinn kristna heim. Stórblöðin og fréttastofurnar höfðu sérstaka fréttamenn starfandi á þinginu. Austur-Þjóðverjar útilokaðir. Þingið hófst með guðsþjónustu í hinni aldag.ömlu höfuðkírkju borgarinnar, sem er hið vegleg- asta guðshús. f upphafi guðs- þjónustunnar minntist Hans Lilje biskup í Hanover trúbræðranna austan jámtjaldsins, sem ekki fengu íeyfi til þess að sækja þing ið. Lútherska kirkjan í Austur- Þýzkalandi á við vaxandi erfið- leika að stríða og fulltrúar henn- ar fengu ekki leyfi stjórnarvald- anna til þess að sækja kirkju- þingið. Urðu fulltrúarnir þannig strax í upphafi þingsins varir við þann skugga, sem hvíldi yfir Vestur-Þýzkalandi öllu, — skugg ann, sem leggur af járntjaldinu inn yfir hið frjálsa Vestur- Þýzkaland. Sameinaðist þing- heimur í bæn fyrir heill trú- bræðranna austan járntjaldsins, með innileik og hluttekningu. Kirkjan og hið lifandi orð. Höfuðviðfangsefni þingsins var: Ábyrg kirkja og hið lifandi orð, og undir þessum teksta flutti Nyggren biskup í Lundi fyrstu ræðuna á þinginu og var það jafnframt höfuðræða þinghalds- ins. Lundsbiskup var forseti kirkjusambandsins fram til þessa þinghalds, en nú var Hans Lilje Hanoverbiskup kjörinn til næstu 5 ára. Af öðrum mönnum, sem hæst báru á þinginu, má nefna hinn aldna norska kenniföður Berggrav biskup íOsló,sem flutti stórmerkilegt erindi um hið brennandi spursmál dagsins, rík- ið og kirkjan. Berggrav talaði út frá reynslu sinni á stríðsárunum, sem fræg er, og lagði áherzu á nauðsyn þess að kirkjan væri sjálfstæð og fengi að starfa óá- reitt og óháð afskiptum ríkisins. Vitnaði hann í þessu sambandi í skipti sín við nazistaleiðtogana á stríðsárunum. Var máli Berggravs tekið af miklum fögnuði, enda mönnum mjög í huga atburðir þeir, sem eru að gerast í kirkju- málum einræðislandanna í austri. Þingið starfaði sem ein heild í þingsal borgarinnar fram að há- degi á degi hverjum, en skiptist í 6 deildir síðdegis, vorum við ís- lendingar starfandi í þeirri deild, er fjallaði um guðfræði, undir leiðsögu prófessor Prenters frá Árósum,, hins kunna íslandsvin- ar, guðfræðings, mælskumanns óg tungumálamanns. Flutti hann mál sitt jöfnum höndum á þýzku og ensku. Er hann mjög kunnug- ur mönnum og málefnum hér heima. Ferð um Þýzkaland. Að afloknu þessu merka þing- haldi var séra Pétri boðið að ferðast um Vestur-Þýzkaland og kynnast kirkjulífi þar. Þetta boð fékk eg að frumkvæði Schu- brings prófasts, er hér var á ferð í fyrra að tilhlutan JMiemöllers til þess að heimsækja þýzkt fólk, er hér dvelur, sagði séra Pétur. Fór eg állt suður til Worms til þess að sjá með eigin augum þann stað, sem svo sterklega er tengd- ur sögu Lúthers ,en heimsótti síðan ýmsa staði víðs vegar um Vestur-Þýzkaland Það, sem mér er minnisstæðast frá þesari ferð er starf kirkjunnar fyrir flótta- fólkið. Flóttamannavandamálið í Þýzkalandi er umfangsmeira en ókunnugir ætla. Stöðugur straum ur fólks liggur frá austri til vest- urs, yfir járntjaldið. Menn yfir- gefa heimili sí nog aleigu, þykjast hólpnir að komast snauðir vestur yfir. Þar ríkir þó persónufrelsi og öryggi. Kirkjan vinnur mikið starf til hjálpar þéssu fólki og hefur hjálparstöðvar starfandi í Hanover, Vestur-Berlín og Giessen. Kom eg í hjálparstöðina á ^síðast talda staðnum og sá starfið'þar og talaði við flótta- fólk. Var það minnisstæð reynsla. Nú orðið er það bráð lífshætta að fara vestur yfir landamerkin, en samt koma mörg hunáruð manns daglega. Lýsir þessi staðreynd betur en mörg orð ástandinu. — Séra Pétur sagði að lokum, að hann hefði hrifizt af endurreisn- arstarfi því, sem búið er að vinna í Vestur-Þýzkalandi og hversu þjóðin virtist komin vel áleiðis að rétta við eftir hörmungar stríðsins. En rústir blasa hvar- vetna við í borgum og örkumla fólk er hvarvetna á stjái. Lífsaf- koma mun og vera erfið. Þótt gnægð varnings sé í búðarglugg- um, hafa ekki allir efni á að kaupa. En allt virðist þó á upp- leið og menn sæmilega bjartsýn- ir, ef friður fær að haldast. FIMMTUGUR verður 14.þ.m.kunnur og ágætur Akureyringur, Gunnar R. Páls- son söngvari frá Staðarhóli, for- stjóri Viking-ferðaskrifstofunnar í New York. Akureyrarskipin Akraborg, Súlan, Snæfell og Stjaman halda áfram reknetaveiðum austur í hafi og afla sæmilega þegar veð- ur eru stillt. Ólafur í Garðshorni látinn Sá hörmulegi atburður gerð- izt á þjóðveginum í Kræklinga- hlíð sl. föstudag, að bóndinn í Garðshomi, Olafur Tryggva- son, varð fyrir jeppabifreiðinni A—710 og slasaðist svo mjög að hann lézt í sjúkrahúsinu hér daginn eftir. Olafur hafði kom- ið með futning á vörubíl að heimreiðinni að Garðshorni og snaraði sér út úr bílnum, er stanzaði á vestari vegarkanti, til þess að opna hlið. Er hann kom fram fyrir vörubílinn bar þar að jafnsnemma jeppabílinn A—710, og lenti Olafur framan á bifreiðinni og kastaðist all- langa leið. Missti hann með- vitund við höggið og kom ekki til meðvitundar síðan .Var Ól- afur þegar futtur á sjúkrahúsið hér og þar andaðist hann á laugardagsmorguninn. — Lög- reglan kom fljótlega á vettvang og hóf að rannsáka tildrög slyssins. Hefur ekkert komið í ljós við rannsóknina, sem bendir til vítaverðs aksturs bifreiðastjórans á A—710. Reyndist bifreiðin í ágætu lagi. Ólafur Tómasson vár kunnur og vel metinn bóndi í héraðinu, einna hinna þekktu bræðra frá Bústöðum í Austurdal í Skaga- firði, og hafði búið í Garðs- homi síðan 1944 og gert þar miklar endurbætur. Hann var kvæntur Stefaníu Jóhannes- dóttur og eiga þau hjón 5 börn. Undanfarna daga hafa þeir Snorri Sigfússon námssíjóri og Ragnar Ásgeirsson ráðunautur ferðast um héraðið til þess að líta á ýmsa muni, sem líklegir hafa verið taldir til þess að fá rúm í væntanlegu byggðasafni Eyfirð- ínga. Starfa þeir að málinu fyrir at- beina stjórnar KEA, sem hefur beitt sér fyrir framkvæmdum í byggðasafnsmálinu. Hlaut safn- málið stuðning aðalfundar félags- ins í fyrrá og var Snorra Sigfús- syni þá falið að undirbúa málið. Voru síðan fengnir umboðsmenn í hverjum hreppi og er erindi þeirra Sorra og Ragnars nú m. a. að líta á þessa muni og ákveða, hverjum beri að halda til haga. Hefur þegar safnast talsvert af áltilegum gripum, að því er Snorri Sigfússon hefur tjáð blað- inu, og verður þeim nú fyrst um sinn komið fyrir til geymslu hér á Akureyri. En allt er enn óráðið, hvernig byggðasafninu verður fyrir komið eða hvar það verður reist. Margt glatað. Snorri sagði, að þótt furðulega margir merkilegir híutir kæmu nú í leitirnar, væri hitt jafnljóst, að mikill fjöldi gripa frá fyrri tíð væri hér eilíflega gataðúr. Mætti af því sjá, aÖ ekki hefði verið seinna vænna að hefjast handa um að safna því, sém enn er til og undirbúa byggðasafnið. Þeir, sem komið hefðu í byggðasafn Skag- firðinga að Glaumbæ, sæju þar í einu vetfangi hvert gildi það hefði að viðhalda tengslum við fortíðina og verkmenningu henn- ar með þessum hætti. Skagfirðingar nutu leiðsögu Ragnars Ásgeirssonar við að koma upp Glaumbæjarsafninu, hann hefur ennfreihur unnið að því að koma upp hliðstæðum söfnum að SkriÖukláustri og að Skógum undir Eyjafjöllum. Er byggðasafnsmálinu hér mikill styrkur að því að njóta leiðsögu hans við hinn fyrsta undirbúning. Um 100 myndir á málverkasýningu Finns Jónssonar hér Finnur Jónsson listmálari hef- ur um þessar mundir málverka- sýningu í húsi Gagnfræðaskólans hér og sýnir þar um 100 myndir, landslagsmyndir, dýramyndir, andlitsmyndir og uþpstillingar. Flestar eru myndirnar vatnslita- myndir, en einnig nokkur stór olíumálverk, þ. á. m. nokkur ný frá Mývatnssveit og umhverfi, en þar dvaldi málarinn um skeið í sumar. í samtali við blaðið sagði lista- maðurinn, að hann hefði neyðst til þess að skilja mikið af stærri myndum sínum eftir syðra vegna erfiðleika og kostnaðar að flytja þær, en myndir þær, sem sýndar eru hér, eru bæði gamlar og nýj- ar, flestar í eigu listamannsins sjálfs og til sölu, en allmargar í einkaeign og lánaðar til sýning- arinnar hér. Finnur Jónsson hef- ur ekki áður haldið málverka- sýnngu hér á Akureyri og liðin eru 8 ár síðan hann hélt síðast sýningu í Reykjavík. Sýningin verður opin fram yfir næstu helgi. Stundum er kvartað yfir því að listamenn þjóðarinnar geri lítið að því að kynna landsmönnum utan Reykjavíkur verk sín, og satt er það að sjaldgæft er að málverkasýningar séu haldnar hér. En menn ættu þá heldur ekki að sitja heima, er kunnir og ágætir listamenn heiðra okkur með heimsókn sem þessari, held- ur fjölmenna á sýninguna og njóta þess, sem þar er að sjá. Slík afstaða mundi líka verða til þess að hvetja listamenn yfirleitt til þess að staldra hér við með sýn- Yfirlýsing Alþjóðasambands samvinnumanna á samvinnu- daginn, 14. sepíember 1952 í tilefni af þrítugasta samvinnudeginum endurtekur Al- þjóðasamband samvinmunanna þá trú sína, að almennari framkvæmd meginreglna um opin og frjáls félög, efnahagslcgt réttlæti og lýðræðislegt stjómarfar, — sem hafa í meira cn eina öld örvað sérhverja farsæla framkvæmd samvinnuhug- sjónarinnar í ýmsum myndum, — myndi verða trygging fyrir friði og bættum kjörúm fólksins. Með tillitil til áframhaldandi ótta við stríð um heim allan, hvetur Alþjóðasambándið meðlimi sína tií þess að vinna enn á ný og af meiri mætti að stuðningi við friðarstefnu Sam- bandsins, og leggur áherzlu á nauðsyn þess, að samvinrmsam- tökin stuðli að betri skilningi á þeim undirstöðuatriðum frið- arins, sem 18. Alþjóðasamvinnuþingið í Kaupmannahöfn benti á, en bau eru: AÐ íbúar allra landa njóti fyllsta málfrelsis, sjálfstjórnar, fundafrelsis og íerðafrelsis innanlands og utan; AÐ lífskjör frumstæðra þjóða verði bætt svo að ójöfnuð- urinn á milli íbúa þeirra og þjóða, sem lengra cru komnar, hveffi; Ai) viðleitni Samehiuðu þjóðanna til að bæta heilsufar og auka öryggi og velferð mannkynsins njóti fulls stuðnings þeirra landa, sem í samtökunum eru; AÐ framleiðsla hvers konar hergagna verði sett undir öflugt, alþjcðlegt eftirit og haldið undir því. • f nafni þeirra 196 milljóna einstaklinga í 33 þjóðlönduin, sem eru innan s-amtaka Alþjóðasambands samvinnúmanna, lýsir það yíir: fulhun stuðningi við Sameinuðu þjóðimar, sem Alþjóðasambandið telur voldugasta tæki, sem nú er til í þágu friðarins; trú á framtíð Sameinuðu þjóðanna; þeirri von, að Sameinuðu þjóðimar gcri allt, stem í þeirra valdi stendur til þess aS stuðla stofrnm hreinna samVinnúfélaga, sérstak- lega í sambandi við framkvæmd síefnu þeirra um tæknilega aðstoð við frumstæðari þjóðir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.