Dagur - 08.10.1952, Qupperneq 1
AUGLÝSINGAR I DEGI
lesa flestir Akureyringar
og Eyfirðingar!
PÓSTKRÖFUR fyrir andvirði
blaðsins 1952 hafa verið send-
ar til fjarlægra staða. —
Innleysið þær greiðlega!
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 8. október 1952
40. íbl
Hekluvörur á Iðiisýningunni
A sýningardeild SÍS á Idnsýningunni á Fataverksmiðjan Hekla hér
í bæ myndarlegan skerf, sem vekur athygli. Eru þar m. a. sýndar
hinar smekklegu prjónavörur verksmiðjunnar, og er þessi mynd
af þeim. Hekla hefur á boðstólum fallegri og smekklegri prjóna-
vörur en áður hafa þekkzt hér á landi frá innlendum aðilum.
Brunahóíaféfag IsEands býður nú
lækkuð iðgjöfd cg aukin friðindi
En vili binda bæinn iil fimm ára - Fullf fryggingafrelsi
þarf eftir sem éður að vera fakmark landsmanna
Þau tíðindi hafa nú gerzt í
viðskiptum Akureyrarbæjar og
Brunabótafél. íslands, að Bruna-
bótafélagið hefur að verulegu
leyti gengið inn á kröfur bæjarins
um bætt kjör, cn þær kröfur
gerði bærinn, cr hann svaraði
tilboði félagsins frá sl. vetri um
nýja skipan tryggingarmálanna
hér og brmiavarnanna.
Kemur þessi tilslökun félagsins,
fram í bréfi, sem bæjarstjórninni
hefur borizt og var til umræðu á
bæjarstjórnarfundi í gær. Hafði
bæjarráð lagt til, að gengið væri
til samninga við félagið á þessum
nýja grundvelli.
í tvö ár, ef honum er.- .eigi sagt
upp á tilteknum tíma.
EinS* og fyrr segir, lagoi bæjar-
ráð til að gengið yrði til samninga
við félagið á þessum grundvelli,
og mun þá ekki sízt hafa haft
augastað á lánsfé bví, sem félag-
ið gefur bænum kost á til vatns-
veitu- og brunavarna-fram-
kvæmda. Má segja, að vorkunn-
armál sé, þótt bæjarfulltrúarnir
renni hýru auga til lánsfjár, eins
og ástatt er á lánsfjármarkaðin-
um yfirleitt. En óhepþilegt er það,
að þurfa að taka tillit til annar-
legra sjónarmiða sem þessara við
ákvörðun slíkra málefna.
(Fi-amhald á 4. síðu).
jSreÍsIuW
Eldsvoði á Vöglum
í Fnjóskadal
Síðdegis í gær varð eldur
laus í hlöðu að Vöglum í
Fnjóskadal, en þar býr ísleifur
Sumarliðason skógarvörður og
fjölskylda hans. Kviknaði í
heyi í hlöðunni og brann þarna
allmikið af heyi og þakið af
hlöðunni, sem er steinsteypt
hús með timburþaki. Þá brann
einnig þali af áföstu fjósi. —
Nokkur hætta var á því að
íbúðarhúsið brynni og hefði
orðið crfitt að verja það, ef
ekki hefði verið hægviðri. —
Kviknaði lítillega í liúsinu, en
ekki urðu á því neinar veru-
legar skemmdir, að því er
skógarvörður sagði blaðinu í
símtali. Nágrannar komu á
vettvang og hjálpuðu lil við
slökkvistarfið, en ekki varð úr
því að slökkviliðið héðan kæmi
á vettvang. Óljóst er enn,
hversu mikið tjón hefur orðið
þarna, en það mun alltilfinnan-
legt. Vaglir eru eign Skóg-
ræktar ríkisins.
Um 1300 laxar veiddust
í Laxá
Lokið er nú við að gera upp
veiðibækur Laxár í Aðaldal fyrir
sl. sumar og varð heildarstang-
veiðin um 1300 laxar og er það
mesta veiði sem orðið hefur í
ánni síðan öll önnur veiði en
stangveiði var bönnuð þar. — í
fyrra náði veiðin ekki þús. löxum.
Heimavistarskóli íyrir börn að
Laugalandi á Þelamörk
ÁSykíun Fræðsluráðs Eyjafjarðarsýslu
Agóðahluti til bæjarins.
Samkvæmt hinu nýja tilboði á
iðgjald af 1. flokks húsum á 1. á-
hættusvæði, sem er miðbærinn
og umhverfi, að vera h.l%c, af 2.
fl. húsum 1.75%0 og af 3. fl. 3%0.
Á 2. áhættusvæði, sem er aðrir
hlutar bæjarins ,er iðgjaldið 0.6%o
af 1. fl. húsum, 1.5%c af 2. fl. hús-
um og 2.7%0 af 3. fl. húsum. Af 4.
fl. húsum er iðgjaldið 4—4.4%c á
áhættusvæðunum. Auk þess eru
ákvæði um mögulegan afslátt frá
þesu iðgjaldi á vissri tegund húsa.
Þá gengur félagið inn á að láta
bæinn fá hlutdeild í ágóða sínum
af tryggingum hér, enda fari tjón
þá ekki fram úr 80% af greiddum
iðgjöldum. Loks lofar félagið fé
að láni til kaupa á brunavarna-
tækjum og til endurbóta á vatns-
veitu bæjarins.
Fimm ára samningur.
Félagið tekur fram ,að það hafi
nú teygt sig eins langt til sam-
komulags við bæinn og því sé
frekast unnt og gerir það skilyrði
að þessi kjör verði bundin með
samningi í fimm ár, en sá samn-
ingur framlengist síðan óbreyttur
Fræðsluráð Eyjafjarðarsýslu
kom saman til fundar hér á Ak-
urcyri sl. mánudag til þess að
ræða að taka ákvörðun um stað-
setningu væntanlegs heimavistar
skóla fyrir börn í skólahverfi
Glæsibæjar-, Skriðu- og Öxna-
daishreppa. Höfðu skólanefnd-
imar skorað á fræðsluráðið að
taka þetta mál til meðferðar.
Á fundinum á mánudaginn var
mættu allir meðlimir fræðslu-
ráðsins, prestarnir Sigurður Stef-
ánsson, Möðruvöllum, Benjamín
Kristjánsson á Laugalandi og
Stefán Snævarr á Völlum, og
kennararnir Jón Jónson, Böggv-
isstöðum og Einar Sigfússon í
Staðartungu. Auk þeirra mætti
nómsstjóri Norðurlands, Snorri
Sigfússon.
Laugaland á Þelamörk.
í ályktun, sem gerð var um
þetta efni og send fræðslumála-
stjóra, segir m. a.:
„Fræðsluráðið lítur svo á, að
hin brýnasta þörf sé á einum nýj-
um skóla fyrir alt þetta svæði
(Glæsibæjar-, Skriðu- og Oxna-
dalsskólahverfi) og ef til vill suð-
urhluta Arnarnesshrepps, og að
slíkur skóli muni hvergi betur
settur en á Laugalandi á Þela-
mörk, vegna hagkvæmrar legu
þess staðar miðsvæðis í þessum
byggðum, og ríflegs jarðhita. —
Leggur því fræðsluráðið til, að
reistur verði heimavistarbarna-
skóli að Laugalandi fyrir áður-
nefnd skólahverfi, eins fljótt og
við verður komið.“
Stefna ríkisstjóriiarinnar er greiðslo-
hallalaus f járlög og áframhaldandi
iippbygging atvinnuveganna
Fyrsía umræða um fjárlögin fór fram í gær
Fjárlagafrumvarpið fyrir ái'ið
1953 var lagt fram strax í þing-
byrjun, og hefur frumvarpið ætíð
verið þingskjal nr. 1 síðan Ey-
steinn Jónsson tók við fjármála-
stjórninni á ný.
GREIÐSLUHALLALAUS
RÍKISBÚSKAPUR
Frumvarpið ber það með sér,
að stefna ríkisstjórnarinnar er ó-
frávíkjanlega greiðsluhallalaus
ríkisbúskapur.
Heildargreiðslur samkv. frum-
varpinu eru áætlaðar 392 millj.
króna, en voru um 380 millj. á
gildandi fjárlögum. Tekjúrnar
eru áætlaðar litlu meiri en gjöld-
in, og greiðsluafgangur 500 þús-
und krónur.
MINNSTA HÆKKUN SÍÐAN
FYRIR STRÍÐ
í fjárlagaræðunni gerði Eyst.
Jónsson ýtarlega grein fyrir rík-
isrekstrinum og fjárhagsafkom-
unni og stefnu stjórnarinnar. —
Hann lagði á það áherzlu, að ekki
kæmi til mála að afgreiða fjárlög
með tekjuhalla, og væri greiðslu-
hallalaus ríkisbúskapur horn-
steinn fjármálastefnunnar, sem
ekki yrði kvikað frá. Mjög hefur
verið unnið að því, að stilla út-
gjöldum í hóf, og hefur hækkun-
in skv. frumvarpinu aðeins orðið
3.4% miðað við fjárlög yfirstand-
andi árs, og er þetta minnsta
hækkun á fjárlagafrumvarpi frá
'ári til árs síðan fyrir stríð. .
MIKLAR FRAMFARIR
Ráðherrann ræddi þær stór-
felldu framkvæmdir, sem haldið
hefur verið uppi hin síðustu ár
þrátt fyrir rtiikil áföll af völdum
aflabrests og hraklegs tíðarfars.
Benti hann m. a. á virkjanirnar,
áburðarverksmiðjuna og sements
verksmiðjuna, hinar miklu fram-
kvæmdir í sveitum landsins, frarn
lög til íbúabygginga og fleira, og
sýndi fram á, að þrátt fyrir hina
erfiðu aðstöðu, væri hér um að
ræða einhver mestu framfaraár í
sögu landsins.
ERLENDAR LÁNTÖKUR
Ráðherrann taldi eðlilegt, að
erlent lánsfé væri fengið til að
standa undir þeim miklu arðbæru
framkvæmdum, sem á döfinni
væru, og benti á, að skuldir ís-
lands erlendis væru enn sem
komið væri tiltölulega litlar. Mið-
a ðvið útflutningsverðmæti ársins
1951, sem varð 720 millj. fob., eru
greiðslur landsins af erlendum
lánum ekki néma 2.5% af þeirri
fjárhæð, sem telja mætti mjög
hóflegt. Ríkisstjórnin leitar nú
lagaheimildar til lántöku vegna
framkvæmda í sveitum og vegna
smáíbúðabygginga, samtals um
38 millj. kr., í viðbót við lánsfé,
sem þegar er lofað og heimilt.
AUKIN FRAMLEIÐSLA
ER LAUSNARORÐIÐ
Ráðherrann sagði ennfremur,
að enda þótt tekizt hefði að koma
á og viðhalda greiðsluhallalaus-
um ríkisbúskap í þrjú ár, án
beinna skatta- og tollahækkana,
væri augljóst, að efnahagslegt ör-
yggi fengist ekki, nema megin-
áherzla væri lögð á að auka fram-
leiðsluna til lands og sjávar. í
aukinni framleiðslu og auknum
afköstum væri að finna lausnar-
orð efnahagsvandræða vorra.
Ymis atriði úr ræðu ráðherrans
veroa nánar rædd og skýrð hér í
blaðinu á næstunni.
Ný framhaldssaga
hefst í dag
í dag hefst framhaldssaga í
blaðinu, eftir hlé sumannánað-
anna. Hin nýja saga heitir „Hin
gömlu kymii“ og er eftir skáld-
konuna Jess Gregg. Þessi saga
er alveg ný af nálimii, rétt
komin á bókamarkaðmn vest-
an hafs. Þctta er mjög sér-
kennileg og dularfull ástar-
saga og líkleg til þess að halda
athygli lcscnda frá byrjun til
enda. Fylgist því með frá byrj-
un.