Dagur - 19.11.1952, Blaðsíða 5

Dagur - 19.11.1952, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 19. nóv. 1952 D A G U R 5 SJÖTUGUR: Tek að mér DavíÖ á Möðruvöllum „Æfidagarnir eru sjötíu ár og þegar bezt lætur áttatíu ár,“ segja Ritningarnar, og sæti það sízt á mér að rengja þau helgu sann- ' indi. En margt er breytingum hóð og óhætt mun nú sýnast og engin goðgá að færa þetta aldurshá- mark nokkuð upp, þegar ekki er óalgengt, að menn fylli tíu tug- ina og spáð er komandi kynslóð- um miklu meira langlífi. En jafnvel „sjötíu ár“ eru þó ennþá, hvað sem þessu líður, drjúgur spölur einnar mannsæfi. Og æði margir ,sem þeim áfanga ná; orðnir reyndir flestir í lífsins skóla og sumir allmjög. Að niinnsta kosti er þá bert orðið oftast, hvað úr okkur verður mannanna börnum, örlög okkar i’áðin og saga. Tímamót þau eru því á ýmsa lund merkileg og engin furða, þó eftir sé tekið. Og nú staldra margir við í spori og hugsa til Davíðs Eggertsonar á Möðru- völlum, en „æfidagar" hans uvðu einmitt „sjötíu ár“ 17. þ. m. Eru línur þessar ritaðar af því tilefni og eins hinu, að með heimsókn og handtaki gátu færri en vildu náð til afmælisbarnins. En Davíðs er svo skyit að minnast fyrir margra hluta sakir, að ekki þótti okkur vinum hans við það hlítandi, að þessi merkisdagur æfi hans liði svo hjá, að lítill eða enginn gaum- ur væri gefinn. Davíð er Eyfi^ðingur að ætt og Uppruna. Harm ér fæddur 17 .nóv. 1882 á Litlá-Hamri í Önguls- staðahreppi, en fluttist ungur með foreldrum sínum að Ytri- Tjörnum og sleit þar barnsskón- Um. En foreldrar Davíðs voru Eggert Davíðson frá Glerá Tóm- assonar og Jónína Vilhelmína Kristjánsdóttir hreppstj. á Kroppi Kristjánssonar. Voru það gagnmerk hjón, sem margir eldri menn muni. Én börn þeirra voru, auk Davíðs, Kristín, veitingakona °g bæjarfulltrúi á Akureyri, Sesselja, kona Kristjáns á Dag- verðareyri, Jón,organisti og bóndi ó Möðruvöllum, og Kristján, öll látin. Skömmu fyrir aldamótin tóku þau sig upp, Eggert og Jónína, og fluttu út í Ytra-Krossanes og bjuggu þar, alllengi, eða til vors- ins 1911, er þau settust að á hálf- lendu Möðruvalla í Hörgárdal og gerðu þar brátt mikið bú. Var þá Davið kvæntur fyrir þrem árum Sigríði Sigurðardóttur frá Holti, mikilli myndar- og ágætiskonu. Áttu þau heimili á Möðruvöllum með þeim foreldrum Davíðs, en höfðu þar fyrstu árin aðeins litla busyslu. Voru þá báðir bræður Davíðs þar heima ,en sjálfur var hann löngum við sjó, sem hann hafði vanizt í Krossanesi og fallið mæta vel. Rak hann útgerð um skeið og hafði skipstjórn á hendi. En áður hafði hann verið í förum landa á milli og gerði þá víðreist um veraldarhöfin og kynntist sið- ( um og háttum annarlegra þjóða. Átti það þó ekki fyrir Davíð að liggja, að gera sjóinn né far- mennskuna að æfistarfi. Ýmsar ástæður urðu þess valdandi, að hans varð æ meiri þörf heima á Möðruvöllum og að lokum fór svo, við andlát Jóns bróður hans, árið 1923, að hann tók þar að fullu við búsforráðum af föður sínum. Sást þá brátt á, að Davíð var ekki síður hlutgengur á landi en sjó og gerðist hann þegar umsvifamikill bóndi. Bjó hann um skeið á 3/4 jarðarinnar og bætti hana stórum að ræktun og húsakosti. Hafði bann þá margt á höndum í senn, * keypti t. d. árið 1927 fyrstu bif- í'eið héraðsins til mjólkurflutn- inga og stýrði sjálfur framan af. En þá naut hann sem oftar sinnar góðu og mikihæfu konu, sem vel kunni skil á öllu, jafrit utan húss og innan, og ávallt stóð við hlið manns síns, þar sem helzt skyldi. Var það mikill sjónarsviptir, er Sigríðar missti hér við, en hún lézt sumarið 1945, öllum harm- dauði, og eigi sízt manni sínum. Höfðu þau hjón eignast fimm börn, sem upp komust, einn son, Eggert, sem við búi tók af föður sínum vorið 1946, og fjórar dætur. Þetta er í fáum dráttum ytri æfiferill Davíðs á Möðruvöllum. En fleira mætti nefna og ætti sá, er þetta ritar, þá sízt að gleyma afskiptum hans af safnaðarmál- um. Sat Davíð hér um tuttugu ára skeið í sóknarnefnd og er enn meðhjálpari og safnaðarfulltrúi Möðruvallakl.kirkju. Hefur hann alla tíð látið sér mjög annt um hið veglega guðshús staðarins og talið sér ljúft og skylt að hlynna þar að eftir föngum. En auk þess hlýt eg alltaf að minnast Davíðs sem góðs drengs og bezta vinar. Fornt máltæki segir, að fáir lofi einbýlið sem vert sé, og kann það oft að reyn- ast satt. En af allt öðru hef eg þó að segja frá sambúð okkar Davíðs um fjölda ára. Það sambýli tel eg verið hafi mér og mínum mikið happ. Fyrir það einkum, svo og alla vináttu hins trygglynda og trausta manns, vil eg tjá honum alúðarþökk á þessum tímamót- um, um leið og eg jafnframt flyt hinu sjötuga afmælisbarni kveðju Og árnaðaróskir sveitunga og vina. Við óskum þess öll, að Davíð, sem nú dvelst í Kristnesi sér til hvíldar og heilsubótar, megi sem fyrst hverfa heim aftur til ást- vina sinna, og æfidagar hans verði enn margir, en þó umfram allt heiðir og hlýir. Sigurður Stefánsson. Herrakjóiföt til sölu. Saumastofa Björgv. Friðrikssonar. Herraföf Herrafrakkar Dömudragfir Dömukápur ÚRVAL AF EFNUM fyrirliggjandi. Saumastofa Björgvins Friðriks»nar Tveggja herbergja íbúð óskast nú þegar. Afgr. vísar a. Trúlofunar- hringar alltaf íyrirliggjandi. Sigtryggur og Eyjólfur, gullsmiðir, Skipagötu 8, Akureyri. Sími 1524. - Pósthólf 116. að líta eftir börnum á kvöld- in. — Upplýs. í sírna 1948. ÓDÝR KÁPUEFNI og rifflað flauel Margir litir! Verzlun B. Laxdal KARLMANNAFRAKKAR með loðkrögum (gaberdine) koma í búðina um helgina. Verzlun B. Laxdal Karlmannaföf Karlmannaskyrfur Karlmannasokkar Hálsbindi Þverslaufur Nýkomið gott úrval! Verzlun B. Laxdal PEYSUFATAKÁPUR (víðar) úr gráum og svörtum úrvals efnum. Nýjasta tízka! Verzlun B. Laxdal NÝTT! NÝTT! KVENKÁPUR úr gerviskinnum, væntanlegar 24. þ. m. Verzlun B. Laxdal Nylonsokkar Sternin og Stockleigh Perlonsokkar Lœkkað verð! ísgarnssokkar Óvenju sterkir! Barnasokkar Uppháir. Verzlun B. Laxdal ÍBÚÐ til leigu í Glerárþorpi, 2 lierbergi og eldhús. Afgr. vísar á. Skólasfúlka getur tekið að sér að gæta barna á kvöldin. Afgr. vísar á. Frú Giiðrún Bjarnadóffir - Nokkur niinningarorð — Þann 4 .nóvember sl. andaðist að heimili sínu, Vesturgötu 13 hér í bæ, frú Guðrún Bjarnadótt- ir, kona Magnúsar Péturssonar kennara, eftir þunga legu. Frú Guðrún var húnvetnsk að ætt, fædd að Illugastöðum í Laxárdal fremri 5. maí árið 1888. Hún var ein í hópi 16 systkina, og má því nærri geta, að fyrstu uppvaxtarár hennar hafa stundum verið erfið. Þar við bættist svo, að hún missti föður sinn, er hún var 5 ára, og varð þá að tvístra heimilinu. Um fermingaraldur fluttist Guðrún til Akureyrar og dvaldist eftir það með systur sinni, er þar var búsett, þar til hún giftist eftirlif- andi manni sínum, Magnúsi Pét- urssyni kennara, haustið 1918. — Hún hefur því dvalið hér í bæ nálega hálfa öld. Er þetta þá öll hennar saga? Nei — þessi hógláta og hlédræga kona á sér mikla sögu, og — eg vil segja glæsilega, þótt hún hafi ekki unnið nein afrek á hinn venjulega, hefðbundna mæli- kvarða, á krossgötum hins opin- bera lífs. 011 hennar sága gerist innan veggja þess heimilis, sem hún hefur helgað líf sitt og krafta í nálega hálfan fjórða áratug. Og svona er saga flestra íslenzkra mæðra og húsmæðra — sem bét- ur fer. Eg sagði, að saga frú Guðrúnar væri glæsileg. Eg kalla það afrek, þegar fátæk hjón ala upp og koma til manns sex óvenjulega mannvænlegum börnum. Ef þjóðfélaginu ber að verðlauna nokkra þjónustu, nokkrar gjafir, þá eru það slíkar. Mér er kunnugt um, að það hefur ekki alltaf gengið vel að láta hin lágu kennaralaun hrökkva til hinna mörgun, dag- legu þarfa, en frú Guðrún kunni þá list að fara vel með lítil efni. Fiskarnir hennar og brauðin urðu svo ótrúlega drjúg, svo að allir urðu mettir. En þó stundum hafi verið þröngt í búi hjá þeim hjón- um, heyrðist aldrei víl né vol á því heimili. Þar ríkti alltaf glað- værð, ástúðleg sambúð og heimil- -isfriður. Þarna voru þau hjón samhent. Á heimili þeirra hjóna var alltaf hlýtt, þótt stundum hafi ef til vill vantað kol í ofnirtn. Og af þessari sérstæðu heimilishlýju, og friðsæla heimilisbrag mótaðist uppeldi barnanna. Hjónabandið var eins og bezt verður á kosið. Þau báru livort annars byrðar í blíðu og stríðu. Þau varðveittu bæði lífsgleði og lífstrú æskunn- ar. Þess vegna varð allt svo létt og auðvelt. Heimili þeirra hefur alltaf verið hið stakasta snyrti- og regluheimili. Þangað kom aldrei áfengi né tóbak. Þar ríkti alltaf sátt og friður við hlið hóg- látrar glaðværðar. Svona var heimilið, sem frú Guðrún bjó eig- inmanni sínum og börnum. í þessu litla og þrönga umhverfi lifði og starfaði hún í 34 ár. Þetta var hennar litli, en hjartfólgni heimur, sem hún helgaði alla krafta sína, meðan þeir entust. Sumir sjá borgir sínar hrynja, þegar þær hafa verið byggðar. Guðrún hefur verið hamingju- kona, þrátt fyrir erfið uppvaxt- arár. Það hefur flest staðið vel, ■ sem frú Guðrún hefur byggt. Þau hjón hafa átt óvenjulega miklu barnaláni að fagna, en barnalán byggist ekki á eintóm- um tilviljunum, það á rætur sín- ar í þeim jarðvegi, sem börnin eru vaxin upp úr. Þau hjón hafa alltaf átt yndislegt heimili, og þess vegna meðal annars eiga þau nú góð og mannvænleg börn. Okkur finnst það kannske ein- kennilegt miskunnarleysi af for- sjóninni, að lofa ekki frú Guð- rúnu að njóta sigursins lengur, í skjóli ástvina sinna. En hún hafði lokið hlutverki sínu, og um hvað er þá að sakast? Einn var sá fclagsskapur, sem frú Guðrún lagði það lið, sem hún gat, en það var kvenfélagið Hlíf. Það hefur vafalaust ekki veri nein tilviljun, að hún valdi sér þann félagsskap. Eins og kunnugt er hefur Hlíf í fleiri áratugi lagt fram krafta sína til þess að vinna fyrir bömin, og þá einkurn þau, sem verst voru sett. Ætli Guðrúnu hafi ekki verið' minnisstæður stóri barna- hópurinn — systkinahópurinn, sem varð að tvístra, þegar faðir- inn féll frá? Móðurhlýjan náði lengra en til eigin barna. Frú Guðrún var myndarleg kona. Hún var í meðallagi há og svaraði sér vel. Tígin var hún í framkomu, hlýleg og glaðleg í senn. Hún bar aldurinn vel, þótt dagsverkið væri orðið nokkuð langt og stundum erfitt. Börn þeirra hjóna eru: Sverrir, kennari, nú við framhaldsnám í Ameríku, Bragi, skólastjóri í Reykjavík, Ingibjörg, íþrótta- kennari, Bjarni, við háskólanám í Reykjavík, Ragnar klæðskera- meistari í Reykjavík og Gunnar, símvirki á Akureyri. Guðrún Bjarnadóttir kom að vori og kvaddi að hausti. Það fer vel á því. Hún var jarðsungin frá Akureyrarkirkju laugardaginn 8. nóvember að viðstöddu miklu fjölmenni. Ein af hinum mörgu og ágætu mæðrum og húsfreyj- um þessa bæjar er horfin. Bærinn er fátækari en hann var. En eftir lifir þó minningin um góða og gegna konu. Hanne J. Magnússon.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.