Dagur - 19.11.1952, Blaðsíða 1

Dagur - 19.11.1952, Blaðsíða 1
DAGUR keinur næst út á laugard. Auglýs. sé skilað' fyrir kl. 2 á föstudag. Áskrifendur úti á landi, sem ekki hafa innleyst póstkr. fyrir árgjaldinu, eru áminntir um að gera það hið fyrsta. XXXV. árg. Akureyri, miðvikudaginn-19. nóvember 1952 46. tbl. Aldrei meiri dýrgripur gefinn íslenzkri kirkju í lútherskum sið Hinn nýi skírnaríoníur, sem Gunnhildur og Balduin Ryel gáfu, var vígður sl. sunnudag Aukin lánaslarfsemi bankanna mundi verða lil að efla alvinnulíl byggðarlagsins (Jtvegsbankinn á Akureyri „mjög fjárhagslega sterk stofnun64 að dómi bankastjórans - samt vill hann ekki auka útlán svo að þau nálgist útlán hinna fátækari útibúa annars staðar Síðastl. sunnudag fór fram í Akurcyrarkirkju hátíðleg vígsla hms nýja skímarfonts, scm hjón- in frú Gunnhildur og Balduin Ryel ræðismaður hafa gefið Ak- ureyrarkirkju. Er þetta mikill og vandaður gripur — engill krjúp- andi, sem heldur á hörpudiski — höggvimi úr hvítum ítölskum marmara ’af prófessor Corrado Vigni í Flórenz á Italíu — og er nákværn cftirlíking hhis fræga skímarfonts í Frúarkirkjunni í Kaupmannahöfn, en hami gerði Bertel Thorvaldsen. Veitti sóknarnefnd Frúarkirkj- unnar fúslega leyfi til þess að eft- irmyndin væri gerð, enda væri hún í öllu nákvæm eftii-líking. Hlýhugur safnaðarmeðlima. Séra Pétur Sigurgeirsson pré- dikaði við þetta tækifæri, en vígslubiskupinn, séi-a Friðrik J. Rafnar, veitti gjöfinni móttöku og sinni lagði séra Pétur út af þess- um orðum úr Davíðssálmum: vígði skírnarfontinn. í prédikun Glaður verð eg er menn segja við mig: göngum í hús drottins. — Flutti hann ógæta hugvekju um gidi sameiginlegrar guðsþjónustu og hlutverk kirkjunnar og minnti á, hvernig menn hefðu á öllum tímum tjáð kirkjunni virðingu og þakklæti og hlýhug með því að færa henni gjafir, sem gerðu þessi musteri fegurri að ytra út- liti en þau óður voru og hæfari að gegna hlutverki sínu. Vildi fá íslenzkan stein. Þá gekk í kórdyr Balduin Ryel ræðismaður og skýrði frá aðdrag- anda þess, að þau hjónin fni Gunnhildur og hann gæfu kirkj- unni skímarfontinn og rakti sögu málsins. Það var við vígslu kirkjunnar fyrir 12 árum að þau hjónin ásettu sér að færa kirkj- unni skímarfont að gjöf, því að þau sáu, að hin nývígða kirkja átti engan slíkan grip, er varan- legur gæti talizt Hugmyndin var upphaflega að fá íslenzkan myndhöggvara til þess að höggva skímarfont út í íslenzkan stein og í samráði við húsameistarann, prófessor GuÖjón Samúelsson, var lögð mikil vinna í að finna efni hér heima, sem nothæft þætti, en árangur varð ekki af þeirri leit. Þau hjónin komust síðan í samband við kunnanítalsk an listamann, prófessor Corrado Vigni í Fórenz ,og eftir miklar bréfaskriftir og aðra mrdirbún- ingsvinnu tók prófessorinn að sér að gera skírnarfontinn úr hvítum marmara og nákvæma eftirlík- ingu af hinu fræga listaverki Thorvaldsens í Frúarkirkjunni í Kaupmannahöfn. Veitti sóknar- nefnd kirkjunnar góðfúslega leyfi til þess að eftirmyndin væri gerð, enda væri hún nákvæm eftirlík- ing. Lauk prófessor Vigni síðan við verkið og er það nú hingað komið og uppsett í kirkjunni. Taldi Ryel ræðismaður að þessi ítalski myndhöggvari hefði unnið verk sitt framúrskarandi vel og samvizkusamlega. Las hann síðan gjafabréf þeirra hjóna fyrir gripnum og afhenti hann . Mæðgurnar afhjúpuðu gripinn. Afhjúpuðu þær mæðgurnar frú Gunnhildur og Hjördís Ryel skírnarfontinn ,en honum hefur verið valinn staður á upphækk- uðum palli hægra megin kórs, hefur brjóstpanel það, sem er í kómum, verið framlengt til þess að hylja vegginn í bi-jósthæð gegnt sætum kirkjugesta. Mun ætlunin að koma sams konar tré- innréttingu fyrir vinstra megin kórsins, og raunar, er fram líða stundir, í kirkjunni allri, enda mun það hafa verið vilji húsa- meistarans, er teiknaði kirkjuna, próf. Guðjóns Samúelssonar. Aldrei dýrmætari gjöf í lútherskum sið. Þá flutti vígslubiskupinn séra Friðrik J. Rafnar þakkarorð og veitti gjöfinni móttöku. Hann lýsti því, við hverja erfiðleika hefði verið að etja fyrir gefend- uma, að koma þessu máli í höfn, bæði hér heima og erlendis, og sagði, að aldrei í lútherskum sið mundi meiri dýrgripur hafa verið gefinn íslenzkri kirkju en þessi forkunnarfagri skímarfontur. — Jafnaði hann gjöfinni við altaris- töflu þá hina fögru er Jón Ara- son gaf Hólakirkju í upphafi biskupsdóms síns og enn er til. Hann lýsti og viðleitni gefend- anna að fá íslenzkan stein og ís- lenzkan myndhöggvara og minnti á, að þótt steinninn væri ítalskur og hendur erlends listamanns hefðu unnið verkið, væri hug- myndin þó íslenzk, þar sem hér væri eftirlíking af snilldarverki Bertels Thorvaldsens. — Gekk vígslubiskupinn síðan að skímar- iontinum og vígði hann og afhenti kirkju og söfnuði „til allra kristi- legra afnota." Hin fyrsta skím. Þá fór fram skírn í kirkjunni og var skírt sveinbam, er hlaut (Framhald á 8. síðu) Vildi selja áfengi og lenti á tollverðinum! Óvenjulcg tilraun til við- skipta var gerð hér á hafnar- krygffjuiuii sl. sunnudagskvöld, er matsveinninn á danska flutningaskipinu Karen vildi selja yfirtollverðmum hér, Zóphoníasi Árnasyni, áfengi úr skipmu. Var yfirtollvörðurimi í eftirlitsferð á bryggjumii um kvöldið, óemkennisbúinn. Tók hann líklcga í beiðni mat- sveinsins og sagðist hafa áhuga fyrir öllu því áfengi, sem þeir vildu koma á land. Fór svo að matsveinninn og aimar skip- verji báru 32 flöskur af áfengi í bíl tollvarðarins, en hann ók með þá og áfengið upp í toll- búð, kallaði þar á lögregluþjón til vitnis og kærði mennina fyr- ir smygl og áfengissölu. Var mál þeirra tekið fyrir í lög- reglurétti hér í gær og mun matsveinninn hafa hlotið þunga sekt auk þess sem áfengi hans var gert upptækt. Bærinn rafmagnslaus á sunnudaginn vegna spellvirkja . A sunnudaginn var — um messu- tímann — varð baerinn rafmagns- laus í um 2 klst og var ástæðan sú, að unglingar í bænum höfðu fleygt blautri spýtu á háspennuvírana í grennd við aðalspennistöð bæjarins. Leiddi saman með þeim afleiðing- um, að'vír brann sundur og bærinn varð ljóslaus. Mildi var, að slys varð ekki af þessu tiltæki, því að þegar há- spennuvír fellur þannig til jarðar, lciðir jörðin umhverfis rafmagnið, og er lífshættulegt að koma í ná- munda við vírinn. Viðgerðarmenn komu fljótlega á vettvang og var gert við skemmd- Réttarhöld hafa farið fram út af atburði þessum, og mun rafveitan gera skaðabótakröfu, bæði vegna beins tjóns á efni og kostnaðar við vinnu, og tekjutaps á þfinr tíma, sem rafmagnslaust var í bænum. I tilefn'i af atburði þessum hefur rafvéitán birt aðvörun t’il bæjarbúa og annarra, og er mönnum bent á að kynna sér efni hennar. Framsóknarmenn á Dalvík halda árshátíð Árshátíð Framsóknarfélagsins í Dalvík var haldin síðastliðinn laugardag í samkomuhúsinu á Jón Jónsson á Böggvisstöðum, form. félagsins, stjómaði sam- komunni, sem hófst með sameig- inlegri kaffidrykkju. Undir borð- um flutti Tómas Árnason, lögfr., ræðu, Jóhann Konráðsson frá Akureyri söng einsöng með und- irleik Jakobs Tryggvasonar. Þá var sýnd kvikmynd og að lokum dansað fram eftir nóttu. Var samkoma þessi hin myndarleg- asta, og félaginu til mesta sóma. Bankastjóriira birtir stendur ekki Ems og rakið var í s&asta blaði — sanikvæmt beimildum stjórn- artíðinda — hafor Útvegslianki fslands lagt útibúum sínum í Seyðisfirði, tsafiiffii og- Vcst- mannaeyjum um 45 miDjónir kr. til þess að festa í lánnm. á starfs- svæði þessara banka, auk þcss sem þessi bankafútxbá hafa spari- fé innlagt á þessum stöðuni og eigið fé útibúaxma haoda í milli til ráðstöfunar. Allt önnur stefna er hins vegar uppi hjá Útve(gsbankanuni hér á Akureyri, þv£ að samkvæmt þessum reikningxim átti hann 3,7 millj. króna iixnl hjó áðalbankan- um í Reykjavík um sl. áramót. Nema sparifjáriimlög manna í útibúið hér þó rösklega helmingi þeirrar uppbseðar, sem inni stendur sem sparifé f öllum hin- um útibúunum. Þessar töhxr leiða i ljós svo skýrt, að ckki verður um villzt, að útibú Útvegshankans öll nema hér á Almreyri hafa dregið vendegt Qármagn frá aðalhankanxnab. ttt..atvinnulífs- ins í byggðáaiögaa. sínuni, en útibúið hér ávaoctar ekki elnu simii allt spartféð og innst. hlaupareiknfaxgn faár, hcldur geymir á f jórðtr miBj. kr. í að- albankanum í Keykjavík á sama tíma og alhxr atvinnu- rekstur hér þjáist at Tánsfjár- skorti, svo að til stórvandræða horfir. Þessar upplýsingar Dags um það misræmi, mbj er í fjármála- stefnu Útvegsbankana á ýmsum stöðum í landinu, vöktu mikla athygli hér og umtal og hlaut blaðið þakkir margra borgara úr öllum stjórnmálaflokkxmum fyrir að hafa vakið máls áþvibneyksli, sem felst í stefnu bankaútibúsins hér. Einn enr þé sá maður, sem ekki taldi s«r mikrnrr greiða gerðan með' þessum akrifum, og er sá Svavar Gufimundsson bankastjóri hér, sem áhyrgur er fyrir þessari fjáarftóttastefnu. Birt ir hann í málgagui Alþýðuflokks- ins hér í btwnim ritsnoíð, sem hann nefnir „greinargrrð“ um þessi málefni, ett ekkt stendur ritsmíð sú undir nafni. Engin skýring. f grein bankastjórans er engin skýring á því furfiutógafyrirbæri, að Útvegsbankhm hefur lagt „greinargerð44, sem undir nafni þeim kaupstöðum, sem fyrr eru nefndir, 45 millj. af fjármagni að- albankans, á sama tíma og úti- búið hér leggur aðalbankanum í Reykjavík 3,7 millj. af sparifé viðskiptamanna sinna og eigin fé útibúsins. Þögn bankastjórans um þetta atriði er athyglisverð- asta atriðið í grein hans. Það leiðir af sjálfu sér, að bankastofn- un, sem rekin er með þessum hætti, getur ekki orðið nein „veruleg stoð framtaks“ í þessu byggðarlagi, a. m. k. ekki neitt lík stoð og þær lánsstofnanir, sem leggja fram tugi milljóna til þess að koma á fót atvinnufyrirtækj- um. Enda eru dæmin um þetta ljósust. Það er á almanna vitorði, að útibúið hér styður útgerð í bæ og héraði til dæmis ekki nema að mjög óverulegu leyti og fá munu þau skip — ef nokkur eru — hér um slóðir nú orðið, sem sækja styrk og stoð í greipar Svavars Guðmundssonar og bankaútibúsins hér. Vörn banka- stjórans er í aðalatriðum sú, að ekki hafi verið meira að gert hér um aðhald í útlánastarfsemi en eðlilegt og heilbrigt getur talizt og hann spyr ritstj. Dags að því, hvernig eigi að reka bankaútibú sem séu peningalaus og í botn- (Framhald á 8. síðu) StjórnmálanámskeiðF.U.F. Félag ungra Framsóknarmanna á Akureyri hefur ákveðið að efna til stjórnmálanámskeiðs hér í bænum Er öllum ungum Fram- sóknarmönnum heimil þátttaka, hvort sem þeir eru félagsbundnir eða ekki. Þá er og heimil þátttaka fyrir Framsóknarmenn utan Ak- ureyrar, ef óskað er. Námskeiðið fer fram að Hótel KEA (Rotary- sal) væntanlega á tímabilinu milli 25. nóv. og 10. des. Fer það fram á kvöldin og hefst þá kl. 8—8.30 eftir ástæðum. Eða á öðr- um tímum á laugard. og sunnud. Er ætlunin, að haldnir verða 8— 10 fundir. Þátttökutilkynningar má senda til skrifstofu Framsóknarfélag- anna, sími 1443, eða til skrifstofu Dags. f næsta blaði verður nánar get- ið um námskeiðið og tímar aug- lýstir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.