Dagur - 26.11.1952, Page 6
6
D AGIIR
Miðvikudagiiin 26. nóv. 1952
$ Hin gömlu kynni J
Saga eftir JESS GREGG
6. DAGUR.
(Framhald).
Barónessan hló við. „Mér datt
nokkuð í hug,“ sagði hún, eins og
til skýringar. „Á hverju vori hélt
skólastýran dansleik fyrir okkur
— og þvílíkar jarðarfarir! Við
vorum látnar fara í langerma
kjóla, hneppta upp í háls — en eg
átti svartan kjól, fleginn, nýjustu
tízku frá París. Eg sagði vinkonu
minni, að eg ætlaði að mæta í
þessum kjól á dansleiknum, en
hún sagði að það mundi eg aldrei
þora að gera.
Jæja. Þetta kvöld mætti eg
fyrst í upphnepptum, bleikum
silkikjól, en viti menn, eg var svo
óheppin þegar í byrjun að hella
kaffi niður í kjólinn og skólastýr-
an skipaðu mér þegar að fara upp
í hérbergi mitt og hafa skjóla-
skipti! Og ekki stóð á mér. Eg
flýtti mér upp, fór í svarta kjól-
inn flegna og mætti á ballinu með
berar axlir og ber niður á bringu!
Já, drengirnir létu mig ekki í
friði eftir það og þeim leizt áreið-
anlega á mig ,en álit mitt og vin-
sældir hjá skólastýrunni féll nið-
ur úr öllu valdi. Þetta varð eitt
með öðru til þess að mér varð
ekki vært í skólanum. Nokkrum
vikum seinna var eg send til Ev-
rópu.“ Hún þagnaði litla stund,
hélt svo áfram . frásögninni:
„Pabbi taldi ferðalög nauðsyn-
legan þátt í uppeldi mínu, svo að
þessi ferðalög voru ekki ein-
göngu skemmtireisur. Pabbi gat
auk þess notað tímann fyrir aust-
an haf til þess að sinna verzlun-
armálum sínum — hann var gler-
verksmiðjueigandi, eins og þér
vitið — og ekkert hefði verið
auðveldara og sjálfsagðara en að
hann léti mig hjálpa sér — gerast
einkaritari hans. — Eg vissi allt,
sem vita þurfti um gler, eins
mikið og pabbi, og eg hafði ekki
síður vit á verzlunarmálum en
hann. Einu sinni gerði eg áætlun
um nýja söluherferð og sýndi
honum, en hann bara hló að mér.
Dætur heldri borgara máttu ekki
skipta sér af verzlun og við-
skiptum. Slíkt þótti ekki ná
nokkurri átt, a. m. k. ekki hér í
Boston.“
Hún hallaði sér aftur á bak í
stólnum og skoðaði gaumgæfilega
skrauthringina, sem hún bar á
fingrum sér. „Kannske hef eg
alltaf haft augastað á völdum og
ríkidæmi. Mér fannst víst, allt frá
barnæsku, að eg mundi baða í
rósurn — hljóta auðæfi og álits
meira en pabbi — kannske var
það þess vegna sem eg giftist
þingmanninum. “
Elísabetu varð hugsað til þess,
á meðan á þessari frásögn stóð, að
ekki hefði verið að furða, þótt
þessi kona hefði á unga aldri haft
aðdráttarafl fyrir karlmenn.
Tízka var þá, að ungar stúlkur af
betri borgara ættum, létu lítið á
sér bera, sætu heima við hann-
yrðir og aðra fínni vinnu, og
gerðu aldrei neitt, sem ekki væri
í ströngu samræmi við hefð-
bundnar umgengnisvenjur milli-
og yfirstéttarinnar. En þessi
einkaerfingi hinna auðugu Win-
slow-hjóna hafði brotið þessi
bönd af sér, húrt var glæsileg að
horfa á, frjálsmannleg í fram-
göngu og óhrædd þótt bárur
hneykslunarinnar brotnuðu á
henni á stundum. Hún hafði ekki
látið-staðar numið fyrr en hún
hafði brotið svo margar siðavenj-
ur í kringum sig, að hún var
frjáls gerða sinna. í huga sér sá
Elísabet þessa konu eins og
Wrenn hlaut að hafa séð hana —
djarfa, uppreistargjarna gegn
kreddum og siðum samtímans,
glæsilega og hnakkakerta. Það
var ekki að undra þótt hann —
sem hafði brotið niður fangelsis-
veggi hefðbundinnar listtjáning-
ar, hrifizt af slíkum náttúrukrafti
og félli að fótum hennar.
Elísabet stóð snögglega á fæt-
ur. „Viljið þér afsaka mig?“ sagði
hún um leið.
„Hvert eruð þér að fara?“
spurði barónessan.
„Eg þarf að fara að vinna,“
svaraði unga stúlkan og hvarf á
brott. ,
Þetta kvöld og allan næsta dag
sat hún í herbergi sínu, skoðaði
glefsur þær, sem hún hafði skrif-
að hjá sér, og reyndi að sjá í hug-
sýn atburðina með augum ma-
dame von Schillar. Og því meira,
sem hún hugsaði um þetta, því
nær komst hún markinu, að fá
yfir sig litblæ fyrirmyndarinnar,
og þegar hún svo loksins settist
við að skrifa fyrsta kafla bókar-
innar sjálfrar, veittist henni það
svo auðvelt, að engu var líkara
en hún væri þar að skrifa endur-
minning frá æsku sinni en ekki
ævisögu baróneSsúnnar.
—o—
Eísabet opnaði dyrnar inn á
háaloftið með gætni. Auðfundið
var á lyktinni, að loftstraumar
höfðu ekki leikið um herbergið í
mörg ár. Þar hafði enginn komið
í herrans háa tíð. „Winslow-fjöl-
skyldan var nýtin,“ sagði barón-
essan sagt. „Hún fléygði aldrei
neinu.“
Elísabet hafði haft þessa síð-
ustu fullyrðingu í huga. Hún
opnaði koffort eftir koffort og
lyfti upp úr þeim bunkum af
gömum bréfum, skjölum, blöð-
um, gömlum boðskortum og öðr-
um heimildum um líf og starf
horfinna Winslowa. Hún gekk að
þessu könnunarstarfi með ákafa.
Hún vonaði að finna þarna göm-
ul bréf frá Carver öldungardeild-
arþingmanni, sem gætu varpað
ljósi á tilhugalíf hans og barón-
essunnar.
Þáð var hálfmyrkt í þessum af-
kima og hún blaðaði í blöðum
þessum þangað til hana var farið
að verkja í augun. Ekki var hægt
að segja, að hún hefði mikið fyrir
allt erfiði sitt. Hún fann að vísu
nokkur bréf frá Carver, en í þeim
var næsta lítið, sem varpaði
Ijósi á persónu hans. Athyglis-
verðast var e. t. v. bréfkom, sem
var undirskrifað með bókstafnum
Q, en á því stóðu þessi orð: „Ertu
algerlega gengin af göflunum?"
Hún fann líka allmörg bréf frá
baróninum, en þau voru leiðinleg
aflestrar, nema hvað gaman var
að fylgjast með fjölbreyttninni í
stafsetningu hans á enskum orð-
um, sem hann kunni augsýnilega
fremur lítil skil á.
En svo opnaði hún enn eitt
bréf, og geispinn, sem var kom-
inn fram á varir hennar, kafnaði
í fæðingunni. Hún las hið máða
bréf með vaxandi athygli. Það
var engu líkara en að það væri
stílað til hennar sjálfrar, því að
það var svona:
Elísabet, Elísabet: Ekki veit
eg hversu oft á degi hverjum
eg hvísla þessu nafni að sjálf-
um mér — kalla á þig, dái þig,
þrái þig, Elísabet. Þetta nafn er
í senn bæn min og refsing.
Stundum, þegar eg hefi nefnt
nafn þitt nógu oft, get eg séð
andlit þitt ljóslifandi fyrir hug-
arsjónum mínum, og ætla
mætti að þetta væri mér nóg,
en það er það bara ekki. Eg
þarf að sjá þig og tala við þig.
Kannske er það ekki hægt enn
— en fyrst viS getum ekki
ræðst við, lofaðu mér samt að
sjá orð af þínum munni — eitt
lítið bréf, Elísabet, er mér hið
sama og þyrstum manni svala-
drykkur.
Maríus, Maríus, Maríus.
AÍikið úrval nýkomið.
Málningavörur,
flestar tegundir, hjá
Hallgrimi Kristjánssyni,
Brekkugötu 13.
Veggföðui*
Stúlka
óskast í mánaðartíma.
Guðny Jakobsdóttir,
Holtag. 3, Akureyri.
Karlm. skyrfur
úr nylon, hvítar og
mislitar.
N ý s e n d i n g.
VERZLUN B. LAXDAL
Gráar
Kvenskóhlífar
með sléttum botni.
Skódeild KEA.
Skíðaskór
á börn og fullorðna.
Skódeild KEA.
Móðir okkar, ÞORGERÐUR ELfSDÓTTIR, sem andaðist
að heimili sínu, Syðra-Hóli, 21. nóv., verður jarðsungin laug-
ardaginn 29. nóv. kl. 2 e. h. að Glæsibæ.
Börn hinnar látnu.
Sloppaeíni
Nýkomin góð og ódýr sloppaefni.
Margir litir teknir frarn í dag.
Ennfremur Perlon-sokkar.
VERZLUNIN LONDON h.f.
Eyþór H. Tómasson.
miiiiMiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
■ mmmmmmmmmmmmiii*
Nýtt!
ANTIK
hátíðakerti
Tvö kerti í fagur-
lega skreyttri öskju
gul — grcen — bleik — hvit
Vönduð vara! — Hóflegt verð!
SápuverksmiðjanSjöfn.
■ iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiimmi
MMMMMMMMMMMMMMMMMI
Nylon-skyrtur
nýkomnar.
V efnaðarvorudeild.
TAFT
Köflótt taft,
hentugt í telpukjóla.
V efnaðarvörudeild.
N ærföt
Karmanna, stutt og síð
Drengja, stutt og síð.
VefnaðarvOrudeild.
EPLIN
koma í dag.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin og útibú.