Dagur - 13.12.1952, Page 8
8
Baguk
Laugardaginn 13. desember 1952
ÚR BÆNUM:
Svipazt um í verzlumim eftir
hentugri jólagjöf
30 menn luku meira bílsfjóraprófi
á námskeiði, sem lauk hér
i sioastlioinm viku
Á FIMMTUDAGSMORGUN-
INN var dauflegt að litast um í
miðbænum, enda var allt í einu
kominn hávetur. Bæjarmenn,
sem áður spígsporuðu frakka-
lausir og berhöfðaðir í milli búð-
anna, voru nú komnir í vetrar-
frakka og með loðhúfu eða í
kuldaúlpu og snjóstígvél. Verzl-
unargluggarnir voru fannbarðir,
svo að varla sást í marglitan
varninginn. En þótt útsýni væri
lítið, komust vegfarendur samt
ekki hjá því að minnast jólanna.
Jólastjarnan við Kaupvangstorg
varpaði skærri birtu í gegnum
snjómugguna. Ekki er minni
skemmtun að henni nú síðan fór
að snjóa.
—o—
INNI í BÚÐUNUM er hlýtt og
bjart og mikið um að vera víðast
hvar, þótt færi gerist nú þyngra
en áður. Eg kom inn í járn- og
glervörudeild KEA á fimmtu-
dagjinn til þess að svipast um eft-
ir jólagjöf og athuga, hvort ekki
væri þar eitthvað, sem mig vant-
aði á jólatréð. Nú veit maður
ekki, hvort nokkur grenitré
korna, þau eru geymd í iestinni á
Gullfossi suður í Reykjavík og
fer að verða vonlítið að ná þeim
í tæka tíð úr þessu, a. m. k. fypir
þá, sem úti á landi búa. Þó verða
menn að treysta á gerfijólatré,
sem oft hafa líka dugað vel og
geta verið ljómandi falleg. Á
fimmtudaginn fengust hentug og
falleg gerfijólatré í járn- og gler-
vörudeildinni, þýzk, og kostuðu
100 kr. stykkið. Og mikið er um
alls konar jólatrés.jkraut. Mér
varð starsýnt á rafmagnskerta-
seríurnar, því að gaman er að
geta látið loga á jólátrénu lang-
tímum saman á hátíðinni, og þótt
lifandi ljós séu skemmtilegri, er
af þeim meiri eldhætta og öryggi
er fólgið í því að hafa rafmagns-
kerti. Mér leizt bezt á rafmagns-
kertin frá Luma-verksmiðjunum,
16 stk. í fallegum kassa á 159 kr.
kassinn, hollenzk gerð er einnig
falleg, kostar það sama. Þá eru
GEC jólatrésljós, marglit, fyrir
135 kr. Fjölskyldunni mundi
verða mikil ánægja að þvílíkri
gjöf, hennar njóta allir. Þarna var
mikið um jólatrésskraut frá
Austurríki, jólakúlur og myndir
og kosta frá 2 kr. í 21 kr. stykk-
ið. Slíkir hlutir eiga að endast
árum saman, ef vel er með þá
farið. Mikið úrval er af umbúða-
pappír á jólabögglana, marglitar
arkir, og jólapokaarkir sá eg sem
kosta aðeins 2 kr., en duga í
marga poka. Ýmislegt borðskraut
fæst einnig, tileinkað jólum, bréf-
dúkar og „serviettur" o. s. frv.
Og svo mikið úr val af jólakort-
um. Má fá þarna ágæt kort fyrir
lágt verð.
—o—
TIL JÓLAGJAFA má finna
sitt hvað eigulegt í þessari búð.
Þarna eru til dæmis ýmsar silf-
urvörur — ekta silfur — svo sem
kökugafflar, áleggsgafflar, te-
skeiðar o. s. frv. Ennfremur skál-
ar, kertastjakar og föt, úr plett-
silfri. Þessi búð hefur einnig úr-
val af ýmiss konar rafmagns- og
búsáhöldum, þ. á. m. nokkrar
tegundir af straujárnum, t. d.
ágæt Westinghouse-járn fyrir 172
/20, þá er gott úrval af hraðsuðu-
pottum og hraðsuðukötlum. —
Gagnleg gjöf er góð vekjara-
klukka, þaina fóst laglegar
klukkur fyrir 83 krónur. —
Skemmtileg gjöf er líka mynda-
vél, einkum handa ungu fólki, og
slíkur gripur á að fylgja manni
lengi. Verður að horfa í það líka,
því ^ð þarna er um nokkra fjár-
hæð að ræða. Járn- og glervöru-
deildin selur mjög snotrar
myndavélar af hinni fi'ægu ZeisS-
Ikon gerð.
MÉR VARÐ hugsað til þess ó
fimmtudaginn, að slæmt væri að
eiga ekki Aladdín-lampa heima,
ef rafmagnið bilaði þegar verst
gegndi og gæti eg vel þegið slík-
an grip. Má segja að slíkur lampi
sé nauðsyn fyrir hvert heimili.
Þeir bera mjög skæra og góða
birtu. Slíkur lampi með skerm og
glasi kostar kr. 175.00. Loks er
þess að geta — ef menn eru
að hugsa um stórar gjafir handa
börnum og unglingum — að
járn- og glervörudeildin hefur
ágæt reiðhjól, bæði karlmanns-
og kvenmannshjól. Um leikföng-
in, sem þarna fást líka, ætla eg
ekki að ræða að sinni, enda gefst
tækifæri til þess að skoða mesta
úrvalið af þeim í nýju Barnabúð-
innþ sem KEA opnar á mánu-
daginn kemur og þangað ætla eg
mér að'koma.
Einn úr liópnum.
Námskeið bifreiðastjóra til
meiraprófs hófst á Akureyri í
byrjun nóvembermánaðar sl. og
lauk því laugardaginn 7. þ. m.
Kennarar við námsk.eiðið voru
Gísli Ólafsson varðstjóri, Snæ-
björn Þorleifsson bifreiðaeftir-
litsmaður og Vilhjálmur Jónsson
vélaeftirlitsm. Ennfremur flutti
héraðslæknirinn, Jóhann Þor-
kelsson, erindi á vegum nám-
skeiðsins. Þátttakendur í nám-
skeiðinu voru 30 og luku allir
prófi, og fara nöfn þeirra hér á
Aðalsteinn Guðnason, Akui'-
eyri. — Aðalsteinn Jóhannsson,
Akureyri. — Aðalsteinn Þórólfs-
son, Stóru-Tungu, Bárðardal. —
Angantýr Hjálmarsson, Villinga-
dal, Eyjafirði. — Ásmundur
Kristinsson, Höfða, Höfðahverfi.
— Björn Guðmundsson, Akra-
læk við Akranés. — Eyvindur
Eiðsson, Ásláksstöðum, Arnar-
neshreppi. — Gísli Kristjánsson,
Klambraseli, Reykjahverfi. —
Guðlaugur Valdemarsson, Arn-
dísarstöðum, Bárðardal. — Guð-
mundur Jósavinsson, Auðnum,
Öxnadal. — Gunnar Lúðvíksson,
Akureyri. — Halldór Hjálmars-
son, Hólmavík. — Helgi Antons-
son, Sauðárkróki. — Henning
Kondrup; Akureyri. — Hreiðar
Aðalsteinsson, Öxnhóli, Hörgár-
dal. — Jónas Guðmundsson, Ak-
ureyri. — Jóhann Sigurbjömsson,
Akureyri. — Jón B. Sigurbjörns-
son, Brautarhóli, Svalbarðsstr. —
Jón Sigurðsson, Sleitustöðum,
Skagafirði. — Jón S. Sigur-
björnsson, Grófargilþ Skagafirði.
— Rafn B. Helgason, Akureyri.
— Ragnar Júlíusson, Akureyri.—
Ragnar Tryggvason, Dalvík. —
Magnús Sigurjónsson, Nautabúi,
Skagafirði. — Sigurður Á. Krist-
inssón, Höfða, Höfðahverfi. —
Sigui'ður Stefánsson, Akureyi'i.
— Steingrímur Felixsson, Akur-
eyri. — Sveinbjörn Þ. Egilsson,
Úlfsbæ, Bárðardal. — Þórgnýr
Þórhallsson, Stóra-Hami’i, Eyjaf.
— Vilhjálmur Þórhallsson, Finna
stöðum, Höfðahverfi.
Gjöf til Krabbameinsfélags Ak.
1500.00 kr. til minningar um
Guðnýju Indriðadóttur, fædda
12. október 1883, dána 3. janúar
1952, frá vandamönnum hennar.
Þessa stóru gjöf þökkum við
kærlega. — F. h. Krabbameinsf.
Ak. Þengill Þórðarson.
Heyrið þið, krakkar!
JÓLASVEINNINN er lagður al stað. Á sunnudag-
inn kl. 4 kemur hann til byggða. Ef veður leyfir, getið
þið lieyrt hann og séð við
Jólabúð barnanna
í Hafnarstræti 93.
Þá verður hann kominn í jólaskap og syngur fyrir
ykkur nokkrar vísur.
Jólabúð barnanna
verður opnuð á mánudaginn. Þar getið ]rið keypt falleg-
ustu jólagjafirnar og allt, sem ykkur vantar á jólatréð.
Munið jiað, að jólasveinninn bíður ykkar við JÓLA-
BÚÐ BARNANNA á sunnudaginn kl. 4.
SENN KOMA JÓLIN!
Kaupfélag Eyfirðinsa.