Dagur - 14.01.1953, Blaðsíða 8

Dagur - 14.01.1953, Blaðsíða 8
8 Bagijk Miðvikudaginn 14. janúar 1953 Tæknilegir möguleikar til að útvarpa sjálfstæðri dagskrá frá nýju úfvarpsstöðinni Hátíðleg vígsla stöðvarinnar s. 1. sunnudag Vígsla nýju útvarpstöðvarinnar liér við Eyjafjörð fór fram við há- tíðlega athöfn í stöðvarhúsinu í Skjaldarvík sl. sunnudag að við- stöddum forráðamönnum út- varpsins og ýmsum boðsgestum úr bæ og sýslu. Við þctta tækfæri lýsti yfir- verkfræðingur útvarpsins, Gunn- laugur Briem, yfir því í ræðu, sem útvarpað var, að ekkert væri því tæknilega til fyrirstöðu, að útvarpa sjálfstæðri dagskrá frá nýju stöðinni. Þetta er mjög full- komin útvarpsstöð, búin nýtízku útbúnaði og hefur orku, svo að vel heyrist til hennar langt út fyrir þetta hérað. Mun þó heyrast miklu betur til stöðvarinnar þeg- ar búið verður að setja upp nýtt loftnet fyrir hana^ en það verður í vor. Þessi yfirlýsing verkfræðings- ins mun vekja mesta athygli hér um slóðir af því, sem sagt var við þetta tækfæri. Hún minnir á þörfina á því að unnið verði að því hér nyrðra að koma fastari skipan á þessa útvarpsstarfsemi, en á þetta hefur oft verið bent hér í blaðinu. Hér er um stórt málefni að ræða fyrir þetta hérað. Möguleikar til sjálfstæðs útvarps hér geta haft hin heillavænleg- ustu áhrif á sjálfstætt menning- arlíf hér og í nærliggjandi hér- uðum. V ígsluathöf nin. Vígsluathöfnin hófst kl. 3 e. h. í stöðvarhúsinu í Skjaldarvík. — Tóku þeir Jónas Þorbergsson út- varpsstjóii og Gunnlaugur Briem yfirverkfræðingur á móti gestun- um í stöðinni laust fyrir kl. 3. Var þegar setzt að dúkuðum borðum og strax að athöfninni lokinni framreiddar veitingar. Útvai-pað var frá vígsluat- höfninni, bæði um nýju stöðina og Reykjavíkurstöðina. Björn Olafsson menntamálaráðherra talaði fyrstur, frá Reykjavík, og lýsti með nokkrum orðum því, að með því að koma upp þessari endurvarpsstöð og öðrum slíkum væri útvarpið að reyna að gegna því hlutverki að sjá öllum lands- mönnum fyrir jafngóðum hlust- unarskilyrðum án tillits til þess, hvar þeir eiga heima á landinu. Lýsti ráðherra nokkuð erfiðleik- um þeim, sem við er að stríða, og kvað þolinmæði Eyfirðinga hafa verið mikla, því að hlustunarskil- yrði hefðu verið afleit nú um langan aldur í bæ og byggð hér nyrðra. Taidi hann byggingu nýju stöðvarinnar merkan áfanga í útvarpsmálum landsmanna. Fullkomin útvarpsstöð. Yfirverkfræðingur útvarpsins, Gunnlaugur Briem, sem staddur var hér nyrðra, skýrði í sinni ræðu frá byggingu stöðvarhúss- ins og uppsetningu stöðvarinnar og lauk lofsorði á hinn brezka verkfræðing, Sidney Spragg, sem unnið hefur að uppsetningu vél- anna fyrir hönd Marconifélags, og á byggingameistarann, sem stóð fyrir byggingu stöðvarhúss- ins, Guðmund Magnússon. Hann lýsti erfiðleikum þeim, sem út- varpsrekstur hér á landi verður að fást við vegna hnattstöðu landsins og annarra aðstæðna, sem gera útvarp hér á landi erf- iðara en víðast annars staðar. Þá skýrði hann frá gerð stöðvarinn- ar, sem hann taldj mjög full- komna, og benti á, að tæknilega væri ekkert því til fyrirstöðu að útvarpa sjálfstæðri dagskrá um þessa stöð. Stöðin er í öruggu rafmagnssambandi við bæinn og auk þess liggur jarðsímastrengur í stöðvarhúsið héðan. Þær fregn- ir, sem útvarpinu hafa borizt um starfrækslu stöðvarinnar frá reynsluútvarpi síðustu vikurnar, benda til þess að stöðin heyrist ágætlega um Eyjafjörð og vel víða um Norðurland, en dauflega sunnanlands og austan, en þó misjafnlega. Taldi verkfræðing- urinn engan veginn fullreynt um hlustunarskilyrði enn sem komið væri og sagði, að bráðabirgða- loftnet það, sem nú er í notkun, skilaði ekki nema hálfri orku miðað við það sem verður, er nýja loftnetið kemur í vor. ! Spænsk stöð útvarpar á sömu öldulengd, 407 metrum, en mun ekki trufla hér, a. m. k. ekki noi'ðanlands, svo að orð sé á ger- andi. Framkvæmd áætlunar lokið. Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri sagði í sinni rpeðu, að með vígslu þessai ar stöðvar væri lokið fram- kvæmdaáætlun, sem útvarps- stjóri og yfirverkfræðingur út- vaipsins hefðu gert að afloknu alþjóðlegu þingi um útvarpsmál- efni í Kaupmannahöfn árið 1948, þar sem samþykkt var, gegn mót- mælum íslands, að úthluta sænskri stöð sömu bylgjulengd og Reykjavík notar. Var þá fyrirsjá- anlegt að truflanir hér á landi mundu mjög fara í vöxt, enda hefur sú orðið reyndin á. Til þess að. tryggja sæmileg hlustunar- skilyrði hér á landi var því að koma upp endurvarpstöðvum sem víðast um landið, þó einkum á Austur- og Norðurlandi. Ný endurvarpsstöð hefur verið reist á Eiðum, gamla Eiðastöðin flutt til Hornafjarðar og loks gerð ný stöð í grennd við Akureyri. Taldi útvarpsstjóri þetta merkan áfanga og þakkaði ríkisstjórn og Fjárhagsráði veitt leyfi til þess að gera þessa framkvæmd mögulega. Því næst lýsti útvarpsstjóri því yfil', að útvarpsstöðin væri full- gerð og tekin til starfa, þakkaði hinum brezka verkfræðingi, sem nú afhenti stöðina, kvaðst af- henda stöðvarstjóranum, Davíð Árnasyni stöðina til gæzlu og starfrækslu. Forráðamönnum útvarpsins þakkað. Að lokum talaði Friðjón Skarp- héðinsson sýslumaður Eyjafjarð- arsýslu og bæjai'fógeti á Akur- eyri og bar fram þakkir Eyfirð- inga og annarra Norðlendinga til forráðamanna útvarpsins fyrir forustu þeirra í stöðvarbygging- armálinu og benti með nokkrum orðum á gildi þessara fram- kvæmda fyrir þetta byggðarlag og önnur, er aðstöðu hefðu til að njóta stöðvarinnar. Að ræðum þessum loknum hófst reglulegt endurvarp frá Reykjavíkurstöðinni. Kynnir út- varpsins hér við athöfn þessa vgr Jón Norðfjörð leikari. Tækin að sumu leyti fullkomnari en í Reykjavíkurstöðinni. Eftir að setið hafði verið góða stund við ágætar veitingar, er forráðamenn útvarpsins létu bera fram fyrir gesti sína, sýndi yfir- verkfræðingurinn, Gunnlaugur Briem, gestunum stöðvarhúsið og vélarnar. Stöðvarhúsið er allmik- il og vönduð bygging. Þar er íbúð stöðvartjórans og gott rúm í kjallara fyrir íbúð aðstoðar- manns, auk þess rúmgóð her- bergi fyrir varahlutageymslur o. s. frv. Hinar nýju vélar stöðvarinnar eru allar frá Marconifélaginu brezka og af allra fullkomnustu gerð. Sagði verkfræðingurinn að þær væru að sumu leyti full- komnari en vélar útvarpsstöðvar- innar í Reykjávík. Einkum er það tæki, sem hefur gát á tónbjögun og suði, sem er fullkomið. Er það af allra nýjustu gerð og stjórnar því að þessir hvimleiðu fylgifisk- ar útvarps — tónbjögun og suð — verði sem viðráðanlegastir og fyrirferðarminnstir. Lampar send isins eru loftkældir og er það nýjung. Má nota heita loftið til að hita upp vélasal stöðvarinnar. Ekki er enn búið að koma við- tökuskilyrðum nýju stöðvarinnar á efni frá Reykjavík í það horf, sem ætlunin er að verði, en úr því mun bætt eins fljótt og kost- Næsta verkefni liljóðnemasalur. Að öllu samanlögðu hefur bygging nýju útvarpsstöðvarinn- ar tekizt vel og er hún að öllu leyti ágætlega úr garði gerð. - Samanlagður kostnaður bygging- ar og véla og tækja mun vera ná- lægt 2V2 millj. Heimamönnum hér nyrðra virðist nú, að aflokn- um þessum myndarlegu fram- kvæmdum, að næsta skref sé að koma upp hljóðnemasal eða her- bergi hér á Akureyri og skipu- leggja hér útvarpsstarfsemi, sem getur í senn orðið útvarpsmálefn- um landsins til styrktar og þessu byggðarlagi og öðrum hér nær- liggjandi til menningarlegrar upplyftingar. Myndin er af nýja sendinum í útvarpsstöðinni hér norðan við bæinn. Þetta eru mjög fullkomin tæki, af nýjustu gerð. Maðurinn á mynd- inni er brezki verkfræðingurinn, sem unnið hefur að uppsetningu vélanna, Mr. Sidney Spragg, frá Marconifélaginu í Englandi. ¥ r amsóknar iiienn ræða fjárhags- áætlun bæjarins á f östudagskvöldið Framsóknarfélag Akureyrar liefur ahnennan félagsfund að Hótel KEA n.k. föstudagskvöld kl. 8.30 og verður þetta um- ræðufundur um fjárhagsáætl- un bæjarins, sem væntanlega kemur til síðari umræðu í bæjarstjórn n. k. þriðjudag. Framsögu á fundinum á förtu- dagskvöldið hefur Jakob Frí- mannsson framkvæmdastjóri, sem á sæti í bæjarráði af hálfu Framsóknarflokksins. Einnig munu bæjarfulltrúarnir dr. Kristinn Guðmundsson og Þor- steinn M. Jónsson mæta á fundinum og flytja þar ræður. Skorað er á félagsmenn að fjöl- menna á þennan fund. Sfyrkið lamaða - kaupið nýju eldspýfurnar! Sfjórnarfrumvarp um follabreyfingar vegna iðnaðarins Ríkistsjórn lagði fyrir Alþingi á mánudaginn frv. um breytingu á lögum um tollskrá og er þar gert ráð fyrir breytingum í 31 lið um tollaákvæði á hráefni til iðnaöar og í nokkrum tilfellum um aukna vernd fyrir innlendar iðnaðarvör- ur. Er um verulegar breytingar að ræða, er allar miða að því að styrkja aðstöðu iðnaðarins og hef- ur verið haft samráð við samtök iðnrekenda og iðnaðarmanna um mál þetta. Má óhikað telja það í liópi merkustu þingmála. Ríkis- stjórnin hefur og lagt fram frv. um tollalækkanir á kaffi og sykri, um verðlagsbætur til opinberra starfs- manna og væntanlegt er frv. um auknar fjölskyldubætur, allt í sam- ræmi við niðurstöður verkfalls- sættarinnar í desember. Sonurinn framdi sjálfsmorð 1 réttarhöldunum yfir kommún- istaleiðtogunum í Prag fyrir jólin voru m. a. lögð fram bréf til rétt- arins frá konu eins af sakborning- unum og ungum syni annars. Var sá Herman Frejka, sonur Frejka þess, er var ráðherra efnahags- mála og hengdur var í garði ríkis- fangelsisins í Prag að viðstöddum Komnar eru á markaðinn eld- spýtur, sem seldar eru að nokkru leyti til ágóða fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Þetta eru venjulegar eldspýtur frá Tóbaks- einkasölunni, en á bak stokksins er limdur miði, sem á er letrað: Styrkið lamaða og fatlaða. Þessar eldspýtur eru seldar 10 aurum dýrari hver stokkur en venjulegar eldspýtur og ganga aurarnir til félagsins, til hins nauðsynlega hjálparstarfs, er það hefur með höndum. Allir, sem vilja, geta rétt félaginu hjálparhönd með þessum hætti. Gerið ykkur að reglu að kaupa ævinlega þessar eldspýtur. Munið að kornið fyllir mælirinn. Áburðurinn ódýrari! Áburðarsala ríkisins auglýsir í blaðinu í dag áætlað verð á tilbún- um áburði á þessu ári og er um verulega verðlækkun að ræða frá þvi í fyrra, eða 10—20% á áburð- artegundunum. Orsakir lækkur.ar- ( innar er lækkun á farmgjöidum og enfremur lækkað markaðsverð er- ( lendis. Gottwald forseta. Hafði sonurinn i bréfi sinu lagt til að lifslátsdóm- ur yrði látinn ganga yfir föður sín- um sem hann kvað hafa svikið kommúnistaflokkinn. Þótti fram- koma hins unga manns mikil fyrir- mynd í blöðum kommúnista aust- an járntjalds. Nú hefur eftirleikur- inn orðið sá, herma nýkomin er- lend blöð, að ungi maðurinn hefur framið sjálfsmorð. Þessir atburðir varpa noklcru ljósi á það hyldýpis- myrkur, sem grúfir yfir kommún- istaríkjunum i austri. Áhugamannafélagið hefur slörf Hér hefur um skeið starfað óformlegur félagsskapur bænda og áhugamanna um málefni landbún- aðarins. Koma þessir menn saman einu sinni i viku að Hótel KEA, og ræða um áhugamál sín. Eru oft flutt erindi þar um ýmsa þætti landbúnaðarins og skyld málefni. Félagsskapur þessi tekur nú til starfa á ný eftir nokkurt hlé og er næsti fundur á þriðjudagskvöldið (kemur. Verður þar væntanlega ' rætt um túnrækt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.