Dagur - 01.04.1953, Blaðsíða 1

Dagur - 01.04.1953, Blaðsíða 1
ÁSKRIFT að DEGI tryggir að þér fylgist með málefnum þjóðarinnar. AGU AUGLÝSING í Degi nær til Akureyringa og langflestra Eyfirðinga. XXXVI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 1. apríl 1953 18. tbl. Frá 10. flokksþinginu Nauðsynlegt að ræða hervarnarmálin fyrir opnum tjöldum meira en nú er gerl Þessi mynd er frá 10. flokksþingi Framsóknarmanna, sem lauk í Reykjavík sl. miðvikudag. Formaður flokksins, Hermann Jónasson landbúnaðarráðherra, er að flytja framsöguræðu sína, er birt hefur verið í tvcimur síðustu tölublöðum Dags. Spennan of lág fyrir endurvarpsstöðina Endurvarpsstöðin hér utan við bæinn hefur ekki getað starfað nema stopult að undanförnu og er | ástæðan sú, sagði Davíð Árnason stöðvarstjóri blaðinu, að raf- magnsspennan hér í bænum er of lág, en stöðin fær rafmagn frá Laxárvirkjun. Hefur þetta valdið verulegum truflunum á útsend- ingum stöðvarinnar síðustu þrjá dagana. 10. flokksþing Framsóknarmanna bendir á að hvatvíslegur og fjandsamlegur áróður um ör- yggismál landsins er beinlínis þjóðhættulegur Flokksþing Framsóknarmanna, sem lauk sl. miðvikudag, ræddi öryggismál landsins og gerði um þau ályktun, þar sem lögð er áherzla á vilja þjóðarinnar til að kappkosta góða sambúð við allar þjóðir, en jafnframt talið óhjákvæmilegt að hervarnir séu í landinu eins og nú er ástatt í heiminum til öryggis þjóðinni sjálfri og öðrum þjóðum Norðuratlantshafssvæðinu. Vá vítti þingið hvatvíslegan og f jandsamlegan áróður, sem haldið er uppi af kommúnistum og þeirra fylgifé, gegn vamar- og öryggismálum landsins.Ályktunin er svohlj.: * £ I I £ £ £ I £ Akureyrarvikan hafin - gestir streyma til bæjarins - Skíðalandsmótið hefsf kl. 6 í dag £ I i £ £ £ I £ % | % i © £ tS> f $ I © 1 f dag hefst Skíðamót ís- lands og Akureyrarvika Ferðamálafélagsins og var undirbúningi að mestu lok- ið í gær. Þátttakendur í Skíðamótinu streymdu til bæjarins, með flugvélum að sunnan og vestan og landveg að austan og von er á mörgum gestum að sunnan í dag bæði flugleið- is og landleiðina því að nú er unnið að því að opna þjóðveginn suður. Bærinn skartaði fegursta vetrarbúningi í gær — fannbreiður yfir öllu og meira en nægur skíðasnjór jafnt í bænum sem utan hans, — kyrrviðri og bjart- viðri var lengst af, eins og svo oft hér á Akureyri, fánar við hún í miðbænum og önnur skreyting til nð fagna gestunum. Dagskráin. Skíðamót íslands hefst í dag með skíðagöngu hér í bænum við íþróttahúsið og í kvöld hefst Akureyr- arvika Ferðamálafélagsins með samkomum á hótelum bæjarins. Síðan falla sam- an dagskrár Ferðamála- félagsins ög Landsmótsins og vierður þannig: Skírdag 2. apríl: Kl. 9.00 Skíðaför gesta. Kl. 12.00 Svigkeppni á Skíðam. ísl. Kl. 15.00 Boðganga á Skíðam. ísl. Kl. 20.30 Kirkjukonsert: Kirkjukór Ak. Stjórnandi: Jak ob Tryggvason. Föstudaginn langa, 3. apr.: Kl. 7.00 Vindheimajök- ulsför. Kl. 9.00 Skíðaför gesta. Kl. 17.30 Bærinn skoð- Annar í páskum, 6. apríl: Kl. 9.00 Skíðaför gesta. Kl. 15.00 Skíðastökk (að alkeppni) á Skíðam. ísl. Kl. 18.00 Hestamannafél. Léttir slær kött inn úr tunn- unni. Bridgekeppni: Meistarar frá Reykjavík, Akureyri og Húsavík og ef til vill Dalvík keppa á hverju kvöldi á Gilda- skála Hótel KEA. Kl. 20.30 Andakt í kirkj- Þá verða stofnaðir skíða- t unni. flokkar — 15—20 manna — -J- Laugardagur 4. apríl: undir umsjá hæfra manna til þess að hafa forustu fyr- f | Kl. 13.00 Skíðaför gesta. ir unglingum og öðrum, er vilja fara á skíðafjallið f Kl. 14.00 Stórsvig karla þessa daga. Er þetta gert til í og kvenna á öryggis og þæginda og til f Skíðam. ísl. Kl. 16.00 30 km. ganga á þess að gera fólki sem ódýrast að komast í skíða- <3 4 Skíðam. ísl. Kl. 21.00 Kvöldvaka á landið. Skrásetning í skíða- flokkana er á Ferðaskrif- t | Hótel KEA og stofunni. Miðasala á dag- 4 iíi Hótel Norðurl. skrá Ferðamálafélagsins og I Páskadagur 5. apríl: í skíðaferðirnar fer fram á Hótel KEA, þar sem upp- 4 <3 4 t f Kl. 8.00 Grímseyjarför lýsingamiðstöð verður, og (sérst. gjald). á Ferðaskrifstofunni, sem t Kl. 9.00 Skíðaför gesta. veitir upplýsingar og fyrir- f Kl. 13.00 Svig kvenna á greiðslu, eftir því sem unnt t Skíðam. Isl. er. Gert er ráð fyrir að Ak- f Kl. 15.00 Sveitakeppni á ureyringar sjálfir taki t Skíðam. Isl. verulegan þátt í öllu, sem f <■ f Kl. 16.30 Stökk í norr- fram fer og þess er vænst, ænni tvíkeppni. að bæjarmenn allir leggist Kl. 20.15 Lúðrasveit Ak. á eitt að gera gestunum í f t f leikur á Ráð- dvölina hér sem ánægju- torgi. legasta á allan hátt. £ £ I- £ I- £ I £ I £ J. v,f 13* £ i Framsóknarflokkurinn telur sem fyrr að íslendingum beri að kappkosta góða sambúð við allar þjóðir, sem þeir eiga skipti við en nánasta samvinnu hljóti þeir þó að hafa við norrænu þjóðirnar og aðrar vestrænar þjóðir, vegna nábýlis, menningartengsla og líkra stjórnarhátta. Flokksþingið telur óhjákvæmi- legt, eins og ástatt ét í heiminum,1 að hervarnir séu hér á landi til öryggis íslendingum og öðrum þjóðum, sem eru á Norður-Atl- antshafssvæðinu. Seta erlends herliðs hefur vissu- lega í för með sér mikinn vanda fyrir þjóðina, en flokksþingið bendir á, að fjandsamlegur áróð- ur og hvatvíslegur, sem frammi er hafður vegna annarrlegra hagsmuna, er beinlínis þjóð- hættulegur og torveldar meira en nokkuð annað, að skynsemi og gætni verði viðhöfð í meðferð þessara mála. Flokksþingig leggur áherzlu á eftirfarandi atriði: 1. Að vörnunum sé þannig fyrir komið, að þær tryggi þjóðinni sem mest öryggi, en þess þó gætt, að hér verði ekki fjöl- mennari her, eða meiri fram kvæmdir, heldur en sú nauðsyn krefur. 2. Að hindruð verði óþörf sam- skipti landsmanna og varnar liðsins og dvöl þess takmörkuð við þá staði, er það fær til af nota. 3. Að fullkomnari og traustari skipan verði komið á samstarf íslenzkra stjórnarvalda og yf irmanna varnarliðsins með það fyrir augum að koma í veg fyrir misskilning og árekstra og tryggja betur framkvæmd varnarsamningsins. 4. Að varnarmálin verði rædd meira opinberlega en verið hef ur og þjóðinni veittar upplýs- ingar um þau eftir því, sem uijnt er, til þess að koma í veg fyrir kviksögur og óheiðarleg- an áróður. 5. Að framkvæmdum hjá varnar- liðinu sé, eftir þvi sem hægt er, hagað með tiliiti til atvnnu- vega landsmanna og vinnuafls- ins í landinu. 6. Að núgildandi varnarsamning- ur verði tekinn til endurskoð- unar, nú þegar, í því skyni 'að bæta úr því, sem áfátt er. Ennfremur leggur flokks- þingið ríka áherzlu á, að varn- arsamningnum vérði sagt upp strax og fært þykir af öryggis- ástæðum. (Framhald á 5. síðu). Haukur Stefánsson málari látinn Síðactliðinn laugardagsmorgun lézt að heimili sínu við Holtagötu hér í bæ Haukur Stefánsson list- málari, á sextugsaldri, banamein hans var hjartaslag. Haukur Stef- ánsson var Vopnfirðingur að ætt, systursonur Björgvins Guð- mundssonar tónskálds. Haukur fiuttist til Vesturheims barn að aldri, kom aftur 1930 og alfarinn o 1932. Hann átti hér heima síðan 1933. Haukur Stefánsson var kunnur borgari og ágætur lista- maður. Hans verður nánar minnzt hér í blaðinu síðar. Landleiðir færar í dag! I gær var unnið að því með stórvirkuin vélum að opna um- ferð yfir fjallvegi, sem tepptust í stórviðrinu á laugardaginn. Oxnadalsheiði verður fær í dag og ennfermur Holtavörðuheiði og er þá akfærtí milli Akureyr- ar og Reykjavíkur á stórum bílum. Þá var verið að ryðja Vaðlaheiðarveg í gær og er þá akfært til Húsavíkur. Innan- héraðsvegir voru flestir færir í gær nema Dalvíkurvegur, en hann verður ruddur í dag. Er þarna rösklega að verið og samgöngutafir vegna snjókomu minni en vænta mátti um helgina.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.