Dagur - 01.04.1953, Side 8

Dagur - 01.04.1953, Side 8
8 Baguk Miðvikudaginn 1. apríl 1953 Sjötfa stjórnmálaflokknum hleypt af sfokkunum í Reykjavík í gær „Lýðveldisflokkurinn“ klofnar út úr Sjálf- stæðisflokknum - hyggst bjóða fram í sumar 1 gær var sjötta stjórnmála- flokknum hleypt af stokkunum í Reykjavík og standa að stofnun hans útgefendur blaðsins Varð- bergs, en þeir munu áður hafa fylgt Sjálfstæðisflokknum að málum flestir. Er flokksstofnunin tilkynnt í blaðinu í gær og í sama tbl. er einnig birt ræða Jóns Þorláks- sonar, er hinn látni leiðtogi íhaldsflokksins hélt 1929, og mynd af honum. Aðalleiðtogi hins nýja flokks er Óskar Norðmann stórkaupmaður, fyrrum verzlun- arfélagi Jóns Þorlákssonar. Er því svo að sjá sem ætlunin sé að taka upp aftur stefnu Jóns Þorláks- sonar, en minna hefur borið á henni í Sjálfstæðisflokknum að undafömu en ýmsir flokksmenn vilja una við. Flokksstjórnin. í stjórn hins nýja flokks eru þessir menn: Óskar Norðmann stórkaupm., formaður, Gunnar Einarsson prentsmiðjustjóri, Ól- afur Þorgrímsson hæstaréttarlög- Agætar skemmtanir skólabarna Börnin í Barnaskóla Akureyrar héldu hina árlegu skemmtun sína um sl. helgi til ágóða fyrir ferða- sjóð sinn og sótti margt fólk skemmtanirnar, þótt veður væri slæmt og færð. Þarna fór fram kórsöngur og einsöngur, leiksýn- ingar, einleikur á hljóðfæri, upp- lestrar, danssýningar, skrautsýn- ing o. fl. Börnin sáu um öll skemmtiatriðin sjálf og fórst það mjög myndarlega. maður, Ásgeir Björnsson kaup- maður og Guðmundur Jóhanns- son prentsmiðjustjóri. Er þetta bráðabirgðastjórn. í yfirlýsingu, sem stjórnin birtir, er tilkynnt að flokkurinn muni bjóða fram í kosningunum í sumar og ef fram- bjóðendur ná kjöri muni þeir leggja fram frv. um nýja stjórn- arskrá, nýja skatta- og tollalög- gjöf og um afnám Fjárhagsráðs. í stefnuyfirlýsingu flokksms kemur fram að hann vill einkum beita sér fyrir setningu nýrrar stjórnarskrár, breytingum á skatta- og tollalögum og nýrri stefnu í verzlunar-, iðnaðar- og bankamálum. Á laugardaginn geysaði hér mikil stórhríð og urðu vegir allir brátt ófærir, eins innanbæjar sem utan, en frostlítið var. Þegar seint á föstudagskvöld var veður mjög versnandi og ill- fært um bæinn um kvöldið, en á laugardagsmorgun varð að taka til snjóbílsins til þess að komast til útjaðra bæjarins. Flutti hann brauð frá Brauðgerð KEA til út- sölustaða á laugardagsmorgun- inn, en stórir bílar voru notaðir til annarra flutninga hér innan- bæjar. Engir mjólkurbílar komu í bæinn á laugardaginn, en mjólk var þó nægileg vegna þess að bfl- ar úr Svarfaðardal höfðu brotizt til bæjarins á föstudagskvöldið, þótt færð væri þá orðin vond. Strax á sunnudag hóf hinn stóri snjó- og veghefill bæjarins að hreinsa götumar hér, enda var þá George Dawson Þetta er George Dawson, Cock- neymilljónarinn brezki, sem gert hefur samninga við Fél. ísl. botn- vörpuskipaeigenda uin fisltsölu í Bretlandi, þrátt fyrir löndunar- bann brezka togaraeigendasam- bandsins. Vekja fyrirætlanir Daw sons um löndun og nýtt dreifing- arkerfi mikla athygli í BretlandL uppstytta, og hefur verið unnið rösklega að því að gera akfært um bæinn síðan og fjöldi manns við snjómokstur og akstur. Þá hefur Vegagerð ríkisins haft sínar vélar í gahgi til að hreinsa snjó af þjóðvegum og miðar nú óðum að því að samgöngur komizt aftur í eðlilegt horf. Mikinn snjó hefur sett hér nið- ur í þessu áhlaupi og sennilega meira hér um innanverðan Eyja- fjörð en í héruðunum fyrir aust- an og vestan, að því er blaðið hefur frétt. Sunnanlands var ekki veruleg snjókoma í veðri þessu og er þar enn autt að mestu leyti. Happdrætti Dýravernd- unarfélagsins Blaðið vill vekja athygli á happdrætti, sem Dýraverndunar- félag Akureyrar efnir til um þessar mundir. Vinningarnir eru 12 talsins, allt stoppaðir fugla- hamir, og eru þeir til sýnis í Verzlun Axels Kristjánssonar h.f. í Brekku götu 1. Miðarnir verða til sölu þar og víðar og kosta 3 kr. Ættu menn að styrkja góðan félagsskap með því að kaupa miða í þessu nýstárlega happ- drætti. Dráttur fer fram 15. apríl næstk., svo að ekki þarf lengi að bíða í von. Kirkjukonsert á morgun Kirkjukór Akureyrar syngur annað kvöld kl. 8.30 í kirkjunni. Stjórnandi er Jakob Tryggvason, en einsöngvarar Jóhann Kon- ráðssón og Kristinn Þorsteinsson. Akureyringar láta ferðafólkið, sem hér dvelst, vonandi ekki eitt um að sækja hljómleikana, held- ur fylla kirkjuna og láta þar með í ljósi verðskuldaða viðurkenn- ingu á starfi kórs, organista og söngstjóra. Van Fleet lilaut heiðursmerki Þegar James Van Fleet yfirbershöfð. í Kóreu lét af stþrfum í fyrri mánuði og hélt heim til Bandaríkjanna, kvaddi Eisenhower forseti hann á fund sinn og sæmdi hann heiðursmerki fyrir „framúrskar- andi störf í þágu lands síns og Sameinuðu þjóðanna.“ Myndin sýnir forsetann t. v. hengja heiðursmerkið á hershöfðingjann. Mesta stórhríð vetrarins brast á aðfaranótt laugardags Sex daga ferðalag á bíl frá Rvík hingað til Akureyrar anno 1953 Ferðalangafrsem lögðu af sfað með áætlunarbíl 24. marz, komust loks til Akureyrar með snjóbíl 30. þ. m. I fyrradag sótti snjóbíll hóp af ferðafólki upp á miðja Öxna- dalsheiði og flutti til bæjarins og lauk þar með sögulegri ferð, sem hófst í Reykjavík þriðjudags- morguninn 24. þ. m. Þannig geta ferðalög á landi eim orðið á ís- landi, þrátt fyrir alla tækni, þeg- ar sá gállinn er á veðurfarinu að vélar og tæki mannsins ráða lítið eða ekki við hlutina. Haraldur M. Sigurðsson íþrótta- kennari var þátttakandi í þessari ferð og sagði hann blaðinu ferða- söguna í stórum dráttum í gær. Vatnsveður sunnanlands. Lagt var af stað með áætlunar- bíl Norðurleiða á þriðjudags- morguninn um kl. 8 og var ekki að venjulegum hætti um daginn. í Reykjavík var úrhellisrigning og versta veður en jörð alauð — Þegar upp í Borgarfjörð var komið, voru mikil vatnsflóð í Hvítá og síkjunum þar í grennd, og flæddi vatn yfir veginn á löngum kafla. Komust bílarnir þó klakklaust yfir, en ganga varð á undan þeim, þar sem dýpst var. Uppi í Borgarfirði tók að snjóa og herti snjókomuna eftir því sem ofar dró. Var lagt á Holtavörðu- heiði, en hún reyndist brátt ófær, enda þá komið versta veðui'. Var þá snúið við, í Fornahvamm. Vildu sumir þá halda til Reykja- víkur og sæta flugferð norður, en ekki varð samkomulag um það meðal ferðafólksins. Var gist í Fornahvammi þessa nótt. Á mið- vikudag var enn versta veður. — Vildu þá enn sumir snúa við til Reykjavíkur, en ekki fékkst heldur um það samkomulag, og var enn gist í Fornahvammi næstu nótt. Á fimmtudagsmorgun var lagt af stað, en síðbúnir urðu bflarnir um morguninn, og var alltaf svo, að komið var fram á dag er lagt var upp. Snjóbíllinn í Fornahvammi ók konum, börn- um og eldra fólki yfir heiðina, en aðrir farþegar voru í áætlunar- bílnum og hjálpuðust að við að moka snjó. Komst bíllinn yfir á 5 klst., að Hrútafjarðará. Voru 16 manns í mokstrinum á heiðinni. Ekki fékkst nein hressing við Hrútafjarðará, en jeppi ,sem kom á eftir yfir heiðina, tók með kaffi handa ferðafólkinu og kom það sér vel. Bíllinn brotnaði í tírútafirði. Síðan var ekið sem leið liggur um strönd Hrútafjarðar, og var þung færð, en er nálgaðist Reykjaskóla, brotnaði áætlunar- bíllinn og komst ekki lengra. Var þá farangri skipt á vörubíla, sem voru í lestinni — voru alls 8 bílar í lestinni — en farþegar fóru í póstbílinn, í vörubílana, og stóran fólksflutningabíl, sem fenginn var frá Hvammstanga. Var nú enn ekið af stað og gekk ferðin vel í Varmahlíð. Þaðan var svo haldið upp Norðurárdal og ætlunin að aka hingað til Akureyrar. Snúið við í Norðurárdal. En veður fór versnandi, var annað vitað en ekið mundl norður brátt komin iðufenis -stórhríð; Hjá Kúskerpi í Norðurárdal var snúið við. Var ætlunin að fá gistingu í Varmahlíð, en það reyndist ekki hægt, var þá ekið á Sauðárkrók og gist þar. Nú var reynt að fá flugvél til að taka ferðafólkið þar daginn eftir, en veður leyfði ekki slíkt. Á laugardaginn var setið um kyrrt á Sauðái’króki og skemmtu menn sér á sæluviku Skagfirðinga, og enn var dvalið á Sauðárkróki á sunnudaginn. Var versta veður þessu daga, einkum á laugardag. Sænskur sklðakappi á landsmótinu Sænskur skíðarkappi — einn af 10 beztu svigmönnum Svía — Erik Söderin, er kominn hingað til íslandsmótsins og mun vígja svigbrautirnar á landsmótinu og mun e. t. v. keppa sem gestur. — Söderin er giftur íslenzkri konu og var staddur hér á landi í leyfi, er ákveðið var að halda lands- mótið hér. Snjóbíll á Öxnadalsheiði. Á mánudagsmorguninn var svo lagt af stað og varð nú komist að Giljareitum án verulegs snjó- moksturs, en þar var ófærð mikil og var snjóbílsins af Akureyri beðið þar. Tók hann fyrst konur og börn, og flutti í Bakkasel, en sótti síðan hina farþegana og gekk sú ferð öll vel. Mestur snjór á leiðinni virtist okkur vera frá Giljareitum til Ak., sagði Har. Elzti maður í þessum leiðangri var á sjötugsaldri, sá yngsti 3ja ára. Engum varð meint af volk- inu, en mjög þótti skorta á að upplýsingaþjónusta í sambandi við færð, fyrirgreiðslu, veitingar o. s. frv., væri í lagi. Ferðalag, sem þetta verður dýrt fyrir fólk, því að menn þurfa að kosta sig á leiðinni, þótt aukafargjald komi ekki til. En þannig geta ferðalög enn orðið á íslandi, þegar slík áhlaup gerir, sem í þetta sinn. En undarlegt þótti ferðafólkinu að vegamálastjórnin skuli hvergi hafa ýtur til tækar á þessari fjöl- förnu leið. Virðast þær annað tveggja vera sunnan Holtavörðu- heiðar eða austan Öxnadalsheið- ar, og er ekki nægilegt, sagði Haraldur Sigurðsson að lokum. D AGUR Vegna helgidaganna kemur Dagur ekki út aftur fyrr en laugardaginn 11. apríl næstk.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.