Dagur - 06.06.1953, Blaðsíða 5

Dagur - 06.06.1953, Blaðsíða 5
Laugardaginn 6. jtíní 1953 D AGUR 5 Laust og fast Baráttan í kosningunum í Eyja- fjarðarsýslu og á Akureyri er milli Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins ,ATHAFNÁSVIÐ ANNARRA“. Eiraskipafélagið sinnir aðeins sínu hlutverki, segir „fslend- ingur“, sá á laugardaginn var, og það er ekki að „seilast inn á athafnasvið annarra, svo sem með því að setja upp iðnfyrir- tæki, kaupa hluti í bifreiða- og járnsmíðaverkstæðum, reka gróðurhús, tryggingastarfsemi, útgerð eða annað slíkt.“ Þetta er ekki ómerkileg játning stjórnmálablaðs. Því er sem sé lýst yfir skýrt og skorinort, að það sé „athafnasvið annarra“, en samvinnufélaga, að reka t. d. iðnfyrirtæki og útgerð. Þarna er á óvenjulega hreinskilinn hátt lýst stjórnmálabaráttu for- ingja Sjálfstæðisflokksins. Ým- is athafnasvið í þjóðfélaginu telja þeir sínar eignarlóðir. Þar eiga þeir að fá að rækta fjár- gróða-akurinn í friði. Þegar svo samvinnufélög almennings stíga fæti inn á þennan akur, koma meðlimir Fasteignaeig- endafélags Rvíkur og þeirra líkar og segja við fsl. og hans nóta: Irrrd-irrrd — bíttu hann. Og þá er rokið úr hlaðinu og gelt og glefsað og reynt að fæla óboðna gesti úr túniml. Ólafur bóndi á Hellulandi hefur lagt til í grein í Búfræð- ingnum, að ungir menn yrðu látnir kynna sér eðli skozku f járhundanna og not þeirra við fjárgæzlustörf, en þeir eru sagðir spara tíma, erfiði og kostnað. Það skyldi þó ekki vera að þessi agséti bóndi leit- aði langt yfir skammt? Það skyldi þó aldrei vera, að hægt væri að sjá röska fjárhunda að verki víðar en í Skotlandi og innlenda „stórbændur“ spara sér kostnað og erfiði með því að hagnýta eðliskosti sinna trygg- ustu þjóna? „SINNIR SÍNU HLUTVERKI“. Kosturihn við Eimskipa- félagið, segir í síðasta ísl., er, að það sinnir sínu hlutverki og er ekki að seiíast inn á athafna- svið annarra. Það er heldur ekki ómerk yfirlýsing að tarna. Hlutverk Eimskipafélagsins var að annast siglingar fyrir fslend- inga og það hlaut stuðning allrar þjóðarinnar í árdögum. Fyrir stríð gegndi það og hlut- verki sínu með sóma. En nq er öldin önnur. Félagið er fyrir löngu hætt að miða þjónustu sína við landið allt. Fyrir þess atbeina m. a., er höfuðborgin orðin eina innflutningshöfn landsins. Meginhluta þess varnings, sem inn er fluttur er skipað á land þar, alveg án til- lits til þess, hvort hann er ætl- aður fyrir Austfirðinga eða Suðurnesjamenn. Svo Iangt er gengið á þessari braut, að fé- lagið lætur t. d. ekki skip þau, sem flytja áburð til landsins, losa beint á mörgum höfnum úti á landi, heldur er áburðin- um mjatlað á hafnirnar með rándýrum smáskipum. Sam- kvæmt upplýsingum félagsins sjálfs, reiknar það kostnað af þeirri umskipun nær því eins mikinn og af aðflutningnum yf- ir hafið. Þennan bagga bera bændur landsins. Og svo gegn- ir þetta fyrirtæki, sem almenn- ingur veit ekki gjörla lengur hver á, hlutverki sínu með sér- stökum ágætum, að dómi ís- lendings! Það er ekki ónýtt fyr- ir landsbyggðina að eiga svona skeleggra og myndarlegra mál- svara. LÝSANDI DÆMI. f sömun vikunni og ísl. birti varnargreinina fyrir arðráns- og umhleðslustefnu Eimskips, og blaðið varpar hnútum að SÍS fyrir að hafa látið skrá skip sín á höfnum úti á landi, var „Hvassafell“ að losa hér varn- ing, sem það flutt beint hingað frá Brasilíu. Þetta SÍS-skip losaði varning á 20 höfnum hringinn í kringum land, á sama tíma og leiguskip Eim- skipafélagsins settu allan áburðiim á land í Reykjavík og félagið lét bændur borga um- hleðsluna og kostnaðinn. fsl. hefur fyrr gefið í skyn, að skrá- setning „Hvassafells“ hér á Akureyri væri bænum einskis virði. Sannleikurinn er, að það er bænum mikils virði að skipið á hér heimahöfn. Margir skips- menn eru hér góðir borgarar og og eiga hér heima. Skipið hef- ur hér oft viðkomu og hefur, ásamt öðrum SfS-skipum, létt af bænum einhverjum þeim álögum, sem á okkur hefðu komið af umhleðslunni, ef Eim- skip hefði haft allar siglingar til landsins á sinni hendi. Sigl- ing „Hvassafells“ er einmitt lýsandi dæmi um hin mismun- andi viðhorf til hagsmuna landsbyggðarinnar, og skrif fsl. ljósasti votturinn um undir- lægjuskap og vesaldóm þeirra flokksþjóna, sem taka þegjandi og fagnandi við öllu, sem að landsbyggðinni er rétt. MEIRA BLÓÐ f KÚNNI. f varnarskrifi fsl. fyrir Eim- skip, segir, að félagið hafi varið hagnaði sínum (meira en 50 millj. kr. á fáum árum) til að „kaupa skip og til að koma upp vörugeymlum o. s. frv.“. En það er meira blóð í kúnni en þetta. Akureyri. Við seinustu alþingiskosningar voru styrkleikahlutföll stjórn- málaflokkanna hér í bænum þannig, að Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 1292 atkvæði, Framsóknar- flokkurinn tæp 11 hundruð, en kommúnistar um 7 hundruð og Alþýðuflokkurinn rúm 4 hundr- uð. Af þessu má hverjum manni vera ljóst, að eini möguleikinn til að fella íhaldið er að kjósa Krist- inn Guðmundsson, frambjóðanda Framsóknarflokksins. — Mörgum frjálslyndum umbótasinnum í Þama vantar einn liðinn, og hann ekki ómerkan: 12 millj. kr., sem félagið leggur í lófa Kveldúlfs fyrir skúra og port og lóðir í Rvík. Gaman væri að sjá fsl. sanna það með tölum, að þau kaup séu hagkvæmari en að hætta umhleðslufyrirkomu- laginu og skipa vörunum upp á hafnirnar úti á landi. En aðal- röksemdin fyrir kaupunum er vörumagnið í Rvík, sem um- hleðslufyrirkomulagið hefur skapað. |stjórnmálum þykja völd og áhrif Sjálfstæðisflokksins vera allt of mikil í þjóðlífinu. Og það kemur æ skýrar í ljós, að flokkurinn er sérhagsmunaflokkur, sem tekur sérhagsmuni fámennra hópa fram yfir alþjóðarlög. Kjósendur á Ak- ureyri skulu vera þess minnugir, að leiðin til að fella frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins er að kjósa Kristinn Guðmundsson. Eyjafjarðarsýsla. í Eyjafjarðarsýslu er ástandið alveg eins. Við seinustu kosning- ar hlaut Framsóknarflokkurinn 1302 atkvæði, en Sjálfstæðisfl. 698. Hinir flokkarnir voru með um 3 hundruð atkvæði hvor. — Það eru því broslegir tilburðir, þegar þeir eru nú að slá því upp í Samfara arfgengum dugnaði, starfshneigð og frábærri starfs- hyggju munu félagssamtök Sunn- mæra og Álasundsbúa ekki hvað sízt valda því, live fylkið sjálft og miðstöð þess, Álasund, standa í fremstu röð á fjölbreyttri og hraðvaxandi framfarabraut í Noregi. Er næsta athyglisvert og lærdómsríkt á marga vegu að svipast um á þeim vettvangi. Verzlunarmannafélag Álasunds var stofnað 1847 og er því einu ári eldri en sjálfur bærinn. í önd- verðu var félagið aðeins samtök fiskikaupmanna. En er bænum óx fiskur um hrygg, og atvinnulíf varð fjölbreyttara og umfangs- meira, varð verzlunarmanna- félagið einnig að færa út kvíarn- ar. Samt var það ekki fyrr en 1910, að kaupmannastéttinni yf- leitt var veittur aðgangur að þessum félagssamtökum, og sést berlega á því, hvílíka yfirburði fiski, veiðar og vinnsla þeirra af- urða hafði í bæjarlífinu fram yfir aldamót. Þróun og vöxtur atvinuveg- anna olli sívaxandi þörf fyrir samtök og samvinnu ýmissa greina, og af því hefur svo leitt, að stofnaðar hafa verið allmarg- ar undirdeildir og sérdeildir inn- an aðalfélagsins. Með lagabreytingunni 1910 var ákveðið, að ráðd mætti sérstakan félagsritara, og hefur það síðan orðið mjög mikilvægt fyrir frek- ari þróun skipulags þessa, svo að myndast hefur framkvæmdakerfi það, sem félagið nú býr við. í öndverðu hafði hver undirdeild sin eigin ritara. En frá 1931 hafa hvorki neitt fylgi í Reykjavík né blöðum, að þeirra frambjóðendur hafi möguleika til að fella fram- bjóðanda Sjálfstæðisflokksins. — Það er vitað, að báðir þessir flokkar eru á undanhaldi í land- inu, svo að hverjum manni má vera ljós sú fjarstæða, að þeir tvöfaldi nú fylgi sitt. 32 atkvæði. Frá kosningunum 1946 til 1949 tapaði Sjálfstæðisfl. 112 atkvæð- um í Eyjafjarðarsýslu. Ef Fram- sóknarflokkurinn bætir nú við sig 31 atkvæði og Sjálfstæðisfl. tapað um þriðjungi af því, sem hann tapaði á seinasta kjörtíma- bili, eða 32 atkv., er sigurinn Framsóknarflokksins. í svo fjöl- mennri sýslu sem Eyjafjarðar- sýslu þarf ekki nema örlitla breytingu til þess að þetta gerizt. Hver einasti Framsóknarmaður og allir aðrir, sem vilja af ein- lægni fella frambjóðanda Sjálf- stæðisflokksins, eiga því að kjósa lista Framsóknarmanna. — Um framboð Þjóðvarnarflokksins er lítið að segja, nema það, að allir sem hann kjósa eru að eyðileggja atkvæði sitt, því að flokkurinn á annars staðar á landinu. Þau litlu áhrif, sem líklegt er að það fram- (Framhald á 7. síðu). fleiri og fleiri deildir í samvinnu við Verzlunarmannafélag Ála- sunds stofnað sameiginlegt skrif- stofuhald („Fellessekretariat“). Árið 1947 leiddi svo þróunin til þess, að framkvæmdarkerfi þetta var skipulagt á ný. Bættust þá við í samtök þessi nokkrar mikilvæg- ar atvinnugreinar, og var þá stofnað Skrifstofuhald atvinnu- veganna (Næringslivets sekre- tariater), og er yfirdómslögmaður framkvæmdastjóri samtakanna. Verzlunarmananfélag Álasunds er framvegis miðstöð allra fram- kvæmda, tryggir húsnæði fyrir skrifstofur, fundarhús og sam- komur, ræður starfslið o. s. frv., en samvinnudeildir og félög greiða ákveðin árgjöld. Skrifstofuhald atvinnuveganna nær nú til 7 landssamtaka og 7 heimasamtaka. Verzlunarmanna- félag Álasunds telur nú 17 verzl- unardeildir, og eru 7 þeirra ásamt hinum fyrrnefndu 7 landssamtök um hið sameiginlega skrifstofu- hald atvinnuveganna. Talið er, að samvinnuskipulag þetta milli atvinnuvega og deilda muni vera hið mesta og víðtækasta í öllum Noregi, enda hefur það vakið allmikla athygli í öðrum bæjum Noregs. Á sar%- vinnuskrifstofunni vinna nú 9 manns. Þess ber einnig að geta., að Verzlunarmannafélag Álasunds, fyrst allra verzlunarfélaga í Nor- egi, stofnaði sitt eigið félagsmála- blað 1946. Er það 8 bls. í stóru broti (31x21 cm.) og kemur út mánaðarlega. — Eftir kvæðalestur (Framhald af 2. síðu). Framtíð má og etja kjarnans orku ofsahyr mót þinni grönnu storku. þegar hennar þök að landi ber. 4. Maður, skáka afli móti afli! Andstáeðurnar kljást í heimsins tafli, — þar er fundin reynd og jafnvæg rök. Lát þú bundna orku endurleysast, örlög ráðast þá er lögmál geysast, — þar er drottins vald og sjálfdæmd sök. Þetta líf á allt sem andann varðar. Eilífð sér um framtíð vorrar jarðar. Hafís daúðans opnar aldrei vök. Hvort mun hlúa kirkja þér og klcrkur, krossmark, auðmýkt, rétttrúnaðar serkur? Krókna munt þú, skefli í jarðnesk skjól. Bitra og funi valdi guðs sig væða. Vítiseldur, mun hann klakann bræða? Náðarsólin þýða þann er kól? íssins kenning: hart á móti hörðu, hreystivakinn, dugir bezt á jörðu. Eitt er líf, og ein vor himinsól. Treyst þú fremst á eigin mátt og megin, meir því meir, sem fastar þú ert sleginn. IHa fer þér vol og bæn á vör. Hald þér fast við það, sem rétt þér reynist Reynzlusök er bezt, á meðan treynist. Efann lát þú annast þyngri svör. Öll þín hjálp og von er mannlegs máttar, mannlegs þors og vits og hjartasláttar, miz þig hæfir daúðans fleygi dör. Trúarblekking, vík úr mannsins vegi! Vörðúð er hans leið mót nýjum degi: þekking hans mun beizla eld og ís. Efnishyggja, arður frjálsrar snilli, opna honuin brautir skauta milli, hvort sem á þeim funar eða frýs. Vizka sú, er efni og orku skýrir, efans menning, fari traustu stýrir, mannhcim yfir röðull meðan rís. D. Á. DANÍELSSON. Jólin 1952. Helgi Valtýsson: r Alasunds-pistlar III Samvinna atvinnumálanna

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.