Dagur - 19.08.1953, Blaðsíða 1

Dagur - 19.08.1953, Blaðsíða 1
GJALDDAGI blaðsins er 1. júlí. — LéttiS innheimtuna! Sendið afgr. áskriftargjaldið! DAGUR kemur næst út á regluleg- um útkomudegi, miðviku- daginn 26. ágúst. XXXIV. árg. Akureyri, miðvikudaginn 19. ágúst 1953 46. tbl. Úfyarpið hyggst taka upp fastan Akureyrarfiátt n. k. vetur Útvarpsstjóri og formaður útvarpsráðs komu hér í síðastliðinni viku til að undirbúa málið Meistaramót Islands í frjálsum íþrótfum háS á nýja leikvanginum hér um sl. helgi Illviðri hamlaði því að árangur yrði eins góður og efni stóðu til 27. meistaramót íslands í frjálsíþróttum og 5. meistaramót kvenna var haldið hér í bænum um siðastliðna helgi — Knattspyrnufélag Ak. sá um ínótið, en leikstjórn hafði á hendi Haraldur Sigurðsson. Laust fyrir lielgina síðustu komu hingað til bæjarins Vil- hjálmur I>. Gíslason útvarps- stjóri og Olafur Jóhannesson prófessor, formaður útvarpsráðs, og var erindi þeirra m. a. að kynna sér möguleikana á því að fella inn í vetrardagskrá Ríkis- útvarpsins fastan Akureyrar- þátt. Frá þessari fyrirhuguðu ný- breytni skýrðu þeir er blaðið kom að máli við þá að Hótel KEA á föstudaginn var. Útvarpsstjóri sagði, að útvarp- ið vildi gjarnan koma til móts við óskir manna hér um aðgang að útvarpinu, auk þess sem vænta mætti þess að héðan kæmu dag- skrárliðir, sem fengur væri að. Til að byrjá ’méð er ráðgert að efni héðan verði hálf klst. í viku hverri og voru þeir að svipast um eftir manni, sem þeir gætu trúað til að vera trúnaðarmaður út- varpsins að þessu leyti og sjá um þættina. Auk þess að fá fastan samastað til þess að vinna að upptöku efnis. Útvarpið hefur nú nýlega fengið hingað mjög full- komin upptökutæki og er ætlun- in að taka allt efni upp hér Kviknaði í húsi á Oddeyri Klukkan laust fyrir 11 sl. laug- ardagskvöld var slökkvilið Ak- ureyrar kvatt að húsinu 10B við Fróðasund á Oddeyri. Húsið er timburhús, forskalað, með risi. Var eldur í risinu. Fljótlega tókst að slökkva eldinn, en slcemmdir urðu talsverðar á húsi og innbúi, einkum af vatni. í húsinu búa Cæsar Hallgrímsson sjómaður og Aðalsteinn Einarsson sjómaður og fjölskyldur þeirra. Endurgreiðslan nam 5% Það var ranghermt í síðasta tbl., að endurgreið,sja KEA til félags- manna af viðskiptum sl. árs hefði numið 4%. Endurgreiðslan er 5% og er verðsamanburður sá, sem hér var gerður á matvörum í Reykjavík og hjá KEA því enn hagstæðari en hér var frá skýrt. Tölur þær, sem birtar voru hér í sl. viku, hafa vakið mikla athygli og hafa a. m ,k. tvö Reykjavíkur- blaðanna gert þær að umtalsefni. nyrðra og senda suður. Endur- varp syðra frá útvarpsstöðinni hér er enn ekki tæknilegur mögu leiki, a. m. k. ekki svo að vel fari og verður slíkt að bíða þess að jarðstrengurinn í milli Reykja- víkur og Akureyrar verði tengd- ur alla leið. Uppörvun fyrir menningarlíf. Prófessor Olafur Jóhannesson stagði að m. a. sem útvarpið vænti sér af því að taka upp slík- an fastan þátt héðan, væri, að lyfta undir hvers konar menn- ingarstarfsemi í bæ og héraði og e. t. v. í nærliggjandi héruðum með því að opna möguleika til þess að koma útvarpsefni á fram- færi með þessum hætti. Hvað um sérstaka heimadagskrá, sem útvarpað væri um útvarpsstöðina hér aðeins? Sá möguleiki hefur ekki verið athugaður til neinnar hlítar og kostnaðar vegna og annarra að- stæðna er ekki líklegt að unnt verði að koma slíku heimaútvarpi á hér nú, enda yrði sama fyrir- komulag þá að ná til allra endur- varpsstöðvanna. Hins vegar er ekki ólíklegt, að í framtíðinni verði slíkt fyrirkomulag tekið upp. Vafalaust er að fólk hér nyrðra fagnar þessari viðleitni útvarps- ins til að gefa okkur hér betra tækifæri til að koma efni til flutnirigs í útvarp. Má telja þetta mikilvægt spor í útvarpsmálum þjóðarinnar. Líklegt er að nefnd manna héð- an fari til Reykjavíkur í næstu viku til viðræðna við heil- brigðismálaráðherra um rekstiur hins nýja Akureyrarspítala, sem nú er senn tilbúinn. Nefnd á vegum bæjarstjórnar ræddi málið við ríkisstjórnina á sl. vori, en síðan hefur ekkert gerzt, nema að haldið hefur verið áfram að ganga frá innréttingum og búnaði spítalans og er húsið senn tilbúið og verður væntan- Friðrik lék eins og stór- nieistari - segir Ekstra- bladet Friðrik Ólafsson varð skák- meistari á Norðurlandamótinu í Esbjerg í þessum mánuði,, hlaut 9 vinninga af 11 mögu- legum, og er það framúrskar- andi góð útkoma í jafn öflugu móti og hjá jafn ungum manni. Friðrik er aðeins 18 ára. Skák- stíll hans vakti mikla athygli. Til dæmis segir Ekstrahladet í Kaupnjannahöfn í fyrirsögn 10. þ. m.: „Hinn átján ára gamli íslendingur leikur eins og stór- meistari.“ Þórunn Jóhannsdóttir leikur fyrir Akur- •> eyringa Þórunn S. Jóhannsdóttir, píanó- snillingurinn ungi, er komin í hljómleikaferð hingað til lands í leyfi sínu frá náminu í London og hélt hún hljómleika hér í Nýja- Bíó í gærkveldi. Á efnisskrá voru verk eftir Scarlatti, Beethoven, Poulenc, Faure, Debussy, Chopin og föður hennar, Jóhann Tryggvason söngstjóra. Þórunn hefur síðan hún kom hingað síð- ast oft leikið opinberlega í Bret- landi, m. a. í sjónvarpi og með stórum hljómsveitum m .a. undir stjórn eins frægasta hljómsveit- arstjóra samtímans, John Bar- birolli. lega hægt að byrja að flytja í húsið í næsta mánuði, enda þótt vafasamt sé að móttaka sjúklinga geti hafizt fyrr en um áramót. Á sl. vori var ætlunin að ríkis- stjórnin legði fram tillögur um rekstursfyrirkomulag spítalans, en úr því hefur ekki orðið. Er þess nú vænst, að í viðræðum þeim ,sem fyrir dyrum standa, verði gengið frá málinu, svo að ekki komi til tafa við að taka spí- talann í notkun þegar þar að kemur. Mótið hófst kl. 4 á laugardag. Hélt síðan áfram kl .2 e. h. á sunnudag og kl. 8 e. h. á mánu- dag og lauk í gærkvöldi. — Þrátt fyrir sól og sunnanblíðu í mest- allt sumar brá nú svo við, að mótsdagana var úrhellisrigning alltaf annað veifið. Af þeim ástæðum voru árangrar ekki eins góðir og skyldi. — Nýja íþrótta- svæðið reyndist mjög vel og er bænum til sóma. ÚRSLIT 1 EINSTÖKUM GREINUM: 100 m. hlaup: 1. Islandsmeistari: Hörður Haraldsson, Á, 11.3 sek. 2. Vilhjálmur Ólafss., ÍR, 11.6 sek. 3. Leifur Tómasson, KA, 11.6 sek. Hörður sigraði í hlaupinu, án nokkurrar keppni, enda er ár- angur slakur. 200 m. hlaup: 1. fslandsmeistari: Hörður Haraldsson, Á, 22.3 sek. 2. Þórir Þorsteinsson, Á, 22.7 sek. 3. Leifur Tómasson, KA, 23.2 sek. Hörður sigraði einnig mjög léttilega. Hann er mjög skemmti- legur íþróttamaður, yfirlætislaUs í allri framgöngu. 400 m .hlaup: 1. íslandsmeistari: Guðm. Lárusson, Á, 49.5 sek. 2. Þórir Þorsteinss., Á, 50.8 sek. 3. Leifur Tómasson, KA, 51.1 sek. Guðmundur vann með yfir- burður. Hann er mjög mjúkur og stílfallegur hlaupari, sem enn má vænta mikils af. 800 m. hlaup: 1. íslandsmeistari: Guðm. Láruss., Á, 1 : 59.4 mín. 2. Sig. Guðnason, ÍR, 2 : 01.8 mín. 3. Svavar Markússon, KR, 2 : 02.8 mín. 1500 m. hlaup: 1. íslandsmeistari: Sigurður Guðnason, ÍR, 4 : 06.7 mín. 2. Kristján Jóhannss., ÍR, 4 : 07.8 mín. 3. Svavar Markússon, KR, 4 : 08.6 mín. íslandsmeistarinn í þessari grein virðist vera fremur þrótt- lítill, enda ungur. Má mikils af honum vænta, þegar honum vex þróttur. 5000 m. hlaup: 1. fslandsmeistari: Kristján Jóhannss., ÍR, 15 : 27.8 mín. 2. Finnbogi Stefánsson, HSÞ, 16 : 44.6 mín. 3. Þórhallur Guðjónsson, UMFK, 17 :10.4 mín. Kristján sýndi svo óvenjulega yfirburði yfir keppinauta sína, að hann var rúmum hring, sem er 400 m., á undan næsta manni. Hefur honum farið mjög ört fram og á sjálfsagt eftir að vinna mörg afrek í langhlaupum áður en lýkur. 110 m. grindahlaup: 1. fslandsmeistari: Pétur Rögnvaldsson, KR, 16.1 sek. 2. Friðrik Guðmundsson, KR, 20.5 sek. Það er raunalegt fyrir áhorf- endur að horfa á tvo keppendur á landsmóti. sérstaklega þegar annar þeirra tekur þátt í grein- inni af hreinum þegnskap. — Pétur er liðlegur grindahlaup- ari og kornungur. 400 m. grindahlaup: 1. íslandsmeistari: Hreiðar Jónsson, Á, 59.6 sek. 2. Leifur Tómasson, KA, 61.9 sek. 3. Hjörleifur Bergsteinsson, Á, 63.3 sek. Hreiðar hleypur grindina vel og er líklegur til að ná góðum árangri í greininni. Leifur, sem sýndi mikla fjölbreyttni í keppn- inni á mótinu, er liðlegur íþrótta- maður, sem við Akureyringar gerum okkur vonir um að verði afreksmaður í framtíðinni. 3000 m. hindrunarhlaup: 1. íslandsmeistari: Kristján Jóhannsson, Á, 9 : 48 (cirka). 2. Einar Gunnlaugsson, Þór, 9 : 59 (cirka). 3. Eiríkur Haraldsson, Á. Tími Kristjáns er nýtt íslenzkt met og tími Einars nýtt unglinga- met. Hlupu þeir báðir mjög vel. Einar var áberandi léttur yfir hindrununum, en virtist ekki vilja færast svo mikið í fang að fylgja Kristjáni eftir. 4x100 m. boðhlaup: 1. Sveit Ármanns 46.0 sek. 2. Sveit KR 47.9 sek. íslandsmeistararnir í Ármanns- sveitinni eru Þorvaldur Búason, Guðm. Lárusson, Þórir Þor- steinsson, Hörður Haraldsson. — Tíminn er lélegur, enda var mik- ill munur á sveitunum. 4x400 m. boðhlaup: 1. Sveit Ármanns 3 : 29.4 mín. 2. Sveit KR 3 : 58.1 mín. Hlaupið var ekki skemmtilegt, þar sem íslandsmeistararnir Guðm. Lárusson, Hreiðar Jóns- son, Þórir Þorsteinsson og Hjöl- leifur Bergsteinsson voru svo afar langt á undan hinum. 100 m. hlaup kvenna: 1. fslandsmeistari: Guðrún Georgsdóttir, Þór, 13.8 sek. (Framhald á 8. síðu). Viðræður um spítalamál Akur- eyrar í Reykjavík eftir helgi Horfur á að hægt verði að opna nýja spítalann um áramót

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.