Dagur - 09.09.1953, Side 7
Miðvikudaginn 9. september 1953
D AGUB
7
- Togaraútgerð bæjarins
(Framhald af 1. síðu).
fjárhagsörðugleikum, svo að jafn
vel hefur komið til beinna ríkis-
afskipta, — getað afskrifað sín
skip og greitt hluthöfum arð, auk
þess sem félagið hefur haft með
höndum mikilvægar fram-
kvæmdir í landi, þar sem er fisk-
verkunarstöð þess á Oddeyrar-
tanga og húsakaup þess fyrir
reksturinn. Auk þess hefur sú
reynsla nú fengist, að Akureyri
stenzt fyllilega samjöfnuð við
hvaða stað sem er á landinu um
aðstöðu fyrir togaraútgerð. Sú
var lengi trú margra, að bærinn
lægi ekki vel fyrir stórútgerð af
þessu tagi. Nú verður trauðla
lengur um það deilt, að þetta er
á misskilningi byggt. Togaraút-
gerð hér dafnar einmitt mjög vel.
Verður það naumast með tölum
talið, hverja þýðingu þessi stað-
reynd hefur fyrir bæjarfélagið í
heild og afkomu fólksins, sem
hér býr.
Atvinnuleg uppbygging.
Togaraútgerðin hér hefur allt
frá fyrstu tíð verið snar þáttur i
efnahagslegri afkomu bæjar
manna og þó sennilega aldrei
fremur en nú í seinni tíð. Útgerð
arfélagið hefur að undanförnu
lagt fisk á land hér í stórum stíl,
til herzlu og söltunar. Þær fram
kvæmdir hafa skapað mikla at
vinnu, einmitt á þeim tíma, sem
hennar var mest þörf, og hafa
skilað drjúgum skildingi til bæj
manna.
Örugg þróun.
Sú staðreynd, að félagið skuli
nú, án opinberrar íhlutunar.
reynast þess megnugt, að bæta
fjórða skipinu við, sannar, að því
hefur verið stýrt af forsjálni og
stefnt hefur verið að öruggri
þróun útgerðarinnar, en varast
að ráðast í áhættufyrirtæki, sem
gætu orðið fjötur um fót. Komm
únistar hafa nú í seinni tíð ráðist
með dólgslegu orðbragði að þeim
mönnum, sem ekki hafa viljað að
félagið og bærinn réðust í að
koma upp hér hraðfrystistöð, sem
mundi kosta milljónir, og ein
vörðungu mundi þurfa að treysta
á togarafisk til vinnslu. Fyrir tog-
araútgerðina væri það mjög
áhættusamt og harla vafasamt, að
vera tengd slíku fyrirtæki, því að
reynslan annars staðar hefur
sýnt, að auk þess sem mikil
vandkvæði eru á því, fiskgæða
vegna, að nota togarafisk til hrað-
frystingar í stórum stíl, hafa
hraðfrystihús yfirleitt ekki verið
þess megnug að greiða togurun-
um það hátt verð fyrir fiskinn,
að þeir hafi getað sinnt slíkum
é
veiðum með sæmilegum, fjár-
hagslegum árangri. Sú stefna, að
auka togaraflotann og efla þar
með atvinnu við þá fiskverkun,
sem hér hefur gefið svo góða
raun, virðist því í alla staði
heillavænlegri en að nota láns-
traust félagsins og fjárhagslegt
bolmagn til þess að ráðast í svo
vafasamt fyrirtæki, enda má öll-
um vera ljóst, að eins og sakir
standa mundu engin tök á því að
gera hvort tveggja, kaupa skip og
byggja hraðfrystistöð.
Æsingaskrif kommúnista.
Af þessum ástæðum öllum eru
æsingaskrif kommúnista óheppi-
leg og ekki miðuð við raunveru-
lega hagsmuni bæjarfólksins,
heldur ímyndaða pólitíska hags-
muni þessa flokksbrots hér í bæn
um. Það er glögg ábending um
Dað, hver hugur býr að baki, að
sama dáginn og blað kommúnista
hér greinir frá togarakaupum
Útgerðarfélagsins, ræðst það með
persónulegum svívirðingum að
þeim manni, sem mest og bezt
hefur unnið að þeirri aukningu
togaraflotans, sem nú er orðinn
veruleiki, Jakob Frímannssyni
kaupfélagsstjóra. — Eru skrif
kommúnista um þessi útgerðar-
mál og ennstakar persónur í því
sambandi neðan við allt velsæmi,
samfelldur fúkyrðaaustur ábyrgð
arlausra skrumara og hrörnandi
flokksbrots. Enda munu þeir
ekkert uppskera úr þessum akri
annað en almenna fyrirlitningu.
- Haftapólitík
Sjálfstæðismanna
(Framhald af 4. síðu).
leiðsluna og efni standa til. í ann-
an stað er löngu sanna, að með
einokunarkerfinu nýtur hið marg-
lofaða framtak einstaklinganna sín
ekki. Undirboðin er hægt að fyrir-
byggja með útflutningsleyfum, en
engin frambærileg ástæða er til fyr-
ir því, að útflytjendur megi ekki
leita hagstæðra tilboða erlendis.
Skrif kaupmannablaðsins um þetta
mál minna einmitt á það, sem hald-
ið var fram hér í blaðinu fyrir
skemmstu. Frelsisást Sjálfstæðis
flokksins er matarást. Þegar frjáls-
ræði í viðskiptum er hagkvæmt fyr-
ir pyngju gæðinganna, er það sjálf-
sagt og gott, en þegar frelsið sviptir
þá gróðamöguleikum, er það slæmt
og hættulegt og sjálfsagt að halda
höftin.
- Samstæða og
samvinna
(Framhald af 2. síðu).
Það er skýrt tekið fram i samningn-
um, að ekkert ákyæði hans raski
úrslitayfirráðum Ísíands' yfir ís-
lenzkum málefnum. — En fram-
kvæmd þessa samnings hefir ekki
verið sem skyldi. Sambúð setuliðsins
og útlends verkafólks hefir ekki
verið á þann veg, að við verði un-
að. Það verður að miða að því að
einangra herliðið og útlent verka-
fólk við Jrau svæði, sem herliðið
hefir til umráða.
Stefnan er rétt.
Örugg samvinna og virk sam-
staða með frjálsum lýðræðisþjóðum
er sú stefna í utanríkismálum, sem
hlýtur að verða íslendingum fyrir
beztu í framtíðinni. Með því verð-
um við átram virkir þátttakendur i
vernaún heimsfriðarins. Stuðlúm
að eflingu alþjóðasamvinnu ura
félagslegar framfarir og bætt lífs-
kjör, án frelsisskerðingar. Tökum
þátt í. varðveizlu þess þjóðskipu-
lags, sem hvílir á meginreglum lýð-
ræðis, einstaklingsfrelsis, lögum og
rétti.
- Sautján ár sægarpur
(Framhald af 5. síðu).
landshaf snemma vors. Er það
kalt verk og karlmannlegt.
Mér datt í hug að biðja „Dag“
fyrir þetta litla hrafl úr sæfara-
sögu þessa 17 ára pilts til fróð-
leiks fyrir íslenzka jafnaldra
hans, ef ske kynni, að einhver
þeirra eygði framundan óralengri
leiðir en gangstéttir og malbik.
Helgi Valtýsson.
S tíilk a
óskast í vist til Reykjavíkur.
Upplysingar í símá 1612.
BLÁBER
Kaupum bláber hæsta verði
DIDDA-BAR
Strandgötu 23.
Sími 1473.
IBUÐ
2 herbergi og eldhús, ósk
ast til leigu um n. k. mán
aðamót. Fyrirframgreiðsla
Afgr. visar á.
T a s k a
með myndavélum hefur
tapast. Skilist gegn fundar
launum til Eðvarðs Sigur
gehssonar ljósmyndara Ak
a
Vörubifreið
til sölu, í mjög góðu ástandi
sanngjarnt verð.
Afgr. vísar á.
'ljr Lœ
oa buffCýé
O. O. F. — Rbst. 2 — 101998y2
I. O. O. F. = 1359118y2 =
Messað í Akureyrarkirkju kl. 5
h. næstk. sunnudag.
Möðruvallakl.prestakall. Mess-
að á Möðruvöllum sunnudaginn
13. sept. kl. 2 e. h. og í Glæsibæ
sama dag kl. 4 e. h.
Kvenfél. Akuryrarkirkju held-
ur bazar í kapellunni sunnudag-
inn 13. sept. kl. 4 e. h. Komið.
Gerið góð kaup. Styðjið gott mál-
efni. — Nefndin.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband á Möðruvöll-
um í Hörgárdal ungfrú Elín Guð-
rún Friðriksdóttir og Sigursteinn
Kristjánsson bifreiðastjóri. Bæði
til heimilis á Flúðum við Ak.
Leiðrétting. Ranghermt var það
í frásögn Dags af nýja saxblásar
anum, sem Búnaðarsamband
Eyjafjarðar hefur keypt í til-
raunaskyni, að nota megi hann til
súgþurrkunar í hlöðu, hins vegar
er hægt með litilli fyrirhöfn að
breyta honum þannig, að nota
megi til að blása heyi til súg
Durrkunar inn í hlöðu.
Gestir í bænum. Frú Rannveig
og Vilhjálmur Þór forstjóri hafa
verið gestkomandi í bænum und-
anfarna daga. Fyrir helgina komu
hingað í stutta heimsókn frú
Anna S. Snorradóttir og Birgir
Þórhallsson forstjóri skrifstofu
Flugfélags íslands í Kaupmanna-
höfn.
fbúar á Syðribrekkum kvarta
nú mjög undan því að götuljós
loga þar ekki á stórum svæð-
um, t. d. við Hrafnagilsstræti og
þar í grennd. Er algerlega
óviðunandi að þessi bæjarhluti
skuli vera myrkvaður þannig
langtímum saman og nauðsyn-
legt að kippa því í lag hið bráð-
asta.
Hjónaefni. Ungfrú Svanhildur
Baldursdóttir, Ófeigsstöðum,
Köldukinn, og Einar Kristjáns-
son, Finnsst öðum, sömu sveit.
Hjónaefni. Sunnudaginn 6. sept.
opinberuð utrúlofun sína ungfrú
Hulda Þórný Eggertsdóttir og
Ingólfur Jónsson, húsasmíða-
meistari.
Athugasemd. Bifreiðarstjóri sá,
er ók á járngrindina við Barna-
skólann um fyrri helgi, hefur
beðið blaðið að koma þeirri at-
hugasemd á framfæri, að ekki sé
rétt hermt, að hann hafi ekki
skýft frá átvikinu, hann hafi ein
mitt skýrt skólastj. Barnaskólans
frá því eins fljótt og hann náði til
hans, sömuleiðis vátryggingar- tk; þá eru allir þeir, er til
félagi og beðið skólastj. fyrir boð u __ ___
til lögreglunnár.
Frá
Gagnfræðaskóla
Akureyrar
Vegna þess að eg verð fjarver-
andi úr bænum fram til 21. sept.
TILKYNNING
frá Sláturhúsi KEA.
"1'27
Verkafólk það, er hefur unnið á Sláturhúsi voru und-
anfarin haust er beðið að gefa sig fram sem fyrst ef
Jj|)5 óskar eftir vinnu við haustslátrunina.
Sláturhús KEA.
Sími 1306 og 1108.
Leiðrétting. Prentvilla varð ,
greininni um Sigtr. Þorsteinsson
í síðasta blað. Var sagt að hann
hefði gengið að eiga fyrri konu
sína árið 1923, rétt er árið 1893.
Fimmtugur er í dag Tryggvi
Jónatansson, bóndi á Litlahamri
í Eyjafirði.
Alls staðar hér um slóðir mun
kartöfluuppskera vera með
eindæmum góð. Garðeigendur
slá metin hver fyrir öðrum í
kartöflurækt. I ágústlok fékk
Guðjón Elíasson, Rauðumýri
19, 390 gramma kartöflu úr
garði sínum. Teg. var Gul. ísl.
í vikunni sem leið fékk Tryggvi
Haraldsson, Hafnarstr. 81, 443
gr., kartöflu úr sínum garði.
Teg. Gullauga.
Leiðrétting. 1 síðasta tölubl.
Dags er getið um gjöf til Elli-
heimilisins í Skjaldarvík kr. 15.00
til minningar um Elínu Sigurðar-
dóttur Thorarensen frá Löngu-
hiíð. Átti að vera kr. 150.00, sem
leiðréttist hér með.
Til Sólheimadrengsins. Kr. 50
frá E. A. 9. — Kr. 50 frá N. N. —
Móttekið á afgr. Dags.
Strandarkirkja. Gamalt áheit
frá P. G., Akureyri, kr 50. •—
Kr. 20 frá L. G. — Kr. 55 frá E.
J. — Kr. 50 frá N. N. — Kr. 50
frá S. K. — Kr. 50 frá S. V. —
Kr. 10 frá Þóri Áskelssyni. —
Mótt. á afgr. Dags.
Grikklandssöfnunin. Kr. 25 frá
S. V. — Kr. 100 frá ónefndum. —
Kr. 5 frá E. S. — Mótt. á afgr.
Dags.
Til Auðnafólksins í Svarfaðar-
dal. Kr. 25. — Mótt. á afgr. Dags.
Ferðafélag Akureyrar hefur
ákveðið skemmtiferð út í Hríseey
næsta sunnudag kl. 1 e. h. Uþp-
lýsingar hjá Þorst. Þorsteinssyni.
þess tíma þurfa að fá eínhverjar
upplýsingar viðvíkjandi gagn-
fræðaskólanum, beðnir að snúa
sér til yfirkennara skólans, Jóns
Sigurgeirssonar. Verður hann til
viðtals í skólanum viðvikjandi
innskráningu nýnema í bóknáms-
verknámsdeildana dagana 9.—11.
þ. m., kl. 6—7 síðdegis.
Akureyri, 7. sept. 1953.
Skólastjórinn.
Strauvélar
Þvottavélar
Ljóslækningalampar
Ryksugur
Véla- og varahlutadeild.
Sokkaviðgerðavéi
til sölu.
Upplýsingar í síma 1612.
Hitamælar
— utan húss og innan
B aðmælar
Pækilmælar
Járn- og glervörudeild.