Dagur - 23.09.1953, Page 1
GJALDDAGI
blaðsins var 1. júlí. — Léttið
innheimtuna! Sendið afgr.
áskrif tar g j aldið!
DAGUR
kemur næst út á regluleg-
um útkomudegi, miðviku-
daginn 30. september.
XXXVI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 23. september 1953
51. tbl.
Andatjarnirnar tvær við sundhöllina
Þannig lcit út við andaljarnirnar á dögunum þegar vatni var hleypt
í efra tjarnarsvæðið. Fallegur lækur rann í neðri tjörnina eins og
myndin sýnir. Svanirnir voru fljótir að færa sig uppeftir. Þannig
þyrft að vera umhorfs þarna á hverjum degi, vatn í báðum tjarn-
árstæðum og fallegur lækur í milli þeirra.
Sjúkrahúsið væntaníega rekið af
bænum með styrk ríkisins
Líklegt að önnur fjórðungssjíikrahús njóti
sömu aðstöðu með nýrri lagasetningu
Hvaða svör fengu Danir við fyrirspurn
um höfn fyrir grænlenzka hlýgrjótið?
Vitað, að námufélagið í Meistaravík hefir áhuga
* fyrir umskipunarhöfn á Norðurlandi
Á sl. ári var greint allítarlcga hér í blaðinu frá fyrirætlunum
námufélags þess, sem undirbýr blývinnslu í Meistaravík á austur-
strönd Grænlands. Fyrirtæki þetta er byggt upp af dönsku, norsku,
kanadísku og sænsku f jármagni og munu Danir eiga röskan helming
hlutafjárins. Félagið hefur lagt í mikla fjárfestingu í Meistaravík
sl. tvö sumur. Þar hefur verið byggður flugvöllur fyrir stórar flug-
vélar, hús fyrir starfsfólk, lagðir vegir og annar undirbúningur gerð-
ur til þess að hefja vinnslu blýgrjóts í stórum stíl.
Blaðið hefur það eftir góðum
heimildum, að fundinn sé nú
rekstursgrundvöllur fyrir nýja
sjúkrahúsið hér og að fjárreiðum
þess sé þar með viðunanlega
borgið.
Eins og áður cr frá skýrt, átti
nefnd frá bæjarstjórn viðræður um
málið við heilbrigðismálaráðherra
fyrrv. ríkisstjórnar, Steingr. Stein-
þórsson, á sl. vori, og varð niður-
staðan sú, að ríkisstjórnin mundi
leggja fram tfllögur um reksturs-
fyrirkomulag fjórðungssjúkrahúss-
ins.
Nú hcfur blaðið frétt, að litlu
áður en Steingr. Steinþórsson hvarf
úr cmbætti heilbrigðismálaráð-
herra, hafi verið gengið þannig frá
málihu, að ríkisstjórnin muni leggja
til við Alþihgi, að ríkissjóður greiði
styrk á hvern legudag á sjúkrahús-
Ný frímerki 1. okt.
Dönsk blöð herma, að íslenzka
póststjórnin muni gefa út nokkur
ný frímerkjagildi 1. okt. og eru
myndirnar á frímerkjunum af
ísl. handritum. Er svo að sjá, sem
póststjórnin hafi gefið út tilkynn-
ingu um útgáfuha, en hún hefur
þá verið miðuð við erlenda les-
endur en ekki íslenzka. Ilér liefur
engin opinber tilkynning verið
birt um útgáfuna.
inu jiað mikinn, að standa ætti
undir rekstrinum ásamt með því,
sem sjúkratryggingarnar greiða og
styrk bæjarins. Mun mega vænta
Jiess, að lagt verði fyrir þing það,
sem senn kcmur saman, frumvarp
um slíkan styrk til fjórðungssjúkra-
húsa almennt, og yrði sjúkrahúsið
hér Jiá fyrsta sjúkrahúsið, sem slíks
styrks nvti.
Réttlætismál.
Fram til Jiessa tíma hefur fyrir-
komulag á fjárveitingum ríkisins
til sjúkrahúsa verið algerlcga óvið-
unandi. Ríkið hefur staðið undir
rckstri I.andspítalans í Reykjavík,
enda til Jiess ætlazt, að landsmenn
alment njéiti Jiar fyrirgreiðslu, enda
jiótt spítalinn sé öðrum [iræði liæj-
arspítali höfuðstaðarbúa. Fjéirð-
ungssjúkrahúsið hér cr mun stærra
en Akureyrarbær Jiarf til sinna
nota, enda cr mikil aðséikn að spít-
alavist hér ;if fólki víða af landinu,
Er ekkert rættlæti í því að ætlast til
að Akureyri standi straum af halla-
rekstri sjúkrahúss fyrir stéira lands-
hluta.
Með því fyrirkomulagi, sem nú
mun vera orðið samkomulag um,
mun bærinn reka spítalann og hafa
fjárreiður hans og stjéirn með liönd-
um, en ekki er farið út á Jiá braut,
sem mjög virðist Jió koma til álita,
að ríkið sjálft eða tryggingastofnun
þess annist rekstur sjúkraluissins.
Á annað liundrað manns
unnu að fiskverkun hjá
Utgerðarfélaginu
í sl. viku unnu á annað
liundrað manns að alls konar
framlciðslustörfum hjá Útgerð-
arfélagi Akureyringa. Tvö af
skipum félagsins veiða nú fisk
til herzlu. Landaði IIARÐ-
BAKUR 292 lestum fyrir helg-
ina. SVALBAKUR er á veið-
um og verður aflinn hertur. Þá
mun SLÉTTBAKUR halda á
veiðar í kvöld eða fyrramálið
og mun hann einnig veiða í
herzlu. KALDBAKUR seldi
afla sinn í Cuxhaven í Þýzka-
landi, 242 lestir, fyrir 90.267
mörk sl. laugardag og er skipið
nú á heimleið.
Stevenson sakaður um
kommúnistadekur
Ræða sú, sem Adla E. Steven-
son, leiðtogi Demókrata í Banda-
ríkjunum flutti á flokksþingi
þeirra í sl. viku — og rakin er á
5. bls. blaðsins — hefur nú orðið
til þess, að einn af forustumönn-
um Repúblikana á þingi, Homer
F erguson öldungadeildarþingm.,
hefur sakað Stevenson um
kommúnistadekur! Þinmaðurinn
heldur því fram, að „99% af þeim
erfiðleikum, sem þjá Bandaríkin
og veröldina alla í dag, eru
sprottnir á ráðstefnunum í Yalta,
Teheran og Potsdam.“
Akurcyringur stofnset-
ur málaskóla í Rvík
Ungur Akureyringur, Halldór
Þorsteinsson, skólastjóra Jóns-
sonar ,hefur stofnsett málaskóla
í Reykjavík og tekur hann til
starfa 1. okt. í skólanum verða
kennd fögur tungumál, enska,
franska, spánska og ítalska. —
Halldór Þorsteinsson nam tungu-
mál í Bandaríkjunum, á Frakk-
landi og ítalíu og er einn lærðasti
maður í rómönskum málum hér
á landi.
Enginn hnúðormur
á Austurlandi
Ingólfur Davíðssson hefur ferð-
ast um Austurland og suðaustur-
land og hefur hvergi fundið hnúð
orm á kartöflum þar. Benda likur
til þess að sýki þessi hafi ekki
borizt út fyrir svæðið frá Vík að
Akranesi.
Þegar er búið að festa svo mik-
ið fé í mannvirkjum þarna, að
augljóst er, að hér er ekki um
neitt stundarfyrirbæri að ræða,
heldur stórframkvæmdir, sem
Kort af Grænlandi, sem sýnir
hvar Meistaravík er, á austur-
strönd landsins. Efri myndin er
af námasvæðinu og aðstöðunni
þar. Bein siglingaleið er frá
Meistarav. að mynni Eyjafjarðar.
miðaðar eru við langan tíma.
Enda er hér um mjög fjársterkt
fyrirtæki að ræða, sem nýtur
óbeins stuðnings, a. m. k. dönsku
ríkisstjórnarinnar, og hefur í
þjónustu sinni færa námuverk-
fræðinga, m. a. frá Kanada.
Flutningarnir frá Grænlandi
vandamál.
Meistaravík er norðarlega á
austurströnd Grænlands. Engin
mannabyggð er á þessum slóðum,
nema námubærinn. ísar loka sigl
ingaleiðinni mestan hluta árs. Er
ekki talið að siglingaleiðin sé opin
nema 2-3 mánuði á ári, aðallega
í ágúst og september. Til þess að
koma blýgrjótinu burt frá vinnslu
staðnum á svo skömmum tíma
hefur nómufélagið ráðgert að
nota flota smáskipa, er flytti grjót
ið til umhleðsluhafnar eins ná-
lægt Grænlandi og auðið er, en
þar tækju stór skip við því. Kom
í ljós fyrir 2 árum, að félagið
hafði hug á að athuga hvort til-
tækilegt væri að fá aðstöðu á
íslandi til umskipunar, ella í
Færeyjum.
Bein siglingaleið úr
Eyjafirði.
Félagið mun hafa augastað á
Eyjafirði og þá einkum Akureyri
til þessara nota. Mun það ekki
aðeins stafa af því að hér er ágæt
íslaus höfn heldur og af því, að
segja má að frá Meistaravík til
Eyjafjarðar sé bein siglingaleið.
Skip sem siglir beint úr Eyjafrði
og áfram norður í haf, lendir við
Meistaravík. Þá er þess að geta
að hér er í uppsiglingu flugvöllur,
sem í framtíðinni ætti að geta
tekið á móti stórum flugvélum.
Mundi það þykja heppilegt að
hafa millilendingar hér þegar
flogið er frá Evrópu til Meistara-
víkur, einkum ef hér væri komin
bækistöð fyrir námufélagið.
Hvaða aðstöðu þarf hér?
Ljóst er af skrifum danskra
blaða, að sú aðstaða, sem námu-
félagið óskar að fá, er ákveðið
landsvæði til að losa blýgrjótið
á, leyfi til að gera þar hafnar-
mannvirki og setja upp losunar-
og lestunartæki, húsnæði fyrir
umsjónamenn o. s. frv. og aðstaða
til að fá rafmagn, verkafólk til
stai’fa o. s. frv.
(Framh. á 8. síðu).
Húsmæðraskólar hefja
starf
Húsmæðraskólinn á Laugum var
settur sl. mánudag og mun vera
sem næst fullskipaður. Húsmæðra-
skólinn að Laugalandi mun verða
settur í dag og mun vera fullskip-
aður nú sem endranær.