Dagur - 30.09.1953, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 30. sept. 1953
D A G U R
7
FRÁ BÓIÍAMARKAÐINUM
Almanak
Ólaf s Thorgeirssonar
1953
Eg hlakka alltaf til að lesa al-
manak Olafs S. Thorgeirssonar.
Nýlega hefur mér borizt í hendur
59. árgangur þessa ágæta rits og
hefur það inni að halda margvís-
legt að skemmtilegt lesefni að
vanda.
Ritið hefst með prýðilega skrif-
aðri grein um forsetahjónin á
Bessastöðum eftir ritstjórann,
Richard Beck, prófessor. Þá kem-
ur: A innflytjendahúsi fyrir 50
árum, skemmtileg grein eftir séra
Sigurð Ólafsson, sem bregður upp
lifandi mynd af komu hans vestur
um haf upp úr aldamótum og þeim
úrræðum, sem vesturfarar þeir
höfðu, er áttu vonina eina að leið-
arstjörnu. Síðan er þáttur um land-
nám íslendinga í Spy Hill, Gerald-
og Tantallonbyggðum eftir ritstjór-
ann. Hefur Almanakið unnið ómet-
anlega merkilegt starf fyrir land-
námssögu Islendinga í Vestur-
heimi og íslenzka mannfræði al-
mennt, með því að safna til þátta
þessara, áður en þessir atburðir
féllu í gieyjnsku. G. J. Oleson
skrifar frásögn af Birni Magnús
syni í Keewatin, Ontario, hetju
mikilli og merkilegum ævintýra-
manni á vesturvegum, sem átt
hefur það megináhugamál að berj-
ast fyrir skógrækt á íslandi. Ætti
þessi Skógar-Biörn að vera gerð-
ur að heiðursfélaga í Skógræktar-
félagi Islands. Svo koma: Nokkur
sendibréf frá Jóhanni Magnúsi
Bjarnasyni til Eyjólfs S. Guð-
mundssonar, sem skrifuð eru á
tímabilinu frá aldamótum til 1908.
„Bregða bréfin með ýmsum hætti
ljósi á líf skáldsins og kjör, hugð-
arefni hans og lífsskoðanir." Enn
eru þarna kvæði eftir Guttorm J.
Guttormsson, Árna G. Eylands og
Eyjólfs S. Guðmundsson, yfirlit yf-
ir helztu atburði meðal íslendinga
í Vesturheimi og skrá um manna-
lát.
Almanak Ö. S. Thorgeirssonar
ar ávallt læsilega skrifað um leið
og það er hið merkasta heimildar-
rit um sögu landa vorra í Vestur-
heimi, sem enginn getur án verið,
sem fylgjast vill með örlögum og
ævistríði þess hluta íslenzka kyn-
stofnsins, sem þar býr.
B. K.
IJjr bœ
I. O. O. F. = 1351028V2 =
□ Rún 59539307 — Frl.
Messað í Akureyrarkirkja n.k.
sunnudag kl. 5 e. h. — F. J. R.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
Ný bók:
Líf og játning
Valdimar V. Snævarr hefur
samið þessa bók. Ber hún þess
glöggt vitni, að höf. hennar er
þaulvígður kennari og mikill
áhugamaður um kristileg efni og
kristindómskennslu í skólunum
Bókin er hóflega stór og hnitmið-
uð við takmarkaðan tíma, og er
það mikill kostur. Hún mun því
eiga mikið og gott erindi til
kennaranna.
Handbókaleysð í skólunum er
mjög tilfinnanlegt og skaðlegt.
Ber því að fagna hverri nýrri bók
sem bætt getur úr slíkri vöntun,
Og eg sé ekki betur en þessi bók
V. V. Sn. sé ágæt handbók og
námsbók í senn, prýðilega skipu-
leg, glögg og fjölþætt. Eg vil þv:
ráðleggja kennurunum til að
kynna sér hana, og spái eg því ,að
þ'eir muni nota hana. Hún getur
áreiðanlega orðið þeim mikil og
ákjósanleg hjálp við kristin-
dómskennsluna, en það á að vera
aðalsmark hvers skóla að sú
kennsla sé í góðu lagi, — bæði
ánægjuleg og árangursrík. —
Hafi V. V. Snævarr þökk fyrir
bókina.
Sn. S.
- F0KDREIFAR
(Framhald af 4. síðu).
„ÞEGAR eg undirritaður gekk!
heim frá vinnu miðvikudaginn 9.
september sl., var eg stanzaður á
götum bæjarins af ekki svo fáum
mönnum og allir lögðu þeir sömu
spurninguna fyrir mig: „Hefur
3Ú lesið „fslending“ í dag?“
Þegar eg svo komst heim fór eg
að lesa „íslending“ og varð meira
en lítið hissa við lestur pistils
Jón í Grófinni. Eiginlega að
segja hafði mér ekki dottið í hug I prcstakalli. Grund, sunnudaginn
að til væru svo fáfróður maður á 4. okt. kl. 1.30 e. h. — Kaupangi,
miðri 20. öld í landi voru eins og sunnudaginn 11. okt k. 2 e. h. —
Jón í Grófinni. Eginlega ætti að Munkaþverá, sunnudaginn 18.
segja honum að skammast sín, okt. kl. 1 30 e. h.—Hólum, sunnu
en það vil eg ekki gera. Aftur á daginn 25. okt. kl 1.30 e. h.
móti votta eg honum innilega Möðruvöllum, sunnudaginn 1.
samúð mína fyrir fáfræðina. Það | nóv. kl. 130 e, h.
hefur hvað eftii annað verið skýrt
frá því í blöðunum og einu sinni I Brúðhjón. 27. þ. m. voru gefin
í útvarpinu, að unnið væri að því saman í hjónaband af vígslubisk-
að koma upp minnisvarða að upinum, séra Friðrik J. Rafnar,
Bólu í Skagafirði til minningar ungfrú Bergljót, Pálsdóttir frá
um Bólu-Hjálmar. En það var á Vestmannaeyjum og Tryggvi Ge
aðalfundi Skagfirðingaféagsins | orgsson, múrari, Akureyri.
hér á Akureyri árið 1951 að
Hannes J. Magnússon skólastjóri I Hjónaefni. S1 laugardag opin-
hóf máls á því að Hjálmari yrði I beruðu trúlofun sína hér á Akur
reistur minnisvarði við Bólu og ungfrú Þórhalla Davíðsdótt-
taldi mjög skynsamlegt ef félagið *r kennari, endurvarpsstj. Áma
gæti gert það. Allir fundarmenn sonar> °S Sverrir Markússon dýra
voru á sama má!i. Á næsta áðal- ^æknir, Akureyri, Torfasonar frá
fundi félagsins, sem haldinn var I Ólafsdal.
1952, var kosin 3ja
i januar 19í>3, var
manna nefnd til að hrinda málinu
í framkvæmd. — Kosningu hlutu
Hannes Magnússon skólastjóri,
Þormóður Sveinsson og undirrit
aður, sem að nafninu til er for
maður nefndarinnar. — Stuttu
eftir að nefndin var kosin ákvað
hún að komið yrði upp minning-
arlundi og minnisvarða að Bólu,
er bæri nafn Hjálmars. Fórum
við svo allir þrí'. vestur að Bólu
um vorið og ræddum við bónd
ann og eiganda Bólu, Valdimar
Guðmundsson, sem með gleði gaf
Merkti máfurinn, sem sagt var
frá í síðasta blaði, mun ekki
hafa verið ættaður frá Dan-
mörk, þótt hann bæri danskan
fóthring. Ýmsir íslendingar
hafa um árabil merkt fugla fyr-
ir danska fuglafræðinginn
Skovgaard í Viborg, þ. á. m.
Snorri Pétursson bóndi á
Skipalóni. Eru líkur til að máf-
urinn sé ættaður héðan úr ná-
STULKA
getur fengið fæði og hús-
næði. Uppl. í síma 1792.
Áeit á Strandarkirkju. Kr. 10
frá" ónafngreindum. — Kr. 20
frá N. N. — Kr. 100 frá N. N.
TILKYNNING
frá haimyrðaverzlumim á Akureyri
Höfum nú fengið mikið og fallegt úrval af allskonar
hannyrðaefnum. Allskonar garn að koma. Nýjar áteikn-
ingar daglega. — Póstsendum út urn land.
VirðingarfyUst
Hannyrðaverzhin Ragnheiðar O. Björnssonar.
Verzlunin Anna og Freyja.
grenmnu.
Bifreiðastöð
Akureyrar hefur
land fyrir lundinn, að okkar dómi f°ngið leyfi bæjarráðs till að reka
á ákjósanlegum stað neðst í tún- verzlun með tóbak og sælgæti og
inu. I gosdrykki í sambandi við benzín
sölu í Strandgötu 3, og verður
NÚ ER BÚIÐ cð girða lundinn | á sama tíma og
með mjög var.daðri girðingu,
einnig er gróðursetningu á trjá-
plöntum lokið. Gróðursetningin
fór fram síðastliðið vor og hafa
plönturnar dafnað sérstaklega vel
í sumar. Það voru konur sem
önnuðust gróðursetninguna og
eiga þær skilið þökk og heiður
hliðstæðar verzlanir í bænum,
þar á meðal eftir venjulegan lok-
unartíma almennra sölubúða.
K. F. U. M. Fundir hefjast á
sunnudaginn á venjulegum stað
og tíma.
Frá Amtsbókasafninu. Frá 1.
Sunnudaga-
skóli Akureyr-
arkirkju er á
sunnudaginn
kemur kl. 10.30
f. h. I kirkjunni fyrir 7—13 ára
börn. í kapellunni fyrir 5—6 ára
börn. — Ný biblíumyndabók
verður .fáanleg. Komið með
söngbókina. Bekkjastjórar mæti
kl. 10 f. h. Æskulýðsblaðið kem-
ur út.
Athugaemd. í tilefni af furðu-
legum pistli Halldórs Friðjóns-
sonar í Alþm. í gær, vil eg skýra
frá því, að upplýsingar þær, er eg
birti fyrir skemmstu um ævi Sig-
tryggs Þorsteinssonar, í tilefni af
80 ára afmæli hans, hafði eg —
þar sem þekking mí ná starfi Sig-
tryggs fyrir 1930 var af eðlilegum
ástæðum af skornum skammti —
frá honum sjálfum, einkum þó um
þátttöku hans í félagsstarfsemi hér
í bæ. Kom í ljós, sem eg raunar
vissi áður, að þótt hann hefði mik-
ið lagt til ýmissa félagsmála hér á
langri ævi, voru honum hugstæð-
ust málefni sjúkrasamlagsins og
svo samvinnumálin. í þessu viðtali
gat hann ekki um þátt sinn í starfi
góðtemplara. Eru því hugleiðingar
Halldórs Friðjónssonar um að mér
hafi „ekki fundist þess virði að
geta þess“, þ. e. starfs hans í bind-
indishreyfingunni algerlega tilefn
islausar og vísa eg fullyrðingum
hans um þetta og fleira í sama dúr
heim til föðurhúsanna. Eg hefi
mörgu misjöfnu kynnst í 10 ára
starfi við blaðamennsku hér, en
engu, sem tekur fram þessurri pistli
Halldórs Friðjónssonar um ill-
kvittni og ofstæki. Það er og nýtt
fyrirbæri, er vinsamlegar afmælis-
greinar um borgara bæjarins eru
aannig notaðar sem stökkpallur til
getsaka og árása á pólitíska and-
stæðinga. Má merkilegt heita, ef
slík vinnubrögð eru til þess fallin
að vinna nokkru góðu málefni
gagn, og víst er, að með þeim er
ressum mæta borgara, sem hér var
minnst af fullri einlægni, lítil
sæmd gerð. — Ritstj.
fyrir það verk. Ekki er byrjað á Dkt. verður safnið opið til útlána
minnisvarðanum ennþá, en unnið þriðjudaga, fimmtudaga og
er af kappi við að undrbúa þær laugardaga kl. 4—7. Lesstofan
framkvæmdr. Að endingu vil eg opin aiia virka daga kl. 4—7.
geta þess, að stofnaður er sjóður,
sem heitir Viðhaldssjóður minn- Áheit á Strandarkirkju. Kr. 100
ingarlundar Bólu-Hjálmars, og ájfrá Inga.
sá sjóður að tryggja það að lund-
Þær konur, sem vilja taka þátt
í saumanámskeiði Verkakvennaf.
Eining, geri svo vel að tilkynna
þátttöku sína fyrir 10. okt. í síma
1.315.
Sunnudagaskóli Sjónarhæðar
byrjar vetrarstarfið (í 48. sinn) á
sunnudaginn kemur, 4. október,
kl. 1. Allir unglingar velkomnir.
Sunnudagaskólinn í kistniboðs-
urinn lendi ekki á Akrahreppi.
Sem stendur vil eg ekki segja
neitt um það, hvernig minnis-
varðinn kemur til að líta út eða
hvenær þgnn veiður afhjúpaður.
En vafalaust mundu margir telja
vel við eigandi að afhjúpunin fari
fram þann 5. ágúst 1955, því að þá
eru liðin 80 ár frá því að sérstæð'
asta skáld þjóðarinnar andaðist í
beitarhúsunum — eina stórskáld
íslendinga á scinni öldum, sem | húsinu Zíon byrjar n.k. sunnu-
Frá Landsímanum
Stúlka með gagfræðaprófi eða hliðstæðri menntun
getur fengið starf við landsímastöðina hér.
Skriflegar umsóknir sendist mér fyrir 3. okt. n. k.
SÍMASTJÓRINN.
engrar skólagöngu naut eða
áhrifa frá erleudum bókmennt-
Höfum verið beðnir að selja
nokkra sekki af
á kr. 70.00 sekkinn.
Sýnishorn fyrirliggjandi
HAFNARBÚÐIN H.F.
Sívn 1094.
dag kl. 10.30 f. h. — Kl. 8.30 e. h.:
F órnarsamkoma
Ástjarnardrengir. Komið að
| Sjónarhæð á laugardaginn kl. 6
| Sæmundur.
Stúkurnar ísafold og Brynja
halda sameiginlegan fund
Skjaldborg næstk. mánudag, 5,
okt., kl. 8.30 e. h. Inntaka nýrra
félaga og rætt um framtíðarstarf
reglunnar.
Æskulýðsfélag Ak-
ureyrarkirkju.
Fundur allra
drengja í Mið- og
Élztu-deild er n.k,
| sunnudagskvöld kl. 8.30 í kapell
I unni.
Frá Golfklúbbnum. Bænda-
glíman á sunnudaginn kl. 1.30
e. h.
FIMMTUGUR:
Marinó Þorsteinsson
i Engihlíð
Mánudaginn 28. þ. m. varð
Marínó Þorsteinsson, bóndi í Engi-
hlíð á Árskógsströnd, fimmtugur.
Marinó er ættaður frá Litlu- Há-
mundarstöðum í sömu sveit, sonur
Valgerðar Sigfúsdóttur og Þorsteins
Þorsteinssonar er þar bjuggu lengi.
Fyrir 20 árum stofnaði Marinó ný-
býlið Enghlíð, og var það djarf-
legt fyrirtæki í þá daga. í dag er
öðruvísi um að litast í Engihlíð en
var, er hann settist þar að. Engihlíð
er nú orðið eitt hið mesta myndar-
býli í sveitinni.
Marinó Þorsteinsson hefur tekið
mikinn þátt í félagsmálum Árskógs-
strendinga, og er nú oddviti Ár-
skógshrépps, gjaldkeri sjúkrasam-
lagsins, í skólanefnd og liefur auk
þess mjög komið við sögu búnaðar-
samtaka sveitarinnar. Marinó er
kvæntur Ingibjörgu Einarsdóttir
ljósmóður og eru þau hjórí bæði
mjög rómuð fyrir gestrisni og hjálp-
semi.