Dagur - 11.10.1953, Síða 5
Miðvikudaginn 14. október 1953
D A GU R
5
Dalvíkurkauptún mun vera
einn af yngstu verzlunar- og út-
gerðartöðunum á Norðurlandi. —
Um síðustu aldamót voru þar,
sem þorpið stendur nú, aðeins fá-
ar verbúðir og eitt timburhús. Nú
er þar fremur velhýst þorp með
7—800 íbúum. — Dalvík er vel í
sveit sett að ýmsu leyti. Hún ligg-
ur vel fyrir síldarmiðum og lík-
lega hefði átt að reisa þar síldar-
verksm. Þangað sækja Svarfdæl-
ingar verzlun sína. Má segja, að
Dalvík sé eins konar miðstöð
sveitarinnar að mörgu leyti.
Sækja kirkju að Upsum.
Kirkju hafa Dalvíkingar sótt og
sækja enn að Upsum, en þangað
er nokkuð langt úr aðalþorpinu og
oft vont yfirferðar. A Upsum er
lítil timburkirkja, sem hvorki rúm-
ar söfnuðinn, ef hann fjölsækir,
né heldur til frambúðar að öðru
leyti. Hún hefur sligast í veðrum
og færst til á grunni, og það seinast
á síðastliðnum vetri að sögn. All-
mörg ár eru síðan að menn sáu, að
efna þurfti til nýrrar kirkju. Hafin
var fjársöfnun fyrir 10 til 12 árum.
Flest árin hefur víst einhverju ver-
ið safnað ,og mun eign kirkjunnar
um seinustu áramót hafa numið
90-—100 þús. kr. Er þá bæði tal-
-ty
inp samskotasjóðurinn og sjóður
Uþsakirkju. — Á síðastliðnu ári
var kirkjuteikning’ fengin hjá Hall-
dóri Halldórssyni húsameistara í
Reykjavík, og á þessu ári var
formlega leitað atkvæða safnaðar-
manna um kirkjustæðið, en um
þáð voru skiptar skoðanir. Varð
niðurstaðan sú, að byggja nýju
kirkjuna á þeim stað, þar sem
skipulagsnefndin hafði ætlað
henni stað, en það var í Brimnes-
landi, skammt sunnan við húsið
Staðarhól.
Sjö manna byggingarnefnd hef-
ur málið til meðferðar, ásamt
sóknarnefnd Upsasóknar. Vinnur
hún í samráði við sóknarprestinn
að því með fyrirhyggju og fram-
sýni. Formaður nefndarinnar er
Baldvin Jóhannsson útibússtjóri,
Dalvik.
Vísitasía biskups.
Þegar biskupinn, dr. theol. Sigur-
geir Sigurðsson, vísiteraði Upsa-
kirkju í sumar, ræddi hann bygg-
ingarmálið við söfnuðinn og ein-
hverja nefndarmennina. Hvatti
hann eindregið til framkvæmda og
hét sínu liðsinni. Má víst telja, að
orð hans hafi haft mikil og örfandi
áhrif. Fjárfestingar- og byggingar-
leyfi fengust, og eigandi Brimness,
herra Stefán Jónsson bóndi þar,
sýndi þá miklu rausn, að gefa stóra
og góða lóð úr landareign sinni,
þar sem skipulagsnefndin hafði
ákveðið kirkjunni stað. Er gjöf
Stefáns bæði fögur og stórrar
þakkar verð. Á fundi nefndanna 7.
sept. sl., var sú ákvörðun tekin, að
hefja byggingu kirkjunnar þá sem
fyrst eða helzt næstu daga, þótt
gildir sjóðir væru ekki fyrir hendi.
Nefndirnar treystu því, að úr
myndi greiðast, þegar byrjað væri
á byggingunni, og virðist svo ætla
að verða.
Athöfn við nýja kirkjustæðið.
Var ákveðið að verkið skyldi
hafið laugardaginn 19. sept. Kl.
4.30 skyldi hlýtt stuttri guðsþjón-
ustu í Upsakirkju, er sóknar-
presturinn héldi, en svo gengið
þaðan, að guðsþjónustunni lok-
inni, á nýja kirkjustæðið.
Talsvert margt fólk kom til
kirkjunnar og var viðstatt við at-
höfnina á nýja kirkjustæðinu. —
Sóknarpresturinn, séra Stefán
Snævarr, flutti þar ræðu og helg-
aði og friðlýsti kirkjulóðina. Söng-
inn við guðsþjónustuna og þessa
athöfn annaðist kirkjukór Dalvík-
ur undir stjórn Gests organleikara
Hjörleifssonar. Síðan lýsti prest-
urinn byggingarframkvæmdirnar
hafnar og stakk fyrstu rekustung-
una, en þá tóku fleiri til starfa um
stundarsakir. Einnig byrjuðu bílar
á malarflutningi á staðinn, en alla
möl í bygginguna ætlar Sigfús P.
Þorleifsson og fleiri bílstjórar á
Dalvik að flytja ókeypis á vett-
vang. — Er það höfðinglega gert.
— Þennan sama dag um kvöldið
höfðu nokkrar safnaðarkonur
kaffisölu á samkomu Sjálfstæðis-
manna til ágóða fyrir kirkjubygg-
inguna. Gáfu þær alla vinnu og
allt, er til þurfti. Gekk salan vel og
var konunum þökkuð framtaks-
semin og örlætið.
Almenn fjársöfnun.
Sunnudaginn 20. sept. fór svo
fram almenn fjársöínun í sókninni
til kirkjubyggingarinnar og söfnuð-
ust þá milli 10 og 20 þúsund kr.
Voru undirtektir manna með ágæt-
um, enda virðist vaxandi áhugi
vera fyrir byggingunni.
Þess er og eigi að dyljast, að ær-
in nauðsyn ber til þess, að kirkjan
komist upp hið fyrsta. — Þá má
og geta þess, að stofnað hefur
verið til happdrættis fyrir kirkju-
byggingarsjóðinn. Væri óskandi,
að menn keyptu miðana alla upp
á sem skemmstum tíma. Yrði það
góður styrkur fyrir bygginguna,
en engum virðist íþyngt með dá-
lítilli þátttöku. Þrátt fyrir allt,
sem verið er að gjöra verður það
að segjast, að kirkjubyggingin er
mikið átak, eins og nú er dýrt að
byggja. Kirkjan á að rúma um 250
manns í sæti, vera vönduð að
öllu leyti og smekkleg. — Af
hæfiíegum kirkjugripum er ekk-
ert til frá gömlu kirkjunni. Verð-
ur því að fá allt nýtt svo sem
orgel, altari og altarisbúnað, pre-
dikunarstól og klukkur. Söfnuður-
inn er að vísu nokkuð fjölmenn-
ur, en all þung verður byrðin, ef
honum kemur eigi hjálp neinstað-
ar að.
Hlýhugur til staðar og málefnis.
Eg hefi að vísu ekki verið beð-
inn að „berja lóminn“ eða víla
fyrir safnaðarins hönd, enda ekki
búsettur innan sóknarinnar. Eg
get þó ekki látið þess ógetið, að
vel myndi dálítil fjárhagsleg hjálp
koma sér. Á þetta vildi ég mega
benda öllum Svarfdælingum, en
þó ekki sízt þe^ji, sem burtu eru
(Framhald á 11. síðu).
Vitnisburður
Pólverjans
Daginn, sem Allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna kom sam-
an í New York í sl. mánuði,
gerðist sá atburður, að einn af
meðlimum pólsku sendinefnd-
arinnar á þingið, leitaði ásjár
hjá Bandarkjamönum og baðst
hælis sem pólitískur flótamað-
ur. Þessi háttsetti embættis-
maður hafði síðar margt að
scgja um stefu koimnúnista í
orði og á borði. í tilefni af þeim
upplýsingum, birti Hcrald Tri-
bune eftirfarandi ritstjórnar-
gre 1. þ. m.
— Upplýsingar þær um stefnu
Rússa, sem dr. Korowicz, áður
meðlimur i sendinefnd Póllands á
Allsherjarþingi S. Þ., hefur veitt,
styðjast við veruleg sönnunargögn,
sem annars staðar eru frá komin,
og falla vel inn í rökrétta mynd
heimsástandsins. Valdhafarnir í
Kreml, sagði dr. Korowicz, stefna
enn að heimsyfirráðum. Það er trú
þeirra, að þeir muni ná þessu
þráða marki eftir tvo til þrjá ára-
tugi, en þeir gera sér ljóst, að við
núverandi kringumstæður er styrj-
öld ekki bezta né öruggasta leiðin
til þess að ná þessu marki. í þess
stað, sagði Pólverjinn, er það nú
stefna ráðandi manna kommúnista,
að ná sama árangri „með.því að
grafa undan menningarlegum,
efnahagslegum og pólitískum
hornsteinum hins frjálsa heims.“
Þessi skoðun Pólverjans gæti
virzt röksemd fyrir því að tak-
marka útgjöld til landvarna um
hinn vestræna heim og keppa í
þess stað að vörnum gegn áform-
um kommúnista á öðrum sviðum.
En þess er að gæta, að „núverandi
kringumstæður,“ sem dr. Koro-
wicz ræddi um, innbinda án alls
efa þann herafla, sem frjálsar þjóð-
ir heims geta teflt fram gegn árás
af hálfu kommúnistaríkjanna.
Rússar halda uppi risavöxnum her
á landi, í lofti og á sjó, og þessi
herafli er búinn nýtízku vopnum.
Þessi herafli mundi tilbúinn að
hefjast handa, hvenær sem varnir
lýðræðisþjóðanna væru taldar
veikari en nú. Framkvæmdastefna
Rússa er að ýmsu leyti reikul, eft-
ir því hvernig vindurinn blæs, þótt
ekkert fráhvarf sé nokkru sinni frá
því takmarki, sem kommúnistar
stefna að. Kommúnistar héldu
uppi gífurlegum áróðri til þess að
telja fólki trú um, að þeir væru
boðberar friðar sama daginn og
flokksbræður þeirra í Norður-
Kóreu hófu ofbeldisárásina á Suð-
ur-Kóreulýðveldið.
Ekkert öryggi er að finna í því
að beina vörnunum að einum
þætti á kostnað annarra þegar um
er að ræða að verjast jafn marg-
höfðuðu skrímsli og alþjóðakomm-
únismanum. Efnahagslegur, menn-
ingarlegur og pólitískur styrkleiki
hinna frjálsu þjóða má ekki
minnka, heldur verður að efla
Dag einn á miðju sumri árið
1914 kom eg heim, þar sem eg bjó
hjá Olafíu Jóhannsdóttur í Osló.
Var þar þá fyrir íslenzlc kona á
þjóðbúningi sínum. Vakti það
strax athygli mína, hversu kona
þessi var yfirlætislaus og fáguð
í framkomu ,og hve búningur henn-
ar var framúrskarandi snyrtilegur.
Kona þessi var Halldóra Bjarna-
dóttir skólastjóri Barnaskólans á
Akureyri, og sáumst við þarna í
íyrsta sinn. Þessi stuttu kynni okk-
ar Halldóru urðu til þess, að eg þá
um haustið, réðist sem handa-
vinnukennari hingað til skólans.
Fröken Halldóra sýndi mér þá vin-
semd að taka mig á heimili sitt og
dvaldi eg með þeim mæðgum,
Halldóru og Björgu móður hennar
þann vetur.
Frú Björg var hljóðlát kona og
lét ekki mikið til sin taka utan
heimilis, enda þá nokkuð við ald-
ur. En heimili þeirra mæðgna
stjórnaði hún með hinni mestu ná-
kvæmni og snyrtimennsku. Eg
minnist sérstaklega þess, hve
barngóð hún var og marga vettl-
ingana vissi eg til að hún prjónaði
á kaldar og berar barnshendur.
Með þeim mæðgum var mikið ást-
ríki, og hef eg aldrei kynnst betri
og- umhyggjusamari dóttur en
Halldóra var. Halldóra hafði ver-
ið langdvölum í Noregi, hlaut þar
kennarámenntun sína og var þar
síðan barnakennari í átta ár. Var
því sízt að undra, þó að hún kæmi
hingað að skólanum með ýmsar
nýjungar, en ekki var þeim öllum
vel tekið. Lá nærri, að sumar
þeirra vektu óvild hjá fólkinu. En
reglurnar hennar Halldóru héldu
velli og eru nú almennt viður-
kenndar ,eins og til dæmis skó-
skiptin. Nú þykir það mesta ómenn
ing að notaðir séu sömu skórnir í
skólastofunni og gengið er á á göt-
um úti.
En Halldóra lét sig fleira skipta
en skólamál og tók nú af alhug að
vinna að félagsmálum. Hún hefur
ávallt trúað á mátt samtakanna.
Var það í mikið ráðist, eins og þá
stóðu sakir, er hún árið 1914,
gekkst fyrir að sameina öll kven-
félög á Norðurlandi í eina heild,
Samband norðlenzkra kvenna. Er
það elzta fjórðungssamband lands-
ins og verður það því 40 ára á
næsta sumri. Má með sanni segja
að þetta hafi valdið tímamótum í
félagslífi kvenna.
Arið 1917 stofnaði hún svo árs-
ritið „Hlin“. Hefur það komið út í
35 ár í 6000 eintökum og er furðu-
legt hvað ritstjóranum hefur tekizt
að fá marga, konur og karlg, til að
skýra þar frá reynslu sinni og
þekkingu, sem öðrum mætti að
gagni koma.
Halldóra taldi sig jafnan fast-
bundna við Norðurland. Meðan
hún var búsett syðra, kom hún
hingað norður á sumrum til að
hann og auka. Einmitt þar er nú
að vænta þunga sóknar kommún-
ista. En það verður líka að við-
halda hernaðarlegum mætti, því
að það er ljóst, að hvenær sem
líklegt er að hernaðarleg árás tak-
izt, er herveldi kommúnista tilbúið
að grípa tækifærið.
annast útgáfu „Hlínar". Dvaldi
hún þá hjá vinum sinum, Guðrúnu
Þ. Björnsdóttur og Sveinbirni
Jónssyni byggingameistara á
Knararbergi við Akureyri.
„Hlin“ hefur jafnan verið
prentuð i Prentverki Odds Björns-
sanar og hefur Halldóra oft látið
þau orð falla við mig, að hún fengi
aldrei fullþakkað þessu fyrirtæki,
hve góð og ánægjuleg samvinnan
hafi verið.
Halldóra hefur verið heimilis-
iðnaðarráðunautur í 30 ár og hefur
látið mikið til sin taka í þeim mál-
um, eins og öllum mun kunnugt.
meðal annars hefur hún ferðast
um landið og haldið sýningar á tó-
vinnu og öðrum listiðnaði og einn-
ig haft slíkar sýningar á Norður-
löndum og Ameríku.
Hún hefur verið á verði um ís-
lenzka þjóðbúninginn, að hinn
hreini og fagri stíll hans yrði ekki
brotinn og hyatt konur til að klæð-
ast honum.
Halldóra er velviljuð kona, sem
hefur hvatt marga til framtaks og
dáða. Hún vill láta fólkið mennta
sig. Það er gott að leita til hennar
í þeim málefnum, því að fáir munu
þekkja betur erlendar mennta-
stofnanir en hún.
Halldóra treystir samferða-
mönnum sínum og kann vel að
kalla fram þá hæfileika, sem þeir
búa yfir. Mun það vera einn sterk-
asti þátturinn í skapgerð hennar
og starfi,-
Þessi merkiskona, Halldóra
Bjarnadóttir, er áttræð í dag. Hún
er enn bein í baki, fáguð í fram-
komu, yfirlætislaus og snyrtileg
eins og þegar eg sá hana fyrst.
Margir vinir hennar munu hugsa
hlýtt til hennar í dag og senda
henni kveðju sína heim að Háteigi,
þar sem hún nú dvelst með vinum
sínum. Enn þá brennur starfsþrá
og starfsgleði í brjósti Halldóris
Bjarnadóttur. A þessum merkis-
degi viljum við vinir hennar biðja
guð að blessa hana og störf hennar.
Elísabet Friðriksdóttir.
Áraum Halldórii
Bjarnadótfur
heilla!
Eins og mönnum er kunnugí
er frk. Halldóra Bjarnadótth
áttræð í dag (14 okt.), en dvel-
ur nú í Reykjavík. í tilefni al
þessu merkisafniæli Halldóru
liafa ýrnsir vinir hennar ákveð-
ið áð koma sarnan og bjóða
henni til kaffidrykkju efíir
heimkomu hennar, eða nánai
til tekið sunnudaginn 1. nóv.
næstk. kl 3.30 e. h.
Karlar og konur, sem gleðj-
ast vilja með Halldóru þennan
dag, eru vinsamlega beðin að
skrifa nöfn sín á lista í hann-
yrðavcrzlun Ragnh. O. Bjöms-
son, eða Bókabúð POB, Akur-
eyri, fyrir 27. októbcr og fá þá
jafnframt þátttökukort.
Árnum Halldóru heilla!
Undirbúningsnefnd.