Dagur


Dagur - 02.12.1953, Qupperneq 1

Dagur - 02.12.1953, Qupperneq 1
12 SÍÐUR GJALDDAGI blaðsins var 1. júlí. — Léttið innheimtuna! Sendið afgr. áskriftar g j al dið! DAGUR kemur næst út á regluleg- um útkomudegi, miðviku- daginn 9. desember. XXXVI. árg. Akurcyri, miðvikudaginn 2. desember 1953 61. tbl. Tveir meiin af Dalvík fórust Bátar víða hætt komnir, er norðangarður brast skyndilega á Um hádegi á fimmtudag sl. brast á fyrir Norðurlandi oísa- veður af norðaustri með miklum sjógangi. Voru bátr.r víða á sjó og lontu í hrakningum, og einn báíur náði aklrei landt, trii’u’iát- urinn Ilafbjörg frá Dalvík. Fórust m.eð henni tveir menn: Ari Kristinsson formaður, Karls- braut 28, Dalvík, 3G ára, kvæntur og átti 4 börn, og Jón Gunnlaugs- son, á fertugsaldri, ókvæntur, cn átti fyrir öldruðum föður og föður systur að sjá. Báðir þessir menn voru vaskir sjómenn og vel kynntir í byggðarlaginu. Fórst skammt undan landi. Hafbjörg mun hafa lagt línu sína vestan megin fjarðarins, og er ætlun manna, að báturinn hafi veiið kominn langleiðina heim, cr hann fórst. Tók að reka úr hon- um þegar á fimmtudagskvöldið. Tveir aðrir bátar frá Dalvík lentu í hrakningum. Annar þeirra náði landi í Hrísey, en hinn komst heim á seglum. Höfðu þeir iagt línu austur af Gjögrum. Bilaði vél annars bátsins og varð þá að grípa til segla. Mun það hafa ver- ið hin mesta þrekraun að ná landi eins og veður var, en tókst þó giftusamlega. Skipverjar á þess- um bát voru Tómas Pétursson, rösklega tvítugur maður, og Við- ar Jónsson, á svipuðu reki, báðir frá Dalvík. Bátur ferst á Skjálfandaflóa. í veðri þessu týndist vélbátur- inn Víkingur frá Húsavík á Skjálfandaflóa, en menn björguð- ust í vélbátinn Grím. Hafði Grím- ur ætlað að draga Víking að landi, það reyndist ógerlegt. Bát- ar frá Skagaströnd og víðar lentu í hrakningum, en náðu landi stórslysalaust. Ræíf um nauðsyn á stofnun afkvæmatilraunabús I’ösklega 100 menn á síðasta fundi bænda- klúbbsins á mánudagskvöldið Bændaklúbburhui hélt fund að Hótel KEA sl. mánudag. Voru þar tekin tvö mál til umræðu. Hið fyrra var um kartöflutil- raunir og hafði Árni Jónsson til- raunastjóri framsögu. Flutti hann um þær greinargóða skýrslu og sagði meðal annars frá nýjum af- brigðum og þurrefnisrannsókn- um kartaflna. Spunnust um þær langar umræður og tóku margir til máls. Síðara umræðuefnið reifaði Danfiegur 1. des. Lítið var hér um að vera í gær til þess að minnast full- veldisdagsins. 1. descmber. Er nú af sem áður var, er stúdent- ar o. fl. gengust fyrir samkom- um á þessum degi. Svo dauflegt var hér í gærmorgun að um kl. 9,30 sáust hvergi fánar við hún í tilefni dagsins nema hjá brczka ræðismanninum og á Samkomuhúsinu. En úr því fóru fánar að sjást hér og þar og þó hvcrgi nærri alls staðar. Bjarni Arason ráðunautur og fjallaði það um steinefnaþörf nautgripa. Var erindið hið fróð- legasta og varð tilefni til um- ræðna á breiðum grundvelli, þar sem margir bændur skýrðu frá reynslu sinni í jarðrækt og fóðr- un kúnna. í þessum umræðum benti Jónas Kristjánsson Mjólk- ursamlagsstjóri á nauðsyn þess að Eyfirðingar kæmu sem fyrst upp afkvæmatilraunabúi í naut- griparækt. Um 100 manns ú fundi. Umræður í heild voru fundar- mönnum bæði til fróðleiks og skemmtunar. Fundinn sátu að þessu sinni um 100 manns og meðal ræðumanna, er ekki hafa nefndir verið, voru: Jóhannes Laxdal, Hjörtur Eldjárn, Ólafur Jónsson ráðunautur, Þór Jó- hannesson, Gunnar Krisljánsson og Ármann Dalmannsson. Bændaklúbburinn er að verða mjög vinsæll og líklegur til að auka skilning og áhuga bænda og ræktunarmanna á flestum sviðum landbúnaðarins. Unnið að þreskingu byggs á Dagverðareyri Þcssi mynd er tckin á túninu á Dagverðarcyri sl. miðvikudag. Gunnar bóndi Kristjánsson og starfs- menn hans eru að þreskja það síðasta af uppskeru sumarsns. Þreskivélin er knúin af Farmalldrátt- arvél búsins. T. li. er Gunnar bóndi við vigtina, lætur fullþroskað byggið renna um greipar sér í poka. »1 ítii mi af einum hektara á siðastliðnu sumri Gunnar Kristjánsson á Ðagverðarevri hefur ræktað bygg í 3 sumur með góðum árangri Á miðvikudaginn sl. var unnið að þreskingu á Dag- verðareyri hjá Gunnari bónda Kiistjánssyni, og var það síð- asta af uppskeru sumarsins sett í poka, vigtað og látið kornhlöðu. Varð árangurinn af kornrækt- inni í sumar sérstaklega góður. Fengust alls 30 tunnur af þroskuðu byggi af um það bil 1 hektara lands og er það mjög góður árang- ur og sá langbezti, sem Gunnar hefur fengið í þriggja ára tilraun- um við þessa ræktun, enda var sl. sumar mjög hagstætt fyrir allan gróður. Þreskivélin gengur fyrir dráttarvél. Þegar fréttamaður blaðsins kom í hlaðið á Dagverðareyri á mið- vikudaginn, var unnið kappsam- lega að þreskingu byggsins. Gunn- ar hefur þreskivél og gengur hún fyrir Farmalldráttarvél búsins og sóttist starfið vel. Inni i kornhlöðu voru hlaðar af korninu, sem þreskt hafði verið fyrr á haustinu. Gunnar bóndi sagði blaðinu frá reynslu sinni af kornræktinni. Hann sáði byggi fyrst sumarið 1951, í hálfan hektara lands, og spratt það allvel. Þreskivél átti hann ekki og þreskti því ekki nema lítið af korninu í lítilli handþreski- vél, en telur að uppskeran muni hafa numið 8 tunnum. Sumarið 1952 var mjög óhagstætt, enda uppskeran þá fremur léleg, alls um 10 tunnur af 1 hektara. Gunn- ar óttaðist að útsæði mundi ekki heppilegt af þessari uppskeru, en rannsókn, sem gerð var á Sáms- stöðum hjá Klemenz Kristjáns- syni, sýndi að grómagn kornsins frá Dagverðareyri var mikið og spiraði 85% af því. Var ekki völ á betra útsæði í vor. Kornræktin ekki erfiðari en grasrækt. Á sl. ári sáði GunnaY í tvö stykki, annað 9000 fermetra en hitt mun minna. Stærra stykkið var mólendi, og sáði hann í það 13. maí. Kornið var slegið 2.—4. september og fengust þá 23 tunnur af fullþrosk- uðu byggi og er sú uppskera sam- bærileg við það betza, sem þekkist sunnanlands. í hinn reitinn sáði hann 20. maí og var það land framræst mýrlendi. Þessi blettur var sleginn 20. september og það var uppskeran af honum, sem nú var verið að þreskja. Verður upp- skeran alls um 30 tunnur, sem fyrr segir. Gunnar telur, að mjög miklu máli skipti, hvenær sáð er á vorin, og eins, hvernig til tekst með áburð á sáðlendið, en að öðru leyti telur hann þessa ræktun sízt erfiðari en grasræktina. Kornið þarf minni áburð og vinnsla lands þarf sízt að vera vandaðri en undir gras. Gunnar telur að fenginni þessari reynslu, að hagkvæmt sé að halda þessari kornrækt áfram og hj'ggst gera það. Gott mjöl í brauo. Heimilið á Dagverðareyri hefur látið mala lítið eitt af byggi til reynslu og reyndist mjölið ágætt í brauð og fl. Til sannindamerkis bauð húsfreyjan til kaffidrykkju og var byggbrauð af ýmsum gerð- um á borðum og smakkaðist það ágætlega. Aðalnot uppskerunnar eru samt önnur. Hænsnin munu fá bróðurpartinn af henni, auk þess sem gengur til útsæðis á Dagverð- eyri eða selt verður burt sem út- sæði. Lítið um kornrækt í Eyjafirði. Reynsla Gunnars á Dagverðar- eyri er athyglisverð af því að nú er lítið sem ekkert um kornrækt í Eyjafirði. Kaupfélag Eyfirðinga hafði um hrið talsvert umfangs- mikla kornrækt að Klauf og var ræktað þygg, hafrar og rúgur og fékkst oft ágæt uppskera. Ymsir eyfirzkir bændur hafa og ræktað líygg og fleiri korntegundir með góðum árangri á liðnum árum, en nú munu þeir hafa hætt því, og að því blaðið veit bezt, er nú hvergi ræktað korn svo að teljandi sé nema á Dagverðareyri. Hins vegar er það álit bænda, sem reynt hafa þessa ræktun, svo og kunnáttu- manna, eins og Klemenzar á Sámsstöðum, að byggræktun hér nyrðra eigi að geta gefið góðan ár- angur og reynst sæmilega árviss. Virðist sumarið 1952 og sanna það, því að byggið spratt þá ekki ver tiltölulega en annar gróður. í gær gekk norðaustan hriðar- veður yfir Norðurland og setti niður allmikinn snjó. Má búast við að ógreiðfært sé yfir fjallvegi.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.