Dagur - 02.12.1953, Blaðsíða 8
8
D AGUR
Miðvikudaginn 2. desember 1953
r
Ur bænum:
Ökuför og leiðsaga um nokkrar
götur bæjarins
Kristilegt hugarfar.
STUNDUM kemur fyrir að hér
í blaðinu er deilt á ýmsar fram-
kvæmdir bæjarins, og þó oftar á
framkvaemdaleysi bæjarráðs-
manna í ýmsum verklegum grein-
um. Venjulegir borgarar bregðast
hart við, þegar á þá er hallað, og
skrifa skammargrein í eitthvert
bæjarblaðið og vitna þar með
um mannlega náttúru, sem
er ekki ætíð kristilegs
eðlis. En framkvæmdastjórn bæj-
arins hefur aðra og mildari aðferð.
Hún býður upp á ökuferð. Kostar
til benzíni, bíl og dýrmætum tíma.
Réttir manni vinstri vangann, þeg-
ar komið er við þann hægri. A sl.
ári var rætt um götur bæjarins hér
í blaðinu og út á það fékkst reisa
um brekkur og eyrar og yfirlit um
ástand margra gatna, sem var
harla lélegt, og nýjar götur og end-
urbyggðar, og var þar þó nokkuð
að sjá. Nú í vikunni sem leið var
á það bent hér í blaðinu, að hægt
miðaði að hreinsa burtu bragga-
ræksni á væntanlegri aðalleið inn
í bæinn við Glerárbrú þá neðri, og
vegagerð þar, og það stóð heima:
sama daginn er boðið upp á öku-
ferð á bæjarins vegum, með ráðs-
mönnum í bak og fyrir. Af því að
þetta er þó ekki hversdagslegur
hlutur, er rétt að segja ferðasög-
una. Ekki af því að leiðin sé bæj-
armönnum ókunn. Þeir aka hana
margir á degi hverjum, eða ferðast
fótgangandi og kannast við útsýn-
ið. Heldur vegna þess að það er
; ekki víst að allir sjái það sama.
jSumir eru skyggnir að því er sagt
ler, sjá mannvirki og missmíði á
náttúrunni, þar sem aðrir sjá ekk-
ert, enn aðrir sjá gegnum holt og
hæðir, og svo eru þeir, sem hafa
bara þessa venjulegu sjón og sjá
hlutina eins og þeir sennilega eru.
Með eigin augnm —
og annárra.
ÞAÐ ER til dæmis, að þegar
ekið er norður Hafnarstræti, í milli
Kaupvangstorgs og Ráðhústorgs,
má ökumaður gá að sér að lenda
ekki í stórri og illyrmislegri holu,
skammt frá pósthúsinu, en af
kunnugleika sínum þræða flestir
bílstjórar fram hjá henni. Þeir sjá
hana ósköp vel og þeim er sárt um
bílana sína. En líklega hefur vega-
verkstjórn bæjariris ekki komið
auga á hana. A. m. k. er hún búin
að vera þarna í allt haust og stend-
ur enn. — Þegar komið er norðar-
lega í Brekkugötu, er hægt, með
lagi, að fara norður úr götúnni og
niður nýja götu, sem þar er í
smiðum, niður á Gleréreyrarnár.
Með því móti er hægt að losna við
kaflann frá yzta húsi Brekkugötu
að afleggjaranum á Gefjuni, og það
er einhver versti végur í gjörvöllu
bæjarlandinu og er þó fjölfarinn.
Bílstjórar sjá þetta og þekkja vel,
en svo er að sjá, sem verkstjórn
bæjarins hafi ekki komið auga á
þetta enn. Þessi vegarspotti er
svona útlítandi viku eftir viku án
þess að að sé gert. Þetta sannarlík-
lega það, sem áður var sagt um
mismunandi hæfileika manna til
að sjá. Það er ekki sama hvort
maður lítur á hlutina með eigin
augum eða annarra.
Þegar Akureyri heilsar
aðkomufólki.
ÞEGAR komið er niður úr nýja
afleggjaranum úr Brekkugötunni,
er komið að þeirri mannvirkjagerð
bæjarins, sem minnst var á hér í
blaðinu í sl. viku. Þar er verið áð
vinna að því að tengja nýju Gler-
árbrúna vegakerfi bæjarins með
nýjum vegi og er verkið komið
nokkuð áleiðis. Þetta munu ráða-
menn bæjarins hafa talið fara fram
hjá blaðinu og því sjón sögu ríkari.
Þarna er auk heldur búið að rífa
þá bragga flesta, sem áður stóðu á
sjálfu vegarstæðinu, eða því sem
næst, en allir hinir tróna þar enn.
Er því verkið raunverulega ekki
nema rétt hafið. Ef ekki verður
meira að gert í því að koma
bröggum þessum burtu, verða það
þeir, sem fyrst heilsa aðkomufólki,
er það ekur inn í bæinn að norðan
og rftunu víst allir sammála um að
ekki sé sú kveðja skemmtileg eða
uppörvandi. Það er alveg augljóst
mál, að bærinn getur ekki látið
slíkt viðgangast, enda þarflaust
með öllu. Braggar þessir voru
aldrei ætlaðir til frambúðar og þeir
munu allir standa þarna með
bráðabirgðaleyfum bæjarstjórnar,
sem eru þegar útrunnin. Auk þess
á fallandi fæti, ryðbrunnir og
skældir. Og eftir hverju er þá beð-
ið? Framkvæmdastjórn bæjarins
virðist bíða eftir einhverjum
ákvörðunum bæjarstjórnar í mál-
inu, en ef bráðabirgðaleyfin eru
útrunnin er líklegt að bæjarstjórn-
in telji málið í höndum fram-
kvæmdastjórnarinnar. En vonandi
hafa þessir aðilar a. m. k. diplóma-
tískt samband sín í milli — þótt
stundum sé ástæða til að efast um
það — og ráða þessu til lykta hið
fyrsta, því að það er ekki nóg að
einblína á vegarspottann, sem ver-
ið er að leggja í gegnum bragga-
hverfið. Þeir, sem leiðina fara, sjá
út fyrir hann. Vonandi rekur að því
að bæjaryfirvöldin renna augum
þangað líka, þótt þeim sé þessa
stundina starsýnt á þær byrjunar-
aðgerðir, sem þegar eru hafnar.
Skíðasleðar
Sldði
Skíðabmdingar
Skíðastáfir
Skíðaáborðnr
Skaotar
Járn- og glervÖrudeild.
Jólákort
Járn og glervörudeild
Rafmagnsofnar
500 - 1000 - 1500 iv
Rafmagnsvöfflujárn
Hraðsuðukatlar
Hraðsuðukömiur
Straujárn
Jdrn- og glervörudeild.
EIGNIZT gott og fjölbreytt bókasafn með kostakjörum
Nýir
Æ&J.
AFLOKKA
gegn afborgim
I BÓKAFLOKK YÐAR GETIÐ ÞÉR VALIÐ ÚR YFIR 200 BÓKUM
50 krónur við pöntun og svo ársf jórðungslega krónur 50.
Bókaverzlun P. O. B.
veitir móttöku pöntunum á bókaflokkum Norðra.
NORÐRA BÆKUR til nytsemdar, fróðleiks og skemmtunar
Jólaskó
HJÁ OKKUR
KVENSKOR
KARLMANNASKÓR
BARNASKÓR
allskonar
Kaupfélag Eyfirðinga
SKÓDEILD
Jólavörur:
Hanzkar, töskur,
slæður, kjólablóm,
náttkjólar, nærföt,
undirföt, nylonsokkar,
perlonsokkar,
ísgarnssokkar
og ýmsar gjafavörur
Anna & Freyja.
Þivgeyska úrvals hangikjötið er komið. Reynið þetta
ajbragðsgóða kjöt og tryggið yður það í jólamatinn.
NÝ SENDING KEMUR FYRIR JÓLIN.
KJÖT & FISKUR
Sími 1473.