Dagur - 13.01.1954, Blaðsíða 1
KOSNIN G ASKRIFSTOF A
Framsóknarmanna er op-
in daglega kl. 10—12 f. h.
1—7 e. h. og frá kl. 8.30
á kvöldin
B-LISTINN
er Iisti Framsóknar-
manna.
XXXVII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 13. janúar 1954
3. tbl.
Ósönn og ómakleg ummæli Alþm. í gær:
Framsóknarm voru andvígir
bæjarútgerðarkröfum sósíalista,
en sfuddu samvinnu bæjar og
sfofnana um sfofnun Útgerðarfél.
in á Akureyrarpolli nam
nær því 16000 málum
Krossanesverksmiðjan greiddi um
850.ÖÖÖ krónur fyrir hráefnið - allt
lýsið selt og 2/3 mjölframleiðslunnar
Aukið rafmagn, fiskurgaugur eg vetrarsíldveiði
gefa vonir um bættan hag verksmiðjunnar
í framtíðinni
Á sunnudaginn Iauk vetrarsíldveiðinni hér á Akureyrarpolli og á
innanverðum Eyjafirði, sem hófst 11. nóvember sl. og varð veiðin
alls 15.984 mál. Hefur Krossanes því tekið á móti meira en hehn-
ingi meira magni nú en á aliri sumarvertíðinni, er síldarmagnið er
verksm. barst varð aðeins rösklega 6700 mál. í gær var vcrið að ljúka
við að bræða það síðasta af vetrarsíldinni.
Alþýðumaðurinn í gær reynir
með veikum tilburðum að af-
sanna, að atvinnulífi bæjarins
hafi reynst lítill stuðningur að
skraíi og skrifum bæjarfulltrúa
flokksins á liðnu kjörtímabili, en
ekki getur blaðið þó bent á eina
einustu atvinnuframkvæmd, sem
þessir fulltrúar hafa komið í
framkvæmd á sl. 4 árum.
í þess stað reynir blaðið að
vekja upp gamlan draug komm-
únista, þar sem er rógburðurinn
Framsóknarmenn í sambandi við
togaraútgerð frá Akureyri. Á það
var bent hér í blaðinu á laugar-
daginn, að án raunhæfs stuðnings
Framsóknarmanna í bæjarstjórn
og samvinnumanna væri óvíst,
hvernig togaraútgerðinni hefði
reitt af í upphafi. Og ennfremur,
að fjórða skip Útgerðarfélags Ak-
ureyringa h.f. væri hingað komið
beinlínis fyrir aðgerðir efsta
manns á lista Framsóknarflokks-
ins, Jakobs Frímannssoar kaup-
féléagsstjóra. Þessa sannmælis
vill Alþm. ekki una Framsóknar-
mönnum, en í þess stað fullyrðir
blaðið, að Framsóknarmenn hafi
barizt gegn togarakaupunum.
Sannieikurinn í því máli er
sá, að ef ekki hefði komið til
hlutafjárframlags samvinnu-
samtakanna við stofun Útgerð-
arfélags Akureyringa hefðu
togarakaupin reynzt mjög erfið
— ef ekki óframkvæmanleg —
ó þeim tíma — og alla tíð síðan
hafa samvinnumcnn stutt tog-
araútgerðina eins og kaupin á
„SIéttbak“ vitna gleggst um.
En hins vegar voru Framsókn-
armenn í öndverðu og eru enn
andvígir bæjarútgerðarkröfum
sósíalísku hersingarinnar. —
Það var ekki sízt fyrir andspyrnu
Framsóknarmanna, að þær ráða-
gerðir að koma hér upp pólitískri
bæjarútgerð á borð við þær í
Siglufirði og Vestmannaeyjum,
náðu aldrei fram að ganga. Mun
bæjarmönnum líka veriðorðiðþað
Konur skora á bæjar-
stjórn að veita ekki vín
Áfengisvarnanefnd kvenna hér
í bæ hefur skorað á bæjarstjórn
Akureyrar að veita ekki vín í
opinberum veizlum á kostnað
almennings.
ljóst nú, að ráð sósíalista í þessu
efni voru launráð.
Tillaga um rekstursform
þegar 1945.
Hin fyrsta tillaga um fyrir-
komulag útgerðarinnar var sett
fram hér í blaðinu nokkru áður |
en undirbúningur hófst um stofn-
un Útgerðarfélagsins. Hinn 8. fe-
brúar 1945 birti Dagur einmitt
grein um þessi mál og þar segir
svo m. a.:
„.... Margt bendir til þess að
stór nýtízku fiskiskip, gerð út
héðan eigi' framtíð fyrir sér.
Reynsla undangenginna ára er
dæmi um það. Það væri ósk-
andi að sjómenn, útgerðar-
mcnn, stofnanir og einstakling-
ar, hefðu svo milda trú á sam-
vinnu borgaranna og bæjar-
félagsins um þessi mál að til
raunhæfra framkvæmda
kæmi....“
Þessi samvinna komst á með
stofnun Útgerðarfélagsins og að
því áttu Framsóknarmenn veru-
legan hlut og þar með var bæjar-
útgerðarkröfunum endanlega
hafnað. Alla tíð síðan hafa Fram-
sóknarmenn starfað að útgerðar-
málunum í þeim anda, sem lýst
var í grein Dags um þetta á önd-
verðu ári 1945. Ummæli Alþm. í
gær eru því í senn ómakleg og
ósönn.
Metsala í áfengis-
búðinni
S.l. laugardag var áfengisút-
sölumli á Akureyri lokað sam-
kvæmt úrslitum atkvæðagreiðslu
um héraðabann. Á föstudag fyrir
lokunina var metsala í búðinni
hér. Mun áfengi hafa verið keypt
þann dag fyrir 114 þúsund kr.
Sunnudaginn 24. þ. m. efna
Framsóknarfélögin hér í bæn-
uin til almenns fundar stuðn-
ingsmanna B-listans við bæjar-
stjórnarkosningarnar. — Efstu
menn Hstans munu flytja fram-
söguræður um bæjarmálin og
©
Járnsmiður í Alþm., en
forstjóri í símaskránni
Alþm. er stoltur af því að
hafa upp á að bjóða iðnaðar-
mann í baróttusæti Alþýðufl.
kallar hann járnsmið á fram-
boðslistanum og telur Iík-
legri til að gæta hagsmuna iðn-
aðarstéttanna en t. d. 3. maður
á lista Framsóknarmanna, sem
oft hefur verið fulltrúi Iðnað-
armannafélagsins á iðnþingum
og hefur átt sæti í stjórn þess.
Slíkir eru atvinnurekendur,
ekki „bona fide“ iðnaðarmenn.
Skorar blaðið á iðnaðarmenn að
fylkja sér um „járnsmiðin Al-
bert Sölvason“, og þarna á tit-
illinn að trekkja! En ef menn
líta í símaskrána, sem út kom
um daginn, heitir þessi ágæti
frambjóðandi „forstjóri“ þar. —
Titla sína í símaskránni velja
men sjálfir, titla á framboðs-
listum smíða pólitískir áróðurs-
menn á stundum. Var Alþm.
hræddur við að atvinnurek-
endalykt væri af forstjóratitl-
inum á framboðslistanum?
Kvenfélagið Framtíðin
60 ára
Kvenfélagið Framtíðin hér í
bæ minnist 60 ára afmælis síns
með hófi að Hótel KEA í kvöld.
Þetta félag á sér mjög merka
sögu. Það hefur unnið stórvirki
fyrir ýmis mannúðarmál svo sem
spítalann hér og nú hefur það elli
heimilismál bæjarins á dagskrá
og vinnur að framgangi þess. All-
ir bæjarbúar munu óska félaginu
allra heOla í störfum á ókomnum
árum um leið og þeir þakka
dugnað og ósérhlífni á liðnum
tíma.
Eindæma veðurblíða
Einn helzt hin eindæma veður-
blíða, sem ríkt hefur hér mestan
hluta vetrar. Snjólaust er með
öllu á láglendi og aðeins skaflar
hér og þar á hálendi. Vegir allir
greiðfærir sem sumar væri og
hlýindi á hverjum degi.
kosningabaráttuna, en síðan
verða frjálsar umræður. Fund-
urinn verður í stóra salnum á
Hótel KEA og hefst kl. 4 e. h.
Skorað er á stuðningsmenn B-
listans að fjölmenna á fundinn.
Miklir fjármunir.
Það eru miklir fjármunir, sem
sjómennirnir hafa sótt hér út á
Pollinn í vetur, því að láta mun
nærri að verksmiðjan hafi greitt
850.000 krónur fyrir hráefnið. Er
hlutur sjómanna og útgerðar-
manna af þessum veiðum góður
ef miðað er við aðra útgerð. Auk
þess hefur Krossanesverksmiðjan
veitt 15—20 mönnum atvinnu
lengst af þeim tíma, sem sOdveið-
in hefur staðið. Að öllu saman-
lögðu hefur þessi síldveiði og
vinnsla orðið mikil búbót fyrir
bæjarfélagið og það á árstíma,
sem venjulega er minnst að gera
hér fyrir verkamen og sjómenn.
Eiga útvegsmenn og sjómenn,sem
hófu þennan veiðiskap, svo og
stj órn Krossanesverksmiðj unnar,
sem brá skjótt við að kaupa afl-
ann og hefja vinnslu á honum,
þakkir skyldar fyrir framtakið.
Mest öll framleiðslan spld til
útfiutnings.
Blaðið átti í gær tal við Guð-
mund Guðlaugsson, formann
verksmiðjustjórnarinnar, og
skýrði hann svo frá, að tekizt
hefði að selja alla lýsisframleiðsl-
una og er útskipun lýsisins fyrir-
huguð snemma í næsta mánuði.
Fékkst gott verð fyrir lýsið og
hagstæðara verð, en náðist fyrr á
sl. ári. Mjölið er þegar selt að 2/3
hlutum, en unnið er að því að
selja afganginn og horfur á að það
takizt giftusamlega. Gott verð
fékkst einnig fyrir mjölið. Um af-
komu verksmiðjunnar í heild
sagði Guðmundur Guðlaugsson,
að vonir stæðu nú til þess að ekki
yrði beint tap á rekstri hennar á
árinu 1953, en óvænlega horfði
fyrir verksmiðjuna er sumarsOd-
veiðunum lauk svo að henni
bárust aðeins rösklega 6700 mál.
Hefur vetrarsOdveiðin því orðið
til þess að létta undir með þessu
fyrirtæki bæjarins.
Betri framtíðarhorfur.
Guðmundur sagði að það væri
skoðun sín, að betur horfði nú
með rekstur Krossanessverk-
smiðjunnar en áður og ber þar
margt til. í fyrsta lagði hefur sú
breyting nú orðið síðan Laxár-
virkjunin var fullgerð, að verk-
smiðjan getur fengið rafmagn til
starfrækslu á vetrum, en það var
ekki hægt áður. Gjörbreytir þetta
aðstöðu verksmiðjunnar. Þá er
nú vaxandi hráefni, sem til fellst
frá togurunum, fiskúrgangur alls
konar, og ef framhald verður á
því að togarar veiði fisk til herzlu,
má búast við því að verksmiðj-
unni berist verulegt hráefni til
vinnslu. Svo má segja að hilli
undir byggingu hraðfrystihúss, og
rekstur þess mundi og veita verk-
smiðjunni hráefni. Loks er engan
veginn vonlaust, að vetrarsíld-
veiði, sem sú, er nú hefur verið
stunduð, geti orðið verulegur lið-
ur í rekstri verksmiðjunnar.
Vinnsla fiskúrgangs.
Fyrr á þessu ári var unnið úr
talsverðu magni af fiskúrgangi í
verksmiðjunni, og nú í haust hef-
ur framleiðsla úr fiskúrgangi
numið um 87 tonnum af beina-
mjöli.
Aflahæstu skip á vetrarsíld-
veiðunum.
Blaðið fékk eftirfarandi tölur í
gær um afla hæstu skipanna, er
lagt hafa u.pp í Krossanesi: Snæ-
fell 4165 mál, Von 3844 mál,
Garðar 3383 mál, Gylfi 1534 mál,
Akraborg 1608 mál, Stjarnan 765
mál. Þess ber að geta að úthalds-
tími skipanna var mjög misjafn.
Snæfell veiddi auk þess, sem hér
er talið, 1260 mál í Grundarfirði.
Almennur fundur sfuðningsmanna
B-lisfans sunnudaginn 24. þ. m.