Dagur - 02.02.1954, Page 1
DAGUR
kemur næst út á reglul.
útkomudegi, miðvikudag-
inn 10. íebr.
ASKRIFTARSÍMI
blaðsins er 116G. Gerizt
áskrifendur!
XXXVII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 2. febrúar 1954
8. tbl.
Málverk eftir Eisenhower
Dwight D. Eiscnhower Bandaríkjaforseti fæst við málaralist í frí-
stuxidum sínmn eins og Churehill forsætisráðherra. Eisenhower
málaði þessa mynd af Abraham Lincoln á s!. ári. Ljósmynd af mál-
vcrkinu var jólakort forsctans um síðastiiðin jól. Fékk hver starfs-
maður Hvítahússins slíkt kort.
Kosningin á Ákureyri:
Veruleg fylgísaukning Framsókn-
arflokksins frá s.l. sumri
Albýðuflokkuriim taj^aði sæti í bæjarstjórn -
mikil óeining innan Sjálfstæðisflokksins 4. mað-
ur Ð-listans féll fyrir útstrikunum
Úrslit bæjarstjórnarkosninganna hér urðu kunn aðfaranótt mánu-
dagsins og urðu þau, að Alþýöuflokkurinn tapaði sæti til Þjóðvarn-
arílokksins, cn að öðru Jeyti var fulltrúatala flokkanna óbreytt. —
ckurinn mn veruiega á
í snörgum kaupstöðum
við sig fulltrúum á
Siglufirði, Neskaupstað og Seyðis-
firði - kommúnistar eru víðist á
hröðu undanlialdi
Á mánudagsmorguninn s. 1. voru úrslit kunn í bæjar- og
sveitarstjórnarkosninguuum, sem fram fóru á sunnudagiun
urn land allt. í kaupstöðunum 13 voru kjömir 117 aðalfull-
trúar í bæjarstjórnir. Skipta flokkarnir þannig með sér full-
trúum, að Alþýðuflokkurinn hlaut 24 fulltrúa, Framsóknar-
flokkurinn 17, kommúnistar 19, Sjálfstæðisflokkurinn 46 og
Þjóðvarnarflokkurinn 3. Auk þess voru kjörnir 5 menn af
lista frjálslyndra kjósenda á Akranesi og 3 af sameiginlegum
lista Framsóknarmanna og Sjálfstæðismanna í Húsavík.
ísafirði,
í fyrradag varð svo kunnugt,
að 4. maður á lista Sjálístæðis-
manna, Sverrir Ragnars, hafði
faliið fyrir útstrikunum, sem
voru mjög áberandi hjá Sjálf-
stæðisflokknum. Var því kjörinn
5. maður listans, Jón Þorvalds-
son, en flokkurinn fékk 4 fulltrúa
og munaði þó mjög litlu, að hann
tapaði einum fulltrúa en Alþýðu-
flokkurinn héldi 2 sætum í bæj-
arstjórn.
Á kjörskrá voru hér 4531 og
kusu 3700 manng, eða tæplega
82%.
Atkvæði skiptust þannig: Al-
þýðufiokkurin nhlaut 556 atkv.
og 1 mann kjörinn (548 atkv. og
2 fulltr. 1950). Framsóknarflokk-
urinn hlaut 952 atkv. og 3 menn
kjörna (945 atkv. og 3 fuiltr.
1950). Sósíalistaflokkur 644 atkv.
og 2 fulltrúa (728 atkv. og 2 full-
tr. 1950). Sjálfstæðisflokkur
1131 atkv. og 4 menn kjörna
(1084 atkv. og 4 fulltr. 1950).
Þjóðvarnax'fiokkur 354 atkv. og 1
fulltr.
Hin nýja bæjarstjórn.
Hina nýju bæjarstjórn skipa
þessir menn: Af A-lista Stein-
dór Steindórsson, 1. varamaður
Albert Sölvason, af B-lista Jakob
Frímannsson, Þorsteinn M. Jóns-
son og Guðmundur Guðlaugsson,
1. varamaður Haukur Snorrason,
af C-lista Björn Jónsson og
Tryggvi Helgason, 1. varamaður
Guðrún Guðvarðardóttir, af D-
lista Helgi Pálsson, Jón G. Sól-
nes, Guðmundur Jörundsson og
Jón Þorvaldsson, 1. varamaður
verður sennilega Sveinn Tómas-
son, en þó var það ekki fullvíst i
(Framhald á 4. síðu).
Framsóknarllo
--------------------------®
Kuldar um alla Evrópu
Dönsku Sundin leggur
London og Kaupmannahöfn
1. febrúar.
Hinar mestu vetrarhörkur eru
nú um mest alla Evrópu. 1 Suð-
ur-Frakklandi og ftalíu var kaf-
aldsbylur í dag. Samgöngur bæði
á sjó og landi hafa komizt á ring-
ulreið og hið hörmulegasta ástand
er ríkjandi meðal fátæklinga í
löndum Suður-Evrópu, sem búa
í óupphituðum hreysum.
Á norðvesturströnd Spánar
snjóaði í fyrsta sinn í 9 ár í dag
og yfirleitt má segja, að þetta sé
einn hinn kaldasti og harðasti
vetur er komið hefur í manna
minnum á Pyrenaskaga og
reyndar í Suður-Evrópu allri.
5 verða úti í Frakklandi.
Vitað er um fimm menn, sem
orðið hafa úti í Frakklandi. —
Feiknamikil snjókoma var ná-
lægt Marseilles og leiddi þetta m.
a. til þess ,að allar samgöngur
komust á ringulreið á þessum
slóðum. Á ítalíu hefur frostið og
snjókoman leitt til þess að ár hafa
stíflast og síðan flætt yfir bakka
sint og stafar af þessu stórmikil
hætta.
ísalög í dönsku sundunum.
Sama veðurharkan er um norð-
anverða Evrópu og á Norður-
löndum. Ottast er, að siglingar
um dönsku sundin kunni að
teppast, en sums staðar verður
nú að brjóta skipunum braut á
þessum slóðum með ísbrjótum. í
Hollandi eru allir skurðir og ár
lagðir þykkum ís og samgöngur
með fljótabátum hafa því lagzt
niður.
Fellt með mildum meiri-
liluta að loka vínbúð*
inni á Siglufirði
I sambandi við bœjarstjórnar-
kosningar á Siglufirði fór jram at-
livccðagreiðsla um það hvort loka
œtti áfengisútsölunni þar eða eliki.
Urslil urðu þau að 815 greiddu at-
kvaði gegn þvi að áfengisverzlun-
inni vœri lokað en 376 voru þvi
fylgjandi.
Talsverður áróður var á báða
bóga fyrir atkvæðagreiðsluna. Gáfu
andbanningar út blað, sem þeir
nefndu Þyt, og var ritstjóri þess
Ragnar Jónasson bæjargjaldkeri.
TEMPI.ARAlt KLOENIR.
Tenxplarar eru aliöflugir á Siglu-
firði, en mjög háði þeim, að þeir
voru klofnir í afstöðunni til lok-
unar vínbúðarinnar. Töldu suniir
þeirra lokun hafa gefið slæma raun
annars staðar og vildu því ekki að
lokað væri á Siglufirði.
Þátttaka í kosningunum var
víðast góð og í heild sinni meiri
en í kosningunum 1950. Kjörsókn
hér á Akureyri varð tæplega
82% og er það meiri kjörsókn
en hér var 1950, þá kusu 80%
liér af þeim, sem á kjörskrá
voru.
Meginlínurnar
Meginlínurnar í kosningunum
virðist vera sú, að Sjálfstæðisfl.
heldur velli, hélt t. d. meirihluta
sínum í Reykjavík.
og Framsókiiarflokkurinn hef-
ur unnið verulega á. Bætt
við sig fulltrúum í Siglufirði,
ísafirði, Neskaupstað og Seyð-
isfirði,
en tapaði fuiltrúa í Vestmanna-
eyjum, en til þess munu liggja
sérstakar ástæður. Kommúnist-
ar hafa enn tapað víðast hvar, t.
d. misstu þeir fulltrúa í Reykja-
vík og töpuðu verulegu atkvæða-
magni, á ísafirði voru þeir þurrk-
aðir út úr bæjarstjórninni, í Nes-
kaupstað töpuðu þeir fulltrúa og
víðar hefur aðstaða þeirra veikst
til muna. Alþýðuflokkurinn hef-
ur einnig farið illa út úr kosn-
ingunum, tapað atkvæðum og
fulltrúum, m. a. hér á Akureyri,
í Hafnarfirði og víðar. Þjóðvarn-
arflokkurinn kom að einum
manni í Reykjavik, einum hér á
Akureyri og einum í Vestmanna-
eyjum. Úrslit í einstökum kaup-
stöðum urðu sem hér segir (Ak-
ureyri talin annars staðar í blað-
inu):
Reykjavík.
í Reykjavík hélt Sjálfstæðis-
flokkurinn meirihluta sínum.
Framsóknarflokkurinn á þar einn
fulltrúa sem fyrr, Þórð Björns-
son. — Úrslit urðu þessi:
Alþýðufl. (A) 4274 atkv. (1)
Framsóknarfl. (B) 2321 (1)
Sósíalistafl. (C) 6107 atkv. (3)
Sjálfst.fl. (D) 15642 atkv. (8)
Þjóðvarnarfl. (F) 3260 atkv. (1)
Úrslit 1950:
Framsóknarfl. 2374 atkv. (1)
Alþýðufl. 4047 atkv. (2)
Sósíalistafl. 7501 atkv. (4)
Sjálfst.fl. 14367 atkv. ((8)
Eins og sést á þessum úrslitum
hafa kommúnistar tapað mjög
fylgi eða um 1400 atkv. og hlut-
falli sínu af aukningunni. Þjóð-
varnarflokkurinn fær nú einn
manri frá kommúnistum.
Akranes.
Á Akranesi voru Alþýðu-
flokksmenn, Framsóknarmenn og
sósíalistar saman með lista. Hlaut
hann 760 atkvæði og 5 menn
kjörna. Listi Sjálfstæðisflokks-
ins hlaut 612 atkvæði og 4 menn
kjörna.
Á kjörskrá voru 1601 og 1395
kusu.
Úrslitin 1950:
Alþýðufl. (A) 405 atkv. (3)
Framsóknarfl. (B) 172 atkv, (1)
Sósíalistafl. (C) 181 atkv. (1)
Sjálfstæðisfl. (D) 460 atkv. (4)
ísafjörður.
Á ísafirði stórjók Framsókn-
arflokkurinn fylgi það, sem hann
hefur fengið í síðustu kosningum
og fékk nú fulltrúa kjörinn þar í
bæjarstjórn í fyrsta sinn, Gutt-
orm Sigurbjörnsson. Er þetta
hinn mikilvægasti sigur, og hefur
Framsóknarflokkurinn þar úr-
slitaaðstöðu í bæjarstjórn. Full-
trúann varin Framsóknarflokk-
urinn af kommúnistum. — Úrslit
urðu þessi:
Alþýðufl. 520 atkv. (4)
Framsóknarfl. (B) 155 atkv. (1)
Sósíalistafl. (C) 108 atkv. (0)
Sjálfst.fl. (D) 642 atkv. (4)
Úrslitin 1950:
Alþýðufl. (A) 695 atkv. (4)
Sósíalistafl. (B) 147 atkv. (1)
Sjáifst.fl. (D) 585 atkv. (4)
Sauðárkrókur.
Á Sauðárkróki jók Framsókn-
(Framhald á 7. síðu).