Dagur - 17.03.1954, Blaðsíða 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 17. marz 1S54
DAGUR
Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Erlingur Davíðsson.
Skrifstofa f Hafnarstræti 88 — Sími 1166
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi.
Árgangurinn kostar kr. 50.00.
Gjalddagi er 1. júlí.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Fjárþörf Akureyrar og lánastefna
Utvegsbankans
UPPLÝSINGAR ÞÆR, sem birtar voru í' síð-
asta tbl. um peningamálastefnu Útvegsbankans
gagnvart þessu byggðarlagi hafa vakið almenna
furðu og gremju. Það er öllum ljóst, að stjórn Út-
vegsbankans rekur allt aðra stefnu gagnvart Ak-
ureyri og nálægum héruðum en öðrum landshlut-
um. Þrír kaupstaðir úti á landi hafa milljónatugi
að láni frá aðalbankastofnuninni til alls konar at-
vinnureksturs og framkvæmda, auk þess fjár, sem
heimamenn eiga á sparisjóðsreikningum. Hér er
aftui' á móti svo um hnútana búið, að á þriðju
milljón króna skortir á ,að sparifjárinnstæðan sé í
útlánum og er það fé geymt í aðalbankanum í
Reykjavík og ráðstafað þar, en enginn eyrir kem-
ur hingað norður af fjármagni aðalbankans. Er nú
að furða, þótt þröngt sé hér á lánsfjármarkaði
þegar annar stærsti banki landsins rekur slíka
stefnu? Ef hér ríkti sambærilegt ástand og annars
staðar, væru milljónatugir af fé þessa banka í út-
lánum til útvegsmanna og atvinnurekenda héríbæ
og nærliggjandi héruðum umfram það sem nú er.
UM ÞESSAR MUNDIR leitar Akureyrarbær
eftir stórlánum til þess að hrinda áleiðis fram-
kvæmdamálum, sem mikla þýðingu hafa fyrir
framtíð bæjarfélagsins. Bærinn hefur sent Fram-
kvæmdabanka fslands erindi um margra milljón
króna lán til þess að koma upp hér dráttarbraut
fyrir togara og hraðfrystihúsi fyrir útgerðina. Um
undirtektir þar syðra er ekki fullkunnugt, en
ólíklegt er þó, að allt það fé, sem til þarf, verði
sótt í þann banka. Mun bankastjórninni og vafa-
laust fullkunnugt um, að til er bankastofnun hér
nyrðra, sem vel má anna þessari lánveitingu, þar
sem er útibú Útvegsbanka fslands hér á staðnum.
Fari svo, að Framkvæmdabankinn synji lán-
beiðni Akureyrarbæjar að einhverju eða öllu
leyti virðist sjálfsagt að bæjarstjórnin fari
þess á leit við Útvegsbankann að hann láni
þær milljónir, sem hér er þörf á. Synjun á
slíkri beiðni getur ekki verið reist á f járskorti,
heldur hlýtur hún að skoðast staðfesting á
þeirri fjárflóttasfefnu, sem bankinn rekur
hér í þessu byggðarlagi.
t
I NÝLEÐNUM bæjarstjómarkosningum lýstu
Sjálfstæðismenn fylgi við byggingu hraðfrysti-
húss og dráttarbrautar. Á Alþingi hafa þeir hvað
eftir annað flaggað með tillögum um ýmiss konar
rannsóknir til þess að stuðla að jafnvægi í byggð
landsins. Nú stendur svo á, að engrar rannsóknar
er þörf á því, að þau tvö fyrirtæki, sem hér hafa
verið nefnd, eru hið mesta nauðsynjamál fyrir
byggðina hér, né heldur er þörf nokkurrar þing-
legrar rannsóknar á reikningum Útvegsbankans
til þess að sjá, að lánveiting af þessu tagi er vel
fær fyrir bankann og væri auk heldur ekkert ann-
að en leiðrétting á herfilegu misrétti, sem stefna
bankastjórnarinnar hefur skapað á liðnum árum.
Nú hagar svo til að Sjálfstæðismenn stjórna
þessum banka. Tveir af þremur bankastjór-
um aðalbankans eru Sjálfstæðismenn, svo og
útibússtjórinn hér. Og þó eru yfirráð, Sjálf-
stæðisflokksins tryggari en
þetta: Þrír af fimm banka- j
ráðsmönnum Útvegsbankans j
eru Sjálfstæðismenn.
FJÁRÞÖRF Akureyrar nú er
hæfilegt tilefni fyrir almenning
að kanna, hvað býr að baki yfir-
lýsingar Sjálfstæðisflokksins um
stuðning við þau málefni tvö, sem
hér eru nú efst á dagskrá, og
hvert hald er í tillögunum um
jafnvægi í byggð landsins. — Ef
flokkurinn vill vera sjálfum sér
samkvæmur, á hann að krefjast
þess af bankaráðsmönnum sínum
j og bankastjórum að þeir- leggi
j fram þær milljónir, sem hér er
þörf á, með viðráðanlegum kjör-
um. Stefna Sjálfstæðismanna í
bankastjórn Útvegsbankans hef-
ur að undanförnu beinlínis verið
fjandsamleg hagsmunum þessa
byggðarlags. Nú er tækifæri fyr-
ir þá til þess að leiðrétta herfilegt
misrétti og bæta fyrir gamlar
syndir. Fólkið í bæ og grennd
mun fylgjast vel með því, hvort
iðrunin verður einlæg.
Hvernig standa kartöflu-
sölumálin?
Bóndi skrifar blaðinu á þessa
leið:
„EFTIR ÞVÍ sem menn vita
bezt um kartöfluframleiðsluna í
haust sem leið var hún 120—150
þús. tunnur. Og eru þá einungis
taldar úrvalskartöflur og 1. fl.
kartöflur. Þetta magn kartaflna
var þegar í haust sýnt að yrði
örðugt að selja á innlendum
markaði. Þrátt fyrir það hafa lé-
legar kartöflur verið á boðstólum
bæði á veitingastöðum, öðrum
opinberum stöðum og í heima-
húsum.
Alls staðar þar, sem vondar
kartöflur eru á boðstólum, er lít-
ils af þeim neytt, og er það und-
arleg sparsemi í þessu kartöflu-
ári, að nokkurs staðar skuli aðrar
en úrvalskartöflur og 1. fl. kar-
töflur vera á borð bornar. 2. fl.
kartöflur og enn verri kartöflur
ættu engir að leggja sér til munns
á þessum vetri.
SUNNAN og suðvestanlands
eru nú á markaðinum 40 þús.
tunnur. Norðan og norðaustan-
lands eru 23. þús. tunnur, eða
samtals ca. 60—70 þús. tunnur af
úrvalskartöflum og 1. fl. kartöfl-
um.
Þeir, sem gerzt mega um þessi
mál vita segja, að um helmingur
þessa magns muni seljast þar til
um mánaðamót júlí—ágúst, eða
þangað til nýjar kartöflur koma
á markaðinn. Það er því ljóst að
30—35 þúsund tunnur af góðum
kartöflum verða óseldar þá fyrir
utan aðrar kartöflur sem lélegri
eru. Spurningin er þá: Hvað á að
gera við þennan hluta, sem ekki
selzt? Það eitt er víst, að séu þær
geymdar til sumarsins, verða þær
engum að gagni. Er þá í fyrsta
lagi sú leiðin til, sem er að vísu
sjálfsögð, en mun þó ekki reynast
nægileg, að borða eins mikið af
þeim og framast er hægt. Það ætti
að vera sjálfsögð venja allra
heimila að hafa tvisvar á dag góð-
ar, nýsoðnar kartöflur á borðum.
Þetta gera margir, en það ættu
sem flestir að gera. 1 öðru lagi
ættum við að læra það sem mörg-
um finnst víst ennþá fráleitt, en
það er að borða kjöt og fisk með
kartöflum í staðinn fyrir að borða
kartöflur með kjöti og fiski. Með
því endist kjötið lengur í land-
inu og gengur fljótar á kartöflu-
birgðirnar. Hvort tveggja er nú
nauðsynlegt og hagfræðilega rétt,
svo einfalt sem það er.
MIKILL ÁRÓÐUR hefur verið
rekinn fyrir aukinni neyzlu kar-
taflna og með nokkrum árangri.
Samt má ganga út frá því sem
vísu, að fyrrgreindar tölur munu
láta nærri um afganginn.
Það virðist nú vera skársta
ráðið að nota þær til fóðurs í vet-
ur. Með því móti ættu framleið-
endur að fá sem svarar 50 aurum
fyrir kílóið, miðað við annað fóð-
ur. Handa 2ja mánaða kálfum og
eldri má nota þær verulega. All-
ir vita, hve gott er að gefa þær
mjólkurkúm. í því sambandi má
minna á, að næsta sumar verður
kjötskortur í landinu. Markaður
fyrir gott kjöt ætti því að vera
alveg öruggur. Til hliðsjónar við
fóðrunina má reikna með að ca.
4—5 kg. af kartöflum þurfi í eina
fóðureiningu, eða jafngildi sem
næst 1 kg. af fóðurblöndu. Efna-
samsetning kartaflna er að vísu
allt önnur en fóðurblöndunnar og
verður því að taka tillit til þess
við fóðrunina. T. d. þurfa há-
mjólka kýr að fá síldar- eða
karfamjöl með kartöflunum, svo
að þetta aukafóður komi að full-
um notum.“
r
Olafur Hvannda]
75 ára
Síðastl. mánudag varð Ólafur
J. Hvanndal prentmyndameistari
í Reykjavík 75 ára. Ólafur er
brautryðjandi í prentmyndagerð
hér á landi og á sú iðngrein nú
35 ára afmæli hér. Fyrir fáum ár-
um réðist Ólafur í að flytja
prentmyndagerð sína hingað
norður og starfrækti hana hér í
nokkur ár. Kynntust Eyfirðingar
þá Ólafi Hvanndal og varð hann
hér á skömmum tíma sérlega
vinsæll og vel metinn. Hlaut svo
að fara, því að Ólafur er ljúf-
menni hið mesta og góðmenni og
auk þess prýðilegum gáfum
gæddur, hugsjónamaður og bar-
dagamaður, þegar góðum málum
er þörf á liðsinni. Því miður fór
svo, að þessi merkilega tilraun til
þess að reka prentmyndagerð hér
nyrðra, tókst ekki og varð Ólafur
að hverfa suður aftur. Var að því
skaði fyrir bæ og hérað og marg-
ir sakna nú ekki aðeins prent-
myndagerðarinnar heldur einnig
öðlingsmannsins, er henni veitti
forstöðu. í þeim flokki eru starfs-
menn þessa blaðs, sem jafnan
áttu ánægjuleg samskipti við
Hvanndal og fyrirtæki hans. —
Dagur tekur því undir með þeim
mörgu, sem senda Ólafi Hvann-
dal árnaðaróskir á þessum tíma-
mótum í ævi hans og þakka hon-
um löng og góð kynni.
Hestar
Nokkrir hestar til sölu.
Sumir vanir drætti.
Afgr. vísar á.
HtS-íji'KHí-i'W'-:;K©'K;K®'K,KÍ'yKK©'KW'í5-KC-')-©'KVS-©
■ VALD. V. SNÆVARR: |
| Þegar þysinn hljóðnar. |
„En svo bar við, cr hann var li stað nokkrum ^
að biðjast fyrir, að einn af lœrisveinum hans ♦
r sagði við hann, j>á er hann var hcettur: Herra, jr
’ kenn þú oss að biðja ..."
i Lúk. 11, 1.
„Herra, kenn þú oss að biðja!" — BJessaður sé
lœrisveinninn ónafngreindi, er sagði þessi orð!
§ Þau virðast hafa orðið til þcss, að Jesús kenndi
% þeim brenina „Faðir vor." — .Sií becn cr numin
^ af vörum Jesú sjtilfs. Hún er þvi cilt af hcilög-
ustu hjartablöðum lirislinnar trúar. Hana lecrð-
um vér i fyrstu bernsku, og þakklát megum vér
vera þeim, er kenndu oss hana. — Vér höfum
öll haft hana oft sinnis yfir síðan þá. Stundurn
höfum vér fyilst friði og unaði, cr vér fórum
með hana, en stundum hefir hinsvegar ekkert
gjörzt i sáJum vorum. Hvernig stcndur á þvi?
Leilum orsakarinnar hjá oss sjálfum. — Þegar
^ ekkert hefir gjörzt, hefir hugurinn sennilega
verið margskiþlur, — tvistraður, — og hjartað
<5 ekki „slegið undir.“ Asigkomulag vort hcfir verið
á þá lund, að erfitt er að hugsa sér að nokJiuð
© hcfði getað gjörzt. Athugum það nánar. — Iivað
% gjörðir þú, þegar þú varst ungur, og þig sár-
^ Jangaði liJ einhvers, sem þú vissir að mamma
t. P'n Sat Sfört fyrir þig? Kallaðir þú halt og ^
kœruleysislega til hennar og mœltist lil að hún ®
iy gjörði þetta samstundis? Nei, það gjörðir þú
T ckki. Þú komst til hennar, lagðir hendurnar um
§ liáls lienni, mccJtir lil hennar bJíðum áslúðar-
orðum og stundir svo becn hjartans uþþ. Þú
© vissir sem var, að kœrJeikurinn og hjartahJýjan
^ er lykillinn að móðurhjartanu. — En — nú veizlu
lilia, að Guð er kœrleikur (I. Jóh. 4, 16). Viljir
£ þú því að eitthvað gjörist, þegar þú berð bœn
? þina fram fyrir hann, þá skaJtu gjöra það i sama
j- hugarfari eins og þegar þú baðst mömmu þína
k um það, sem hjarta þitt girntist þá. Hjartahili,
® kœrJeikur og innileiki þarf að einkenna bœn
ý þina til Itimneska föðurins, engu síður en jarð-
f nesku móðurinnar. — Er það svo erfittf Finnst
Z þér það? Viltu ekki minnast þess, að samkvœmt
skýlausum orðum Jesú er Guð faðir þinn, og þú
crl lilla, breyzka barnið hans. Rcyndu j)ví að
krjúþa á kné og hugsa þér, að þú sért að riálgast
föðurknén. Reyndu og að lyltja lófum. Getur
það ekki minnt þig á, að þú sért að leggja arm-
ana um háls himneslia föðurins, — liaJJir höfð-
inu að brjósti hans og hvislir alhuga ban þinni
i ejru honum, eins og niömmu forðum daga?
— Ómögulegt. Of barnalegt, kannl þú að segja.
Máske — en minnstu samt þess, sem Jesús sagði
um barnslega hugarfarið. — Það skyldi þó aldrei
vera, að það sé einmitt barnslega hugarfarið,
sem oss vantar i been og kirkjulifið nú á dögum?
© — Herra, kenn þú oss að biðja! — Gjör oss, ís-
% Jendinga, að biðjandi þjóð. — Þá gjörist eitt-
hvað! —
Te hressir ekki síður en kaffi
Hækkun kaffiverðsins verður efalaust til þess, að
varlegar verður nú farið með sopann í mörgum
heimilum, en einmitt þess vegna er ástæða til að
minna á, að bolli af góðu tei hressir ekkert síður en
kaffibollinn. En þess ber þó vel að gæta, að hér er
átt við vel lagað te, en ekki það gutl, sem hér á
landi gengur undir nafninu „tevatn“ og lýsir
drykknum mæta vel. Engu minni vandi er að gera
gott te en gott kaffi.
------o------ f
Rétt er að setja te þegar í loftþétta dós til geymslu
en geyma það ekki í pakkanum einum eftir að
hann hefur verið opnaður. Te er mjög viðkvæmt
og tekur til sín lykt af annarlegum efnum eins og
t. d. smjör. Te þarf að búa til í góðum tepotti úr
leir. Fyrst á að skola pottinn vel með heitu vatni
og gæta þess ,að potturinn sé sjálfur orðinn vel
heitur áður en tegerðin hefst. Fyrir hvern bolla
af te, sem drekka skal, reiknast ein teskeið af te-
laufum í pottinn. Þegar hellt er upp á teketilinn
þarf vatnið að vera sjóðandi, en má ekki hafa soðið
lengi heldur á að hella upp á um leið og suðan kem-
Framhald á bls. 7.