Dagur - 26.05.1954, Blaðsíða 1
XXXVII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 26. maí 1954
25. tbl.
Barnakór Akureyrar, hópuriim scm fcr í söngför lil Noregs 12. júní
n.k. f aftari röð, fyrir miðju, er söngstjórinn, Björgvin Jörgensson.
Barnakór Ákureyrar heldur fil
i
Kórinn syHgur hér á Akureyri á morguii
Noregsför Barnakórs Akur
eyrar hefur fyrir nokkru verið
endanlega ráðin.
Fer kórinn til Osló 12. júní
næstk., með millilandaflugvél
Flugfélags íslands, og heldur
þegar með næturlest til Álasunds.
Þar mun kórinn syngja tvisvar
opinberlega. En eins og kunnugt
er, hefur Álasund, vinabær Ak-
ureyrar, greitt mjög fyrir komu
kórsins, og er hugmyndin um
söngförina þaðan komin. Frá
Álasundi verður haldið til Bergen
og sungið þar, síðan til Osló og
einnig þar verðúr sungið. En síð-
an verður farið heim með flug-
vél 27. júní. Auk söngstjórans,
Björgvins Jörgenssonar, verða
aðrir kennarar með í förinni, til
aðstoðar og eftirlits.
Kórinn hefur æft af kappi að
undanförnu og gefst nú bæjarbú-
um kostur á að hlusta á hann á
morgun. Syngur kórinn í Nýja-
Bíó kl. 3 síðdegis. Þar koma fram
tveir einsöngvarar: Anna G.
Jónasdóttir og Arngrímur B. Jó-
hannsson. Kórinn söng í sl. viku
í Húsavík við góða aðsókn og
undirtektir. Um næstu helgi mun
.kórinn syngja í Dalvík (á laugar-
dag) og á Sauðárkróki (á sunnu-
dag). Þá mun kórinn syngja á
Akranesi á leið sinni suður, en í
Reykjavík að lokinni Noregsför-
inni.
Milljc kr. skuldabréfa-
lán til sundlaugarinnar
Bæjarstjórn samþykkti í gær
að 3ja manna bygginganefnd
skyldi taka við stjórn frarn-
kvæmda við nýbyggingu sund-
stæðisins, 2 kjörnir af bæjar-
stjórn og 1 af ÍBA. Jafnframt
að boðið skyldi út milljón kr.
lón á ábyrgð bæjarins, til 8 ára
með 7% vöxtum. Framkvæmd-
um á að Ijúka á næsta ári. Bæj-
areíjórn kaus af sinni hálfu þá
Jón Sólnes og Guðm. Gúð-
laugsson í nefndina.
Enn skortir nokkuð á að kórinn
hafi aflað sér nægilegs farareyris.
Hefur verið efnt til happdrættis
til ágóða fyrir söngförina. Munu
börnin bjóða bæjarbúum þessa
miða í síðasta sinn í dag, á morg-
pn verður dregið. Er þess vænst,
að sem flestir kaupi nú miða.
Hópferð í Þjóðleikhús
og á fimisku iðnsýn-
inguna
Ferðaskrifstofan hér gengst
fyrir hópferð til Reykjavíkur um
næstu helgi og verður farið héðan
með svefnvagninum á föstudags-
kvöld. í Reykjavík verður farið
í Þjóðleikhúsið til að sjá óper-
ettuna Nitouch, og á finnsku
íðnsýninguna. Haldið verður
heim með svefnvagninum á
sunudag og komið við á Akranesi
og horft á knattspyrnukappleik í
milli Akurnesinga og úrvalsliðs
frá Hamborg, sem gistir ísland
þessa dagana.
Verkfall. .Prentárar hafa boðað
Verkfall frá 1. júní n.k., ef samn-
ingar hafa þá ekki tekizt. Olíklegt
var talið í gær að samningar næð-
ust fyrir rnánaðamót.
í skógrækfar-
ferðum hér s. I. laugardag
Fyrstu gróðursetningarferðir Þá verður gróðursett í Vaðlaskógi
Vegleg vígsluathöfn í Gufunesi s. 1.
langardag, er áhurðarverksmiðj an
tók formlega til starfa
Skógræktarfélags Eyfirðinga og
U. M. S. E. í vor voru famar
laugard. 22. þ. m. Var þá gróður-
sett í þremur skógarreitum sam-
tímis. Þátttakendur voru alls 113
og voru gróðursettar 5300 trjá-
plöntur. í Kjarnaskógi er búið að
gróðursetja 8000 plöntur, og er
næsta ferð þangað á morgun
(uppstigningardag) kl. 7,20 e. h.
frá Hótel KEA.
Breytt áætlun um næstu helgi.
Vegna aðalfundar KEA verður
sú breyting á, að næstu sam-
vinnuferðir verða sunnudaginn
30. þ. m. í stað laugard. 29. Verð-
ur þá mætt á vinnustað kl. 2 e. h.
(gegnt Akureyri), Miðhálsstöð-
um í Öxnadal og Hvammi í Arn-
neshreppi. Þessar ferðir verða
tileinkaðar minningu Þorsteins
Þorsteinssonar, og verður þá
byrjað að gróðursetja í sérstakan
reit til minningar um hann að
Miðhálsstöðum í Öxnadal.
Gert er ráð fyrir þátttöku í
Vaðlaskóg frá Svalbarðsströnd,
Öngulsstaðahr., Saurbæjar- og
Hrafnagilshr., að Miðhálsstöðum
frá Akureyri, Glæsibæjar- og
Öxnadalshr. og að Hvammi frá
Arnarneshr., Árskógsstr. og
Svarfaðardal.
Frá Akureyri verður farið kl.
3,20 e. h. frá Hótel KEA.
Um þessar mundir getur að líta
hér á Akureyrargötum bifreiðir
hlaðnar Kjarna-áburði frá Áburð
arverksmiðjimni, á leið til hér-
aðsins, þar sem íslenzkur tilbúinn
áburður verður í fyrsta sinn bor-
inn á ræktarlönd bænda.
Þessi saga er nú að gerast í öll-
um héruðum landsins, og eru
þetta hin merkustu tímamót í
sögu íslenzks landbúnaðar.
Vígsla í Gufunesi.
Þeirra var og minnst með veg-
legri vígsluathöfn í Gufunesi sl.
laugardag. Er nú talið að áburð-
arverksmiðjan hafi starfað
reynsluskeið sitt og sé tekin til
starfa af fullum krafti og með
fullum afköstum. Við athöfnina
var fjöldi gesta, m. a. forseti ís-
lands og forsetafrúin, ráðherrar,
forustumenn búnaðarsamtakanna
og margir fleiri.
Hornsteinn lagður.
Vilhjálmur Þór forstjóri, for-
maður verksmiðjustjórnarinnar,
bauð gesti velkomna og sérstak-
lega forseta íslands, sem kominn
Var til þess að leggja hornstein
verksmiðjunnar. Las forstjórinn
því næst skjal það, sem lagt var
í hornsteininn, en þar er rakin
saga málsins og lýst verksmiðj-
unni. Eftir að forsetinn hafði lagt
hólk, með skjalinu í, í hornstein
verksmiðjunnar, o£ komið honum
fyrir, flutti hann ávarp.
Ávarp forseta.
Hann minnti á, að lagning
hornsteinsins væri nú orðin tákn-
leg aðeins og færi ekki illa á því
að vígsla slíkra fyrirtækja færi
þá fyrst fram, er sýnt væri að hið
margþætta kerfi starfar á þann
hátt, sem til er ætlast. í ræðu
sinni komst forseti íslands m. a.
svo að orði:
Vér erum fámenn þjóð
og völdum ekki hinum stærstu
verkefnum, nema allir leggi sam-
an. „Sterkur fór um veg, þá var
steini þungum lokuð leið fyrir;
ráð at hann kunni, þó ríkur sé, og
hefðu þrír um þokað.“ Það eru
samtök allrar þjóðarinnar, sem
hafa þokað þessu verksmiðju-
máli áfram þangað „þar sem nú
stöndum vér“. Sá, sem ekki hefur
komið hér tvö síðustu árin mun
varla þekkja Gufunesið aftur
fyrir sama stað. Slík afköst í
byggingariðnaði hafa ekki þekkzt
áður hér á landi.
Að vísu er forsagan löng og
margir ágætir forustumenn, sem
ég skal hvorki nefni né gera upp
á milli, en það eru einhuga sam-
tök þjóðarinnar á Alþingi, sem
hafa reist þessa stofnun til hags-
bóta fyrir landbúnað og þjóðar-
heild. Það, sem hér er unnið fyr-
ir eina stétt, kemur öllum að not-
um.... “
Áburður á 650 dagsláttur á
einuin sólarhring.
f ræðu sinni rakti formaður
verksmið just j órnarinnar, Vil-
hjálmur Þór, sögu byggingamáls-
ins og minnti á, að það hefði ver-
ið föstudaginn fyrstan í sumri
fyrir tveimur árum, að grasrót-
inni á lóð verksmiðjunnar hefði
fyrst verið hreyft, er Hermann
(Framhald á 8. síðu).
Óstaðfestar fregnir úr Rvík
í gær herindu, að búið væri að
undirrifa endanlega samkomu-
lag það um breytingar á her-
varnasáttmála fslands og
Bandaríkjanna, sem varð í milli
fulítrúa ríkisstjórna landanna í
vetur. Ilefur orðið verulegur
dráttur á því að staðfesting
samkomulagsins kæmi frá
Bandaríkjastjórn, en sam-
kvæmt þessurn fregnum er
þeirri bið nú lokið. Mun vera
von á tilkynningu um staðfest-
inguna og meginefni breyting-
anna í kvöld, að því þessar
fregnir herma. Talið er og, að
meginefni breytinganna sé
stóraukin einangrun herliðsins
frá því sem verið hefur, fram-
kvæmdir á Keílavíkurflugvelli
nuinu miklu mcira en hingað til
í höndum íslenzkra verktaka og
ílamiltonfélagið mun brátt
hverfa úr Iandi með allt sitt
starfslið.
Það var fyrir forgöngu Fram-
sóknarflokksins, sem hafizt
var handa um að koma bctri
skipan á skipti íslendinga og
varnarliðsins og hefur utanrík-
isráðherra, dr. Kristinn Guð-
mundsson, unnið markvisst að
lausn málsins. Nánar verður
urn þau mál rætt, er fregn þessi
verður opinberlega staðfcst.
Leggja til að Sjöstjarm
an h.f., Sólnes h.f. og
Sæfinnur h.f. fái at-
vimmbótaféð
Félagsmálaráðuneytið hefur
tilkynnt Akureyrarbæ, að honum
standi til boða 100 þús. kr. í ár af
atvinnuaukningarfé ríkisins — að
láni. Á sl. ári fékkst hingað svip-
úð upphæð til þurrktrana nokk-
urra útvegsmanna. Þá hefur
skipið Auður fengið að láni úr
sama sjóði 150 þús. kr. Bæjarráð
’ 'V
hefur nú lagt til, að ríkið láni
þessa upphæð hlutafélögunum
Sjöstjörnunni h.f., Sólnes h.f. og
Sæfinni h.f., og skiptist hún jafnt
milli þeirra.