Dagur


Dagur - 02.06.1954, Qupperneq 8

Dagur - 02.06.1954, Qupperneq 8
8 Baguk Miðvikudaginn 2. júní 1954 Smásöluverð KEA á mörgum nauðsynja- © vörum lægra en meðalverð í Reykjavík Fróðlegar upplýsingar birtar á aðalfundi KEA í sl. viku Á aðalfundi KEA í sl. viku voru birtar fróðlegar upplýsingar um smásöluverð á nokkrum tegund- um nauðsynjavöru hjá félaginu og til samanburðar meðalverð hjá verzlunum í Reykjavík á sömu Ritið birti eftirfarandi samanburð á verðlaginu: 1. apríl: I. júlf: 1. september: 1. október: VerS MeSalv. Verð MeSalv. VerS MeSalv. VerS MeSalv. iKEA i Rvik iKEA i Rvik iKEA i Rvik i KEA i Rvik Hveiti 2.80 3.12 2.80 3.14 2.80 3.15 2.90 3.21 Rúgmjöl 3.00 3.00 2.85 2.98 2.30 2.89 2.20 2.74 Hafragrjón .... 3.10 3.36 3.10 3.29 3.10 3.28 3.10 3.27 Strásykur 3.50 3.43 3.15 3.36 3.15 3.47 3.15 3.49 Molasykur 4.80 4.69 4.40 4.53 4.40 4.31 4.40 4.22 Púðursykur .... 3.70 5.13 3.20 4.52 3.10 4.19 3.10 3.91 Sagó 5.15 6.29 5.15 6.22 5.10 5.95 5.10 5.88 Kartöflumjöl ... 4.40 4.94 4.40 «4.89 4.15 4.75 4.15 4.71 Hrísgrjón 6.70 6.33 6.70 6.33 6.38 6.70 6.22 Kandís 5.50 6.48 5.50 6.45 5.25 6.54 5.25 6.02 Kaffi, óbrennt .. 25.90 26.61 26.00 26.99 26.00 27.02 26.00 27.06 Baunir 5.40 5.76 5.25 5.58 5.25 5.52 5.25 5.52 vörutegundum, skv. skýrslum verðlagsyfirvaldanna. í Félagstíðindum KEA, sem út komu í vikunni, er og nánar um verðlagið rætt og bent á, að mis- munurinn á verðlaginu hér og syðra á 12 tilteknum vörutegund- um nemi um 300 þúsund kr. spamaði fyrir viðskiptamenn kaupfélagsins, en þegar tekið er tillit til 5% endurgreiðslu, sem aðalfundurinn samþykkti, nemur sparnaðurinn um 420 þúsund kr. á þessum 12 vörutegundum. pyzKur kvikmyndaiefðangur dvel ur hér nyrðra nokkrar vikur Blökkumaður ráðherra í Bandaríkjunum Myndin sýnir (t. v.) J. Ernest Wilkins, sem nýlega var útnefndur aðstoðarverkamálaráðherra í stjórn Eisenhowers i Bandaríkjunum. Wilkins er blökkumaður. T .h. á myndinni er verkam.ráðh. Mitchell. Ekki er allt talið. Þá má benda á, eins og nánar er rætt í ritstjórnargrein blaðsins í dag, að engin önnur skýring er til á því fyrirbæri, að kaupmenn hér á Akureyri selja ýmsar matvörur þeirra í Reykjavík en sú, að hér ræður kaupfélagið mestu um verðlagið og kaupmenn verða að selja á sama verði ef þeir eiga að halda viðskiptunum, og þó tekst þeim það að sjálfsögðu ekki, því á lægra verði en stéttarbræður að félagið endurgreiðir félags- „Arður, sem ekki er greiddur" - nemur 800 þusund kr. á ári! Kom á eigin skipi frá Hamborg Fyrir bæjarstjórnarkosning- arnar í vetur birti blaðið ís- lendingur grein, sem hét: Arð- ur, sem ekki er greiddur. Þar var því haldið fram, að endur- greiðsla kaupfélagsins hér til félagsmanna næmi sáralitlum upphæðum og væri nánast blekking ein að tala um endur- greiðsluna sem þýðingarmik- inn lið í viðskiptum almennings við félagið. Á aðalfundi KEA í sl. viku, voru birtar upplýs- ingar inn hverju hann nemur þessi „arður, sem ekki er greiddur", að sögn íhaldsblaðs þessa. En samkvæmt þeim töl- um nam endurgreiðsla til fé- Erfitt að fá kaupafólk I síðasta blaði auglýsti stúlka, að hún vildi gjarnan komast í kaupavinnu. Átti blaðið að vísa á hana, og varð útkoman sú, að símahringingum úr héraðinu og nærliggjandi héruðum hefur naumast linnt síðan. Segja bændur, að mjög erfitt sé að fá kaupakonur í suniar og mun það valda erfiðleikum á fjölmörgum bæjum. Kaupam. liggja heldur ekki á lausu nú og kvarta bændur yfir, að erfitt sé að fá þá. Virðist þetta bera voít um óvenjumikla atvinnu í þéttbýlinu nú í sumar. lagsmanna KEA á árinu 1953, af viðskiptum ársins 1952 kr. 793.067.20, en mun verða í ár, eftir samþykkt aðalfundarins um endurgreiðsluna, rétt um 800 þúsund krónur. Eða sam- tals á 2 árum kr. 1.600.000.00 eða því sem næst. Nú mætti fs- lendingur upplýsa almenning um, hvar sé niður kominn til- svarandi arður af kaupmanna- verzlmúnni í bænum. Hann er ekki greiddur viðskiptamönn- um þeirra, og eins og sýnt hef- ur verið fram á hér í blaðinu áður, nema skattgreiðslur kaupmanna ekki þeim upp- hæðum, að þar geti verið nema brot af arði af veruleg- um hluta verzlunarinnar í bænum. Hver er þá skýringin á „fátækt máttarstólpanna“, sem mest er látið af fyrir hverjar kosningar? Góður afli við Eyjaf jörð Þorskafli er nú að glæðast við Eyjafjörð. Undanfarna 4 daga hafa flestir eða allir bátar frá Hrísey, Árskógsströnd og Dalvík fengið ágætan afla. Álíta sjó- menn að hér sé um mikla fiski- göngu að ræða. Beituna fá þeir nýja frá Akureyri. mönnum sínum á ári hverju, vegna viðskipta þeirra, upphæðir sem nema hundruðum þúsunda króna. Ný frímerki gefin út Póst- og símamálastjórnin hef- ur gefið út þrjú ný frímerki. Þau voru gefin út 1. júní 1954, með mynd af fyrsta islenzka ráðherr- anum, Hannesi Hafstein. Frímerkin eru gefin út áf tilefni þess, að 1. febrúar 1954, var hálf öld liðin síðan fyrsti íslenzki ráðherrann tók við embætti. Frímerkin eru prentuð hjá Thomas de la Rue & Co., Ltd., London, ramminn teiknaður af Steingrími Guðmundssyni starfs- manni póst- og símamálastjórn- arinnar. Sláttur hafinn í Eyja- firði Grassprettan hefur verið ó- venju ör að undanförnu. Má segja að grasið hafi þotið upp. Bændur munu senn hvað líður hefja sláttinn almennt. Um síðastliðna helgi sló Tryggvi bóndi Ólafsson á Gilsá allstóra nýræktarsléttu vel sprottna. Mörg undanfarin ár hafa ráðu- nautarnir hvatt bændur til að slá snemma. Flestir eru nú farnir að sjá að með því eina móti fæst það afbragðsfóður sem snemm- slegin og vel verkuð taða er og einmitt það fóður sem allir bænd- ur óska eftir. í framkvæmdinni hefur aftur á móti viljað á skorta að þessu atriði sé nægilega fram- fylgt. Reynslan hefur oft orðið sú að bændur hafa ekki undan að slá og hirða og þannig er hætt við að enn verði ef svo fer sem nú horfir með sprettuna. Ætti að hafa þessa reynslu undanfarinna ára hugfasta þegar ákveða skal hvenær hefja skuli heyskapinn. Hér í Akureyrarhöfn liggur nú þýzk 75 lesta snekkja, Meteor frá Bremen, og flutti hún hingað 9 þýzka kvikmyndatökumenn frá fyrirtækinu Roto-film í Hamborg og hyggst þessi leiðangur dvelja hér á íslandi fram eftir sumri og kvikmynda, halda síðan til Fær- eyja og kvikmynda þar, og koma hér aftur með hausti til þess að ná hér haustmyndum af landslagi og atvinnulífi. Leiðangurinn kom við í Fær- eyjum á leiðinni hingað og kvik- myndaði þar. Hafa bíla og allan útbúnað. Snekkjan mun liggja hér í hofn- inni meðan leiðangursmenn kvik- mynda hér í Eyjafirði, í Þingeyj- arsýslu og á austuröræfum, allt til Öskju og Herðubreiðarlinda og jafnvel suður til Vatnajökuls. Á undan leiðangri þessum voru komnir 2 bílar til Reykjavíkur og fóru 2 leiðangursmenn þegar flugleiðis suður á uppstigningar- dagskvöld að sækja þá. Leiðang- urinn hefur með sér allan útbún- að frá Þýzkalandi til viðlegu á fjöllum, tjöld, vistir o. s. frv. Margar myndir ráðgerðar. Tekin verður löng kvikmynd, er á að sýna leiðangurinn í heild sinni, förina frá Hamborg til ís- lands og ferðalagið hér. Þá verða teknar allmargar styttri myndir, er fjalla um ýmis íslenzk efni, svo sem eldfjöll, eldgos og hraun, jökla, æðarvörp og laxár, þjóð- lífsmyndir o. s. frv. Leiðangurs- menn munu þegar hafa ráðið til sín 3 unga drengi úr bænum, er eiga að koma fram í einhverjum af myndum þeim, er þeir hyggj- ast taka. Var undirbúinn á sl. ári. Leiðangur þessi var undirbú- inn á sl. ári, er einn leiðangurs- manna kom hingað og ferðaðist um landið og kynnti sér aðstæð- ur. Ritaði hann síðan leiðbein- ingar um töku myndanna og verður farið eftir þeim. Þegar kvikmyndatökunni hér nyrðra lýkur, seint í næsta mán- uði, mun snekkja Þjóðverjanna sigla til Vestfjarða og þaðan til Reykjavíkur, en þaðan fara þeir landveg austur um sveitir, allt til Öræfa. 10 ára fullveldisaf- mælis íslands minnst 17. júní n. k. Þjóðhátíðarnefnd Akureyrar- bæjar undirbýr nú hátíðahöld vegna 10 ára afmælis fullveldis- ins. Eins og sjá má annars staðar í blaðinu í dag skorar undirbún- ingsnefnd þessi á bæjarbúa að fegra bæinn svo sem unnt er fyrir afmælið. Vonandi verður áskor- un þessari vel tekið því að það er ekki nóg að eiga góða undir- búningsnefnd. Hennar verk verða lítil ef ekki er fyrir hendi áhugi og skilningur bæjarbúa. Skal það að vísu ekki dregið í efa að Ak- ureyringar muni gjarnan vilja. minnast þessa afmælis svo sem vert er og höfuðstað Norðurlands er samboðið. En hinu mega menn þá ekki gleyma að hefja í tíma lagfæringar og snyrtingu húsa, lóða og girðinga, hver hjá sér. Skal sérstaklega undirstrika þá áskorun þjóðhátíðanefndar að full nauðsyn er á að mála ýms hús í miðbænum og við Ráðhús- torg. Komið gæti til mála að nota einhverja hina. njiju handhægu mólningu ef með því mætti fegra miðbæinn fyrir hátíðina.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.