Dagur - 21.07.1954, Blaðsíða 8
8
Bagub
Miðvikudaginn 21. júlí 1954
r
I
íslenclingar enn hæstir Norðurlandaþjóðanna
sýnmg
leik-
Fréfíir frá aðalfundi Leikfélags Akureyrar
Hreppakeppni í 200 m. sundinu.
Eins og frá var sagt í síðasta
blaði, er nú háð hreppakeppni á
milli hreppanna fjögurra, sem
standa að sundlauginni á Lauga-
landi í Hörgárdal. Reppt er um
bikar, sem Haraldur Sigurðsson
íþróttakennari gaf. En hann hefur
manna lengst kennt sund við þessa
laug.
Um síðustu helgi stóð keppni
þessi þannig, að Oxnadalshreppur
hefur 21%, Glæsibæjarhreppur hef-
ur-14%%, Arnarneshreppur 12%%
og Skriðuhreppur 11%.
Sundlaugin að Laugalandi í
Hörgárdal er nú opin almenningi,
eins og áður hefur verlð auglýst.
Á fjórða hundrað manns hafa nú
þegar synt 200 metrana að Lauga-
landi, og þar með verið þátttakend-
ur í lrinni margumtöluðu samnor-
rænu sundkeppni. En margir munu
þó eiga eftir áð inna af hondum
þessa þegnskýldu, sem bæði er
skemmtileg og líkleg til að gefa
íslandi sigurvonir, ef enginn skerst
r'ir leik.
Belur má, ef duga skal
hér á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum, er ann-
ar sundkennarinn við sundlaugina
hér, Magnús Olafsson, gaf frétta-
manni blaðsins í fyrradag, er þeir
hittust af tilviljun á förnum vegi,
höfðu þá um 800 manns lokið 200
m sundinu í sundlaug bæjarins, en
vitað er um allmarga bæjarbúa, er
innt hafa af höndum þegnskyldu
sína í þessum efnum í sundlaugum
utanbæjar, svo sem um 100 manns,
að því er talið er, í sundlauginúi
að Laugalandi í Hörgárdal. Horfir
því harla þunglega um frammistöðu
okkar Akureyringa í bæjakeppn-
inni við Reykvíkinga og Hafnfirð-
inga, og þar með um skerf okkar til
heildarírammistöðu landsmanna í
samnorrænu sundkeppninni. Þó má
vera, að betur rætist úr þessu en nú
horfir, þegar lengra líður. T. d.
getur hin góða þátttaka og áhugi,
sem komið hefur fram í sambandi
við kvöldnámskeið það í sundi, er
ætlað er kvenfölki hér i bænum,
Rannsóknir á
saltfiskskemmdum
Geir Arnessen hefur á vegum
Fiskifélagsins unnið að rannsókn
um á saltfiskskemmdum um nokk
urt skeið.í grein um þetta í júní-
hefti Ægis segir Geir meðal ann-
ars: „Tjónið af völdum gulunnar,
undanfarin fimm ár, nemur eitt-
hvað á annan tug miljóna. Hér
er því um að raeða eitt af stærri
vandamálum sjávarútvegsins,sem
nauðsynlegt er áð krýfja til
mergjar eins fljótt og auðið er.“
Frumorsök gulunnar í saltfisk-
inum er talin vera sú, að saltið,
þ. e. sumar tegundir þess, eru
mengaðar koparefnum. Kopar-
magnið er hægt að mæla á vís-
indalegan hátt. Þykir sýnt, að salt
það, er þessum efnum er blandað,
hafi valdið hinni margumtöluðu
saltfiskgulu.
Með rannsóknum þessum ætti
árlegu miljónatapi vegna þessara
skemmda á aðalframleiðsluvöru
landsmanna að vera lokið.
bendingu í þá .átt,. en þar tók að
læra sund fjökli kvénna, bæði ung-
ar og fullorðnar, undir leiðsögn frk.
Þórhöllu Þorsteinsdóttur, ÍJirótta-
kennara. Að vísu hefur orðið nokk-
urt uppihald á þessu starfi, því að
frk. Þórhalla kennir nú sund á
Svalbarðsströnd um Jrriggja vikna
skeið. En hún mun taka upp aftur
hina vinsælu kvöldtíma sína fyrir
bæjarkonur eftir næstu helgi.
Enginn góður Akureyringur má
láta sinn hlut eftir liggja að stuðla
að því, að bærinn haldi sóma sín-
um í þessum efnum eins vel og
framast er auðið.
Heildarstaða íslendinga góð.
Af samnorrænu sundkeppninni í
heild eru annars þær fréttir helztar,
að íslendingar virðast, eins og sakir
standa, vera í góðri vígstöðu í
hólmgöngunni við hinar frænd-
þjóðirnar. — Á íslandi er Jiátttakan
þegar orðin meiri en 20%, en mun
minni hjá hinum Jijóðunum, síðast
er fréttist, svo að íslendingar eru
efstir sem stendur, og sigurhorfur
þeirra nokkrar, þrátt fyrir hinn
harla ósanngjarna og óeðlilega
grundvöll, sem keppnin er byggð á
í þetta sinn.
Iðiiaðarbankinn opnar
útibú á Keflavíkur-
flugvelli
Er islenzkum iðnáði meiri
þörf lánsfjárstofnunar á flug-
vellinum, en t. d. hér á Akur-
eyri eða annars staðar á land-
inu, utan Reykjavikurf
' Iðnaðarbanki íslands h. i. hefur
nýskéð opnað útibúáKeflavíkur-
flugvelli í nýjum og veglegum
húsakynnum.
Iðnaðarmönum annars staðar á
landinu fær það furðu, að þessi
staður skuli verða fyrstur fyrir
valinu allra staða á íslandi að fá
slíkt útibú frá aðalbankanum í
Reykjavík, því áð menn höfðu
haldið, áð meiri þörf væri á
lánsfjárstarfsemi vegna iðnaðar-
ins á ýmsum öðrum stöðum en
einmitt þarna, svo sem hér á Ak-
ureyri, sem verður þó að teljast
mikill iðnaðarbær á íslenzkan
mælikvarða, enda er vitað, að
iðnaðarmenn hér hafa lagt fram
fé til þess að koma Iðnaðarbank-
anum á fót. En nú lítur svo út
sem forráðamenn þessarar stofn-
unar í höfuðstaðnum telji flug-
völlinn mikilsverðari og nátengd-
ari ísl. iðnaði en Akureyri og
aðra bæi landsins utan Reykja-
víkur!
Þegar togarinn Kaldbakur hélt
út á veiðar frá Reykjavík aðfara-
nótt s. 1. laugardags, varð þess
vart, þegar komið var út á rúm-
sjó, að einn hásetann vantaði,
Hall Antonsson, ungan pilt héð-
an úr bænum, til heimilis að
Rauðumýri 14. Þegar hvarfsins
varð vart, hélt togarinn þegar til
Vegur fyrir
Ólafsfjarðarmúla
Um þessar mundir er verið að
hefja vegagerð fyrir Ólafsfjarðar-
múla. Jarðýta er fyrir nokkrum
dögum kominn á staðinn og ráð-
gert er að koma veginum að
Ófærugjá í sumar. Það er um 800
metra leið.
Vegalagning fyrir Ólafsfjarðar
múla er mikið hagsmunamál fyrir
Ólafsfirðinga. Unnið verður í
sumar fyrir 50 þúsund krónur.
Norskur verkfræðingur, sem
þar var á dögunum að athuga
vegastæðið, mun enn ekki hafa
skilað áliti sínu, en Dagur hefur
það eftir góðum heimildum, að
hann telji vegalagningu þarna vel
framkvæmanlega.
Skemmtiferðamenn hafa
fundið nýjan stað í Noregi,
sem er nú mjög eftirsóttur —
einkum af brezkum og amer-
ískum ferðalöngum — af all-
óvenjulegum ástæðum. Þorp-
ið heitir nefninlega HELL, en
það orð þýðir, svo sem kunn-
ugt er, helvíti á enska tungu.
Þessi nafngift nægir til þess,
að ferðamenn leggja nú í hóp-
um krók á hala sinn út af hin-
um algengustu ferðamanna-
leiðum annars staðar í álfunni
til þess eins að geta sent til
kunningja sinna hrúgur af
póstkortum með álíka „brönd-
urum“ eins og þessum: Kveðja
frá Helvíti. —Hér er steikj-
andi hiti: — Wish you were
here og öðrum slíkum. Og ef
einhver,sem verið hefur þarna
áður, er spurður til ráða, hvert
farið skuli í sumarleyfinu,
þykir ekki ónýtt að geta sagt:
Go to Hell! — Þorp þetta, sem
er lítill stöðvarbær rétt við
Værnes, flugvöll Þrándheims-
borgar, hefur auðvitað ekki
verið seint á sér að notfæra
sér þessa nýju og óvæntu
frægð á ýmsan hátt. Þar hafa
t. d. verið gefin út póstkort af
járnbrautarstöð bæjarins, þar
sem getur að líta nafnið Hell
með stóru letri, en sölarlagið
varpar eldrauðum logum —
„Vítislogum“ á bygginguna.
Kortið rennur út eins og
smurt brauð, og bæjarmenn í
„Víti“ græða drjúgan skilding
á nafni þorpsins, eftir að því
var veitt athygli og það komst
í móðinn!
Patreksfjarðar og fóru sjópróf
þar fram. — Þegar bláðið fór í
pressuna í gærkvöld,, höfðu
niðurstöður sjóprófsins ekki bor-
izt skrifstofu Útgerðarfélagsins
hér, og vildi hún ekkert láta eftir
sér hafa um málið að svo stöddu,
og eru heimildarmenn blaðsins
því fréttamenn í Reykjavík. ,
Fyrrihluti aðalfunclar Leikfélags
Akureyrar vár haldinn i leikhús-
kjallaranum á Akureyri þann 16.
júli sl. Formaður, frú Sigurjóna
Jakobsdóttir, gaf skýrslu um starf-
setni félagsins á liðnu ári.
Félagið tók til sýningar tvö leik-
rit á árinu. Hið fyrra hét „Fjöl-
skyldan í uppnámi", amerískur
gamanleikur í þýðingu séra Árelí-
usar Níelssonar. Leikstjóri var Guð-
mundur Gunnarsson. Hitt leikritið
var „Skugga-Sveinn“ sr. Matthiasar,
leikstjóri Jón Norðfjörð. Alls voru
sýningarkvökl 31 á Jressum tveimur
leikjum, og sýningargestir ca. 7000.
Auk þessa voru æfð og tekin til
Reikistjarnan Marz var nú
fyrir skemmstu óvenjulega
nærri jörðu, eða „aðeins“ 40
millj. milna. Hefur stjaman
ekki komið svo nærri jörðu á
braút sinni, síðan árið 1941.
Notuðu vísindamenn auðvitað
tækifærið til þess að gera
nýjar og nákvæmari athugan-
ir á þessum nábýlishnetti okk-
ar en áður hefur verið hægt
að gera. — Dr. W. S. Finson,
annar lærðasti stjömufræð-
ingur S. - Afríku vann að
athugunum þessum meðal
fjölda annarra vísindamanna.
Myndir, sem teknar voru við
þetta tækifæri, hafa yfirleitt
tekizt vel, og virðast þær leiða
í ljós, að nokkrar breytingar
hafa orðið á yfirborði stjörn-
unnar síðan 1941, og miklar
skýjamyndanir, sem munu
vera þar sjaldgæfar, sáust, og
- staðfesta þær, að um gufuhvölf
sé þar að ræða. — Dr. Finson
hefur skýrt frá því, að það sé
skoðun sín og ýmissa annarra
stjarnfræðinga, að græni lit-
urinn, sem sums staðar sést á
Marz, stafi af skófum og mosa-
gróðri, en um annan gróður sé
þar vart að ræða, því að æðri
gróður eða líf mundi ekki geta
þolað þær gífurlegu hitasveifl-
ur, sem verða þar daglega.
Flugvél setzt á nýja
flugvöllinn
Á sunnudagskvöldið lenti
tveggja manna Piper Cub flugvél
ó nýja flugvellinum hér innan við
bæinn. Er það önnur vélin, er þar
lendir. Flugvél þessari, sem er
leiguflugvél, flaug Einar Sigurðs-
son frá Reykjavík ásamt ferða-
félaga sínum, fyrst til Sauðár-
króks og svo hingað sl. sunnud:
Héðan flaug Einar austur á Kópa
sker og víðar. Kveðst hann hafa
viljað forða sér frá suðurlands-
rigningunni í nokkra daga.
Það mun nú ekkert einsdæml
vera, að fólk taki sig upp í slík
ferðalög í sumarleyfum sínum,
enda sú leiðin að verða æ fjöl-
farnari, sem um loftin liggur.
flutnings í útvarp leikritin „Johan
Ulfstjærne", sænskur leikur, leik-
stjóri Jón Norðfjörð, og leikritið
„Melkorka" eftir frú Kristínu Sig-
fúsdóttur, leikstjóri Ágúst Kvaran.
Leikíélagið hefur nú stórum bætt
starfsskilyrði sín með Jrví að taka á
leigu hið gamla húsnæði stjórnar
bæjarins, Jr. e. kjallara leikhússins.
Er Jretta, sem kunnugt er, allstórt
húsnæði, og má gera ráð fyrir því,
að J>að rúmi starfsemi Leikfélagsins
fyrst um sinn.
Formaður sagði einnig fréttir af
Jungi Bandalags íslenzkra leikfélaga
og las útdrátt úr fundargerð þings-
ins.
Sigurður Kristjánsson, gjaldkeri,
gaf bráðabirgðaskýrslu um fjárhag
félagsins, og má hann, eftir ástæð-
um, teljast allgóður.
Þá • var gengið til stjórnarkosn-
ingar. Frú Sigurjóna Jakobsdóttir,
sem verið hefur formaður undan-
farin tvö ár, baðst undan endur-
kosningu, og var í hennar stáð kjör-
inn formaður Vignir Guðmunds-
son. Úr stjórn átti að ganga Björn
Þórðarson, ritari, én var endurkjör-
inn, og Júlíus Ingimarsson, bún-
ingastjóri, sem er fjarverandi úr
bænum, og var í hans stað kjörin
frú Sigríður Pálína Jónsdóttir. Aðr-
ir í stjórn eru: Sigurður Kristjáns-
son, gjaldkeri, og Öddur Kristjáns-
son, umsjónarmaður leiktjalda. Jón
Kristinsson var kjörinn varaformað-
ur, og aðrir í varastjórn Björg Bald-
vinsdóttir og Jón Ingimarsson.
í fundarlok Jrökkuðu Jón Ingi-
marsson og Bjiirn Þórðarson, auk
hins nýkjörna formanns, Vignis
Guðmundssonar, fráfarandi for-
manni, frú Sigurjónu Jakobsdóttur,
vel unnin störf í þágu félagsins,
bæði fyrr og síðar. Ennfremur bauð
Björn Þórðarson hinn nýkjörna
formann velkominn til samstarfs.
Frú Sigurjóna [takkaði hlýleg orð
í sinn garð og gott samstarf við
stjórn og meðlimi félagsins og ósk-
aði félaginu allra heilla’í íramtíð-
inni.
Einn á báti í 15 ár
Guðm. Salómonsson frá Bol-
ungavík, sem nú er staddur hér
á Akureyri í stuttri skemmtiferð,
hefur stundað sjósókn frá Bol-
ungavík og róið einn á báti í 15 ár.
Af tilviljun leit’ hann inn á skrif-
stofur Dags nú um helgina og var
hann þá farinn að hugsa til heim-
ferðar. Sagðist honum svo frá, að
4 skip væru á síld frá Bolungar-
vík. Þau eru þessi: Einar Hálf-
dáns, Völusteinn, Heiðrún og
Flosi.
10 trillubátar stunda nú hand-
færaveiðar þar vestra og afla
rrijög vél.'í vétur var sæmilegur
afli og atvinna 'góð í landi. Einar
Guðfinnsson rekur hraðfrystihús
og hefur nú byggingar í smíðum.
'Skapar það-auk annars góða at-
vinnu.
Guðmundur 'Salómonsson mun
oft hafa þurft á þreki og þraut-
seigju að halda uridanfarnar ver-
tíðir. En líklega er það rétt, sem
oft er sagt, að fólki vestur þár sé
ekki fisjað saman.
Heyskapur er nú fyrir stuttu
hafinn í Bolungarvík. ÓJrurkar
hafa valdið því, að svo seint er
byrjað. Spretta er góð.
Sviplegt mannhvarf á Kaldbak
I stuttu máli