Dagur - 05.08.1954, Side 6
6
D A G U R
Fimmtudaginn 5. ágúst 1954
- Eina öryggið er Guð
lengi á eftir — slík kynslóð hefur
þegar dæmt sig sjálf til þess hlut-
skiptis, því að hún hefur, að kalla,
gerþurrkað kærleikann úr fari
sínu og er til þess hæfust, bæti
hún ekki ráð sitt, að verða afmáð
af jörðinni. Sú kynsló'ð, er Icyfir
sér að nota undirstöðukrafta
sjálfrar Sköpunarinnar til eyð-
ingar öllu lífi á stórum svæðum
Jarðar, hefur ögrað Skaparanum
á hátt, sem engin fordæmi eru
fyrir, og hlýtur að framkalla and-
svar, sem er einsdæmi.
Óviðeigandi umræðuefni á
þjóðhátíðardegi — tíu ára afmæli
fullveldisins? Er þá sjálfstæðis-
og þjóð-hátíð íslendinga rétt
haldin í anda sjálfsblekkinga? Á
Fjallkonan að dansa sjálfstæðis-
hátíðardans, drukkin á blábrún
hengiflugsins? Eða á hún að hafa
þá trú — á Föðumum, sem Jesús
Kristur flutti trúna á inn í Mann-
heim, að hún hafi kjark til að
horfast í augu við sannleikann
um aðstöðu sína í heiminum á
tíu-ára-afmæli lýðveldis síns? —
Kjark hins litla barns, sem veit,
að það á Föður — og trúir tak-
markalaust á stóra, góða, sterka
pabba?
Hvað getum vér svo gert, hin
örlitla íslenzka þjóð, sjálfum oss
Og heiminum til lífs og bjargar,
annað en þetta eina: Flýja eins
og lítið barn á náðir vors eilífa
Föður — Skaparans, Viðhaldara
og tilvonandi Fullkomnara lífs-
ins? Trúnaðarmenn þjóðarinnar
hafa látið hana ganga í Atlanz-
hafsbandalagið — látið hana kalla
erlendan her inn í landið. Hér er
hvorki staður né stund til að ræða
stjórnmál. En hér, í helgidómi
þessa byggðarlags, verður að
segja það skýrt og afdráttarlaust
á þessum hátíðisdegi, að stjórn-
málaleiðtogar vorir geta aldrei
með stjórnmálalegum ráðstöfun-
um einum tryggt öryggi þjóðar-
innar né sjálfra okkar — þeir
hafa yfirleitt litla aðstöðu til að
vita, hvað þeir eru raunverulega
að gera með stjórnmálalegum
ráðstöfunum í öryggismálum
þjóðarinnar, enda þótt þeir kom-
ist’illa hjá því að gera þær, og
þjóðin hafi, með vissum aðalvið-
horfum, beint þeim í eina átt
annarri fremur. Hið eina, sem
mennimir og þjóðirnar geta gert,
með óbrigðulli vissu um að vinna
markvisst að raunverulegu ör-
yggi sínu og annarra, er það að
gefa sig allshugar Guði á vald í
nafni Jesú Krists....
Eg veit, að þið, kristnir kirkju-
gestir, eruð mér sammála um, að
„án Guðs náðar er allt vort traust
óstöðugt, veikt og hjálparlaust",
— en þið segið kannski samt sem
svo: Þetta þýðir ekki að segja
fólki yfirleitt — heimurinn þykist
hafa reynt aðferðir Jesú Krists og
trúna á hann í nítján aldir —
með lélegum árangri. —> Við,
kristnir kirkjugestir, vitum bet-
ur: Við vitum, að hættan, sem
heimurinn er í á tíu ára afmælis-
degi hins íslenzka lýðveldis, staf-
ar af því, að trúin á Jesú Krist
hefur aldrei, enn sem komið er,
verið reynd í helgri alvöru af
heilum þjóðfélögum og sízt á síð-
ustu tímum, eftir að unnt er þó
orðið að vinna hið upprunalega
og eilífa úr kredduumbúðunum
betur en áður var hægt. Við vit-
um, að eina skjólið er Guð, og við
vitum, að Jesús Kristur er sá, er
gefur okkur Guð. Og athugum,
að hlífa átti Sódómu, finndust í
henni þó að ekki væru nema tíu
réttlátir!
Þannig mun heiminum verða
hlíft, þó að ekki verði nema lítill
minnihluti, sem biður fyrir hon-
um daglega af öllu hjarta. Og
þannig munu stafa óumræðilegar
heillir af því fyrir þjóð okkar, þó
ekki væri nema þúsund manns,
sem bæði daglega og innilega fyr-
ir henni og heiminum. Og þannig
myndi Akureyri að því óyfirsjá-
anleg blessun, ef fyrir henni og
þjóð okkar og heiminum bæði
daglega og innilega þó ekki væri
stærri hópur en staddur er hér í
kirkjunni núna og það enda þótt
níu tíundu hóps þessa mæltu ekki
nema örfáum bænarorðum dag-
lega í þessu skyni — að eins væri
gert í innilegu, barnslegu trúnað-
artrausti. Það er ekki vika síðan
eg frétti, milliliðalaust, um dá-
samlega ávexti bænarstarfsemi
kristins kærleika hér í þessum
bæ....
Þökkum Guði, bræður og syst-
ur, fyrir allar hinar undursam-
legu gjafir, sem Hann, gjafarinn
allra góðra hluta, hefur gefið þjóð
okkar á umliðinni öld; fyrir. dá-
samlega vernd í heimsstyrjöld-
inni; fyrir allsnægir — ef aðeins
hver þegn vinnur af þjóðholl-
ustu; fyrir uppfyllingu aldalangr-
ar þrár endurheimtar eigin, full-
valda ríkis. Þökkum Guði allt
þetta almennar og innilegar, með
opinberri þátttöku ríkisvaldsins
sjálfs — og játum syndir vorar —
játum, að vér höfum ekki þakkað
Guði sem skyldi. Og biðjum Föð-
urinn almennar og innilegar en
hingað til — með opinberri þátt-
töku ríkisvaldsins sjálfs á „hin-
um almenna bænadegi“ — fyrir
heiminum, þjóð okkar, bæ okkar,
ástvinum okkar, sjálfum okkur.
„Biðjið og yður mun veitast!“
Þeir, sem slíkt gera og þvílíkt,
í nafni Jesú Krists, geta lifað líf-
inu glaðir og reifir, þó að óveð-
urslegt sé allt í kring. Þeir, sem
lifa í trú á Gleðiboðskapinn, eru
glaðir, — einnig í heiminum. Því
Endurlausnarinn kom — ekki til
að niðurbjóta lögmál Skaparans,
Náttúruna, heldur til að full-
komna það — með Heilögum
Anda, — þess að trúa af hjarta á
Föðurinn, gerast bróðir náung-
ans, læra að þekkja af byrjandi
eigin reynd, hvað það er að vera
erfingi — eilífs lífs og allra hluta.
Jesús Kristur kom — til að
stofna guðsríki á jörðinni. Heim-
urinn sýnist ekki vera á þeim
veginum, en — „ekki er allt, sem
sýnist“. — „Mínir vegir eru ekki
yðar vegir,“ segir Drottinn. En —
„veikur maður! hræðstu eigi,
hlýddu;
(hreyk þér eigi, þoldu, stríddu;
FIÐUR
HÁLFDÚNN
ÆÐARDÚNN
Jám- og glervörudeild.
IN N K A U P A-
TÖSKUR
sem hægt er að leggja
saman.
<giþ>
Jára- og glervörudeild.
BER JATÍNUR
BERJAFÖTUR
Járn- og glervörudeild.
N.L.F.A.
Sana sol
Heilhveiti
nýmalað
Rúgmjöl
nýmalað
Bankabygg
nýmalað' i,;..
Hafrar, saxaðir
Hrísgrjón, ópóleruð
Korn „Vitalía“
Grænar baunir
Kandís
Púðursykur
Rúsínur m. steinum
Epla- og
gulróta-mauk
Prikken barnafæða
Þurrger
Hvítlaukur
Hvitlaukstöflur,
2 teg.
Þaramjöl
Þaramjölstöflur
Smáramjöl
Fjallagrös
Jurtate
Lyfjate
Piparmyntute
Hunang.
VÖRUHÚSIÐ H. F.
ÓDÝRT:
Handsápa
kr. 1.00
Tannpasta
kr. 1.00
Tesíur
kr. 1.75
Gúmmístígvél
kr. 10.00
M j ólkurkönnur
3 stærðir, ódýrar
Bollapör
lækkað verð
Niðursuðuglös.
VÖRUHÚSIÐ H. F.
Tómatar
og
Gulrætur
Lækkað verð.
Kjötbúð KEA.
og útibúin.
Hús til sölu
Húsið nr. 97 við Byggðaveg
er til sölu. — Nánari upplýs-
ingar gefur Magnús Péturs-
son, kennari, Vesturgötu 13,
Akureyri,,sími 1540.
LOKAÐ
vegna sumarleyfa
vikuna frá 8. til 15. þ. mán.
Fóllc vinsamlega beðið að
sækja föt sín fyrir þann
tíma.
Fatahreinsun Vigfúsar & Arna
Strandgötu 13 B,
Akureyri.
Gullhringur
tapaðist í Vaglaskógi (senni-
legast í Hótel Brúarlundi)
um síðustu helgi. — Vinn-
andi vinsamlegast beðinn að
skila honum á afgr. Dags.
Armbandsúr úr gulli,
kvenúr, merkt, tapaðist á
mánudagsmorgun á Kaup-
vangstorgi. — Skilist, gegn
fundarlaunum, í Stjörnu-
Apótek.
þú ert strá, en stórt er Drottins
vald.
Hel og fár þér finnst á þínum
vegi, —
fávís maður! vittu: svo er eigi;
hald þér fast í Herrans klæðafald.
Lát svo geysa lögmál fjörs og
nauða,
— lífið hvorki skilur þú né hel;
trúðu: Upp úr djúpi dauða
Drottins rennur fagrahvel."
AMEN.
ÍBÚÐ
óskast til leigu sem fyrst.
Ottó Jónsson.
Sími 1352.
ÍBÚÐ
1—2 herbergi, með eldhúsi,
óskast til leigu sem fyrst.
Afgr. vísar á.
Egils-síld
vilja allir ofaná
brauð.
Kjötbúð KEA.
og útibúin.
Nýff grænmeti:
FIVÍTKÁL
BLÓMKÁL
GULRÆTUR
AGÚRKUR
TÓMATAR
RABARBARI
Kemur nýtt á hverjum
morgni.
KJÖTBÚÐIR KEA
Hafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
Kjötfars
og
Hvífkál
er góður mátúr, ekki sízt
ef það er frá
Kjötbúð KEA.
Nýff hrefnukjöt
Reykf hrefnukjöt
fæst daðlega hjá oss.
Kjötbúð KEA.
og útibúin.
Nýr fiskur
alla daga.
Kjötbúð KEA.
og útibúin.
Dilkakjöf
nýslátrað
kemur í búðirnar
á föstudaginn.
Kjötbúð KEA.
og útibúin.