Dagur - 01.09.1954, Side 7
Miðvikudaginn 1. september 1964
D AGUR
7
- Snorri Sigfússon sjöfugur
- Þing Norðurlanda
ráðsins
(Framhald af 5. síðu).
barnaskólanum myriduðu kirkju-
kórinn. Þessar samkomur voru
sóttar af öllum þorpsbúum sem
áttu þess nokkurn koost.
Auk alls þessa hlóðust á Snorra
margvísleg trúnaðarstörf. Hann
átti sæti í sóknarnefnd í fimmtán
ár, í sáttanefnd í tólf ár, í sýslu-
nefnd 3 ár og var hreppsnefndar-
oddviti í tólf ár. Yfirsíldarmats-
maður á Vestfjörðum var hann í
þrettán ár og umboðsmaður Síld-
areinkasölu ríkisins í tvö ár. Þar
að auki tók hann þátt í alls konar
félagsstarfsemi og innti af hönd-
um margvísleg sjálfboðastörf í
almenningsþágu sem hér yrði of
langt upp að telja.
Allt þetta sýnir ljóslega, hve
óskoraðs trausts almennings
Snorri naut á Flateyri, og það
sýnir einnig fádæma elju hans og
starfsgleði. Hann virtist, eins og
margir eljumenn, ávallt hafa tíma
til alls, hversu mikið sem á þá
er lagt. Oll sín aukastörf mun
Snorri hafa unnið án endurgjalds,
og án þess að ætlast til endur-
gjalds, nema annað væri ákveðið
í lögum.
Það hefur aldrei staðið neinn
styr um Snorra Sigfússon, hann
hefur ávallt verið friðarins mað-
ur og helgað líf sitt og starf einu
höfuðviðfangseíni: uppeldismál-
unum. En það hefur heldur aldrei
verfið kyrrstaða þar sem hann
hefur verið, þar hefur alltaf verið
líf ag gróður og brennandi áhugi
fyrir öllu, sem til heilla gæti
horft. Nú þegar hann er sjötugur
óg lætur af starfi sem opinber
nauðsynlegan léttleika og lipurð
til að umgangast æskuna, þó að
þeir verði að hverfa frá störfum
sakir aldursákvæða laganna.
Einn þcirra manna er Snorri Sig-
fússon, námsstjóri, er lætur af
störfum í haust, sjötugur að aldri,
léttur í lundu, unglegur í hreyf-
ingum sem æskumaður væri og
„brennandi í andanum“. Eg efast
um, að eldur áhugans hafi nokk-
urn tíma brunnið öllu glaðar í
sálu hans en á þessum síðustu ár-
um. Fjör og söngur fylgir honum
sem áður. Starfsgleðin er hin
sama. Kjarkurinn óbilaður. Hitt
er svo annað mál, að starfsork-
an og vinnuafköstin fara máske
þverrandi, og líkamleg þreyta er
ef til vill tekin að gerast tilfinn-
anleg, þó að lítt sjái þess merki
við fljóta yfirsýn. Það skyldi eng-
an kunnugan undra, jafnvel þótt
fyrr hefði verið. Svo lítið hefur
Snorri hlíft sér um dagana og svo
mikið liggur eftir hann. Hann hef
ur verið í þjónustu fræðslum.
a. m. k. samfleytt í 45 ár, ýmist
sem kennari, skólastjóri eða
námsstjóri. Hann hefur hlotið
mikla reynzlu í þessum málum
og djúpstæða þekkingu. En bar-
áttulaus hafa þessi 45 ár ekki ver-
ið. Auk kennslustarfa sinna hefur
Snorri einnig tekið þátt í marg-
þættu félagsstarfi um dagana.
Hann hefur starfað í ungmenna-
félögum bindindisfélögum, verið
í sóknarnefnd, hreppsnefnd o. s.
frv. AJls staðar hef eg heyrt hans
getið sem góðs’ félaga og öflugs
liðsmanns. Aldrei hef eg heyrt
annars getio, en aðalstarf sitt hafi
hann rækt með prýði. þrátt fyrir
(framhald af 1. síðu).
rakinn gangur einstakra mála,
enda hef eg lítillega gert það á
öðrum stað og þingtíðindin verða
prentuð á sínum tíma. En á því,
sem hér hefur verið sagt frá, geta
menn séð, að Norðurlandaráðið
er enginn skemmtiklúbbur, eins
og sumir halda, heldur eru þar
unnin alvarleg störf.
íslendingum vel tekið.
Nokkur fagnaður fór þó fram í
boði Norðmanna enda tó.ku þeir
okkur útlendu fulltrúunum ágæta
vel og ekki hvað sízt okkur ís-
lendingunum. Eitt kvöld var full-
trúunum boðið í Þjóðleikúsið að
sjá „Brúðuheimilið" eftir Ibsen
og á eftir bauð bæjarstjórnin
okkur í hið glæsilega ráðhús
borgarinnar, bæði til að sýna
okkur húsið og þiggja þar nokkr-
ar veitingar. Annað kvöld bauð
ríkisstjórn Noregs til veizlu í
hinum gamla Akershupskastala.
Þennan kastala byggði fyrstur
Hákon 5. háleggur Noregskon-
ungur, d. 1319, en sjálfsagt hefur
kastilinn tekið miklum breyt-
ingum síðan. Sunnudaginn 15.
ágúst var okkur boðið í skemmti-
siglingu út Óslófjörðinn. Er þar
dásamlega fagurt á bæði borð og
að sigla inn Oslófjörð finnst mér
ganga næst því að sigla inn Eyja-
fjörð og er þá langt til jafnað.
Eitt kvöldið buðu og norsku
þingflokkarnir útlendum fulltrú-
um úr hliðstæðum flokkum til
sín, t. d. Vinstri flokkurinn okk-
ur Framsóknarmönnum, Verka-
mannafl. Hannibal Valdimars-
syni og Hægrifl. Sjálfstæðis-
mönnum. Er nú upptalinn sá
mannfagnaður, sem fram fór í
sambandi við þingið, en eins og
menn sjá var hann einungis á
kvöldin, eftir starfstíma og einn
sunnudag og tafði því ekki þing-
störfin.
I. O. O. F. — 136938y2 —
Messað í Akureyrarkirjku kl. 5
e. h. á sunnudaginn kemur. P. S.
Möðruvellir í Hörgárdal. Mess-
að sunnudaginn 5. sept. kl. 2 e. h.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalíi. Hólum, sunnudaginn
5. september kl. 1,30 e. h. —
Möðruvöllum, sama dag kl. 3,30
e. h. — Grund, sunnudaginn 12.
sept. kl. 1,30 e. h.
Hlutaveltu heldur Kvenfélagið
,,Hlíf“ 5. sept. n.k. til ágóða íyrir
starfsemi sína. Væntir félagið,
eins og að undanförnu, alls hins
bezta frá bæjarbúum í viðleitni
félagsins til að afla félaginu
tekna. Nú er verið að stækka
barnaheimilið Pálmholt byggja
leikskóla fyrir börnin, sem óum-
flýjanlegt var, sökum sívaxandi
aðsóknar að dagheimilinu, en sú
viðbótarbygging kostar mikið fé.
Treystum ykkur. Nefndin.
Hjónaband. Þann 26. ágúst voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Borghildur Einarsdóttir hjúkrun-
arkona og Jónas Jónsson kennari
frá Brekknakoti. — Heimili
þeirra er að Hrafnagilsstræti 23,
Akureyri.
Frá Amtsbókasafninu. Vegna
viðgerðar verður safriinu lokað
frá 4. sept. næstk. um óákveðinn
tíma.
Níræð varð Jóhanna Magnús-
dóttir, Norðurgötu 11 hér í bæ,
30. f. m. Er hún enn vel ern og
hefur fótavist.
Kappróðrardrengir. Kappróður
Æ. F. A. K. fer fram seinni part-
inn í þessum mánuði. Þeir dreng-
ir úr yngsta flokki (fermingar-
drengir frá í vor), sem ætla að
taka þátt í róðrinum, eru beðnir
um að mæta við gamla flugskýlið
kl. 2 e. h. á laugardaginn kemur.
embættismaður er hann með tvö
ný verkefni á prjónunum, annað
fyrir æskuna og framtíðina, þvi
að hann hefur ætíð verið æsk-
unnar maður, en það er sparifjár-
söfnun skólabarna sem hann hef-
ur hrundið af stað. Hitt tilheyr-
andi fortíðinni, en handa æsku
nútímans og framtíðarinnar, en
það er byggðasafn Eyjafjarðar.
Eg vona að minn gamli og góði
vinur og fræðari eigi enn langt líf
fyrir höndum, svo að honum
auðnist að sjá ríkulegan ávöxt
. iðju sinnar fyrir bæði þessi
merku hugðarefni sín.
Arngrímur Bjarnason.
—o—
Kennarafylkingin frá árunum
upp úr aldamótunum síðustu er
óðum að þynnast. Skörðin í
brjóstvörnina gerast nú mörg.
Margir þeirra, er þá sóttu fastast
fram, eru nú ýmist horfriir bak
við „tjaldið mikla“ eða orðnir það
aldraðir að þeim er gert að þoka
úr sessi fyrir yngri mönnum.
Marga hefur og vanheilsa gert
óhæfa til kennslu um aldur fram.
En — þó eru enn til menn frá
þeim árum sem hvorki elli né
sjúkleikur, þreyta eða sljóleiki
hefur unnið á. Þeir eiga enn
ófölskvaðan eld áhugans og
þáttttöku hans í félagsstarfi utan
vébanda fræðslumálanna. Það
hefur verið fjarlægt honum að
níðast á nokkru, sem honum hef-
ur verið trúað fyirr. — Snorri
hefur jafnan átt mörg áhugamál,
og unnið að framgangi þeirra eftir
beztu getu. Hann gat ekki látið
það ógert. Hann hefur aldrei
þurft að vekja. Hann hefur sjálf-
ur marga vakið með persónuleg-
um áhrifum, söng og glaðværð.
Söng hefur Snorri unnað alla sína
ævidaga. „Syng mig hjem“, kvað
Bjömsson. Eg gæti vel trúað, að
Snorri hafi oft gert þessi orð að
sínum í ýmsum skilningi. Og hver
veit nema að hans hinzta bæn
verði: „Syng mig heim“?
Vér, aldamótakennararnir, er-
um sælir þess, að eiga Snorra
Sigfússan í hópi vorum. Vér telj-
um oss það til sæmdarauka. Vér
erum þess fullvissir að þegar
skólasaga íslands verður rituð,
muni Snorra þar minnst virðu-
lega. Vér biðjum þess, að hug-
sjónir hans megi sem fyrst kom-
ast í framkvæmd.
Svo árna eg Snorra, vini mín-
um, allra heilla á þessum merku
tímamótum í ævi hans, um leið og
eg þakka honum órofa vináttu. —
Gott ævikveld heiðursmaður!
Vald. V. Snævarr.
Sérstaða íslands.
Á þeim 2 þingum Norðurlanda-
ráðsins, sem haldin hafa verið,
hefur ísland haft sérstöðu og svo
hlýtur að mínu áliti að verða í
framtíðinni, sökum fjarlægðar
landsins og smæðar þjóðarinnar.
Sum þau mál, sem rædd hafa
verið, koma íslandi ekkert við,
eins og t. d. brú yfir Eyrarsund o.
fl. Önnur eru þannig, að eg tel
ólíklegt að ísland vilji eða jafn-
vel geti verið með í sumum þeim
samtökum, sem ráðgerð eru, eins
og t. d. tollabandalagi eða þá um
gagnkvæm atvinnuréttindi og
jafnvel sameiginlegan þegnrétt.
Hins vegar eru mörg mál, sem
ísland getur tekið fullan þátt í til
gagns fyrir íbúa sína, einkum
á sviði félagsmála og menningar-
mála. Þannig hafa tillögur verið
gerðar um gagnkva’man rétt til
trygginga, til skólagöngu o. m. fl.
Að íslenzkir stjórnmálamenn
sitja á þingum Norðurlandaráðs-
ins með félögum sínum frá hinum
Norðurlöndunum, eykur þekk-
ingu þeirra og víðsýni og verður
án efa til að frjófga löggjafar-
starfið hér heima. Einangrun ís-
lands er liðin saga. Við hljótum
að hafa margs konar samskifti
við aðrar þjóðir og verða fyrir
áhrifum frá þeim. Nú á seinni
árum hafa þau áhrif komið mest
frá Ameríku og Bretlandi. Ef við
viljum halda áfram að vera
norræn þjóð, verðum vði að taka
fullan þátt í norrænni samvinnu
og þá einnig með því að vera í
Norðurlandaráðinu.
Hjúskapur. Laugardaginn 28.
ágúst voru gefin saman í hjóna-
band á Möðruvöllum í Hörgár-
dal ungfrú Halla Stefánsdóttir,
Hjalteyri og Páll Þorvaldsson,
járnsmíðanemi, Reykjavík.
75 ára varð þann 29. þ. m. Egg-
ert St. Melstað, fyrrverandi
slökkviliðsstjóri á Akureyri.
Landhelgismálið.
Ályktun sú, sem Norðurlanda-
ráðið gerði um landhelgismál ís-
lands hefur víða verið birt og
þarf ekki að rekja hana. Sum
blöðin telja erindi okkar hafa lítið
orðið í því efni. Það má vera, en
tvímælalaust er þó betur af stað
farið en heima setið. Það er
ávinningur að samúðaryfirlýs-
ingu ráðsins í okkar garð og því
áliti þess, að málið heyri ekki
undir Evrópuráðið, en þangað
vilja andstæðingar okkar einmitt
vísa því, vegna hinnar sterku
andstöðu sinnar þar. Nú fáum við
væntanlega fylgi hinna Norður-
landanna til að hindra að Ev-
rópuráðið taki málið fyrir.
Að lokum skal það aftur tekið
fram, að Norðmenn veittu okkur
öllum hinar ágætustu viðtökur
og okkur fslendingunum alveg
sérstaklega. Það er á öllu auð-
fundið, að þeir telja fslendinga
sína nánustu frændur og vinar-
hugur til íslands virtist hvarvetna
ríkjandi meðal þeirra.
Bernh. Stefánsson.
XX X
NflNKIN
•k.if'k
KHBKI
Axel Kristjánsson h.f. opnar
nýja blaða- og sælgætissölu í
Ráðhústorgi 3, í sambandi við
bókabúðina. Verður hún að því
leyti frábrugðin öðrum blaðasöl-
um bæjarins, að viðskiptavinirnir
Durfa ekki að standa úti á götu á
meðan þeir fá sig afgreidda. Er
ietta mjög til bóta fyrir hina
mörgu er sækja lesefni sitt á
kvöldin í blaðasölur bæjarins.
Kvenfélagið Framtíðin þakkar
bæjarbúum framúrskarandi góða
látttöku í síðsumarshátíð er
haldin var 21. og 22. ágúst síðastl.
Sömuleiðis öllum þeim, er veittu
okkur ómetanlega aðstoð. Ágóð-
inn varð 23.600.00 kr., og rennur
í Elliheimilissjóð. Stjórnin.
Finnbogi Jónsson, póstmeistari
í Hafnarfirði, varð fimmtugur 29.
ágúst síðastliðinn.
Heldur tryggð við
æskustöðvar sínar
Jón Sveinsson, fyrrum bæjar-
stjóri á Akureyri, hefur sýnt
æskustöðvum sínum þá ræktar-
semi að gefa Borgarhreppi hálft
Bakkagerði, að undanskildum
túnbletti og lóð í þorpinu og um
20 ha. af óræktuðu landi. Fer af-
hending eignarinnar fram um
næstu áramót.
Jón Sveinsson fluttist til Borg-
arfjarðar barn að aldri og ólst
þar upp. Hefur hann alla tíð
haldið tryggð við staðinn, svo
sem þessi myndarlega gjöf hans
og konu hans, frú Fanneyjar Jó-
hannesdóttur, ber með sér.
Nýtt jarðyrkjuverkfæri
(Framhald af 1. síðu).
í jörðu, er kominn ofan á og
molnar undan fæti, þegar um er
gengið. Þetta land þarf sýnilega
að herfa með beltisdráttarvél a.
m. k. fyrst. En ef til vill þarf hún
ekki að fara nema eina ferð yfir
strengina, þar til heimilisdráttar-
vélarnar geta tekið við og full-
unnið landið.
Samkvæmt áliti ráðunauta bíða
mörg þúsund hektarar svipaðs
lands, ræktunar hér við Eyja-
fjörð. Mikið land er þegar þurrk-
að með skurðgröfunum. Hin seiga
mýrarjörð hefur verið þyrnir í
auga allra jarðræktarmanna
vegna mikils vinnslukostnaðar.
Auðlegð mýranna er aftur á móti
ótæmandi í samansöfnuðum nær-
ingarefnum. — Með Skærpe-
plóginum virðist versta þröskuld-
inum vera rutt úr vegi við
vinnslu þeirra. Samkvæmt at-
hugun við próf-plægingu í Kálf-
skinni, var hektarinn plægður á
41/2 klukkustund. Má það teljast
með ágætum.
Með hverju ári sem líður, bæt-
ast íslenzkum landbúnaði nýjar,
stórvirkari og fullkomnari vélar
og verkfæri. Fyrsti hektarinn,
sem plægður var með hinum nýja
Skærpeplóg Búnaðarsambands
Eyjafjarðar, gefur vonir um að
enn hafi bændur bætt við véla-
kost sinn ágætu tæki, sem gerir
hina miklu mýrarfláka Eyjafjarð-
ar auðunna.
. Unni<) .ver.ður með Skærpet-
plógnum meðan tíð leyfir í sun\aí-
og haust.