Dagur - 01.09.1954, Blaðsíða 8
8
Bagub
Miðvikudaginn 1. september 1964
Féfagsheiinilið i Saurbæ oær fullbyggl
Leysir húsnæðisvandamál barnaskóla og félaga
sveitarinnar um langa framtíð - Félög og ein-
staklingar leggja fram fé og vinnu - Virðulegir
bændur og Iiúsfreyjur aftur á leiksviðinu?
Byggingu félagsheimilis að
Saurbæ í Eyjafirði er að verða
lokið. Gamla samkomuhúsið að
Saurbæ, sem einnig var að
nokkru leyti notað sem barna-
skóli, var fyrir löngu ófullnægj-
andi og svaraði hvorugu hlut-
verki sínu, svo að viðhlítgndi
væri.
Það mun þó hafa ráðið mestu
um að ráðist var í byggingu fé-
lagsheimilis í Saurbæjarhreppi,
að barnaskóli sveitarinnar var á
hrakhólum. En öll félög sveitar-
innar, sem húsnæðis þurftu,
lögðu fram fé og fyrirhöfn.
Gamalt og nýtt sameinað.
Gamla samkomuhúsið, sem er
orðið nálega 20 ára gamalt, fellur
inn í nýju bygginguna, með
breytingum og endurbótum. Er
verið að vinna við það nú, en að
öðru leyti er húsið fullgert að
mestu. Múrhúðun utanhúss er þó
eftir.
Vönduð og vistleg húsakynni.
Húsið er mjög vandað að bygg-
ingu og vistlegt. Grunnflötur þess
er um 260 ferm. í kjallara er ket-
ilhús með vönduðum hitunar-
tækjum, fatageymslur, snyrti-
klefar og fundarsalur.
Á aðalhæðinni er samkomusal-
urinn, rúmgott leiksvið, kennslu-
stofa og eldhús og bókasafn auk
rúmgóðrar forstofu.
í rishæð er íbúð, 4 herbergi og
eldhús og kvikmyndaklefi.
Félagsheimilið byggt á rúmu ári.
Sex ár eru liðin síðan að hús-
byggingarmálunum var hreyft
opinberlega. Þegar Félagsheimil-
issjóður var stofnaður, var
ákveðið að byggja í svipuðu formi
og nú hefur verið gert.
Byggingin var svo hafin 14. maí
1953. Verkið hefur gengið vel
undir stjórn Þórðar Friðbjarnar-
sonar, sem verið hefur yfirsmið-
ur. Daníel Sveinbjarnarson bóndi
í Saurbæ er formaður og fram-
kvæmdastjóri sameiginlegrar
Þýzkur ræðismaður á
Akureyri
Kurt Sonnenfeldt, tannlæknir,
var fyrra þriðjudag skipaður
þýzkur vararæðismaður. Þýzki
sendiherrann, dr. Oppler, og frú,
höfðu boð inni af þessu tilefni ac^
Hótel KEA og voru þar viðstadd-
ir ýmsir helztu forystumenn
bæjarins. Þar var líka borgar-
stjórinn í Köln, dr. Max Aden-
auer og frú. Hinn nýskipaði ræð-
ismaður, Kurt Sonnenfeldt, hef-
ur verið búsettur á Akureyri um
10 ára bil, velþekktur og virtur
borgari.
bygginganefndar, er hin ýmsu
félög lireppsins eiga fulltrúa í.
Kostar hálfa milljón krónur.
Gizkað er á að húsið muni
kosta hálfa milljón kr. fullbúið.
Félagsheimilissjóður hefur lagt
fram 75 þús. kr., sveitafólkið með
frjálsum samskotum 25 þús. kr.
Það hefur og lagt fram gjafavinnu
sem nemur 25 þús. kr. Bílstjórar
sveitarinnar gáfu t. d. nær alla
þungavöruflutninga til bygging-
arinnar. Félög sveitarinnar samt.
kr. 40 þús. og Menningarssjóður
KEA 15 þús. kr. Sveitarfélagið
sjálft hefur lagt fram um 100 þús.
kr.
—o—
Bygging félagsheimilisins að
Saurbæ er nookkurt átak fyrir
sveitarfélagið. En það átak skapar
Hreppakeppnin
Síðustu tölur í hreppakeppn-
inni eru þessar: Oxnadalshieppur
35,8%, Skriðuhreppur 19.5%,
Arnarneshreppur 18,4% og
Glæsibæjarhreppur 17,7 %.
Nú er hver síðastur að vera
með í keppninni. Þeir, sem eiga
eftir að synda 200 metrana, eru
áminntir að gera það fyrir 15.
september.
Sundlaugin að Laugalandi í
Hörgárdal er opin almenningi
fimmtudaga kl. 5—9 e. h., föstud.
kl. 5—11 é. h. og á laugardaga og
sunnudaga frá kl. 1—8 e. h. Þess
I utan hafa hrepparnir í nágrenn-
inu sérstakan aðgang að lauginni.
Laxaseiðum sleppt í
Eyjafjarðará
Fyrra sunnudag var 12 þús.
laxa^eiðum sleppt í Eyjafjarðará,
á svæðinu frá Arnarhólshyl að
Hólum.
Stangveiðifélagið hér í bæ, sem
hefur Eyjafjarðará á leigu, fékk
þessi laxaseiði frá Laxalóni úr
fiskræktarstöð Skúla Pálssonar.
Stofninn er af vatnasvæði Olfus-
ár og er talinn góðui' stofn. Seiðin
eru 3—5 sm. að lengd og tókst
flutningui'inn á þeim að sunnan
mjög vel. Þau voru flutt í mjólk-
urbrúsum með flugvél, og með
þeim kom að sunnan danskui'
kunnáttumaður er starfar hjá
Skúla.
Skilyrði í ánni voru hin ákjós-
anlegustu, að því er virtist, og
seiðin mjög spræk.
Talið er að laxinn haldi sig í
ánum 2 fyrstu árin. Þá gengur
hann til sjávar og kemur í árnar
aftur 5— 6ára. Er hann þá kyn-
þroska. Samkvæmt þessu mætti
eiga von á að laxinn sem sleppt
var í Eyjafjarðará í fyrra-sumar,
færi að gera vart við sig á veiði-
svæðinu eftir 3 ár.
aðstöðu til margra félagslegra
starfa um langa framtíð og hús-
næðisvandamál barnaskólans er
leyst.
Framtíðarverkefnin eru mörg
á sviði félags- og menningar-
mála. Með félagsheimilinu skap-
ast nýir mcguleikar — en líka
mikil ábyrgð.
í því sambandi er vert að minna
á nauösyn þess að fullorðna kyn-
slóðin, sem að megtu er komin af
ærslaaldri, taki höndum saman
við unga fólkið, ekki einasta með
ráðum — heldur líka í félagslegu
starfi.
f
Okeypis búnaðarnára í
Noregi
Fyrir nokkru var frá því skýrt
í blöðum og útvarpi, að tveim ís-
lendingum væri boðin ókeypis
skólavist við bændaskóla Hörða-
fylkis í Vestur-Noregi.
Þetta boð er fram komið fyrir
atbeina Norsk Islandsk Samband.
Fimmtán ungir menn sóttu um
skólavistina. Af þeim þóttu 5 eiga
jafnan rétt á skólavistinni og var
varpað hlutkesti um, hverjum
skyldi veitast lmossið. Upp kom
hlutur þeirra Kjartans Helgason-
ar frá Hvammi í Hrunamanna-
hreppi og Gunnars Olafssonar,
Sólvallagötu 14, Reykjavík. Fer
annar til Voss en hinn að Steini.
Meðal bændastéttarinnar er
mikiil og vaxandi áhugi fyrir
búnaðarfræðslu, svo sem aðsókn-
in að bændaskólunum hér heima
ber vott um. Það er líka, engu
síður nauðsynlegt, að efnilegir
bændasynir bregði sér yfir poll-
inn og nemi búvísindi af frænd-
þjóðum okkar. Við höfum góða
reynslu í þessu efni og ætti okk-
ur því að vera það áhugamál, að
margir íslendingar eigi þess kost
að nema búfræði, þar sem skil-
yrði eru líkust og hér heima, og
þar sem búmenningin stendur á
aldagömlum- merg eins og í Nor-
egi.
Harmonikuhljómleikar
lolni Molinari
Harmonikusnillingurinn J ohn
Molinary hélt hljómleika í Nýja-
Bíó síðastliðinn miðvikudag fyrir
troðfullu húsi.
Var honum ágætlega tekið og
varð hann að leika mörg aukalög.
John Molinary er í hópi fræg-
ustu harmonikuleikara heims og
mun því unnendum þessarar teg-
undar tónlistar hafa þótt mikill
fengur að komu hans. Enda ræð-
ur hann yfir ótrúlegri lelkni auk
hinnar listrænu túlkunar á verk-
um meistaranna.
Ekki munu menn almennt hafa
átt þess kost áður að kynnast
slíku hljóðfæri, sem harmoniku
Molinary, og ekki nema á færi
snillinga að fylla húsið tónaflóði
hljómsveitarverka þeirra er á
cfnisskránni voru, á þann hátt er
hann gerði.
Blöð og útvarp segja, næstum
daglega frá heybrunum, víðs veg-
ar á landinu. Er það að vísu ekki
ný saga, að heyin brenni af eigin
hita, er þess vegna óstæða til að
því sé veitt athygli, og að bent sé
á einfalda leið til að forðast þann
stórskaða, sem hcybrunarnir
eru.
í sumar var tíðarfar þannig hér
norðanlands, að bændur freyst-
uðust til að taka illa þurrt hey.
Getur það ætíð orkað tvímælis,
hvort það sé rétt. Verður hver
bóndi að eiga um það við sjálfan
sig, hvenær hann telur hevið svo
vel þurrt, að óhætt sé að hirða
það í hlöður eða hey. Þegar hey-
skapartíð er óhagstæð, er oft úr
vöndu að ráða fyrir bóndann, og
stundum er betra að hirða heyið
linþurrt, en láta það hrekjast og
verða hálfónýtt, áður en það er
orðið fullþurrt. Hins er líka að
gæta, að það er dýrt að leggja
mikla og vafasama vinnu í að
þvæla með heyið í lélegum þurrki
dag eftir dag og á meðan sprettur
óslegna túnið úr sér og grasið
stórskemmist þar á þann hátt.
Páll Zóphoníasson búnaðar-
málastjóri flutti fróðlegt erindi
um þetta efni nú fyrir stuttu og
benti réttilega á það ráðið, sem
einna handhægast er og einfald-
ast, til að forðast heybruna.
r
Asgrímur jónsson
heiðraður
í tilefni af að 200 ár eru liðin
frá stofnun hinnar konunglegu
akademíu fyrir fagrar listir, hef-
ur Friðrik IX. Danakonungur
sæmt listamanninn Ásgrím Jóns-
son kommandörkrossi Danne-
brogsorðunnar af 1. gráðu.
Þann 28. þ. m. afhenti danski
sendiherrann, frú Bodil Begtrup,
hinum heiðurski'ýnda listamanni
heiðursmerkið á heimili hans að
viðstöddum nokkrum vina hans.
En ráðið er að nota heyhita-
mæli. Er það venujulegur hita-
mælir, sem settur er í járnhólk,
þannig ,að hægt er að stinga hon-
u.m í „stálið“ og fylgjast með hit-
anum. Það hefur margsinnis
komið fram, að heyhitinn getur
leynzt í heyinu vikur og jafnvel
mánuði, án þess að mikið beri á.
Með því að nota mælirinn, þarf
bóndinn ekki að vera í neinum
vafa hver hitinn er. Fari hitinn
upp í 60 gráður eða þar yfir, þarf
að draga heyið upp. Þegar hey-
hitinn aftur á móti er orðinn um
80 gráður, er bruni yfirvofandi.
Telja má víst að heyfengur
bænda verði góður og sums stað-
ar ágætur eftir þetta sumar. En
heyin eru þó engu að síður dýr-
mæt. Það er nokkurt öryggi fyrir
bóndann að eiga heyhitamælir.
Hann er ekki dýr og ætti að vera
til á hverju byggðu bóli.
Ný söngkona frá
Akureyri
Frú Hanna Bjarnadóttir frá
Akureyri hefur getið sér góðan
orðstír fyrir söng sinn í borginni
Malone, sem er nálægt landa-
mærum Canada. Hún hefur lyr-
iska sópranrödd.
Áður en hún fór utan hafði hún
um skeið stundað söngnám hér á
landi, m. a. hjá Sigurði Birkis og
Guðrúnu Þorsteinsdóttur. Og hér
á Akureyri var hún í Kantötu-
kórnum.
Frú Hanna mun halda áfram
söngnámi erlendis, en um þessar
mundir dvelur hún heima og
ætlar að halda söngskemmtun í
Reykjavík.
Foreldrar Hönnu eru þau Sig-
ríður Ósland og Bjarni M. Jóns-
son.
Gift er hún Þórarni Jónssyni
frá ísafirði.
r
Agætir skemmtikraftar í Hótel Varðborg í kvöld
Eins og getið hefur verið í blöðum er staddur hér á landi töframað-
urinn Viggo Spaar og frú hans. Spaar er Norðurlandameistari í
töfrum og er án efa með snjöllustu sjónhverfingamönnum heims.
Spaar-hjónin komu hingað til Akureyrar í dag og skemmta á Hótel
Varðborg ásamt dægurlagasöngkonunni Erlu Þorsteinsdóttur. Óþarfi
er að kynna Erlu nánar, því að flestir vita hennar frægðarferil. —
Undanfamar vikur hafa rkemmtikraftar þessir skemmt að sumar-
hótelinu Jaðri og vakið niikla hrifningu, og hefur aðsókn að skemmt-
unum þar vcrið geysunikil. Óákveðið er enn hversu oft þessir ágætu
skennntikraftar koma fram hér, en nánar verður getið um það í
útvarpi cg götuauglýsingum.