Dagur - 27.11.1954, Page 1

Dagur - 27.11.1954, Page 1
AKUREYRINGAR! Slyðjið hraðfrystihússmál- ið! Kaupið hlutabréf Ú. A. Dagur DAGUR kemur tvisvar í viku til jóla, á miðvikudögum og laugardögum. xxxvn. árg. Akureyri, laugardaginn 27. nóvember 1954 52. tbl. Ratsjáin leiðbeinir flugvélum Ratsjá íiugmálastjórnarinnar hér á .'.jiureyri cr nú tekin í notkun fyrir nokkru og gefur góða raun. Er að henni mikið öryggi. Flug- vélar sjást i sjónsktfunum, sem myndin sýnir, er þær nálgast hæinn, hvort sem þær eru ofan skýja eða ekki, eins sjást fjöll beggja megin fjarðar og Polls. Geta leiðsögumenn hér því fylgst nákvæmlega með ferðum flugvéla og leiðbeint þeirn, ef þörf þykir. MikiEI áhugi bænda fyrir áburðar- filraunum á sýnisreilum Umferðaráðimauíar Búnaðarfélagsins væntanlegir um mánaðamót Umferðaráðunautar Búnaðarfélags íslands, Sigfús Þorsteinsson og Agnar Guðnason, eru þessa dagana að halda fundi með þingeysk- um bændum. Munu þeir væntanlcgir hingað um næstu mánaðamót. Ekki hafa þó fundirnir hér verið auglýstir, enn sem komið er. — Káðunautarnir ltafa með sér kvikmyndir til fróðleiks og skemmtun- ar, sem þeir geta sýnt á þeint stöðuni er raftnagn hafa. — Sennilega verður að fækka fundarstöðum af þeim ástæðum. Ætti það ekki að koma að verulegri sök, ef veður og færi helzt sæmilegt. — Þarf tæp- lcga að efa, að fundir þessir verði vel sóttir,enda verða sýnisreitirn- ir gerðir þar að umtalscfni fyrst og fremst. Ufnférðaráðunautarnir mættu báðir á Bændaklúbbsfundinum að Hótel KEA á þriðjudaginn og tóku þátt í umræðum. Samkvæmt frásögn þeirra ber víða á fosfór- sýruskorti í ræktuðu landi, þótt ekki verði þcss mikið vart hér í héraðinu. Bændur munu hafa fylgzt af áhuga með þeim einföldu og auð- veldu tilraunum, er gerðar voru með mismunandi magni af til- búnum áburði, á þessum svoköll- uðu sýnisreitum, um land allt. Tilraunir þessar voi-u fjór- skiptar. Á A-reit Var borið: 194 kg. Kjarna 120 kg. þrífosfat og 120 kg. kalí 50%. Á B-reit var borið: 316 kg. Kjayna, 164 kg. þrífosfat og 164 kg. kalí 50%. Á C-reit var borið: 475 kg. Kjarna, 258 kg. þrífosfat og 258 kg. kalí 50%. Á D-réit var borið: 475 kg. Úlpuþjófur handtekinn. Það bar til nú í vvkunni, að karlmannsúlpu var stolið í Hótel KEA. Lögreg'an handtók þjófinn og náði úlpunni. Kjarna (skipt), 258 kg. þrífosfat og 258 kg. kalí 50%. Kostnaður á hvern hestburð heysins varð sem næst því er hér segir: , Á A-reit kr. 46,40 Á B-reit kr. 41,15 Á C-reit kr. 38,00 Á D-reit kr. 40,30 Af þessari töflu sést, að kostn- aður við framleiðslu heysins á C-reitnum varð minnstur. D- reitur hafði sama áburðarmagn, en Kjarni var borinn á milli slátta, 180 kg., en 295 kg. á sama tíma og önnur áburðardreifing fór fram að vorinu. Þessar niðurstöður ber að sjálfsögðu að taka með varúð, eins og allar tilraunir á byrjun- arstigi. Það er til dæmis mjög áberandi í sumar, hvað áburður, er borinn var á milli slátta, gaf lítinn vaxtarauka í sumar. Tví- skipti áburðurinn á D-reitnum hefði sennilega sýnt allt aðra út- komu í meðal sumri. Á hitt ber þó að líta, að síðari slátturinn á þeim reit hefur sennilega gefið betra fóður og betri beit en aðrir reitir, þótt vaxtaraukinn væri minni en búizt hafði verið við. Engir tæknilegir gailar á áburðarverk- smiðjunni - kornasfærð áburðar aukin Upplýsingar landbúnaðarráðherra á Alþingi s.l. þriðjudag Sl. þriðjudag svaraði landbiinaðarráðherra, Steingrímur Stein- þórsron, á Alþingi ýmsum fyrirspurnum, er Einar Olgeirsson og Bergur Sigurbjörnson höfðu beint til hans, varðandi Áburðarverk- smiðju ríkisins. Voru svör landbúnaðarráðherra hin greiðustu og komu fram í þeim mörg merkileg atriði, er snerta áburðarverksmiðj- una og rekstur hennar. Tók ráðherra það alveg sérsfaklega fram, að engir tæknilegir gallar hefðu komið fram á vélum verk- smiðjunnar, að verksmiðjan væri þess umkomin að afkasta mun meira magni en hún væri gefin upp fyrir, að kornastærðin, sem nokkuð hefði verið rætt um, að hefði verið of lítil, hefði farið vaxandi síðustu vikurnar og að ástæðan til þess að áburðurinn vildi hlaupa í kekki var sú, að tæki verksmiðjunnar voru ekki rétt stillt á það rakastig, er hentaði. Benti ráðherrann á, að allar þessar misfellur stæðu til bóta og hefði verið úr þeim bætt flestum nú þegar. Helgafell í fyrsta sinn á Almreyri Nýjasta skip Sambands ísl. samvinnufélaga, Iíelgafell, kom hér í fyrsta sinn í gær. Skipið losaði liér ýmsar vörur frá Bandaríkjunum, cn skipið kom þaðan til íslands í þetta sinn. Hér tók skipið nokkur hundruð tn. af síld til Finnlands. Skip- stjóri á Helgafelli er Bergur Pálsson frá Hrísey, 1. stýri- maður er Ilektor Sigurðsson Flóventssonar lyfjafr. hér í bæ, en 1. vélstjóri Ásgeir Ásgeirs- son, Spítalaveg 9, Akureyri. Hangikjöti og silungi stolið - þýfið komið í leitirnar Sá fátíði atburður gerðist hér í bænum aðfaranótt sl. miðviku- dags, að farið var inn í niður- suðuverksm. Kristjáns Jónssonar á Oddeyrartanga og þar stolið kjöti og reyktum silungi að verð- mæti 9 þús. kr. Var verknaður þessi kærður til lögreglunnar á miðvikudaginn og hóf hún þegar rannsókn í málinu. Virtist hafa verið farið inn um óhespaðan glugga og síðan hurð opnuð innan frá. Lögreglan fékk þegar grun um hvaða bifreið hefði verið notuð þarna af hjólförum við húsið. Voru þeir, er notað höfðu þessa bifreið þessa nótt, 3 fullorðnir karlmenn, handteknir. — í rétt- arhöldunum á eftir játuðu þeir á sig verknaðinn og náðist þýfið allt og að mestu óskemmt. Málið er áfram í rannsókn. 50000. farþeginn hjá Flugfélaginu Meft áætlunarflugvélinni hing- aft frá Reykjavík í gær var 50000. farþeginn, sem Flugfélag fslands flytur frá upphafi. Var það Olafur Ólafsson kristniboði, og var þessa atburðar minnzt í gærmorgun áftur en flugvélin lagði af staft frá Reykjavík. Ól- afur hafði kcypt farseðil til Ak- ureyrar, er honum var tilkynnt aft hann væri 50000. farþeginn og fengi ókeypis far. Einnig var honum fenginn gripur til minningar um atburðinn. Fyrirspurnir Einars Olgeirssonar. 1. Hvað kostaði verksmiðjan uppkomin? 2. Hver er rekstrar- afkoma verksmiðjunnar það sem af er? 3. Hvernfg líkar gerð áburðarins, og hvaða horfur eru á sölu hans framvegis? 4. Hvert er framleiðsluverð áburðarins á smálest, og hvert er verð sam- svarandi útlends áburðar? 5. Hafa komið fram tæknilegir gall- ar á gerð verksmiðjunnar? Þarf að gera breytingar á vélakosti hennar, og ef svo er, hvaða kostn- að er álitið, að þær hafi í för með sér? Svör ráðherra. Þessum fyrirspurnum svaraði ráðherra lið fyrir lið, og fólust í svörum hans eftirfarandi upp- lýsingar: 1. Stofnkostnaður verksmiðj- unnar er nú um 130 milljónir kr. Innifalið í þeirri upphæð eru ca. 8.75 milljónir króna í vöxtum af lánum yfir byggingatímabilið og 13 milljónir í tollum og leyfis- gjöldum. 2. Á meðan fyrirtækið er ekki komið upp að fullu og á meðan reynslurekstur stendur yfir sam- hliða því, sem verið er að ljúka uppbyggingu fyrirtækisins, er ekki hægt að tala um rekstursaf- komu. Verksmiðjur. sem þessi, eru jafnan lengi á stigi reynslu- reksturs, og er ekki óalgengt, að 18—30 mánuðir og þaðan af lengri tími fari í að samræma og jafna reksturinn. Fullkomin ástæða er til að vera ánægður með þann árangur, sem náðst hefur til þessa í framleiddu áburðarmagni. Verksmiðjan á að geta framleitt 18000 tonn á ári eða 1500 tonn að meðaltali á mán-! uði. Á 7 mánuðum, apríl til októ- berloka, framleiddi verksmiðjan 9000 tonn eða 1285 tonn að með- altali á mánuði. Lægsta mánaðar- framleiðsla var í júní, 1011 tonn, en mesta framleiðsla í október, 1659 tonn, og eru þau afköst 11% umfram áætluð meðalafköst. Þetta sýnir, að verksmiftjan get- ur afkastað mun meira magni en því, sem hún er gefin upp fyrir. 3. 2300 tonn af áburði verk- smiðjunnar voru seld á síðastl. vori, og hafa hvaðanæfa borizt ummæli um, hversu vel spretti af áburðinum. Pantanir á áburði eru ekki að jafnaði komnar fram fyrir áramót, fyrir næsta ár á eft- ir, en ef dæma má út frá hinni góðu reynslu, sem fengin er um sprettu, verður að segja, að horf- ur um sölu séu góðar. 4. Af þeim ástæðum, sem rakt- ar voru hér að framan (3. liður) verður framleiðsluverð á tonn ekki enn ákveðið, en ætla má, að þcgar meðalafköst verksmiðj- unnar eru komin á það stig, sem þau eru áætluð, þá verði hinn ís- lenzki áburður fullkomlega sam- keppnisfær við erlendan ábui’ð. 5. Engir tæknilegir gallar hafa komift fram á gerð verksmiðj- unnar, er gefi tilefni til að ræfta um breytingar á vélakosti eða aukakostnaft þess vegna. Mývetningar hafa fé á afrétt Tíð hefur verið góð í Mývatns- sveit að undanförnu; þíðviðri en stormasamt. Snjólaust er í byggð og beitijörð góð. Mývetningar austan vatns hafa fé sitt enn aust- ur á fjöllum og hafa enn ekki ráðið, hvenær það verður rekið heim, en væntanlega verður það að venju, fyrri hluta desembee.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.