Dagur - 15.12.1954, Page 5
Miðvikudaginn 15. desember 1954
D AGUR
5
50 ára afmæli rafmagnsljósa á íslandi:
„Frímanns verður gefið" kvað Sfephan
60 ár síðan Frímann B. Arngrímsson lióf baráttu
sína fyrir virkjun vatnsafls og lilaut fyrir „að-
hlátur, fyrirlitningu og fátækt“ að eigin sögn
Frú Fanný Ingvarsdóitir, íimmfug
„Maður að nafni Frimann Am-
grímsson er fyrsti íslendingurinn,
sem minnist á raforku hér á
landi,“ segir í sunnanblaði síðastl.
laugardag í tilefni hátíðahaldanna
í Hafnarfirði á 50 ára afmæli raf-
magnsins hér á Iandi. En ekki er
Frímanns [icssa nánar getið.
Er þó maklegt að minnasf; hans
nú. Nafn hans er tengt sögu raf-
crkunnar hér á landi. Iiann hóf
þar upp merki löngu á undan
öðrum. En hann.var í því efni,
sem sumum öðrum, á undan sam-
tíð sinni. Draumar hans og spár
hafa rætzt, en fyrir aldamót þótti
tal hans stundum með ólíkindum.
Má nú minna á orð Stephans G.
Stephanssonar, er eitt sinn kvað
svo til Frímanns:
„Ef einhvem tíma
íslands fossar
aldanna ókveiktu blossar
ásmegni og sóískini síma
fram í fámennis bæinn,
fjölbýlin við sæinn
þar sem hetjurnar híma . .
o. s. frv.
„ . . . þar sem falli og feigð
frostnóttin eygð
Fletin fyrr hafði setið
Frímanns verður getið!“
Lærdómur undir förumannskufli.
Frímann B. Arngrímsson and-
aðist hér á Akureyri árið 1936 og
er grafinn hér. Hafði hann þá átt
hér heima óslitið síðan hann
fluttist aftur til íslands í upphafi
íyrri heimsstyrjaldar. — Hvert
mannsbarn í bænum þekkti Frí-
mann. Hann klæddist síðustu ár-
in förumannsbúningi og gekk
álútur við staf, mæddur af elli og
löngu lífsstríði. En enga ’jppgjöf
var að sjá í svipnum. Andlitið
var hörkulegt, augun snör og
hvöss og tungan bitur, er því var
að skipta. Börnum og unglingum
í kaupstaðnum um og eftir 1930
gekk illa að skilja, að þessi mað-
ur væri einhver lærðasti moður-
inn í bænum, maður sem hafði
dvalið langvistum við erlenda há-
skóla og vísindastofnanir, verið í
þjónustu erlendra ríkja, st.ofnað
blöð og skrifað margt um vísindi
og tækni, dvalið langvistum í
mörgum þjóðlöndum, síðast 17 ár
samfleytt -í París. En staðreynd
var þetta allt eigi að síður. Sá var
maðurinn. Um hann var því, þrátt
fyrir tötrana og beiskjuna í skap-
inu, talsverður ævintýraljómi.
Auk þessa alls var Frímann einn
af þeim fyrstu, er sáu hér mögu-
leika til stóriðnaðar á grundvelli
vatnsaflsins.
Erfið æska.
Frímann B Arngrímsson var
fæddur í Sörlatungu í Hörgárdal,
af lærdómsmönnum kominn, en
átti erfiða æsku, því að foreldrar
hans voru ekki gift og voru ekki
samvistum. Ólst Frímann upp á
ýmsum stöðum í Eyjafirði og
Fljótum, og mun hafa hrcppt
hörð kjör. En skapið var mikið og
harkan, og bar hann menjar
uppvaxtaráranna alla ævi. Hér
heima naut hann einhverrar til-
sagnar á Ríp í Skagafirði og
Möðruvöllum í Hörgárdal, en
aldrei skólagöngu hér á landi. —
Frímann hélt til Vesturheims í
stórum hóp Vesturfara, er lagði
upp héðan frá Akureyri í ágúst
1874. Var hann þá 19 ára garnall
og blásnauður.
Glæsilegur námsferill.
Vestur í Kanada hóf hann þeg-
ar ári ðeftir skólanám, og lauk
prófi, er jafna má til stúdents-
prófs hér, og litlu seinna kenn-
araprófi. Gekk hann síðan á há-
skóla og stundaði óreglulegt nám
unz hann hóf að nema stærðfi æði
og náttúrufræði við háskólann í
Toronto og lauk hann þar prófi,
fyrstur íslendinga í Kanada. —
Fram'haldsnám stundaði hann svo
við Manitobaháskóla og lauk þar
einnig prófi með miklum ágætum.
í Winnipeg var hann um skeið í
þjónustu landsstjórnarinnar við
ritstörf, og þá stofnaði hann blað-
ið Heimskringlu og stýrði því um
skeið. Ferðaðist mikið um Kan-
ada, m. a. til óbyggða. Árið 1889
fluttist Frímann til Cambridge i
Bandaríkjunum og gerðistt starfs
maður í frægri stofnun þar:
Institute of Technology, sem er
tengd Harvard-háskóla, síðan
gekk hann í þjónustu General
Electric Co. og þar þróuðust
hugmyndir hans um framtíð raf-
magns á íslandi.
Draumur um ísland.
Frímanni var búin mikil fram-
tíð í þjónustu félagsins, en svo
gagntekinn var hann af hug-
myndinni um vatnsvirkjanir á
íslandi, að hann hvarf heim 1894
með tilboð frá General Electric
um rafvæðingu Reykjavíkur. En
tilboðinu var ekki sinnt. Höfðu
menn ótrú á þessari nýjung, en
sjálfur taldi Frímann, að kola- og
olíukaupmenn hefðu spillt mál-
inu. Varð honum þessi för heim
mikil vonbrigði og bjó sú beiskja
með hor.um alla ævi. Hvai'f Frí-
mann þó til Bretlands og starfaði
þar á vísindastofnunum, unz hann
fluttist til Parísar og þar bjó
hann til þess að fyrri heimsstyrj-
öld hófst ,eða 17 ár samfleytt, en
þá kom hann heim, 1914.
Rafvæðing Eyjafjarðar.
Eftir heimkomuna hóf hann að
rita um rafmagnsmál, og var þá
nokkuð öðruvísi umhorfs en 1894.
Hann vildi byggja Glerárstöðina
með allt öðrum hætti, en gert var,
en fékk engu ráðið. Mun hug-
mynd hans þó hafa verið hin at-
hyglisverðasta, en hann vildi
virkja Glerá hjá Tröllahyl og fá
20 metra meiri fallhæð en við
neðsta fossinn. Rafmagnið átti
ekki aðeins að vera til ljósa, held-
ur til hitunar og verksmiðju-
reksturs. Skrifaði hann 1915
bækling um „raflýsing og rafhit-
un Akureyrar og annarra kaup-
túna og bæja í grennd.“ Margt
fleira skrifaði hann og ræddi í
fyrirlestrum. Sá hann þá ekki að-
eins fullvirkjun Glerár, sem
skammt mundi duga að hans
sögn, heldui' beizlun orku Hörg-
ár, Skjálfandafljóts og Laxái. —
Frímann útvegaði á þessum árum
tilboð frá General Electi'ic um
rafvæðipgu Akureyrar, en hlaut
fyrir, að því hann sagði sjálfur
„aðhlátur, fyrirlitning og fátækt.“
Vildi aldrei lúta smáu.
Frímann B. Arngrímsson lifði
hér heima við fátækt og um-
komuleysi, enda var erfitt að
gera honum til þægðar. Skap-
lyndi hans var þannig farið og
átti það vafalaust mikla sök á, að
hann naut aldrei hæfileika sinna
cg mikils lærdóms. En eldheit
ættjarðarást brann honum í
brjósti. Hann sá ísland framtíð-
arinnar sem mikið framfararíki
nýrrar tæknialdar Hann sá stór-
iðju og nýtingu orkulinda lands-
ins. Draumar hans voru stórir og
ofviða þjóðinni, sem var að byrja
að rumska eftir alda kúgun og
eymd. En Frímann vildi ekki
lúta að smáu. Og draumar hans
urðu aldrei annað en draumar
meðan hann átti enn óbilað
starfsþrek. En nú eru þeir að
rætast. Er því maklegt að minn-
ast Frímanns B. Arngrímssonar
nú ,um leið og getið er afreka
annars Norðlendings, Jóhannes-
ar Reykdal frá Vallakoti í
Reykjadal, er fyrstur kveikti hér
rafmagnsljós fyrir 50 árum.
Raforka frá Laxá til
Hríseyjar 1956
Hríseyingar hafa rafmagn frá
85 kw. dieselrafstöð og háfa lengi
haft óhuga fyrir að komast í sam-
band við rafmagnskerfi Laxár-
orkuversins. Nú nýlega hefur
verið ákveðið um framkvæmd
málsins. Er gert ráð fyrir að Raf-
magnsveitur ríkisins leggi sæ-
streng til Hríseyjar sumarið 1956,
en kaupi núverandi rafveitu
hreppsins áður en langt um líð-
ur og starfræki hana. Verður
dieselstöðin varastöð, er sæ-
strengurinn hefur verið lagður.
Líklegt er að sæstrengurinn verði
lagður frá Litla-Árskógssandi til
Hríseyjar, og eru það um 3 km.
Styttra er úr Helluhöfða í Sands-
horn í Hrísey, en þar liggur sæ-
síminn og er ekki talið heppilegt
að hafa sæstrenginn samhliða. Á
næsta sumri verða gerðar athug-
anir á botninum á sundinu og
líklegt er einnig að þá hefjist end-
urbætur á innanbæjarkerfinu í
Hrísey. Þorsteinn Valdimarsson
hreppstjóri og Kristinn Þorvalds-
son oddviti unnu að lausn þessa
máls í Reykjavík nú nýlega. —
Fyrir dyrum stendur að járn-
klæða bryggjuhaus hafnarbryggj
unnar í Hrísey til að forða frá
eyðileggingu af völdum trjá-
maðks. Mun verkið kosta um 700
þús. kr. og leita Hríseyingar nú
eftir lánsfé til þessara fram-
kvæmda. Standa vonir til að
þetta verk verði hafið í sumar. —
Afli er tregur um þessar mundir.
Fá bátar mest um 1000 pund í
róðri, en nær eingöngu ýsu. Afl-
inn er tekinn á hraðfrystihús
KEA, sem starfrækt er þegar
hráefni berst. — Kvenfélagið í
Hrísey æfir um þessar mundir
gamanleikinn „Frá Kaupmanna-
höfn til Árósa“ og hyggst sýna
hann um jólin.
Á föstudaginn, þann 17. þ. m.,
fyllir fimmtugasta aldursár sitt
frú Fanný Ingvarsdóttir, kona
Gísla Kristjánssonar útgerðar-
manns, Helgamagrastræti 28. Er
hún og þaq hjón bæði Austfirð-
ingar, fædd og uppalin, og góðir
Austfirðingar. Hafa þau bæði
starfað dyggilega í Austfirðinga-
félaginu hér í bæ, og Gísli m. a.
verið í stjórn þess. Mun því hugur
vor Austfirðinga leita til þeirra
hjóna á þessum merka minning-
ardegi heimilisins. Enda á það
margs að minnast.
Frú Fanný er fædd að Nesi í
Norðfirði 17. desember 1904. —
Voru foreldrar hennar hjónin
Margrét Finnsdóttir frá Tungu í
Fáskrúðsfirði, systir Ólafar móð-
ur Ríkharðs listamanns Jónsson-
ar, og Ingvar Pálmason alþing-
ismaður, og bjuggu þau að Nesi
allan sinn búskap. Var Ingvar
húnvetnskur að ætt og frænd-
margur þar nyrðra, og var m. a.
Sigurður skólameistari Guð-
mundsson einn frænda hans.
Frú Fanný giftist ung manni
sínum, Gísla Kristjánssyni frá
Mjóafirði, og tók þegar við mann-
mörgu heimili, er þau reistu bú á
Norðfirði vorið 1923, og var hún
þá 19 ára. Var þar tíðum allt að
18 manns í heimili, karlar, konur
og börn, og þurfti að sjá um fæði
og þjónustu allra þeirra og auk
þess að búa vel í nestisskrínur
sjómanna þeirra hjóna, en þá
voru sjómenn nestaðir í Kvern
róður, sem varaði allt að sólar-
hring, og stundum lengur, bæri
út af á einhvern hátt. Þá varð
einnig að sinna heyskap og fisk-
verkun í senn, og varð ærið starf
fyrir húsfreyjuna ur.gu, sem tók
þátt í þessu öllu. Og í fjarveru
bónda hennar tóku öll störf mjög
til hennar ráða. Naut hún þar
áhuga síns og giftu með aðstoð
góðra hjúa.
Heimili sínu hefur frú Fanný
stjórnað með prýði og séð vel um
uppeldi 6 barna þeirra hjóna.
Eru nú 4 þeirra gift ,en tvö enn
eftir í foreldrahúsum. Hefur
Fanný lengst af verið heilsugóð
og sístarfandi að velferð heimilis
síns og ástvina, enda mun hún
ekki eiga annað áhugamál meira
og kærara. Upp á síðkastið hefur
hún þó átt við nokkurn lasleika
að stríða. Er það því innileg ósk
vina hennar og ástvina, ekki sízt
á þessum merku vegamótum ævi
hennar, að henni megi sem lengst
endast þrek og heilsa og gleði sú,
er góð móðir og húsfreyja fær
bezt notið.
Með Austfirðingakveðju og
beztu árnaðaróskum!
Helgi Valtýsson.
En hvað tíminn líður í raur.inni
fljótt, þó að okkur finnist dag-
arnir stundum langir! Tíma-
skynjun okkar er eitthvað áfátt.
Kirkjubækurnar segja, að frú
Fanný á Bjargi við Helgamagra-
stræti sé fimmtug um þessar
mundir. Mér krossbrá, þegar mér
var sagt þetta. Mér finnst hún
ekki bera yfirbragð þess aldurs.
Eg gat ekki áttað mig á þessu í
bili. En hér stoða víst engin mót-
mæli. Og minningarnar vakna.
Eg stend við einn ganggluggann í
gamla skólahúsinu á Norðfirði og
horfi niður eftir. Nokkur börn
cru að koma. Það er líka skóla-
setningardagurinn. í hópnum er
ljóshærð, lítil stúlka, svipmikil
og festuleg. Hún vekur strax eft-
irtekt mína. Það ei eitthvað at-
kvæðislegt við hana. — Eg sá rétt.
Námsferill þessarar litlu stúlku
einkenndist af festu í starfi,
óhvikulli tryggð og atkvæða-
miklum afköstum. Vetur leið og
vetur kom. Skólinn starfaði og
litla stúlkan, sem einu sinni var,
stækkaði og þroskaðist ágætlega.
Fanný á Ekru útskrifaðist úr
skólanum með bezta vitnisburði.
Eg held mér sé óhætt, að segja, að
hún hafi sjaldan og máske aldrei
látið sig vanta í tíma, og það
held eg líka, að mér sé óhætt að
fullyrða, að ekki hafi oft komið
fyrir að hún kynni ekki lexíur
sínar reiprennandi. Eg man aldrci
til annars. Ilún níddist aldrei á
neinu, seni henni var trúað fyrir.
— Svona var Fanný —■ ó, hvað
mig langar til að mega skrifa
Fanney! — á bernskudögúnum
og -svona er hún enn. Hún hefur
aldrei leyft sér að hvika frá
skyldunni, tryggðinni, festunni.
Orðið „hugsjónasvik“ er ekki til
í hennar orðabók.
Eg sá hana líka sjálfur sem
unga húsmóður á stóru og um-
svifamiklu heimili. Þar gekk hún
að starfi með sömu skyldurækn-
inni, festunni og samvizkusem-
inni eins og áður að lexíunáminu
í barnaskólanum. Eg kenndi
börnum hennar og það get eg
vottað, að samvizkusamlega bjó
hún þau undir námið ■ og upp-
eldi þeirra vildi hún vanda. Hún
ól þau upp í aga og umvöndun og
gaf þeim gott fordæmi. Eg veit
ekki hvort foreldrr geta gefið
börnum sínum nokkuð betra í
vegarnesti til lífsferðarinnar en
slíkt uppeldi. — Börn þeirra,
hjónanna á Bjargi, eru ýmist
komin eða eru að komast ágæt-
lega til manns, en gæfurík fram-
tíð barnanna eru beztu starfslaun
allra foreldra. Þau laun virðast
ætla að verða þeim hjónum vel
útilátin, og er það gleðiefni vina
beirra og vandamanna. — Eg bið
þeim blessunar. Eg þakka órofa
vináttu og árna afmælisbarninu
heilla.
„Móðir, kona mcyja, —
meðtak Iof og prís.“
V. Sn.
Allmiklar bygginga-
framkvæmdir í
Höfðaliverfi
Talsvert hefur verið byggt í
Höfðahverfi í sumar og haust. í
Grenivík eru 4 íbúðarhús í smíð-
um. Lokið var við byggingar á
nýbýli í Iivammslandi. Heitii það
Árbær, en bóndi er Þórður Jak-
obsson frá Árbakka. Byggt var
íbúðarhús og peningshús. Þá hef-
ur verið reist nýtt íbúðarhús í
Nesi og er svo til fullgert. Á
Skarði hefur Jón bóndi Jóhanns-
son byggt 20 kúa fjós, áburðar-
geymslu og hlöðu. — Heilsufar
hefur verið gott í Höfðahverfi í
haust og vetur.