Dagur - 05.01.1955, Blaðsíða 12
12
Bagub
Miðvikudaginn 5. janúar 1955
Frægur pianósniliingur heldur
hljómleika hér í kvöld
Ervin Laszlo meðal fremstu yngri píanóleikara
í kvöld kl. 9 hefur imgversk-
ameríski píanósnillingurinn Ervin
Laszlo píanótónleika fyrir al-
menning í Nýja-Bíó hér á Akur-
eyri. Eru tónleikarnir hahlnir að
tilhlutan Isl.-ameríska félagsins
hér, en Laszlo kemur hér við á
leið til Evrópu, þai sem hann
mun halda marga tónleika á
næstuiini.
Kom Laszlo hingað til lands um
leið og fiðlusnillingurinn Isaac
Stern, sem heldur hljómleika í
Reykjavík nú í vikunni. Laszlo
mun leika í mörgum helztu höf-
uðborgum Evrópu að aflokinni
heimsókninni til íslands.
Ungur snillingur.
Ervin Laszlo er aðeins 22 ára að
aldri, en hefur þegar mikinn orð-
stír sem glæsilegur píanóleikari.
Á sl. ári fór hann hljómleikaferð
um Evrópu, og hlaut mjög lof-
samlega dóma. En hann var þeg-
ar kunnur í Evrópu. Hann er
ungverskur að ættum, fæddur í
Búdapest og stundaði nám þar
hjá tónskáldinu Dohnanyi, hlaut
Franz Liszt verðlaunin 1946 fyrir
píanóleik og árið eftir 1. verðiaun
á alþjóðlegu tónlistarmóti í Genf.
Var hann yngsti þátttakandinn
þar. Laszlo kom fyrst fram 9 ára
gamall í Búdapest og lék þá með
fílharmonísku hljómsveitinni í
Kyrrlátt um jól og
áramót
Lögreglan hér á Akureyri s'kýrði
hlaðinu svo frá, að tíðindalaust
hát'i yérið hjá herini að kalla um
jó.lin og áramótin. Engar óspektir
urðu hér á gamlaárskvöld og lög-
reglan telur ölvun á opinherum
samkonnim og í hænum almennt
hai'a verið með minnsta m<)ti á
nýjársnótt. Hefur ástandið að þessu
leyti farið batnandi ltér hin síðustu
borgínni, en hélt síðan sjálfstæða
hljómleika.
Til Parísar kom hann árið 1947,
eftir að hafa flúið land með móð-
ur sinni ,en árið 1948 fluttu þau
til Bandaríkjanna og hafa átt þar
heima síðan. Á hljómleikunum
hér leikur Laszlo þessi verk:
Sónata nr. 7 óp. 83 eftir Pro-
kofiev, Caírnaval eftir Schumann
12 etudur eftir Chopin, L’-
Arabesque eftir Debussy og La
Legende eftir Albéniz.
Einu hljómleikarnir liér á landi.
Þetta verða sennilega einu
hljómleikarnir, sem Laszlo heldur
hér á landi.
Aðgöngumiðar.
Aðgöngumiðasalan er í Ferða
skrifstofunni til kl. 6 í dag, en ef
eitthvað verður óselt í kvöld,
verða þeir miðar seldir við inn-
ganginn.
Hljómleikarnir verða ekki end-
urteknir. Er þetta því eina tæki-
færið til að hlýða á þennan ágæta
listamann, einhvern hinn fremsta
píanósnilling, sem bæinn hefur
gist í áratugi.
Ymis tíðindi úr nágrannabyggðum
Fyrsti fundnr Eœiida-
klíibbsins
Bændaklúbburinn heidur fyrsta
fund sinn á þessu ári næstk.
þriðjudag að Hótel KEA kl. 9 e. h.
Rætt verður um heyverkunarað-
ferðir eða nautgriparækt.
Álfadans og brcnna á
sunniidagskvöld
íþróttafélagið Þór efnir til
brennu og álfadans á sunnu-
dagskvöldið kemur á Þórsvelli
á Gleráreyrum. Verður gerð
mikil og vcgleg brenna og álfar
dansa þar undir handleiðslu
álíakóngs og drottningar. —
Verður þetta eina stórbrennan
nú um áramótin, en á gamlárs-
kvöld héldu unglkigar nokkrar
minni háttar brennur á nokkr-
um stöíum í bænum.
oÖ börii á sanikorau að
Hrafnagili
Úr Ilrafnagiishreppi 4 jan.
Kvenfélagið Iðunu í Hrafna-
gilshreppi hélt barnasamkomu að
Hrafnagili nú um hátíðirnar. Þar
voru sýnd 4 smáleikrit. Auk þess
var jólatré og jólasveinn og dans
stiginn á eftir. 80 böm mættu á
samkomu þessari.
Hundrað Dalvíkingar
farnir í atvinnuleit
til Suðurlands
Úr Svarfaðardal 3. jan.
Það vekur ugg manna á Dalvík,
hvað margir leita nú atvinnu til
Suðurlands, bæði konur og karl-
ar. Þrír stórir langferðabílar og 3
minni bílar, lögðu af stað suður
nú í vikunni og fluttu um 100
manns frá Dalvík og að auki frá
Ólafsfirði. Flest er fólk þetta á
bezta aldursskeiði og er ráðið til
ýmissa starfa í Vestmannaeyjum,
Sandgerði og fleiri verstöðvum
sunnanlands. Finnst heimamönn-
um dauflegt, sem von er, eftir
brottför þessa fólks, enda er þetta
stór hluti verkfærra manna í
þorpinu.
Leikfélag Dalvíkur hefur nú
sýnt sjónleikinn „Þrír skálkar“
fjórum sinnum í samkomuhúsinu
í Dalvík. Aðsókn er ágæt. —
Barnasamkoma var haldin þar
síðastliðinn mánudag. Barnaskól-
inn og stúkan gengust fyrir
henni.
—o—
Ungmennafélag Svarfdæla hélt
upp á 45 ára afmæli sitt 30 des-
ember sl. með fjölmennu hófi. —
Formaður félagsins, Jón Stefáns-
son flutti þar ágætt erindi.
Smárakvartettinn söng. Þar var
einnig spurningaþátturinn ,,Já og
nei“ og fleira var þar til
skemmtunar. — Dans var stiginn
fram eftir nóttu. — Ungmenna-
félagið hélt einnig almenna sam-
komu á gamlársdag. Var þar hús-
fyllir Aðgöngumiðar að samkomu
þessari voru jafnframt happ-
drættismiðar að ýmsum góðum
munum.
U. M. F. Þorsteinn Svörfuður
minntist 33. ársafmælis síns með
samkomu að Grund 27. des. Þár
var margt til skemmtunar, m. a.
upplestur, spurningaþáttur og
fleira. Veitti félagið öllum sam-
komugestum kaffi. Formaðui fé-
lagsins er Þorgils Gunnlaugsson á
Sökku. — Jólaveður voru mjög
góð í Svarfaðardal og færi gott.
Guðsþjónustur voru vel sóttar
um hátíðirnar og jólin í alla staði
ánægjuleg.
Fjöldi Húsvíkinga far-
inn suður í atvinnuleit
- togarakaupin helzta
umræðuefnið nú
Húsavik 4. janúar.
Karl Kristjánsson alþingismað-
ur hefur flutt tillögu í bæjar-
stjórn Húsavíkur um að sett verði
á stofn nefnd til þess að taka þátt
í samningum u.m stofnun hluta-
félags með öðrum kaupstaða-
búum — og ríkisvaldinu
— um kaup og útgerð togara þess,
sem ríkissjóður keypti af Vest-
mannaeyingum fyrir jólin. Til-
lögu þessari var vísað til bæjar-
ráðs, en víst talið að hún verði
samþykkt einróma. Togarakaupin
fyrirhuguðu og útgerðin í sam-
vinnu við aðra kaupst. nyrðra, er
eitt helzta umræðuefni manna nú
um nýjárið, sem vonlegt er, enda
eru hér mikil tíðindi og góð.
Virðist nú aftur horfa til upp-
byggingar í útgerð. Líklegt er að
tveir nýir 50 lesta bátar bætist í
bátaflota Húsvíkinga á þessu ári.
Hafa verið veitt innflutningsleyfi
fyrir 2 bátum til útvegsmanna
hér.
Fjöldi manna leitar nú suður á
land í atvinnu þar, og fer jafnan
svo um hver áramót, að athafna-
lífið syðra kallar á sjómenn og
marga aðra. Er þá dauflegt fyrir
þá, sem eftir sitja.
Hátíðirnar liðu með ró og frið-
semd í Húsavík. Veður voru fá-
dæma góð. Á gamlárskvöld efndi
íþróttafélagið Völsungur til mik-
illar brennu í Skálabrekku í
Húsavíkurfjalli, en þangað sést
mjög vel hvaðanæfa úr kaup-
staðnum. Gengu Völsungar með
kyndla frá barnaskólanum að
bálkestinum og mynduðu upp-
hafsstafi félags síns með kyndl-
unum. Var að þessu góð skemmt-
un.
Aðeins 3 nemendur í
Laugaskóla yfir jólin
Laugum 4. janúar.
Með batnandi samgöngum
verður það æ tíðara að skólafólk-
ið hverfi úr skólunum fyrir jólin
og dvelji heima fram yfir áramót-
in. — í héraðsskólanum að Laug-
um voru aðeins 3 nemendur yfir
jólin. Á sunnudag og mánudag
dreif skólafólkið að aftur og hófst
kennslan að nýju í gær.
Heilsufar hefur verið gctt í
skólanum í vetur, það sem af er,
að öðru leyti en því, að vont kvef
gekk þar um tíma.
Völsungar í Húsavík héldu
fjölmenna samkomu að Breiða-
mýri í Reykjadal um áran;ótin.
Þar var sungið, lesið upp og' Karl
Kristjánsson alþingismaður flutti
ræðu.
Reykjadalsá valt fi-am kolmó-
rauð og með miklum jakabuiði í
hlákunni á mánudaginn, líkast
sem í vorleysingu væri.
Fljúgandi himintungl. — Rétt
fyrir jólin sat gömul kona, Val-
gerður Sigurðardóttir, við dag-
stofuglugga í Vallholti í Reykja-
dal. Dimmt var í stofunni. Sá hún
þá hvar eldhnöttur allstór kom
yfir ásabrúnir ofanvert við bæ-
inn. Fór hann lágt með jörðu,
enda varaði sýn þessi skamma
hríð. Gamla konan gekk þegar
fram í eldhús til húsfreyjunnar
og sagði henni hvað fyrir hana
hefði borið.
Jólatrésskemmtun að Laugum.
Kvenfélag Reykdæla hélt jóla-
trésfagnað fyrir börn hinn 4. jóla-
dag að Laugaskóla, en húsrúm
var þar ærið, þar sem nemendur
nær allir voru í jólaleyfi. Gengið
var umhverfis forkunnarfagurt
jólatré .stuttar kvikmyndir sýnd
ar og dansað og leikið við börnin.
Ollum veitt súkkulaði og kaffi
Komu mæður barnanna með
heimabakað brauð ineð sér, en
kvenfélagið sá um veitingar að
öðru leyli. *•* i j
Aukin almenn þátttaka í messu-
gerð. Messað var að Einarsstöð-
um annan jóladag. Var það síð-
degismessa, þar sem sóknar-
presturinn, séra Sigurður Guð-
mundsson, messaði einnig að Nesi
í Aðaldal. Það vekur athygli, að
þátttaka safnaðarins í messusöng
að Einarsstöðum er meiri en víða
annars staðar. Hefur alloft verið
hafður sá háttur á, að kirkjukór-
inn situr meðal annarra kirkju-
gesta og syngur í sætum sínum.
Verður það til þess að aðrir
syngja með. Þótt söngflokkurinn
syngi inn í kór við hátíðamessur
verður reynslan sú, að söfnuður-
inn syngur einnig með þá.
Margar fara í atvinnuleit. —
Allmargir fóru í atvinnuleit til
Suðvésturlandsins eftir áramótin.
Hefur jafnan verið allmargt
ung fólk heima í Reykjadal árið
um kring, en nú er það með fæsta
móti og horfir tii hreinna vand-
ræða með fólksleysi heimilanna
ef eitthvað ber út af með heilsu
þeirrá fáu, sefn eftir eru, auk þess
sem félagslíf og skemmtanalíf
hlýtur að verða í rústum.
Fjármargir einstakling-
ar á Sauðárkróki
Sauðárkróki í desember.
Allmargir hér í bæ eiga ein-
hverjar skepnur, bæði sér til
hagsbóta og ánægjuauka. Þannig
mun nú vera nálægt 1770 fiár í
bænum, um 50 nautgripir og 55
hross. - - Fjárflestu einstaklingar
eiga allt að 90 kindum, en flestir
eiga þó aðeins fáar eða kringum
10 kindur. Heyeign bæjarþúa var
í haust um 8000 hestar og megin-
ið af því taða, enda er ræktun
mikil í þæjarlandinu.
—o—
Jólaleyfið í skólunum er byrj-
að. Var viðhöfn að venju, þar
sem haldin voru „Litlu jó)“ í
barnaskólanum með söng og upp-
lestri við kertaljós og skreyttar
skólatöflur. Gagnfræðaskólanem-
endur fengu einkunnabækur sín-
ar með innfærðum fyrstu eink-
unnum vetrarins. Slíku fylgir
ávallt nokkur eftirvænting hjá
hinu unga námsfólki. Jólaleyfin
eru ætíð vel þegin, bæði af nem-
endum og kennurum skólanna,
enda í mörgu að snúast síðustu
daga fyrir jólin.
í barnaskólanum eru um 100
börn, en nemendur gagnfræða-
skólans eru um 60, þar af nálega
fjórði hluti úr nærliggjandi sveit-
um.
I verzlunum á Sauðárkróki var
margt um manninn fyrir jólin,
enda tjaldað því sem til var af
jólavarningi og gluggar skreyttir
til hátíðabrigða. Hér var nú í
fyrsta skipti gerð tilraun með
útiskreytingu, hefur bærinn látið
setja upp ljósaskreytingu við
Kirkjutorgið. Fegrunarfélagið,
sem stofnað var á sl. vori, hefur í
undirbúningi ljósaskreytingu
framan við kirkjuna. Þetta setur
hátíðasvip á bæinn og verður
vonandi til þess að frekar verði
að þessu gert á næstu árum.
Þingeysku heiðarnar
bílfærar
Fosshóli 4. janúar.
Fljótslieiði er ágæt yfirferðar
öllum farartækjum og Vaðlaheiði
einnig bílfær. Snjóa leysti ört í
hlákunni og jörðin kom angandi
undan snjónum. ,Féð hefur þó
víðast verið á fullri gjöf fram að
þessu og kópalið yfir fengitímann.
— Fjölmenn skemmtisamkoma
var að Yztafelli á milli jóla og ný-
árs. Þar söng kvennakór undir
stjórn Ingu Hauksdóttur og sýnd-
ur var gamanleikur. Síðan var
dansað af miklu fjöri. — í dag
heldur Kvenfélag Ljósvetninga
barnasamkomu að Fosshóli.