Dagur - 19.01.1955, Side 1

Dagur - 19.01.1955, Side 1
BYRJIÐ ÁRIÐ með því að gcrast áskrif- endur að DEGI. Sínri 1166. DAGUR kemur næst út n.k. mið- vikudag, 26. janúar. XXXVIII. árg. Akureyri, Miðvikudaginn 19. janúar 1955 3. tbl. Davíð Steíánsson sextugur Ríkisútvarpið og Þjóðleikhúsið heiðrar Ðavíð Stefánsson frá Fagraskógi Gullna hliðið verður sýnt í Þjóðleikhúsinu á afmælisdegi skáldsins, 21. janúar næstkom- andi. Verður höfundurinn sjálfur viðstaddur og mun flytja prolog- us. Hið fræga leikrit, Gullna hliðið, sem sýnt var 28 sinnum í Þjóðleikhúsinu, og einnig í Eng- landi, Finnlandi, Noregi og Sví- •þjóð, verður flutt af sömu leikur- um og áður undir stjórn Lárusar Pálssonar. Þá mun Ríkisútvarpið að nokkru helga skáldinu dagskrá sína þennan dag. Vinir Davíðs Stefánssonar ætla að halda honum veizlu í SjáK- stæðishúsinu í Reykjavík í tilefni afmælisins. Aðalræðumenn verða Steingrímur Þorsteinsson prófes- son og Þórarinn Björnsson skóla- meistari. Norðlendingar fagna því að þjóðskáldinu er sýnd margháttuð virðing í höíuðstað landsins. — Honum munu hvaðanæfa berast hlýjar kveðjur og árnaðaróskir. Sérstaklega munu Eyfirðingar og Akureyrihgar, sem þekkja hann bezt, minnast hans með mestu þakklæti og virðingu og óska honum langra og farsælla lífdaga. Kjöfur lagður að Björgunarskútu Norðurlands Miðvikudaginn 12. þ m. var kjölur lagður að Björgunarskútu Norðurlands í Stálsmiðjunni í Reykjavík. Björgunarskútan á bæði að annast björgunar- og landhelgis- störf fyrir Norðurlandi. Ráðgert er að smíði þess verði lokið að ári liðnu. Slysavamadeildirnar á Norður- landi hafa lofað að leggja fram 1 milljón króna til skipsins. Hafa þær þegar safnað miklu fé, en ennþá vantar nokkuð á að upp- hæð þessari hafi verið náð. Skip- ið Verður rúml. 200 lestir og áætlaður kostnaður er 4 milljón- ir króna. Slysavarnafélagskonur á Akur- eyri, undir duglegri stjóm frk. Sesselju Eldjárn, hafa verið óþreytandi við fjársöfnun þessa og orðið vel ágengt. Svo sem ann- ars staðar getur í blaðinu, fara þær enn á stúfana til fjáröflunar. Skömmfun á rafmagni frá Laxárvirkjun Laxá stíflast af krapi Nýju vélasamstæðurnar óstarfhæfar - önnur sú eldri í viðgerð. Rafmagnsskortur veldur ýms- um erfiðleikum í bæ og byggð Akureyri kolalaus bær Birgðir eru nú á þrotum í kola- verzlunum bæjarins og eru kol skömmtuð. 60 tonn voru íengin frá Húsavík eftir síðustu helgi og er það örlítil bót, þótt skammt nái. — Þetta kolaleysi stafar af því, að Pólverjar kipptu að sér hendinni um afhendingu kola til íslands. Voru þá keypt kol af Rússum, en þau eru nú að verða til þurrðar gengin. Á laugardag- inn var, tókust aftur samningar við Pólverja um kolakaup og mun Hvassafell væntanlega færa okk- ur fyrsta farminn upp úr næstu mánaðamótum. Hreppsnefndin í Hrafnagils- hreppi boðaði til almenns hrepps- fundar í samkomuhúsinu að Harfnagili um sl. helgi. Lagði hún fyrir fundinn tillögur um byggingu félagsheimilis. Urðu miklar umræður um málið og fékk það hinar beztu undirtektir fundarmanna. Ákvað fundurinn að hefjast handa á næsta vori eða svo fljótt sem auðið yrði og jafn- framt var ákveðið að nota gamla samkomuhúsið að svo miklu leyti sem hæt er. Orkuverið þolir ekki frost. Akureyringar og aðrir þeir, er njóta raforku frá Laxárvirkjun, hafa er.n orðið fyrir miklum von- brigðum. Undanfarna daga hefur rafmagnið verið skammtað. Er nú ekki um annað meira talað manna á milli, og ekki að ástæðulausu. Það hefur sem sé komið í Ijós, að hið mikla orkuver þolir ekki frost. Verður það að teljast Ungmennafél. Framtíðin loíaði áð leggja fram kr. 25 þúsund í peningum og vinnu og kvenfélag- ið Iðunn kr. 20 þús. Þá tilkynnti oddviti hreppsins, Halldór Guð- laugsson, Hvammi, að hann gæfi til þessarar byggingar 10 þús. kr. Með þessu nýja félagsheimili hyggjast íbúar hreppsins leysa hin félagslegu vandamál sín og skólamál, á líkan hátt og ná- grannar þeirra í Saurbæjar- hreppi. furðulegt á íslandi, að slíkt mannvirki, sem veitn- ljósi og yl um borg og byggð skuli ekki geta skilað fullri orku þótt harðinda- kafli komi og frosthörkur, eins og nú. Engin þurrð er á vatninu, en krapastíflur hafa hlaðist upp neðan við orkuverin. Eru þær orðnar svo háar, að vatn flæðir inn i stöðvarhús nýju vélasam- stæðanna. Eru vélarnar þar því ekki starfhæfar. Krapastíflan sprengd. í gær unnu menn frá Rafveit- unni að því að sprengja stíflurnar með dynamiti. Var ekki búizt við að árangur yrði að því, þótt rétt þætti að gera þessa tilraun. Stífl— an er löng og fyrirferðamikil og á meðan frostið er, bætist í sífellu við krapið. Fyrir tvéimur órum síðan mýndaðist þarna sams kon- ar stífla og varð þá ekki við neitt ráðið, þar til hlánaði og áin gat rutt sig. Vélasavnstæð'a í viðgerð. Svo óheppilega stendur á að minni vélasamstæðan í eldri virkjuninni, sem orðin var slitin ig þurfti endurnýjunar við, var í viðgerð, og því er rafmagnsskort- urinn enn tilfinnanlegri. Vara- (Framhald á 8. síðu). Á nýafstöðiium hreppsfundi í Hrafnagilshreppi, var ákveðið að byggja félagsheimili Skákþing Norðlendinga hófst síðastliðinn snmmdag Skákþing Norðlendinga var sett á sunnudaginn, og var fyrsta umferð tefld á mánudagskvöldið. Keppt er í 4 flokkum: meistara- flokki, 1. flokki, 2. flokki og ung- lingaflokki. — í meistaraflokki keppa 8, þar á meðal sem gestur Guðjón M. Sigurðsson, skák- meistari úr Reykjavík. í 1. flokki keppa 5, í 2. flokki 6 og í ung- ingaflokki 9. Aðkomumenn eru nokkrir úr Menntaskólanum hér og vestan úr Hö.rgárdal. í meist- araflokki er keppt um verðlauna- grip, gefinn af þeim feðgum Sig- urði og Guðbrandi Hlíðar. í ung- lingaflokki er keppt um verð- launagrip, gefinn af Jóni Ingi- marssyni. Fyrsta umferð í meistaraflokki fór þannig: Júlíus Bogason vann Steinþór Helgason. —* Helgi Jónsson vann Harald Ólafsson. — Guðjón M. Sigurðsson og Jón Ingimarsson, Kristinn Jónsson og Margeir Steingrímsson eiga bið- skákir. Næsta umíerð hefst kl. 8 stund- víslega á miðvikudagskvöldið í Landsbankahúsinu, efstu hæð.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.