Dagur - 19.01.1955, Síða 2

Dagur - 19.01.1955, Síða 2
2 DAGUR Miðvikudaginn 19. janúar 1955 Góður akvegur um Dalsmynni mundi treysta samband Þing- eyinga og Eyfirðinga Rætt við Jón Jóhannsson bónda á Skarði, sem hefur búið í Dalsmynni alla ævi og þekkir manna bezt aðstöðu alla þar Enn rætt um innflutning nautgripa af holdakynjum Þess var getið hér í blaðinu íyrir jólin, í fréttapistli úr Höfða- hverfi, að í sumar hcfði Jón bóndi Jóhannsson á Skarði í Dalsmynni, byggt 20 kúa fjós, hlöðu og áburðargeymslu á jörð sinni. Þeim, sem þekkja citthvað til á Skarði, munu hafa hugsað sem svo: F.kki ætlar hann að gera það endasleppt, hann Jón. Hann hcfur nú búið á Skarði í 43 ár, og þó lengur, því að hann tók við bú- stjórn hjá móður sinni áður en hann gerðist bóndi sjálfur. Hann hefur á sinni tíð gerzt einhver mesti ræktunarmaður hér um byggðir, hýst jörð sína að öllu leyti með miklum mynd- arbrag, var í hópi hinna fyrstu er komu sér upp vatnsaflstöð, og fleira mætti telja af hans handa- verkum, sem lengi munu vitna um óvenjulegan víking til allra verka. Hafa þau hjón, Jón og Sig- rún Guðmundsdóttir, kona hans bónda Sæmundssonar á Lóma- tjörn, og börn þeirra, gert Skarð að víðfrægu rausnarheimili,.... Jón á Skarði átti hér leið um bæinn fyrir helgina, ferðaðist á eigin bíl og sat dóttir hans undir stýri. Lítill tími var aflögu, en jþó lét Jón tilleiðast að sitja stundarkorn á skrifstofu blaðs- ins og svara spurningum um samgöngur og vegi í milli Þing- eyinga og Eyfirðinga. En hann mun tvímælalaust gjörkunnugri samgönguleiðum og snjóalögum í Dalsmynni en nokkur annar maður, af langri kynningu og góðri athygli. Vegur um byggð en ekki óbyggð. Þegar rætt er um samgöngu- leiðir í milli Eyjafjarðar og Þin- geyjarsýslu, austan heiðar, segir Jón, verða menn jafnan að minn- ast þess frumatriðis, að til er leið frá Akureyri til Húsavíkur, án þess að liggi nokkurs staðar um fjallveg. Þetta hafa menn líka notfært sér með því að byggja upp Kinnarbraut og gera að vetr- arvegi, en enn sem komið er ekki að fullu gagni á leiðinni frá Akui’eyri til Fnjóskadals, því að vegur um Dalsmynni er og hefur verið ófullkominn og bíður nú það verkefni, að gera þar upp- hleyptan vetrarveg. En þótt þessi vegui’, sem þar er nú í dag, sé lé- legur og langt frá því að standast samjöfnuð við þá þjóðvegi, sem því nafni mega kallast, hefur nú enn farið svo, á þessum snjólétta vetri, að bílar í milli héraðannna hafa farið um hann þegar Vaðla- heiðarvegur hefur verið lokaður. Fóru Þingeyingar á mörgum bif- reiðum til Akureyrar þessa leið í vetur snemma, er Vaðlaheiðar- vcgur var tepptur sem oftar. Telur þú þá rétt að byggja upp gamla vcginn á sínum stað eða mæla fyrir nýjum vegi? — Nýji vegurinn á tvímæla- laust að liggja austan Fnjóskár á þessum slóðum ,sem vegurinn er í dag, en hann á að liggja neðar, á bakka Fnjóskár, og mun 'þegar hafa verið mælt fyrir vegi frá Fnjóskárbrú neðri og austur og suður um Dalsmynni, þótt ekki bóli á framkvæmdum enn sem komið er. Sumir telja að vegur eigi þarna að liggja vestan ár, hvað segir þú um það? — Mér finnst það liggi ljóst fyrir, að þjóðvegur til nytja fyrir fólk, eigi að liggja um byggðir en ekki óbyggðir, þar sem eins hátt- ar og í Dalsmynni. Þar en enginn bær byggður frá Laufási að Mel- um vestan Fnjóskár, en vegurinn fer um hlað bæja að kalla má austan árinnar. Auk þess ef sVo sú staðreynd, sem ýmsum vill yf- irsjást, að vegarstæði er mjög erfitt vestan ár, og þar hafa fallið stórskriður, sem mundu hafa sópað burtu vegi á löngum kafla. í minni tíð hafa þrjú stóráföll af þessu tagi gerzt þar, hið síðasta 1946, og mundi eftir þau hlaup enginn vegur hafa verið á 4—5 km. kafla. Hvað um snjóalög og snjó- flóðahættu? Það er rétt að bakkar Fnjóskár að vestan eru snjóléttir þangað til kemur fram um Selbrekkur, út og yfir frá Skarði, en eftir það ævinlega snjóléttara að austan. Og af mínum kynnum get eg full- yrt, að þá yrðu ekki aðrir vegir færir fyrir snjónum yfirleitt, ef góður, upphleyptur vegur um austanvert Dalsmynni er ekki fær. Um snjóflóð er það að segja, að snjóflóðahætta er til, en þó ekki fyrr en fannkyngi er orðið slíkt, að vegir allir eru ófærir, þá ekki síður vegir hér innfjarðar en á þessum slóðum. Sú hætta er því ekki þannig vaxin, að hún eigi að hafa áhrif á áætlanir manna um að leysa þetta verkefni, að koma Þingeyingum austan Vaðlaheiðar og Eyfirðingum í traust og örpggt vegarsamband allt árið. Um Dals- mynni hafa líka legið leiðir manna í milli héraðanna frá ómunatíð, og er í alla staði eðli- legt að svo verði áfram. Eg lít þannig á, segir Jón á Skarði, að ef hafizt hefði verið handa um það strax í upphafi, að gera aðalbraut í milli héraðanna um Dalsmynni og Fnjóskadal, hefði Vaðlaheiðar- vegur núverandi aldrei verið lagður nema e. t. v. sem sumar- vegur fyrir þá, sem vilja stytta sér leið, en aldrei sem lífæð í milli héraða, sem slíkur vegur á að vera. En því hlutverki hefur Vaðlaheiðarvegur aldrei náð að gegna til fulls vegna þess hve fljótt hann teppist í snjóum og er oft erfiður viðureignar á vetrum. Það er nú búið að tala mikið um þessa vegagerð, og skrifa nokkuð, segir Jón á Skarði að lokum. Eg hef lítt tekið þátt í þeim umræðum. En það má gjarnan hafa það eftir mér, að eg fullyrði, eftir 50 ára kynni af snjóalögum og samgöngum í Dalsmynni, að þar er auðvelt með nútíma tækni að gera öruggan vetrarveg, sem mundi treysta samband Eyfirðinga og Þingey- inga og verða báðum héruðum til stórmikils hagræðis. Slysavarnarfélags- konur Akureyri Við viljum minna ykkur á baz- arinn, kaffi- og merkjasölu sunnudaginn 6. febrúar. Þá treystir deildin bæjarbúum, nú sem fyrr, á góða aðstoð við fjár- söfnunina, því að nú er okkur lífsnauðsyn að gjöra átak við fjáröflun, svo að upphæð sú náist, er við Norðlendingar höfum lofað í Björðunarskútu Norðurlands, sem á að verða tilbúin eftir ár. Með þökkum yrði tekið á móti munum á bazarinn frá velunnur- úm deildarinnar. Stjórnin. Framleiðslumál rædd hjá Bændafélagi Ey- firðinga Bændafélag Eyfirðinga heldur aðalfund sinn að Varðborg föstudaginn 21. þ. m. kl. 13. Auk aðalfundarstarfa verður til um- ræðu: Viðhorf í framleiðslumál- um o. fl. Skrifstofustúlka vel fær í vélritun, getur feng- ið fast starf á skrifstofu í bæn- um, strax eða síðar eftir ástæð- um. — Eiginhandarbréf, mcð upplýsingum um menntun og fyrri störf, óskast lagt í póst fyrir næstk. sunnudag merkt: Pósthólf 26, Akureyri. íl) Ú Ð 2-3 herbergi og eldhús óskast til leigu nú þcgar. Upfl. í s'wia 19S6 Eldri dansa k 1 ú h b u r i n n hefu£ dansleik í Skjald- borg laugard. 22. jan. ld. 10 e. h. — Fastir meðlimir vitji aðgöngumiða sinna á fimmtudagskvöld kl. 9- 10 í Skjaldborg. STJÓRNIN. Ræktun holdanauta er enn á dagskrá hjá eyfirzkum bændum. Á síðasta Bændaklúbbsfundi var rætt um nautgriparæktina, og hafði Bjarni Arason framsögu. Umræður snerust að verulegu leyti um nauðsyn þess að vinnna að innflutningi á holdanautum. Mál þetta var til umræðu á Bún- aðarþingi í fyrravetur og mun verða tekið fyrir að nýju á næsta Búnaðarþingi, er haldið verður áður en langt líður. Munu Ey- firðingar fylgjast með afgreiðslu þess af mikilli athygli, þar sem þeir telja ræktun holdanauta til kjötframleiðslu, henta vel ey- firzkiun staðháttum. Bjarni Arason kom víða við í ræðu sinni. Rakti hann í stórum dráttum sögu nautgriparæktar- innar hér á landi og merka áfanga í sögu þessara mála í héraðinu. Á síðari árum eru merkastir: Stofn- un nautgriparæktarfélaga í Svarf aðardal, Arnameshreppi og Grýtubakkahreppi árið 1904. — Félagsins í Svarfaðardal hefur áður verið getið hér í blaðinu. Það er eina nautgriparæktar- félagið hér á landi, sem sent hef- ur skýrslur óslitið til Búnaðar- félags íslands í 50 ár. Árið 1929 var stofnað Naut- griparæktarsamband Eyjafjarð,ar og árið 1946 var sæðingarstöðin sett á laggirnar og hefur starfað óslitið síðan. Tilgangur allra nautgriparækt- arfélaga er sá, að auka afköst mjólkurkúnna og lækka á þann hátt framleiðslúkostnað mjólkur- innar. Opinberar skýrslur sýna, að nokkuð hefur á unnist í þessu efni. Ársmjólkin var áður rúm- lega 2000 lítrar, en er nú rúmlega 3200 lítrar á sambandssvæðinu. Benti ráðunauturinn á þetta og taldi að bætt meðferð og hirðing, ásamt kynbótum, yrðu að fara saman, svo að nokkur árangur næðist. Ennfremur að þessu tvennu væri að þakka þessi mikli munur á afurðunum. Þá gat ráðunauturinn þess, að samkv. niðurstöðum Búreikn- ingaskrifstofunnar væri fóður- kostnaður kúnna nálc.ga 45% af framleiðslukostnaði mjólkurinn- ar. Ennfremur að vinnulaunin væru næstum því jafn mikil. Hann vitnaði í erindi Eyvindar Jónssonar, þar sem samanburður var gerður á stórum og litlum kúabúum. Á stóru búunum (19 lcýr mjólkandi) varð vinnustunda fjöldi á kú 207. Á litlu búunum *(8,6 kýr), voru vinnustundirnar 315. Munar þetta í kostnaði um nálægt 900 krónum á hverja mjólkandi kú. Er þetta vissulega niikið umhugsunarefni. En það er fleira en bústæi'ðin, sem skapar þennan mismun vinnukostnaðar. í því sambandi benti ráðunaut- urinn á nýung, sem er amerísk, en hefur þegar verið reynd með góSum árarígfí ‘á ilfeí'&iirfefiÍ3ú!n‘ , Én það eru lausgöngufjósin. Eitt með þessari gerð er þegar í smíð- um að Laugarvatni syðra. Á það að rúma 70 gripi. Með laus- göngufjósum á vinnukostnaður að sparast til mikilla muna. Sérlega athyglisvert var það í ræð,u Bjarna Arasonar, að jafn- framt því að meðal ársmjólkin hækkar um 100 kg., minnkar fóð- urbætisgjöfin um 100 kg. á kú, miðað við árin 1949 og 1953. Það er einmitt á þessari leið, sem mikils árangurs er að vænta. — Taldi ráðunauturinn að þar væri enn leið til mikilla framfara. Meðal annars með því að slá tún- in fyrr en gert væri og fá þannig betra' fóður. í öðru lagi með því að bæta heyverkunaraðferðirnar, og í þriðja lagi með því að beita á ræktað land. — Ennfremur hvatti hann bændur til að vanda betur uppeldi kálfa. — Tvö stór verk- efni biðu nú eyfirzkra bænda: Afkvæmarannsóknarstöð og inn- flutningur nautgripa af erlendum holdakynjum. Gudmund Knutzen héraðs- dýralæknir flutti þarna fróðlegt erindi. Taldi hann íslenzkar kýr hraustar í safnanburði við stall- systur þeirra í Úágrannalöndun- um. í stóru héraði væri þó mikið að gera og margra kvilla yrði vart. Leiddi hann rök að því, að orsakir til margra þeirra væri' vanfóðrun. Sagði hann til dæmis frá því, er hann í fyrsta sinn fór í lækniserindum til Svalbarðs- eyrar. Var hann beðinn að lækna kú, er þannig váE áTsig komin, að hún skiklaðFá "básnum og titraði lítils háttar. Onnur sjúkdómsein- kenni sáust ekki. Kussu var gefið fosfórduft og eftir 14 daga var hún orðin vel frísk. Fimm mán- aða kálf læknaði hann á sama hátt. Var kálfur þessi svo illa farinn af steinefnaskorti, að hann gat ekki risið á fætur. — Hvatti hann bændur mjög til að vanda betur uppeldi á kálfum og alla fóðrun, og öðrum ungviðum, ekki síður en á fullorðnum búpeningi. Ráðlagði hann að gefa ungviðum steinefni og kálfum og kúm lýsi, eina til tvær matskeiðar á dag, yfir skammdegið og allt þar til innistöðu lyki. Um aldur kúnna sagði hann, að hér virtust þær oft verða lang- lífar, en aðgætandi væri að yfir- leitt þekktist það ekki erlendis að halda lífinu eins lengi í þeim og hægt væri, eins og sums staðar væri gert hér. Ennfremur minnt- ist hann á júgurbólguna, sem væri hinn mesti skaðvaldur. Bændur vissu oft ekki um hana fyrr en mjólkin þeirra kæmi í 3. flokk. Væri þá farið að rannsaka málið. Kæmi þá stundum í Ijós, að veikin væri útbreidd orðin. — Júgurbólgan er nú einn alvarleg- asti búfjársjúkdómur er bændur eiga við að striða. . Um innflutning nautgripa sagði Áánn, að önnur lönd einangruðu (Framhald á 7. síðu).

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.