Dagur - 19.01.1955, Síða 8

Dagur - 19.01.1955, Síða 8
8 Baguk Miðvikudaginn 19. janúar 1955 Æfintýrið a Fljótsheiði Byggðahverfið í Stafni ber átthagatryggð og dugnaði gott vitni, því er þeini holt að kynnast, er láta sig einhver ju varða um f ramtíð sveitanna Ymis tíðindi úr nái Á því byltingatímabili í at- vinnuháttum og lífsvenjum, sem enn stendur yfir á landi hér, hef- ur margt áunnist á skömmum tíma og framundan eru stórstígar framkvæmdir til sjávar og sveita. Þrátt fyrir þ'etta, er það sorgleg staðreynd, að íslenzkar sveitir hafa minnkað á undanförnum ár- um. Byggðin hefur dregizt saman og fólkinu fækkað. Dala- og heiðabýli standa auð og yfirgefin og jafnvel heilar sveitir hafa lagzt í auðn. Því er ekki að leyna, að stund- um hefur andað köldu til þeirra, sém annes og útkjálka byggja. Heiðarbúar og afdalamenn hafa líka verið litnir hornauga. Byggðahverfin og skipting jarða „á góðum stöðum“ hefur fengið hljómgrunn margra ráðamanna og áhugamanna um landbúnaðar- mál. Með þeim á að vinna upp tap að land, auð og yfirgefin heimili. Margra hugur hneigist til þétt- býlisins, fljótfengnari lífsþæginda og auðveldari samskipta við fólk. í umróti liðinna ára hafa þó orðið mörg athyglisverð frávik frá þessari þróun. Enn gerast ævintýr. Fljótsheiði liggur í milli Bárð- ardals aðvestan og Reykjadals að austan.Undramikill og fjölbreytt- ur gróður heiðarinnar, er augna- yndi vegfarenda er þar fara. — Sunnarlega á heiðinni, langt frá alfaraleið, er heiðabýlið Stafn. Lengi hefur þar verið búið, en ekki er mér kunnugt um forna frægð eða ævintýraljóma þessa staðar. En nú er að gerast þar ævintýr, sem vert er að halda á lofti og þeim er hollt að kynnast, er láta sig einhverju varða um framtíð sveitanna á íslandi. Sex ábúendur í stað tveggja. Tvíbýli var í Stafni fyrir alda- mót. Sigurgeir hóf þar búskap 1893. Hann andaðist þar 1939, þá háaldraður maður orðinn. Mót- býlismaður hans var Páll H. Jónsson fram til 1927. Dvaldi Spurningaþættir í sambandi við spurningaþætti, er víða eru nú tíðkaðir á sam- komum, skýrði Svarfdælingur svo frá, að í ungmennafélagi þar, hefði sá háttur verið hafður á, að gefa mönnum kost á nokkrum imdirbúningi. Einu sinni var t. d. tilkynnt að næsti spurningaþátt- ur yrði úr Svarfdælasögu. Fóru menn þá að lesa af kappi og kom þá í Ijós, að margir höfðu lítið sem ekki kynnt sér þær bók- menntir áður, en voru þakklátir fyrir að vera þannig góðfúslega minntir á að kynnaast söguþátt- um sinnar eigin sveitar. hann síðar á Laugum, hjá fóstur- syni sínum og nafna, og andaðist þar. Sigurgeir og Póll voru sæmd- armenn og góðir bændur. Þegar synir Sigurgeirs uxu upp, var það þegar sýnt, að hugur þeirra hneigðist til búskapar og þeir tóku mikilli tryggð við æskustöðvar sínar. Þeim var það einnig ljóst, að þrátt fyrir mikið olnbogarými á heiðinni og ótak- markað land, biðu þeirra erfið frumbýlingsár. Lærðu þeir flestir einhverja iðn, er þeir hafa stund- að í hjáverkum. Helgi Sigurgeirsson fékk jarð- næði, þegar Páll hætti búskap, heitir það Stafn I. Ingólfur Sigur- geirsson byggði nýbýli um 1930. Heitir það Vallholt. Hann á nú uppkomin börn. Ingólfur hefur stundað bókband jafnhliða bú- skapnum. Hólmgeir Sigurgeirs- son byggðði nýbýli 1937. Það heitir Vellir. Hólmgeir er smiður góður og hefur stundað þær nokkuð og ennfremur miðstöðv- arlagnir, eftir því sem ástæður hafa leyft og tími hefur til unnizt. Pétur Sigurgeirsson býr í Stafni II og Ketill Sigurgeirsson í Stafni III. Aðeinns tveir Stafnsbræðra hafa flutt burtu. Býr annar á Reykhólum og hinn að Lundar- brekku. Og enn fjölgar óbúendum í Stafni. Tengdasonur Helga, Kristján Jósepsson frá Breiðu- mýri, er þangað fluttur. Helgi stundaði lengi söðlasmíði og skó- gerð og enn grípur hann til þeirr- ar iðju. Pétur hefur unnið að jarðabót- um um 25 ára bil í flestum hreppum sýslunnar. Gamla drátt- arvélin hans, International, er enn í sæmilegu lagi, þótt hún beri nokkur ytri merki aldursins. Og enn er hún með sama mótorinn. Lítið hefur hún kynnzt viðgerð- arverkstæðum um dagana og hef- ur þó komizt í margan krappan dans við landbrot og jarðvinnslu á undangengnum 25 ái-um. En fallegur væri sá blettur orðinn, ef saman væru komin á einn stað tún þau er 'hún hefur átt þátt í að skapa. Bræðurnir í Stafni hafa þannig unnið jöfnum höndum að iðnaði, smíðum og ræktunarstörfum, og heima í Stafni er mikil breyt- ing á orðin. Þar eru nú 6 ábúend- ur. Þar hafa mörg handtök verið unnin og ekki öll talin. Gott sauðland — Rjúpurnar gæfar. Á Fljótsheiðinni eru sauðlönd góð. Hreinasta paradís fyrir sauðhjarðir, sem dreifa sér um víðáttuna og velja af gnægðum gróðursins. Bændurnir í Stafni stunda fvrst og fremst sauðfjár- (Framhald á 7. síðu). Frosthörkur og harð- indi Fosshóli 17. janúar. Óvenjulega mikið frost var og harðindi síðustu viku í Bárðardal eins og víðar. Frostið var um og yfir 20 gráður. Hæst komst það í Svartárkoti í 28 gráður. Ófært er nú orðið yfir Fljótsheiði og Vaðlaheiði. Var síðast farið yfir þær á jeppa á laugardaginn var. Ófært er orðið framan til í Bárð- ardal og þungt færi í Kinn. Mjólkurbíllinn lagði þó af stað á mánudaginn, og gekk ferðin slysaláust. Póstur úr Laxárdal átti að koma að Einarsstöðum á sunnu- daginn, en komst ekki yfir Laxá. Býr hann í Árhvammi, austan árinnar. Er þetta einsdæmi á þessum tíma. Mun áin hafa verið full af krapi. Pósturinn fró Víði- keri, sem kom að Fosshóli um helgina, kvaðst hafa verið í vand- ræðum að verjast kali. Varð hann hvað eftir annað að þýða andlit sitt með snjó. Kól hann þó að- eins. Pósturinn héðan frá Akur- eyri lagði af stað í jeppabifreið á sunnudaginn Fékk hann bil á móti sér að austan. Ekki náðu bíl- ar þessir saman, því að Vaðlaheiði er alveg ófær og veður var hið versta. Stefán Steinþórsson póst- f sl. viku kom á markað hér og víðar á landinu ný ost-tegund frá Mjólkursamlagi KEA. Heitir ostur þessi „Góðostur11 og er 50% feitur. Osturinn er seldur í mjög smekklegum alúm-umbúðum og er hver baukur 100 grömm og kostár kr. 3.80 út úr búð. Bauk- unum er lokað þannig, að loítþétt er, og tryggir það mikið geymslu- þol ostsins. Mun óhætt að geyma baukana í venjulegum geymslum í heimahúsum 2 mánuði eða leng- ur án hættu á skemmdum. Þessi nýja ost-tegund hefur þegar hlot- ið góða dóma neytenda og er víða eftirspurð. Jónas Kristjánsson mjólkur- samlagsstjóri hefur skýrt biaðinu svo frá, að Samlagið muni senda á markað fleiri bragðtegundir af „Góðösti“ áður en lan^t um líður, svo að sem flestir geti valið ost- öskju með því bragði, er þeir helzt kjósa. Fjölbreytt ostaframleiðsla. Mjólkrsamlag KEA framleiðir fleiri ostategundir en allar aðrar mjólkurstöðvar á landinu og hef- ur svo lengi verið. En í dag er það t. d. eini framleiðandi gráða- osts hér á landi, en Akureyrar- gráðaosturinn er löngu þjóð- kunnur, auk þess sem ferðamenn, sem landið hafa gist, hafa sótzt eftir honum og margir þeirra tek- ið prufu heim með sér. Þá fram- leiðir Samlagið mjólkurost, bæði 30 % og 40% feitan ,ennfremur svo nefndan goudaost, sem er 45% feitur, og tvær tegundir af mysuosti. Eru það rjómamysuost- ur og mysingur, en það siðar- ur lagði af stað á mánudaginn og varð í þetta sinn, eins og oítar þegar i harðbakkann slær, að fara ríðandi. Fjölmenn barnasam- koma að Sólgarði Á laugard. efndi kvenfélag- ið og skólanefndin í Saurbæj- arhreppi til barnasamkomu. — Mættu þar um 80 börn úr sveit- inni, allt frá þriggja ára aldri. — Börnin skemmtu með upplestri og skrautsýningu. Þá komu íram 2 dvergar og töluðust við. Ljós- álfar og púkar létu einnig til sín taka. Þá komu 2 jólasveinar er einnig skemmtu börnunum. — Gengið var í kringum fagurlega skreytt jólatré og sungið. Að lokum var dansað. Þótti sam- koma þessi takast með ágætum. Samstarf kirkjukóra Kirkjukórar Munkaþverár- sóknar og Lögmannshlíðarkirkju hafa nú byrjað sameiginlegar söngæfingar undir stjórn Áskels Jónssonar söngstjóra. Er þetta alger nýjung hér í söngmálum kirkjunnar og hin athyglisverð- asta. Æfingar eru hinar ánægju- legustu og söngfólkið hugsar gott til áframhaldandi samstarfs. — Á nefnda er nýjung í ostafram- leiðslu hér á landi og er sú frum- leiðsla aðeins fárra ára gömul hjá Samlaginu. íslenzk ostaframleiðsla sarnbæri- leg við erlenda framleiðslu. íslenzkar mjólkurstöðvar. og þá ekki sízt Mjólkursamlag KEA, hafa á liðnum árum alloft selt osta úr landi, og hafa þeir jafnan líkað vel og mun óhætt að fúll- yrða, að ostaframleiðslan hér á landi er sambærileg við erlenda framleiðslu um gæði ost-tegund- anna. Hins vegar getur þessi framleiðsla ekki orðið eins fjöl- breytt hér og hjá íjölmennum landbúnaðarþjóðum vegna þess hve mjólkurstöðvar hér eru fáar og. markaður innanlands tak- markaður. Skatrfirðingar senda nýjan Ost á markað. Þá hefur^jað einnig" borið til tíðinda í ostaframleiðslunni nú fyrir áramótin, að á markað kom ný osttegund frá mjólkursamlag- inu á Sauðárkróki, seín nefnist ,,Smurostur“ ,og er mjög svipað- ur dönskum „smörosti11, sem er ljúffengur og víða kunnur. — Mjólkursamlag Skagfirðinga hef- ur og byrjað framleiðs’u á fleiri bragðtegundum af þessum osti. Þykir þessi framleiðsla ljúffeng og er eftirspurð. Munu allir gleðjast yfir því, að þessi tvö mjólkursamlög hafa komið hér með nýung til aukinn- ar fjölbreytni fyrir neytendur og aukin mjólkurvöruneyzla er þjóðinni áreiðanlega bæði holl og hagstæð. síðari árum hefur mjög batnað kirkjusöngur víða um land og verður það tæplega fullþakkað. Samstarf kirkjukóra, á líkan hátt og hér segir frá, mundi víða geta tekizt, ef vilji væri fyrir hendi. Sennilega munu kórar þessir láta til sín heyra síðar í vetur, þegar tími þykir til kom- inn. Snöggur jarðskjálfta- kippur í Hrísey Hrísey 17, jan. Snöggur jarðskjálftakippur varð í Hrísey kl. 4,50 í morgun. Vakn- aði fólk af værum blundi, en enginn skaði varð á mör.num eða mannvirkjum, svo að vitað sé. Kvenfélagið í Hrísey æfði sjón- leikinn „Frá Kaupmannahöfn til Árósa“ og sýndi hann á fjöl- mennri samkomu um jólin Út- vegsmannafélagið hélt skemmti- samkomu á 13. Þar var spurn- ingaþáttur, gamanvísur og tvö- faldur kvartett söng undir stjórn Guðrúnar Jónsdóttur kenrara. Þangað kom margt fólk af Ár- skógsströnd og víðar að. Það bar til tíðinda í Hrísey 4. jan.,. að lamb fæddist. Er ekki vitað að slíkt hafi áður borið þar við, á þessum tíma árs. Ekki þykja það mikil tíðindi nú orðið, á Akui'eyri og í Eyjafirði, að ærnar beri um áramótin eða jafn- vel fyrr. Hitt er mönnum aftur á móti ráðgáta, enn sem komið er, hverju slíkt sætir. Margir Hríseyingar eru farnir í atvinnuleit til Suðurlands. - Rafmageið skamtað (framhald af 1. síðu). hlutir til þessarar vélar urðu síð- búnir hingað til lands, en komu þó til Húsavíkur fyrir nokkru, en viðgerðinni var ekki lokið. Það rafmagn, sem nú er skammtað er því aðeins frá annarri vélasam- stæðu gömlu stöðvarinnar austur frá og til viðbótar rafmagn frá Hjalteyri og gömlu Glerárstöð- inni. Er sú viðbótarorka á fimmta hundrað kilovött. Þetta ástand í rafmagnsmálun- um er nær óþolandi og mikið áhyggjuefni hins stóra og vaxandi hóps manna er treysta á rafmagn- ið til daglegra nota á heimilum sínum og til margvíslegra ann- arra hluta. Verður tæpast annað séð en verkfræðilegum vitsmun- um hafi nokkuð verið áfátt um staðsetningu nýju stöðvarinnar. Orkuverið illa staðsett. Endalaust má deila um verk- fræðileg atriði, svo sem um aðra hluti, en reynslan er ólýgnust um flest. Virðist hún benda til þess að lítið þurfi út af að bera með veð- urfarið, svo að búast mégi við endurteknum og óviðunandi truflunum frá orkuverinu við Laxá. Verður það enn um skeið aðkallandi verkefni að ráða bót á þessum vanda og tryggja þar með neytendum betri þjónustu. Síðaustu fréttir herma að spreng ingar eystra hafi verið árangurs- lausar með öllu og vei'ðum við enn að una við það ástand, sem er, — þangað til Guð gefur hláku. Hefur fjölbreyttasta ostaframleiðslu allra mjólkurstöðva á landinu

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.