Dagur - 30.04.1955, Page 1
I
Fylgist með því, sem gerizt
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 4. maí.
XXXVin. árg.
Akureyri, laugardaginn 30. apríl 1955
24. tbl.
Frímerki alþjóða flugmálastofnuiiarimiar
Þeíta frímerki gáfu Sameinuðu þjóðirnar út í febr. sl. í tilefni af 10
ára afmæli alþjóðaflugmálastofnunarinnar, sem hefur aðsetur í
Montreal. Teikn. írá Uruguay gerði myndina. Gildin eru 3 og 8 cent.
Áfkvæmarannsóknasföð nauf-
grípa vænfaniegð sefí upp á
Lundi við Ákureyri
Sýslunefnd gekk í 500 þúsund króna áhyrgð
fyrir Nautgriparæktarsambandið - Sýslu-
nefiidarfundi lauk á þriðjudaginn
ieif ríkisstiórnarinnar um afvmnu-
ir leysn
Samið um 10% kaupliækkun, sem næst
ýmist með fullri vísitölugreiðslu eða
beinni kauphækkun - orlof sf é hækkar
og verkamenn fá 1% af launum
í sjúkratryggingaspð
Verkfallinu Jauk um land allt í gærmorgun
Sýslufundur Eyjafjarðarsýslu
var haldinn hér á Akureyri dag-
ana 19.—26. þ. m. Meðal niála,
scm rædd voru, var fiskveiðitak-
mörk fyrir Norðurlandi.
Var samþykkt að skora á hlut-
aðeigandi aðila, að beita sér fyrir
því, að. friðunarlína fyrir Norður-
landi verði dregin frá. Rauðu-
núpum framan við Gr'msey og
þaðan í Horn.
Ábyrgð fyrir afkvæma-
rannsóknarstöð.
Sýslunefndin samþykkti að
ganga í ábyrgð fyrir allt ác 500
þús. kr. láni vegna Sambands
nautgriparæktarfélaga Eyj af j arð-
ar til kaupa á jörðunum Lundi
og Rangárvöllum hér við Akur-
eyri, en sambandið hyggst koma
þar upp afkvæmarannsóknarstöð.
Fjárveitingar.
Til sýsluvega var veitt á arinu
kr. 267.000.00. Fundurinn veitti
„Jörundur“ landaði 250
lestum i Ólafsfirði
Togarinn Jörundur kom til
Ólafsfjarðar á miðvikudagsmorg-
un, og hófst þegar löndun. Var
engin tilraun gerð til að stöðva
vinnu og var togarinn afgreiddur
viðstöðulaust. Skipið hafði um
250 lestir af fiski, sem fór í frysti-
hús og til herzlu. Mikil atvinna
hefur. verið í Ólafsfirði við fisk-
móttöku og fiskverkun að undan-
förnu.
til menntamála kr. 22.350.00, til
heilbrigðismála kr. 55.800 00, til
búnaðarmála kr. 45.650.00.
Sauðfjárveikivarnir.
Kjörnir voru brír menn úr
hópi sýsluneíndarmanna til þess
að eiga viðræður við forustu-
menn sauðfjárveikivarnanna
vegna þess að mæðiveiki hefur
orðið vart að nýju í Skagafirði, í
nálægustu hreppum við Eyja-
fjaröarsýslu. Kjörnir voru bessir
menn: Brynjólfur Sveinsson
hreppstjóri, Efstalandskoti, Eið-
ur Guðmundsson hreppstjóri,
Þúfnavöllum og Þórarinn Kr.
EÍdjárn hreppstjóri, Tjörn.
Á fimmtudagsmorguninn var
upp kveðinn í Hæstarétti dómur
í máli því, er hið opinbera höfð-
aði gegn Ohufélaginu h.f., Hinu
'slenzka steinolíuhlutafélagi og
forstjórum þeirra fyrir meint
verðlagsbrot.
Mál þetta reis út af olíufarmi,
er kom til landsins 10. marz 1950,
og vegna gengisbreytingar, er
gerð var 19. marz 1950. Var um
það deilt, hve mikill hluti farms-
ins hefði verið greiddur fyrir eða
eftir gengisbreytingrma.
Hátíðahöld verka-
manna á morsun
Á morgun verða 1. maí hátíða-
höld hér í bæ með svipuðu sniði
og áður. Hefjast kl. 1.30 við
Verkalýðshúsið með því að Lúðra-
sveit Akureyrar leikur. Þá syngur
JóhaUn Konráðsson með undirleik
Askels Jónssonar. Ræðumenn á
útifundinum verða: Stefán Árna-
son, Jón Ingimarsson, Björn Jóns-
son og Rósberg Snædal. Lúðra-
sveitin mun og leika fyrir kröfu-
göngunni. Barnasamkoma er í Al-
þýðuhúsinu kl. 3.30, og dansleikir
á sama stað í kvöld og annað
kvöld.
Allsherjarverkfall
í Færeyjum
Læknismálið í Faereyjum er
óleyst. Verkalýðsfélögin hófu alls-
herjarverkfall þar sem lögreglu-
skipið hefur ekki verið kvatt
heim og ekki hefur verið sinnt til-
lögunni um gerðardóm. Danir
hafa sent Kampmann fjármálaróð-
herra til Færeyja og mun hann
beita sér fyrir samningaumleitun-
um. Enginn bilbugur virðist vera
á Klakksvíkingum, sem enn hóta
hörðu, og halda fast við fyrri af-
stöðu.
Innaiilaiidsflug hófst
í gær
Síðdegis í gær kom hér áætlun-
árflugvél frá Flugfélagi íslands, og
fögnuðu bæjarbúar þeirri sýn, er
vélin renndi sér hér yfir bæinn.
En áætlunarflug hefur legið niðri
vegna verkfallsins í nær 6 vikur.
Mun áætlunarflug til að byrja
með verða samkvæmt áætlun
þeirri, er í gildi var, er verkfall
hófst.
Upptektarfé Iækkar.
Dómsorð Hæstaréttar eru á þá
lund, að íorstjóri HÍS, Haukur
Hvannberg, var sýknaður. Þáver-
andi forstjóri Olíufélagsins h.f.,
Sigurður Jónasson, var dæmdur í
100 þús. kr. sekt, og fulltrúi hans,
Jóhann G. Stefánsson, í 20 þús.
kr. sekt. Þá var gerður upptækur
ágóði félagsins og er upphæðin
nú ákvörðuð 420 þús. kr. lægri en
verðlagsdómur hafði áður
ákvarðað, eða alls kr. 1.180.152.77.
Þá greiði félagið ríkissjóði 6%
vexti frá 1950.
Á fimmtudagskvöldið undirrit-
uðu deiluaðilar í vinnudeilunni
nýja samninga, er síðan voru
samþykktir af deiluaðilum á
fundum, sem haldnir voru í
fyrrakvöld. Var verkfalli aflýst
um nóttina og hófst vinna þegar
í gærmorgun.
Hér á Akureyri samþykkti
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar einróma hin nýju
kjör á almennum fundi í fyrra-
kvöld, en atvinnurekendui til—
kynntu samþykki sitt. Var verk-
fallinu þá aflýst. Þó dróst til há-
degis í gær, að fyrir lægi sam-
þykki Akureyrarkaupstaðar, og
hófst starf hjá bænum því lítið
eitt seinna en annars staðar.
Almenn ákvæði samkomulagsins.
Samkomulagið var gert á
grundvelli yfirlýsingar frá ríkis-
stjórninni, og þeim þingmeiri-
hluta, er hana styður, um laga-
setningu um atvinnuleysistrygg-
ingar á næsta hausti. En að öðru
leyti eru almenn ákvæði um
breytingu kaupgjalds og kjara á
þessa leið í aðalatriðum:
Kaup hjá öllum, sem átt hafa í
verkfalli, hækkar um 10%. Kem-
ur hækkunin fram með grunn-
kaupshækkun og afnámi vísitölu-
skerðingar, sem í gildi hefu)- ver-
ið. Verður grunnkaupshækkun
verkamanna 10%, en hjá iðnstétt-
um minni grunnkaupshækkun,
en afgangurinn næst þámeðfullri
vísitölúgreiðslu. Er nokkuð mis-
munandi eftir félögum, hvcrnig
þessi hækkun er reiknuð, en að-
alatriði er, að hún nemur alls
staðar 10%.
Orlof og sjúkratrygging.
Þá hækkar orlofsfé úr 5% í
6% og verður orlof 18 dagar í stað
15 daga áður. Þá greiða atvinnu-
rekendur 1% í sjúkrasjóð verka-
mannafélaga. Nær þetta ein-
göngu til daglaunamanna. og
kemur til jafns við, að mánaðar-
menn hafa í samningum ákvæði
um veikindadaga á kaupi.
Atvinnuleysistryggingasjóður.
Þá er atvinnuleysistrygginga-
sjóður og framlög til hans. Hann
á að fá L% af dagkaupi frá at-
vinnurekendum, miðað við verka
rtiannakaup og 48 stunda vinnu-
viku. Frá ríkissjóði fær hann 2%
og frá bæjar -og sveitarsjóðum
1%. Á að greiða 1% af allri dag-
vinnu verkamanan í bæjarfélagi,
og auk þess greiða bæirnir at-
vinnurekendaframlag af þeirri
vinnu, er framkvæmd er í þeirra
þjónustu. (Hér má skjótabvíinní
að ekkert liggur fyrir um það,
hvernig bæjarsjóðir eiga að afla
tekna til þessara nýju útgjalda).
Árssanmingar.
Samningar þessir gilda til 1.
júní 1956, nema ef gengisbreyting
verður, þá er heimilt að segja upp
með mánaðar fyrirvara. Sam-
kvæmt samningum þessum
hækkar nú tímakaup verka-
manna í almennri dagvinnu úr
kr. 14.88 í kr. 16.53.
Fyrirkomulag atvinnuleysis-
trygginga.
f yfirlýsingu þeirri, er ríkis-
stjórnin birti, og fyrr er til vitnað,
eru sett fram almenn ákvæði, er
verða á fyrirkomulagi atvinnu-
leysistig'ggingasjóðs. En í aðal-
atriðum eru þau þessi:
Frumvarp um atvinnut’-ygg-
ingar verður lagt fyrir Alhingi í
haust. Verður stofnaður atvinnu-
leysistr.yggingasjóður með íiam-
lögum þeim, er fyrr getur. Varð-
væitist sjóðurinn í Landsbankan-
um, eða hjá Tryggingastofnun
ríkisins. Það fé, sem innheimtist
á félagssvæðum verkalýðsfélaga,
verður geymt á sérreikningum.
Hámark og lágmark bóta verður
ákveðið með lögum. Bótarétt
verða menn að sanna með vott-
orði frá vinnumiðlunarst.ofnun.
Stjórn sióðsins á hver.ju svæði
lýtur 5 mönnum, og kjósa verka-
lýðsfélög eða sambönd beirra 3,
en aðrir aðilar 2. Hver einstakur
Framhald á 7. síðu.
Krían er komin!
Á miðvikudagskvöldið, 27.
apríl, hringdi Jón Hjartarson
sjómaður til blaðsins og kvaðst
hafa séð kríuna þá um morg-
uninn, er hann var á sjó
skammt utan við Svalbarðs-
eyri. Ber þetta alveg upp á
sama tíma og í fyrra, en þá sást
krírtn hér nyrðra einmitt 27.
apríl. Oft er talað um að krían
komi 14. maí, en hún er ævin-
lega mun fyrr á ferð, eða svo
hefur a. m. k. verið hin scinni
ár.
Upptektarféð lækkar um 420 þúsund kr.