Dagur


Dagur - 04.05.1955, Qupperneq 5

Dagur - 04.05.1955, Qupperneq 5
MiÖvikudaginn 4. maí 1955 D AGUR 5 eS skagfirzkum bændum í og bænda- um sko Á þessn vori eru liðin 20 ár síðan Kristján Karlsson tók við skólastjórn Sunnudaginn 17. apríl sl. komu um 4Ö bændur úr tveimur hrepp- um sýslunnar (Rípur- og Fellshr.) „heim að Hólum“ í boði skólans. Þeir komu í stórum langferðabil- um en ekki þeysandi á gæðingum eins og i gamta daga. Gestunum var fyrst boðið til kaffi- drykkju í íbúðarhúsi skólastjóra, Kristjáns Karlssonar, er bauð þá velkomna og skýrði frá tilgangin- um með þessum heimboðum. Taldi skólastjórinn það geta haft veru- lega þýðingu fyrir bændur, að fylgjast með starfsemi bsendaskól- anna og búrekstri þeirra, og engu þýðingarmeira væri það fyrir skól- ana, að bændur fengju sem gleggst kynni af starfseminni og sæju með eigin augum, hvað væri eftir- breytnisvert og hverju ábótavant. Skýrði hann svo fyrirhugaða til- högun yfirlitsferðar um staðinn. — Hvað er svo markverðast að segja um það, sem þeir fengu að sjá og heyra? Við skulum reyna að fylgjast með þeim. Það er byrjað með því að sýna þeim inn í nýtt smíðahús, sem er viðbygging við leikfimishús skólans. Húsið er ekki innréttað enn, nema að litlu leyti. I kjallara eiga að vera búningsklefar og bað- klefar fyrir nemendur í sambandi við leikfimissalinn, sem einnig er verið að endurbæta. Uppi á lofti er rúmgóð og vistleg smíðastofa. Þar fer fram kennsla í búsmíðum og bókbandi að vetrinum. Þarna fengu bændurnir að sjá vandaða smiðisgripi eftir nemendur, svo sem hefilbekki, skrifborð, skápa, stóla o. fl. Miðað við gangverð á slikum smiðisgripum, fá nemendur á þriðja þúsund kr. fyrir þá vinnu, sem þeii hafa lagt í smíðarnar (fá sumir meira, aðrir minna, eftir af- köstum). Bændurnir lita einnig inn í leik- fimissalinn. Þar eru nemendur að æfa knattleik. Þeir þurfa að taka sér hvild frá lestrinum og skerpa athyglisgáfuna, því nú standa próf- in yfir. í FJÁRHÚSUNUM Frá leikfimishúsinu er farið suð- ur að fjáihúsum. Þar eru um 530 fjár. Húsin eru þurr og björt og augljós vellíðan fjárins. Nýrra hús- ið var byggt fyrir 10 árum. Það tekur 200 fjár, og hefur reynslan sýnt ótvírætt, að sú húsagerð er ókjósanleg á þessum stað. Húsið er 10 m langt og 20 m breitt. í því e ru 8 krær og 4 garðar. Breidd krónna er rúml. 2 m. Allir veggir eru steyptii, einnig garðar og milli- gerðir. Dyr eru í allar krærnar nægilega breiðar fyrir kerru. Þeim er lokað með fleka annars vegar, en hins vegar með tveimur hurð- um, og er hægt að hafa efri hurð- ina opna, þegar þess gerist þörf. Steinsteypt hlaða er við húsið, jafnlöng breidd þess. Veggur er á milli húss og hlöðu, með opnum dyrum í hvern garða. Súgþurrkun- arkerfi er í hlöðunni. Þak er úr bárujárni. Fjárhúsið er með tveim- ur risum, og eru mænarnir opnir að endilöngu. Vegghæð er 2.3 m og rishæð 1.9 m. Ekkert einangr- unarefni er innan á þaki eða veggj- um. Þakið hélar aldrei og snjóar ekki inn um mæni. Húsið er ævin- lega loftgott, en hitamismunur úti og inni sjaldan mikill. Árni Pétursson, sem kennir bú- fjárfræði o. fl. við skólann, skýrði bændum frá tilraun með áhrif hor- mónalyfja á frjósemi ánna. Var byrjað á þessari tilraun á Hólum i vetur, og er hún í fimm liðum.. Ánum er skipt í fimm flokka, og eru 20 í hverjum flokki. Einn flokkurinn fær engin lyf, en hinir misstóra skammta. Svipuð tilraun var gerð á fjárræktarbúinu á Hesti i Borgarfirði síðastl. ár, og sýndi hún verulegan árangur hormón- lyfja á frjósemi ánna. Það mun í felstum tilfellum vera hagkvæmast fyrir bæhdur að hafa ærnar tví lembdar, því að'með því fást meiri afurðir áð meðaltali eftir hverja vetrarfóðraða kind. í VERKFÆRACEYMSLU OC FJÓSI getur því notað sér fræðslumyndir til aðstoðar við kennslu í sumum greinum. TUTTUGU ÁRA SKÓLAST JÓRN Að siðustu var kaffidrykkja áð- ur en gestirnir lögðu af stað heim- leiðis. Nokkrir af bændunum fluttu þá ávörp. Þökkuðu þá fræðslu, er þeir höfðu fengið og rómuðu alúö og risnu þeirra skólastjórahjóna. Tuttugu ár eru í vor, frá því að Kristján Karlsson tók við skóla- stjórn á Hólum, og hefur hann því lengur en nokkur annar verið skólastjóri bændaskólans þar. Það kom í ljós, að sumir af þessum bændum höfðu aldrei fyrr komið heim að Hólum. Bændur úr Seylu- hreppi voru gestir skólans laugar daginn fyrir páska, og hafa slik heimboð sem þessi verið stöku sinnum áður ó vegum skólans. Frá fjárhúsúnum var gengið til verkfærageymslu, sem er þar rétt hjá. Er gólfflötur hennar 320 ferm. Eru stórar dyr til beggja enda og hægt að áka-stórum dráttarvélum þar út og.inn. Skólabúið hefur orð- ið mjög fullkominn vélakost bæði til jarðyrkju og heyoflunar. Næst sk'oðuðu bændurnir fjósið. Það tekur um 70 nautgripi og er fullskipað, Við það er þurrkhlaða með súgþurrkunarkerfi og enn- fremur tveir votheysturnar. Töflur voru við hvern bás mjólkurkúnna, sem sýndú nythséð þeirra og fitu- magn mjólkurinnar. Þær nythæstu voru með um og yfir 30 kg mjólkur yfir daginn. Mjólkin er flutt til mjólkursamlagsins á Sauðárkróki. Bændum leizt mjög vel á votheyið úr turnunum. Litur þess og lykt sýndi, að verkunin hefur tekizt mjög vel. Telur skólastjórinn, að votheysverkun hafi alltaf tekizt vel á Hólum, síðan turnarnir voru byggðir. Hann telur miklar líkur til, að höfúðástæðan sé sú, að hey- ið er saxað i turnana. Gæti það verið athugandi fyrir þá, sem hafa lágar votheysgryfjur, að hafa sax- blásara sem félagseign. MIKILL FJÖLDl HROSSA Á SKÓLA.BÚINU Hesthús. er skammt frá fjósinu. Voru þar kynbó-tahestar og hestar, sem eru í tamuingu. Alls munu nú vera um 50-—60 hross á skóla- búinu. Þegar lokið var að skoða búféð og byggingarnar, var gengið til skólahússins og í kennslustofu. Þar fluttu kennarar skólans erindi. — Árni Pétúrsson talaði um kynbæt- ur sauðfjárins, én Vigfús Helgason am framleiðslu'aukningu á land- búnaðarvörum og markaðsmögu- leika. Með þessum erindum fylgj- ast bændur nú almennt af miklum áhuga. Að erindum þessum loknum var snæddur kvöldverður og svo aftur farið til kennslustofu. — Þá sýndi skólastjóri ýmsar landbúnaðarkvik myndir og skuggamyndir og skýrði þær. Skólinn hefur eignazt bæði kvikmynda- og skuggamyndavél og Svissneskt hlutverk er nú ætlað Austurríkismönnum en taflið um Þýskaland heldur áfram Frá Náttúrulækninga- félagi Akureyrar Vegna fyrirspurna um gæða mun á nýmöluðu heilhveiti og gamalmöluðu heilhveiti og hvítu 'hveiti vill stjórn N. L. F. A. birta eftirfarandi: Hveitikorn er hægt að geyma árum saman, án þess það skemm ist, ef skilyrði eru góð. Korn er all-auðugt af ýmsum steinefn- um, svo sem kali, natrium. kalki, magnisium, járni, fosfór, brenni steini, kísil og klóri. Kornið er fremur snautt af a og c fjörefn- um, en auðugt af b fjörefnum. Þá er í því e fjörefni og kannske fleiri. Steinefnin og þó sérstak lega fjörefnin fylgja meir kími og hýði, en kjarna, og leiðir því af sjálfu sér að hýðissvifting mjölsins nemur á brott mest öll fjörefnin, og meiri hluta stein- efnanna. og rýrir þar með veru- lega gildi mjölsins til manneldis. — En hver er munur nýmalaðs og gamalmalaðs mjöls? í korni eru svokallaðir efnakljúfar, sem taka til starfa strax og kornið er malað, og eyðir sú starfsemi all- verulega gildi mjölsihs. Auk þess er fita í korni, sem þránar, þegar mjölið er geymt. Vitað ei að kornmylnur erlendis, blanda bleikingarefnum í mjölið, bæði til að gjöra það hvítara og hindra starfsemi efnakljúfanna, og varna því að fitan þráni. En efni þessi eru miður holl til neyzlu að því er margir læknar og næringar- efnafræðingar telja. Af þessu liggur Ijóst fyrir, að heppilegast væri fyrir oss íslendinga, að flytja kornið inn ómalað. Stað- setja svo smá-myllur víðs vegar um landið svo að allir ættu þess kost að kaupa ávalt nýmalað mjöl. Þá er þess einnig að geta, að korn er mjög misjafnt að gæð- um. Getur eggjahvítumagnið verið frá 6—14%. Fer bað eftir tegundum og þroska. Þá er held- ur ekki ósennilegt að verðmæt næringarefni svo sem steinefni og fjörefni kunni að vera mis- munandi að magni eftir tegund og þroska kornsins. Náttúru- lækningafélagið leggur höfuð áherzlu á, að kaupa aðeins til landsins beztu tegundir korns, þær eru að vísu dálítið dýrari í krónutali, en verða þó þegar allt kemur til alls ódýrari fyrir neyt- andann, þegar miðað er við gæði. Um þessar mundir fara fram viðræður í Vínarborg um friðar- samninga við Austurríki, en þau mál fengu skyndilega nýjar. svip eftir staðfestingu Parísarsamn- inganna. Ráðstjórnin breytti um stefnu, eftir 10 ára þjark, og féllst á að hefja friðarsamninga við Austurríki, kallaði forráðamenn landsins til Moskvu, tók höfðing- lega á móti þeim, og var hin ljúf- asta í öllum samningum. Austur- ríki á að fá fullt sjálfstæði eftir 10 ára hernám. Það skal vera hlutlaust í átökum stórveldanna, feta í spor Svisslendinga. Þegar er komið á daginn, hvað á bak við býr. Næsta varnarlína Rússa í Þýzkalandsmálunum er hlut- leysið. Eftir fullgildingu Parísar- samninganna á að benda á Aust- urríki sem fyrirmynd þess, sem Rússar geti sætt sig við um mál- efni Þýzkalands. Þannig á smá- ríki aftur að verða peð í tafli stórveldanna. Austurríkismenn sjálfir gera sér nokkrar vonir um að geta lát- ið hlutleysið gæta sín, en þó er ljóst, að aðstaða þeirra er allt önnur en Svisslendinga. Austur ríki var eitt sinn stórveldi og gnæfði hátt yfir Svissland; 37 ár- um eftir hrun keisaraveldisins er taflinu snúið við. Annars er fróð legt að minnast þess nú, að á Vín arkongressinum var það Alex- ander zar I., sem einkum beitti sér fyrir því, að hlutleysi Sviss lands væri viðurkennt. — í fram haldi hinnar nýju stefnu gagn- vart Austurríki, er að sjálfsögðu komin ný stefna gagnvart Sviss. í „Pravda“ í Moskvu var allt í einu skrifað vinsamlega um Svissland, og minnt á, að þar þró- þróast efnalega sjálfstætt og frið- sælt þjóðfélag í skjóli hlutleysis. En Ijóst er þegar í upphafi, að hlutleysi Austurríkismanna er brothættara egg en hlutleysi ná- granna þeirra í Sviss, sem aldrei hafa treyst yfirlýsingum og lof- orðum annarra til að gæta þess, heldur hafa annazt það sjálfir með harðsnúnum her og miklum herbúnaði. Ráðgert er nú, að Austurríkis- menn hafi 53000 manna lið undir vopnum og vísi að flugher, og með þessum liðskosti eiga þeir **pí^*«*^*'5-<í>->-*píbW-**<SM-*'í-5 að vernda hlutleysi lands síns og þeirra 7 milljóna manna, er það byggja. En Svisslendingar hafa 700.000 manna her til þess að vernda sitt land og þær 4.7 millj. manna, er það byggja. Her þeirra er ævinlega viðbúinn, og hann hefur verndað hlutleysi Sviss á liðnum áratugum, en það er eng- an veginn létt verk í heimi nú- tímans eins og örlög Belgíu- manna og fleiri þjóða sýndu í síðustu Evrópustyrjöldum. Austurríkismenn eiga þess tæplega kost, að verða gæzlu- menn peninga og viðskipta í stórum stíl eins og nágrannar þeirra í Sviss. Það er orðin út- breidd skoðun, að í Svisslandi sé öryggi, hvað sem á gengur í veröldinni, og þangað hefur því fjármagn leitað í stórum stíl. Svisslendingar eru orðnir lánar- drottnar margra þjóða. Þeir hafa haft úr miklu að spila. Austurríki mun ekki takast að koma slíku orði á. Vínarborg stendur á flatlendi, aðeins 50 km. frá járntjaldinu. Gjaldmiðill Austurríkismanna er háður eftir- liti, en er ekki frjáls eins og svissneski frankinn.' Austurríki hefur dregizt aftur úr í iðnaði og uppbyggingu. Svisslendingar hafa líka búið við frið um langan aldur, en saga Austurríkis er harmasaga. Tvær heimsstyrjald- ir, fjárhagslegt hrun, valdarán nazista, og síðan langvinnt her- nám, allt hefur þetta þjakað Austurríkismenn. Mikill hluti landsins er enn í stálgreipum Rússa. Austurríkismenn eiga fyrir höndum mikið endurreisn- arstarf. Að einu leyti standa Austur- ríkismenn betur að vígi en Sviss- lendingar. Land þeirra er auð- ugra frá náttúrunnar hendi. Þeir eiga til dæmis ágætar og auðugar olíulindir, þeir eiga meira skóga og þeir eiga málma í jörðu. Þeir hafa og góða aðstöðu til þess að verða miðstöð og skiptistöð við- skipta Vesturlanda og járntjalds- landa. Með lokum hernámsins, munu Austurríkismenn leggja sig fram um að gerast miðstöð aust- ur-vestur verzlunar, og gera sér allmiklar vonir um árangur. Loks keppa Austurríkismenn við Svisslendinga um ferðamenn. Náttúrufegurð lands þeirra er mikil, og jafnast á við Sviss. Þeir eiga fagra Alpadali og fjallavötn og umfram Sviss hafa þeir svo Vínarborg, hina glaðværu og fögru borg, sem enn lifir á fornri frægð og verður vafalaust aftur eftirsóttur ferðamannabær. Skin og skuggar eru á framtíð- arhimni Austurríkismanna. Enda lok hernámsins verða fagnaðar- efni, en óvissa sambúðarmála austurs og vesturs hvílir áfram yfir landinu. Hlutleysið verður brothætt gler ef önnur hvor stórveldablokkin telur sér hag í að brjóta það. Sem stendur telja bæði austur- og vesturblokkin bezt að landið sé hlutlaust, fen forsendur þess eru ólíkar í ausíri og vestri. Taflið um Þýzkaland heldur áfram.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.