Dagur - 04.05.1955, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 4. maí 1955
DAGUR
7
- Nýju ræktunarlögin
(Framhald af 1. síðu).
eins og er í ýmsum kaupstöðum
og sjávarþorpum.
Garðávaxtageymslur.
Framlag á garðávaxtageymsl-
ur, sem bætt var í lögin 1952, er
haldið óbreytt á steyptar, varan-
legar geymslur, en fellt niður á
geymslum byggðum úr torfi,
enda hefur mjög lítið verið gert
af þeim og skiptir því litlu fyrir
heildina.
Súgþurrkunarkerfi. ,
Lagt er til, að ríkið greiði fram-
lag á súgþurrkunarkerfi í þurr-
heyshlöður og sé það 5 kr. á hvern
fermetra í gólffleti hlöðunnar.
Þetta atriði er nýtt. Öllum ber
saman um nauðsyn þess, að sem
flestir komi súgþurrkun í hlöður
sínar. Þeir, sem það hafa gert geta
ekki nógsamlega lofað þá hey-
verkunaraðferð. Til þess þarf
mótor og blásara og svo timbur-
útbúnað (grindur, stokka) í hlöðu
gólfið, þar sem loftinu, sem ætl-
að er að fara jafnt upp í gegnum
allt heystæði hlöðunnar, er blásið
inn í (stokkana). eða undir (grind
urnar). Framlag ríkissjóðs er
miðað við það, að það sé sem næst
hálfvirði timbursins, er þarf í
gólfið, miðað við núverandi timb-
urverð; og verður þá bóndinn að
framkvæma verkið, greiða hinn
helming timbursins, kosta blásara
mótorinn og 'annað, sem til súg-
þurrkunar þarf. Þetta framlag
!er því fremur örvun til manna en
fjárstuðningur, þar sem um 2-3
þús5 kr. getur verið að ræða í
hlöðu, sem kostar með mótor og
blásara um 150 þús. kr. eða
meira. .. .........
Lagt er til, að á allt framlag
ríkissjóðs til jarðræktarfram-
kvæmda og húsbóta eftir lögun-
um verði greitt 15% álag.
5% til sameiginlegra þarfa.
Nú er ákveðið, að af öllu fram-
iagi ríkissjóðs renni 5% til sam-
eiginlegra þarfa búnaðarfélagsins
í þeim hreppi, sem jarðabótin er
unnin í. Þetta helzt óbreytt að
öðru leyti en því, að það er
lækkað í 3% af framlaginu til
vélgröfnu skurðanna.
Bráðabirgðaákvæði.
Tvö miklisverð ákvæði eru sett
til bráðabirgða. Þau eru, a. Að
framlag ríkissjóðs til handgraf-
inna skurða hækki úr 1 kr. á
rúmmetra í 3 kr. á þeim stöðum,
þar sem ekki er talið gerlegt, að
dómi Búnaðarfélags íslands, að
koma við skurðgröfu vegna flutn
ingaerfiðleika eða af öðrum á-
stæðum. Með þessu framlagi eiga
duglegir menn að geta haft verka
mannakaup með því að gera
skurði á jörð sinni og undirbúa
þannig ræktun hennar og ættu
því ekki að þurfa haust og vor að
fara í atvinnuleit að heiman. Þar
sem tún eru minni en 10 ha, en
það er nú á nálægt 4 þús. jörð-
um, er gert ráð fyrir, að grunn-
framiag ríkisins hækki úr 300 kr.
í 350 kr. á þ'a, þár til túnið'éf orð-
ið 10 ha að stærð.
- Dagskrármál
landbúnaðarins
(Framhald af 2. síðu).
minn gæti orðið skuldum hlaðinn
og brostið því getu til að gieiða
þau opinberu gjöld, sem eg
greiði árlega — og eru engar smá
upphæðir. Hann gæti líka, af
fjárhagslegum ástæðum, stöðvast
um of við nauðsynlegar og að-
kallandi framkvæmdir og um-
bætur. Ef eg nú hefði selt, en
snúið við blaðinu, hætt við að
leggja andvirðið inn á sparisjóð,
en lánað það til áframhaldandi
búreksturs, þá var það skattskylt.
Slíkt er að beina fénu frá, úr því
hitt er til.
Nei, þetta er ekki eins og það
á að vera. Burt með lögin um
skattfrelsi sparifjár í þeirri mynd,
sem þau eru nú, af því að þau eru
óréttlát og íþyngja landbúnaðin-
um. Burt með of hátt mat á búfé
bænda, af því að það íþyngir land
búnaðinum. (Mat á sauðfé er
hæfilegt eins og það var. Ærin
með lambi gerir á þeim eina
markaði, sem til er, um 500 kr., og
má bæta þar við tvílembingum.
Lömbin eru sett á til að viðhalda
stofninum. Matið var því mjög
nærri lagi: Ærin 300 kr., geml.
200 kr.).
,Eg segi enn: Það verður að beina
fjármagninu inn í landbúnaðinn.
Það er öllum fyrir beztu og mun
sízt skaða önnur nauðsynleg störf
í landinu.
14. apríl 1955.
Jón H. Þorbergsson.
Telpi
. FOKDREIFAR
(Framhald af 4. síðu).
liggur eins og hrftViði tim ]£indiðí
innan givðingar, , ýmist spýtna
brak og aðrar leifar frá bygg
ingu sundhallarinnar, sem ekki
hefur verið hirt um að þrífa af
tjarnarlóðinni, eða bréfpokar og
annað, sem börn eða miður um-
gengnisgott fólk, hefur fleygt inn
fyrir girðingu. Mév var sagt frá
því, að ein af nefndum bæjarins
hafi lagt til, að hengja umönn
unarskylduna við tjörnina ;
leigjendur húss þess, sem brerinn
á þar í grennd. Er því lítið um
það hugsað, hver er hæfur til
þess að sinna því starfi. Víst mun
það satt vera, að allt síðan Finn-
ur hvarf úr þjónustu bæjarins
hafi slóðaskapur og hirðr.leysi
einkennt umgengnina við anda-
tjörnina. Að lokunr Skyldi fram-
kvæmdastjóri bæjarins nokkru
sinni á ævinni hafa komið upp í
fuglagil?“
Blaðið vill taka undir, að ckki
megi þola að fuglatjörnin lcndi í
óhirðu. En spurningu bréfritar
ans um ferðalög bæjarstjóra get-
ur blaðið því miður ekki svarað.
Stúlku
eða ungling vantar mig
til heimilisstarfa maí og
júnímánuð.
Marteinn Friðriksson
Sími 21S0
Kvenmannsarmbandsúr
í stálkassa með stálarm
bandi tapaðist við sund-
laugina 27 f. m. — Finn
andi skili því vinsamleg
ast á afgr. Dags. Fundar
laun.
8—10 ára óskast á sveita-
heimili í sumar.
A. v. á.
Stúlka
óskast nú þegar í eldhús
Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri. — Upplýsingar
í sima 1294
Trésmíðavélar
til sölu, einnig borstofuborð
og 4 stólar úr eik, hjá
Kristjáni Sigurðssyni
Brekkugölu 5.
Vörubíll til sölu
Chevrolet, smíðaár 1941 í
góðu lagi til sölu. Ný dekk
geta fylgt. Uppl. gefur
Sveinbjörn Halldórsson
mjólkurbilstjóri
Til sölu
eða leigu 2 sexmanna fólks-
bílar. Góðir skilmálar. —
Einnig hefi ég til leigu yiýj-
an fólksbíí í lengri og
skemmri ferðir.
Guðmundur Jóiiasson
,GránuS.élagsg. 15
Simi 1301
Til sölu
6 manna Plymouth model
1942 í góðu lagi.
Afgr. vísar á.
KSf&irc ií'ci B * IlfcttitciiCCf
I. O. orp. 2 — 13756814 — I. —
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 2 e. h.
Sálmar: 4, 17, 240, 241 og 58.
K. R.
Guðsþjónustur í Grundar-
þingspresíakalli.
Hólum, sunnudaginn 15. maí kl. 1
e. h. (almennur bænadagur)
Möðruvöllum, sama dag kl. 3 e.h.
Fermingarbörn beðin að mæta í
Barnaskóíanum að Syðra-Lauga-
landi mánudaginn 16. maí kl. 1
e. h. Hafi með sér sálmabók,
Biblíusögur og bólusetningar-
vottorð.
Áttatíu og fimm ára verður n.
k. föstudag Erlendur Erlendsson
frá Jarðlangsstöðum í Mýrar-
sýslu, nú á elliheimilinu í Skjald-
arvík. Erlendur stundaði lengi
skósmíðar í Seyðisfirði og Vopna-
firði, en hefur dvalið hér síðustu
árin. Hann er vel ern.
Skrifstofa Áfengisvarnamefnd-
ar Akureyrar er opin í Skjald-
borg á mánudögum, miðvikudög-
um, fimmtudögum og föstudög-
um kl. 6-7 síðdegis.
Kvennasamband Akurevrar
(Eining, Hlíf og Framtíðin) held-
ur fund í Verzlunarmannafélags-
húsinu, Gránufélagsgötu 9,
fimmtudaginn 5. maí kl. 8.30 e. h.
Fundarefni: Kosning fulltrúa á
fund S. N. K. og Landsþing K. í.
Onnur mál. — Stjórnin.
Fíladelfía Lundargötu 12, Op-
inberar samkomur verða á
fimmtudag, föstudag, laugardag
og sunnudag- kl. 8.3Q e._ h. alla
dagana. — Guðmundur Markús-
son frá Reykjavík, talar á þess-
.um samkomum. — Allir vel-
'komnir.
Ársrit Ræktunarfélags Norð-
urlands, sem Ræktunarfélagið og
Skógræktai-félag Eyfirðinga, gefa
út í félagi, er nýkomið út. Er það
l. hefti yfirstandandi árg., sem er
sá 52. í röðinni. Heftið flytur
þrjár greinar eftir ritstjórann,
Olaf Jónsson. Fyrst er ávarp til
lesenda, þá greinin „Látið móðan
mása“, erindi flutt í Bændaklúbb
Eyfirðinga í marz s.l., og loks
greinin „í skólum“, en þar segir
Ólafur frá ferð sinni í ýmsa fiam-
haldsskóla á s 1. vetri og frá úr-
lausn nemenda á verkefnum, sem
hann fékk þeim í hendur. En sú
grein er hin fróðlegasta. Þá ritar
Steindór Steindórsson greinina
„Eigum vér að fjölga plöntuteg-
undunum í landinu?" Loks eru
ritfregnir. Heftið er 48 bls.
Gullbrúðkaup. Sigríður Kol-
beinsdóttir og Þorlákur Mar-
teinsson, frá Veigastöðum, nú til
heimilis á Laufásvegi 52 Rvik,
áttu 50 ára hjúskaparafmæli 1.
maí síðastliðinn.
Munið bifreiðaskoðunina. Sam-
kvæmt áður augl. hófst skoðun
bifreiða 4 lögsagnarumdæmi
Eyjafjarðar í gær. í dag eiga að
mæta til skoðunar: A 50—100, á
morgun 101—150, á föstudaginn
151—200. Skoðun fer ekki fram
á laugardag.
Torgsala á plönfum
frá garðyrkjunni Fífilgerði, verður við afgreiðslu Morg-
unblaðsins föstudaginn 6 maí og hefst kl. 8 f. h.
Seld verða aðallega barrtré, blágreni, sitkagerni, rauð-
greni og lerki, 40—80 sm. á hæð. Einnig nokkrar rósir
og fl.
Slysavamafélagskonur, Akur-
eyri: Ef einhverjar ykkar hafa
hugsað sér að gefa föt eða borð-
áhöld til skipbrotsmannaskýlis-
ins í Fjörðum, væri þaS með
þökkum þegið og æskilegt að
koma því' sem fyrst. til eftirtal-
inna kvenna: Guðfinnu Hall-
grímsdóttur, NorSurg. 53, Sigur-
laugar Skaptadóttur, Hlíðar-
götu 1, Önnu Sveinsdóttur,
Möðruvallastræti 8, og Jónu
Friðbjarnardóttur, Aðalstræti 34.
Frá Golfklúbbnum Allir kylf-
ingar eru beðnir að mæta til
vinnu á vellinum í kvöld kl. 8
ef veður leyfir. Þeir, sem tök hafa
á að koma með skóflur, eru beðn-
ir að gera það.
Frá Golfklúbbnum: Sunnudag-
inn 1. maí var 18-holu forgjafar-
keppni háð á golfvellinum. Leikn
ar voru 3 umferðir af litla
hringnum með fullri forgjöf.
Urslit urðu þessi: 1. Gestur
Magnússon, 69 högg nettó, 2.
Gunnar Konráðsson, 75 högg
nettó, 3. Sigurbjörn Bjarnason,
75 högg nettó, og 4. Jón Guð-
mundsson, 77 högg nettó.
Bólusetning. Héraðslæknirinn
Jóhann Þorkelsson hefur tjáð
blaðinu, að ekki muni bólusetn-
ing gegn mænuveiki hefjast fyrr
en um miðjan þennan mánuð,
vegna áframhaldandi athugana
á bóluefninu erlendis.
Áheit á Æskulýðsfélagið kr.
100.00 frá félaga. Kærar þakkir.
P. S.
Hjónaefni. Hinn 26. f. m. opin-
beruðu trúlofun sína í Stokk-
hólmi, ungfrú Guðrún Björns-
dóttir, verzlm. Þóvðarsonar, Ak.,
og Árni Gunnarsson háskóla-
nemi, prests Árnasonar, Rvík.
Herbergi
til leisru í Brekkugötu 1 B.
Vélritun
Get tekið til vélritunar alls-
konar Iiandrit.
Ingólfur Þormóðsson
Simi 2197
Vauxhall 12
Smíðaár 1947 til sölu. Mjög
vel með farinn.
A. v. á.
SAPA HINNA VANDIATU